Þjóðviljinn - 14.06.1972, Side 2
2.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN— Miðvikudagur 14. júni 1972.
sem nú hafa
árætt jökulflug”
Sigurjón Rist, vatnamælinga-
maður. (ljósm. A.A.)
Eins og skýrt var frá i
biaðinu á sunnudaginn,
vann áhöfn Gunnfaxa,
Flugfélags islands, það
ágæta flugafrek á laugar-
daginn var að lenda á
Bárðarbungu og hefja sig
þaðan til flugs aftur.
Einn í hópi þeirra, sem í
vélinni voru, var Sigurjón
Rist, vatnamælingamaður.
Blaðið hafði tal af Sigur-
jóni og bað hann að segja
lesendum frá ferðinni og
einnig að rifja litillega upp
sögu flugs á Bárðarbungu,
en Sigurjón var einmitt
einn þeirra, sem þátt tóku í
björgun farþega úr Geysi,
er hann fórst á Bárðar-
bungu árið 1950.
Sigurjóni sagðist svo frá:
Þetta langþráða flug tókst mjög
vel, en við jöklamenn höfum von-
azt eftir þessu flugi siðastl. 20
ár. t Þjórsárverum, sunnan Hofs-
jökuls, var kastað niður pinklum
til fuglafræðinga, sem þar vinna
að rannsóknum undir stjórn Arn-
þórs Garðarssonar, en hann og
i'lugstjórinn i þessari sögufrægu
ferð, Geir Garðarsson, eru bræð-
ur.
Lendingin á Bárðarbungu var
mjög ijúf og góð, eins og flug-
stjórinn sagði ykkur i sunnudags-
blaðinu. Yfirborð jökulsins var
rennislétt eins og fótboltavöllur:
harður sléttur snjór, þó ekki það
sem flokkast undir harðfenni,
stélhjólið sökk i.
Flugtakið gekk mjög vel, en ti)
þess þurfti vélin 1500 metra
braut, og skildist mér að það hefði
verið eitthvað lengra en gert
hafði verið ráð fyrir.
Það var ranghermi hér i blað-
inu á sunnudaginn, þar sem sagt
var að kvenkokkurinn i leiðangri
visindamannanna, hún Fia
(Soffia Theodórsdóttir) hafi kom-
ið i bæinn með vélinni. Hún er bú-
in að ákveða að halda út, svo lengi
sem staðið verður að leiöangrin-
um, og það yrði þá blaðafrétt, ef
hún stæði ekki við það heit sitt.
Það er mjög ánægjulegt, að
unnið skuli að þessum störfum
þarna á jöklinum, en borinn er nú
kominn 85 metra niður, en gera
má ráð fyrir að takist að bora 300-
400 metra i sumar.
Eins og fram hefur komið, er
borinn smiðaður af þeim Raun-
visindadeildarmönnum hér
heima, og við ýmsa byrjunar-örð-
ugleika hefur verið að etja en úr
þeim hefur leiðangursmönnum
tekizt að bæta.
Að öllum likindum hefur ösku-
lag frá öskjugosinu 1961 fundizt
á 30metra dýpi. Borunin fer fram
i um 1850 metra hæð sunnan i
Bárðarbungu, en á þann stað má
gera ráð fyrir að talsverður snjó-
burður sé að vetrinum.
Það sem mönnum þykir merki-
legast er, að þegar komið var niö-
ur á 40 metra dýpi i boruninni,
kom vatn i holuna, og þar fyrir
neðan er glær is, og holan stendur
ætið full af vatni upp að 40 metra
mörkunum. Ausið hefur verið upp
úr holunni allmiklu vatni án þess
að nokkurrar breytingar hafi ori5-
ið vart.
Það hefur alltaf verið mönnum
hulin ráðgáta hvernig vatn hreyf-
ist i og undir jökli, og erum við
hér komnir að atriði, sem með
áframhaldandi rannsóknum fæst
vonandi skýring á, en þetta atriði
snertir orkubúskap okkar.
Heimsskautajöklar, sem eru
gaddfreðnir niður i gegn, hafa
verið rannsakaðir rækilega á sið-
ustu árum, og sömuleiðis ýmsir
brattir smájöklar i Noregi og
Sviss, en Vatnajökull er i sér-
flokki: stór, tempraður, þ.e. hita-
stigið er 0 gr. niður i gegn, en i
heimsskautajöklunum, sem eru
gaddjöklar, er frost, svo vatn
kemst ekki niður um þá.
1 framtiðinni, þegar umfangs-
mikil verkefni verða unnin á jökl-
i, verður snjóbilaleiðangur, léttur
i vöfum, stendur fyrst inn á jökul-
inn og flugvélar siðan látnar ann-
ast aðflutninga, það er álit mitt.
Þeir eiga þakkir skyldar, flug-
maðurinn, Geir Garðarsson og
orkumálaráðherra, Magnús
Kjártansson, fyrir að fram-
kvæma þessa tilraun með lend-
ingu á jöklinum. Og það er lika
gott til þess að vita, að orkumála-
ráðherra setji sig sem bezt inn i
þau störf, sem þarna eru fram-
kvæmd, þar eð jöklar gripa að
veigamiklum hluta inn i orkubú-
skap landsins.
Geysisslysið
Þegar við svifum yfir Bárðar-
bungu, og verið var að undirbúa
lendingu, komu upp i huga minn
myndir frá 1950, þegar ég var i
flugvélinni Vestfirðingi ásamt
Einari Pálssyni, verkfræðingi,
sem einnig var með i þessari ferð
nú, en við Einar höfðum verið
Borhúsið. Þetta refta snjóhús reistu leiðangursmenn yfir borverkið.
Ljósmyndirnar af jöklinum tók góðkunnur jöklafari, Arni Kjartansson.
Hann tók einnig kvikmynd þar efra, á vegum Magnúsar Jóhannssonar,
en kvikmynduninni heldur nú áfram Valur Jóhannesson. Sigurjón Rist
sagði þá félaga vinna merkt starf meö kvikmyndun sinni, en með henni
fæst heildarmynd af gangi verksins.
i
fengnir til að staðsetja Geysis-
flakið á jöklinum, þegar Akureyr-
arleiðangurinn var á leið á jökul-
inn, til þess að bjarga fólkinu af
slysstað.
Með lóran og öðrum aðferðum
hafði verið reynt að staðsetja
Geysi, en þær mælingar allar
Frh. á bls. 15
G
Páll Theodórsson, eðlisfræðingur
og Magnús Eyjólfsson, sem er
velþekktur jöklafari, við borinn á
jöklinum.
Sigurjón Rist segir frá flugferðum á Bárðarbungu