Þjóðviljinn - 14.06.1972, Side 5
Miðvikudagur 14. júni 1972. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5.
□ Stúdentar — sem stjórnin kallaði hass-
reykjendur — undu því ekki lengur að nema
aðeins úrelt nýlendufræði.
□ Þeir höfðu forgöngu um uppreisn gegn þrúg-
andi stjórnarfari og almenningur tók und'ir við
þá og felldi stjórnina.
□ Ef til vill skánar námsefnið en tæplega batna
lífskjörin og Frakkar sitja manna fastast í
herstöðvum sínum.
□ Á rústum gamla stjórnarfarsins reis nýr ein-
valdur, sem sér lögum og reglu bezt borgið í
samvinnu við gamla nýlenduveldið.
anlega aðeins að vinna sér lýð-
hylli. Og hann lofaði að bæta
hlut bænda. En einu lofaði hann
ekki, og það var að hafa sjálf-
stæðari stefnu gagnvart gamla
nýlenduveldinu Frakklandi. Þeir
sem til þekkja vita, að hann er
erkiíhafdssamur lýðskrumari, og
Tsiranana gat ekki valið eftir-
mann sem líklegri var til að
halda fram hans eigin stefnu.
Bara þeir verði ekki
sjálfstæðir í utanríkis-
málum!
Vel má vera að Tsiranana
finnist snautlega með sig farið
eða hann svikinn, en einn aðili
má vera ánæægður með mála-
lokin, og það er franski sendi-
herrann. Frönsk yfirvöld hafa
tengi reiknað hálfvegis með því
að ítök í efnahagslífi fari eitt-
hvað rénandi, og þau eru til-
búin að sætta sig við það. Það
sem þau óttuðust að fall Tsiran-
ana mundi færa með sér, var
ríkisstjórn, sem hefði í grund-
vallaratriðum aðra utanríkis-
stefnu, stjórn sem kynni að segja
upp herstöðvasamningnum við
Frakka og taka að spila á áhrif
Sovétríkjanna og Kínverja á
Indlandshafi. Frökkum er mikið
í mun að halda þeim utanríkis-
pólitísku áhrifum, sem nýlendu-
veldi þeirra veitti þeim á sínum
tíma og þeir njóta enn að veru-
legu leyti, þ. á. m. á svæðinu
umhverfis Madagascar. Þarna eru
þeir varðhundar alþjóðlegra
kapítalískra hagsmuna, því að
Indlandshaf hefur mikla efna-
hags- og hernaðarþýðingu vegna
olíuflutninga. Og það er ekki
meiningin hjá olíúhringum
Vesnirlanda að þurfa að eiga
mikilvægar samgöngur undir
kínverskri eða sovézkri vernd.
Enn sem komið er gætir áhrifa
Sovétmanna og Kínverja sáralít-
ið á Indlandshafi, og það er
áhugamál hlutlausra ríkja að
hafið verði ekki vettvangur víg-
búnaðarkapphlaups. En hin
gömlu nýlenduveldi em líka til
alls vís til þess að tryggja áhrif
sín. Ef til vill er hlumr Frakka
í því að byggja upp sterka stjórn
í Malagasý-lýðveldinu eftir óum-
flýjanlegt fall Tsiranana meiri en
komið hefur fram í fréttum til
þessar.
(Heimildir:
Time, N. Observateúr).
Ramanantsoa hershöfðingi, hinn nýi einvaidur á Madagascar.
Vestinannaeyingar verða eflaust manna fegnastir ályktun Náttúruverndarþings um friðun Helgafeils,
enda er fegurð fjalisins farin að láta á sjá einsog sjá má á myndinni. Þó ber aö þakka forráöamönnum
Vestmannaeyjakaupstaöar þá tillitssemi aö iáta grafa I þetta fegursta keilufjall Evrópu frá bakhliðinni,
þ.e. þeim megin sem frá kaupstaönum snýr. Hörmungin sést þá ekki nema maður geri sér ferð á bak við
fjallið. — Myndirnar tók Haukur Már.
NÁTTÚRUVERND
Óbyggðaakstur: Hér má glöggt sjá, að reglugerð um akstur öku-
lækja i óbyggðum cr nauðsynleg. Myndin er tekin á Þingvöllum að
afiokinni hvitasunnu.
óbyggðaakstur
Náttúruverndarþing beinlr
þeim tilmælum til Náttúru-
verndarráðs, að reglur um aksr-
ur ökutækja í óbyggðum verði
settar sem fyrst (sbr. 13. gr.
náttúruverndarlaga):
a) að bílaslóðir verði merktar
skiimerkilega;
b) að þær verði merktar á
vegakort;
c) að meginslóðir verði Iag-
færðar með ofaníburði og
ræsum, þar sem hætta er
á vatnsgrefti og uppblæstri;
d) að unnið verði að fræðslu
um akstur og umgengni á
öræfaslóðum.
Náttúruvernd
við jarðvinnu
Náttúruverndarþing beinir
þeim tilmælum til Náttúru-
verndarráðs, að það beiti sér
fyrir stóraukinni fræðslu um
náttúruvernd í sambandi við
alla jarðvinnu (sbr. 17. og 18.
gr. náttúruverndarlaga).
a) með fræðslu á námskeiðum
fyrir verkstjóra og stjórn-
endur vinnuvéla, jarðverk-
taka og tækni- og verkfræð-
inga;
b) með kynningarspjöldum í
vinnuvélum og á vinnustöð-
um, þar sem jarðvinna fex
fram;
c) með námskeiðum um nátt-
úruvernd í tækniskólum,
búnaðarskólum og verk-
fræði- og raunvísindadeild
Háskóla íslands;
d) með því að hafa tiltækan
fyrirlesara um náttúruvernd-
armál fyrir námskeið og
ráðstefnur.
Setning reglugerða
Náttúruverndarþing beinir
þeim tilmælum til Náttúru-
verndarráðs, að það hlutist til
um að hraðað verði setningu
reglugerðar samkvæmt 29. gr.
náttúruverndarlaga.
Breytt viðhorí
til votlendis
Náttúruverndarþing beinir
þeim tilmælum til Náttúru-
verndarráðs, að það leiti sam-
starfs við búnaðarsamtökin um
endurskoðun á ríkjandi við-
horfum til framræslu votlendis.
Friðlýsing
Vatnsfjörður í Vestur-Barða-
strandarsýslu, enda er land
þetta þegar í ríkiseign.
Jökulsárgljúfur í Þingeyjar-
sýslu. Undirbúningur þessa
máls er þegar vel á veg kom-
inn hjá Náttúruverndarráði, en
nauðsyn ber til að koma mál-
inu í höfn hið fyrsta.
Mývatns- og Laxársvæðið.
Unnið verði markvisst að
verndun þessa svæðis, eftir því
sem náttúruverndarlög frekast
leyfa og samkomulag tekst um.
Þjórsárver við Hofsjökul.
Náttúruverndarþing styður ein-
dregið þá tillögu Náttúruvernd-
arráðs um friðlýsingu Þjórsár-
vera og skorar á menntamála-
ráðuneytið að staðfesta hana
hið fyrsta.
Fólkvangur
Fólkvangur á Reykjanes-
skaga. Þingið styður eindregið
fyrirhugaða stofnun fólkvangs
á Reykjanesskaga og hvetur
hlutaðeigandi sveitarfélög til að
sameinast um framgang máls-
ins.
Hreindýravernd
Náttúruverndarþing hvetur
til þess, að rannsóknum á beit-
arvenjum og fæðuvali íslenzka
hreindýrastofnsins verði haldið
áfram með það að markmiði,
að hægt sé að taka skynsam-
lega ákvörðun um stærð stofns-
ins í framtíðinni.
Jafnframt leggur þingið til,
að skipulag hreindýraveiðanna
verði endurskoðað frá grunni.
Friðun Helgafells
Fyrsta Náttúruverndarþing,
haldið í Reykjavík 14. og 15.
apríl 1972, skorar á Náttúru-
verndarráð að stuðla að því,
að skipuð verði nefnd til að
vinna að friðun Helgafells í
Vestmannaeyjum. .
Hlutverk nefndarinnar verði,
auk friðunar Helgafells, að
benda á Ieiðir til öflunar mal-
ar- og byggingarefnis í Vest-
mannaeyjum og lagfæringar á
þeim skemmdum, sem unnar
hafa verið á Helgafelli.
í nefndina verði kosnir:
Tveir fulltrúar frá Náttúru-
verndarráði. Tveir fulltrúar frá
Náttúruvemdarnefnd Vest-
mannaeyja. Einn fulltrúi frá
bæjarstjórn Vestmannaeyja.