Þjóðviljinn - 02.07.1972, Síða 7

Þjóðviljinn - 02.07.1972, Síða 7
Sunnudagur 2. júli 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7. Guðmundur G. Þórarinsson, formaður SSt hefur ekki átt náðuga daga undanfarnar vikur. Er við litum inn á skrifstofu Skáksambandsins i vikunni, sleppti hann varla simtólinu, og honum til aðstoðar var þessi fallega stúlka, og hún komst heldur ekki úr simanum eitt augnablik. Skákeinvígi aldarinnai Undirbúningur þess og aðdragandi hefur verið einhver sá erfiðasti og sérstœðasti sem vitað er um. Það mun álit manna, sem bezt þekkja til, að HM-einvigi þeirra Spasskis frá Sovétrikjunum, núverandi heimsmeistara, og Bobby Fischers frá Banda- rikjunum, sé skákeinvigi aldarinnar, og sumir segja ein- vigi allra tima. Hvort heldur er, þá er það vist að aldrei fyrr i sögunni hefur annað eins gengið á við að koma skákeinvigi af stað og að þessu sinni. Sjálfsagt er öllum hér á landi i fersku minni allur aðdragandi einvigisins, sem á að hefjast i dag, en hér verður reynt að lýsa undirbúningi þess i stórum dráttum. Eftir að Fischer hafði unnið þá Bengt Larsen, Tæmanoff og Petrosjan með einstæðum glæsibrag, lét FIDE, Alþjóðaskáksambandið, gera tilboð i að halda þetta einvigi þeirra Spasskis og Fischers. Eins og menn eflaust muna var Island með eitt af hæstu tilboðunum i þetta einvigi, og þannig æxluðust máiin, að Júgóslavar, sem i upp- hafi höfðu hagstæðasta tilboðið, voru útilokaðir frá að halda ein- vigið einir, vegna þess að Spasský neitaði að tefla þar, og einviginu var skipt á milli Belgrad og Reykjavikur. Þá var komin þykkja i Júgóslava, og þeir heimtuðu tryggingu fyrir þvi að Fischer kæmi til einvigisins. Þegar sú trygging fékkst ekki, gengu þeir frá að halda það að hálfu og þar með, eftir langt samningaþóf, fékk lsland eða réttara sagt Skáksamband lslands allt einvigið. Mikið hafði að visu gengið á áður en það var á hreinu. En i algrófustu dráttum gengu málin svona fyrir sig. Þegar hér var komið og ákveðið var að allt einvigið færi fram hér, hófst hinn mikli undirbúningur þess. Flestir töldu timann alltof skamman og vissulega var hann þáð, enda hefur margt verið hér á siðasta snúning allt fram á þennan dag. Að visu var búið að ganga frá ýmsu hér heima löngu áður en ákveðið var að einvigið færi hér fram. Má þar sem dæmi nefna, að búið var að tryggja Laugardals- höllina, gistingu fyrir keppendurna, farþegaflutninga og margt fleira. Hins vegar breyttist þetta nokkuð þegar ein- vigistiminn breyttist. Fyrst var fyrirhugað að einvigið færi fram i vor, en vegna allra þeirra vandræða sem upp komu var ákveðið að einvigið færi fram i sumar Nú siðustu v ikurnar hefur mikið gengið á. F'orráðamenn Skák- sambands Islands hafa ferðast erlendis og haidið blaðamanna- fundi, staðið i samningum við hina og þessa aðila um sölu á nær öllu sem að þessu einvigi snýr. Sala einkaréttar á kvikmyndun, ijósmyndasölu, sjónvarps- sendingum, fréttasendingum, hver fengi að borga miljón fyrir að gefa skákklukkuna, og sala á bókstaflega öllu sem að einviginu snýr. Tryggja þurfti húsnæði fyrir þá gesti sem koma mundu til að fylgjast með einviginu, einbýlis- hús handa keppendunum fyrir utan sviturnar á Hótel Sögu og Hótel Loftleiðum, gera þurfti miklar breytingar og lagfæringar á Laugardalshöllinni ef hún ætti að fullnægja þeim skilyrðum sem sett voru til að einvigið gæti farið þar fram. Opna þurfti skrifstofu til að vera miðstöð alls þess sem um var að vera. Undanfarna daga hefur þessi skrifstofa verið eins og suðu- pottur. Allt hefur verið þar á ferð og flugi. Simarnir hafa verið rauðglóandi vegna stöðugra hringinga hvaðanæva úr heiminum út af hinu og þessu. Þegar sjálfur heimsmeistarinn, Boris Spasski, kom svo til landsins um siðustu helgi jukust annir Skáksambandsins enn, þvi að nú þurfti að sinna óskum heimsmeistarans i hverju sem var, gæta hans fyrir ónæði blaða- manna og ljósmyndara, auk margs annars. En aðal höfuðverkurinn undan- farna daga hefur samt verið áskorandinn, Bobby Fischer, elzta undrabarn veraldar. Kemur hann eða kemur hann ekki, hefur verið spurning sem allir, sem einhvern áhuga hafa á skák, hafa verið að velta fyrir sér. Þá hafa allt i einu komið fram kröfur frá honum um enn hærri greiðslur en áður var um samið og einnig um að hann sætti sig ekki við v—þýzka stór- meistarann . Lother Schmidt sem dómara, og var það þvert ofan i það sem um hafði verið samið. Þetta voru bara ein vandræðin enn frá hendi Fischers og eru þau þá sennilega orðin óteljandi. Skákborðið var ekki hvað minnsti liðurinn i undirbúningi þessa einvigis. Skáksambandið ákvað að borðið skildi gert úr islenzku grjóti, en þegar til átti að taka varð að fá marmara i hvitu reitina á borðinu, en i hina svörtu var hægt að nota islenzkt gabbró. Þá var sjálft borðið smiðað hér heima úr massivu mahoni og hafa menn vart séð glæsilegri grip en þetta skákborð. Að einviginu loknu verður þetta borð fært Þjóðminjasafni fslands að gjöf. Þá hefur ekki svo litið gengið á hér á landi siðustu viku vegna komu tuga erlendra fréttamanna til landsins. Þeir hafa verið ánægðir með margt sem að þeim hefur snúið hér, en þeir hafa lika verið óánægðir með margt það sem Skáksambandið hefur gert, einkum þá ráðstöfun að tak marka fréttaflutning af einviginu, og að leyfa ekki myndatöku við setningu ein- vigisins. Þegar þessi skrif berast fyrir sjónir lesenda er runninn upp hinn mikli dagur. Skákeinvigið um heimsmeistaratitilinn hefst i dag. Úr þessu þýðir ekki að vera með neinar vangaveltur um eitt eða annað. Fyrsta leikinn i 24ra skáka einviginu á að leika i Laugardalshöllinni i dag og þar með er þetta margrædda einvigi hafið. —S.dór Enn um skák- frímerkið Sunnudaginn 2. júli n.k. koma út ný frimerki i tilefni af skák- einviginu. Bréfapóststofan, Pósthús- stræti 5, verður opin þennan dag frá kl. 9—16, og fer þar fram venjuleg útgáfudagsstimplun. Þá verður starfrækt sérstakt pósthús i Laugardalshöllinni þar sem sérstakur póststimpill, helgaður einviginu, verður notaður. Pósthúsið i Laugardalshöll- inni verður opið á sunnudaginn frá kl. 9—16 fyrir almenning, en siðar um daginn verður það ein- göngu opið fyrir gesti skák- mótsins. Smurt brauð Snittur Brauðbær Sími 20-4-90 Það ætti ekki að væsa um „undrabarnið” Fischer i þessum vistlegu stólum fyrir framan skákborð i DAS—húsinu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.