Þjóðviljinn - 02.07.1972, Síða 11
Sunnudagur 2. júli 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11.
I minningu Sigríðar
Þorgrímsdóttur
frá Laugamesi
F. 28. febrúar 1911.
D. 25. júni 1972.
Við óvænt fráfall Sigriðar frá
Laugarnesi, þeirrar ágætu konu,
sækja minningar frá bernsku- og
uppvaxtardögum þaðan innan að
sterkt á hugann.
Ekki var ónýtt fyrir ungan
dreng að kynnast opnum huga
rausnarheimili þeirra hjóna Ingi-
bjargar og Þorgrims i Laugar-
nesi, foreldra Sigriðar. Gestrisnin
og ljúfmennskan mótuðu
heimilisbraginn. Þar voru allir
velkomnir. Börnin þeirra voru
mörg, öll vaxin úr grasi utan
Gestur, þegar hér var komið, en
meira og minna tengd heimilinu.
Þau tóku i arf beztu eiginieika
foreldra sinna.
Sigriður var hóglát stúlka um
tvitugt og starfaði, þegar ég man
fyrst, i verzlun á horni Laugar-
nesvegar og Sundlaugavegar,
sem þau systkin ráku i félagi við
föður sinn. Sigriður var dugandi
verzlunarmaður.
Um þetta leyti giftist hún Eiriki
Magnússyni kennara, einúm af
stofnendum Máls og menningar.
Reistu þau bú gegnt Laugarnes-
bænum, að Laugarmýrarbletti 33,
og bjó Sigriður þar lengst af sið-
an.
Eirikur var eitt mesta göfug-
menni, sem ég hef kynnzt. Hann
var kennari minn siðustu árin i
barnaskóla. Laðaðist ég að þeim
hjónum og var mjög elskur að
heimili þeirra. Þangað var svo
gott að koma og ljúft þar að dvelj-
ast daglangt og oft fram á kvöld.
Lyndiseinkunn þeirra hjóna
skapaði þann heimilisbrag, að
erfitt var frá aö hverfa. Veit ég
enga mér óvandabundna, sem ég
á eins mikið að þakka frá ung-
lingsárunum.
Eirikur var borinn æskulýðs-
leiðtogi. Hann starfaði mikið með
okkur nemendum sinum utan
kennslunnar, — skipulagði
sýningar og skemmtanir, svo að
foreldrar mættu kynnast skóla-
starfinu betur og afla um leið
nokkurs fjár i ferðasjóð. Hann
kom þvi til leiðar, að við, fyrsti
fullnaðarprófsárgangur Laugar-
nesskólans, tókumst ferð á hend-
ur i miðri kreppunni allt norður
að Mývatni, og þykist ég vita, að
pyngja þeirra hjóna hafi ekki
þyngzt við þá ferð. Sú ánægja og
gleði, sem förin veitti börnunum,
var þeim hjónum umbun að
skapi. Ferðin er ein fegursta
minning bernskuára minna.
Hér lauk ekki tryggð þeirra við
þennan hóp. Við stofnuðum Ung-
mennafélagið Byrjanda að
áeggjan Eiriks, og þau lánuðu
okkur land undir kartöflugarð og
aðgang að húsi sinu til funda-
halda, hvenær sem óskað var.
A heirhilí þeirra komu margir
ungir menntamenn. Man undir-
ritaður fáar unaðsrikari ánægju-
stundir frá þeim árum en að fá að
teyga i sig orðræður þeirra og
hjónanna.
Eftir á hefur mig oft furðað á,
hve umburðarlynd þau voru við
mig og góð að taka mig sem einn
af heimilismönnum löngum
stundum.
Þau eignuðust einn dreng,
Þorgrim, ágætan og elskulegan,
sem siðar nam verkfræði og vinn-
ur viö þau störf hér i Reykjavik.
Sá skuggi hvildi á þessu yndis-
lega heimili, að Eirikur var oft
heisuveill. Hann lézt eftir langa
vanheilsu og þunga legu haustið
1941. Mikill harmdauði öllum,
sem hann þekktu. Sárastur var
söknuður ungu ekkjunnar og litla
drengsins, en mörgu öðru barni
og unglingi glitraði tár á hvarmi
og fannst heimurinn sortna, — sól
skjótt hafa brugðið sumri.
Sigriður vann bug á hörmum
sinum, og kom nú enn i ljós
atorka hennar og dugur. Hún setti
á fót bókabúð, þá fyrstu i Laugar-
neshverfinu, og verzlaði um
margra ára skeið.
Drengurinn óx og varð hvers
manns hugljúfi. Alltaf stóð
heimili þeirra opið þeim, sem áð-
ur höfðu þangað sótt.
Á Kirkjusandi, neðan Laugar-
nesvegar, voru tvær fiskvinnslu-
stöðvar á fyrrnefndum árum,
Ytri- og Innri-Kirkjusandur. Þar
voru miklir fiskreitir-og fiskurinn
sólþurrkaður. Húsmæður i
nágrenninu, svo og unglingar,
störfuðu mikið að þessari verkun
auk nokkurra karlmanna. A
sumrum var einkum þörf fyrir
aukinn vinnukraft. Verkstjórar
voru þar dugandi menn. A Innri
sandinum var Valdimar Þórðar-
son verkstjóri um 1930, ungur að
árum og kappsfullur athafna-
maður. Hann sýndi nokkrum
börnum þann skilning á athafna-
þörf þeirra að lofa þeim að taka
þátt i starfi þeirra fullorðnu, þótt
ekki væri það til flýtisauka alla
tið. Af ljúfmennsku sinni leyfði
hann mér að amstra hjá sér frá 8
ára aldri um fimm ára skeið.
Skömmu fyrir miðja öldina
hafði Valdimar orðið fyrir mikl-
um áföllum, misst kon u sina og
einkason og var ekki heill heilsu.
Þau Sigriður settu bú saman, og
þótti mér þá, sem hún hefði ofið
saman tvo þætti úr lifi minu, þann
sem veitti mér fyrstu starfs-
fræöslu, og þann, sem stutt hafði
bezt að andlegum þroska minum.
Þau Valdimar eignuöust einn
son, Þórð, sem færði þeim báðum
mikla gleði. En brátt tók heilsu
Valdimars að hraka og stundaði
Sigriður hann af umhyggju og
ástriki i löngu sjúkdómsstriði.
Arið 1959 stendur hún enn uppi
ekkja með annan föðurlausan
dreng. Mikil harmabót var henni
að veita drengjunum sinum frá-
bæra umönnun og starfa auk þess
utan heimilis af sama dugnaði og
fyrr. Hún unni sér aldrei hvildar.
Fyrir nokkrum árum lét likaminn
undanþessu mikla álagi. Sigriður
veiktist alvarlega, en með þeirri
þrautseigju, sem henni var svo
töm, tókst henni að mestu að
vinna bug á lömuninni, sem hún
varð fyrir. Virtist nú Iifið geta
gefið henni nokkrar rósir, þár
sem hún sat i búi sinu ásamt
vöxnum sonum. Átt náðuga daga,
eftir að hafa dugað þeim svo vel.
En skvndilega sækir hana
sami sjúkleiki og áður. Það er þó
sem hún ætli meö seiglúnni góðu
að vinna bug á honum, en nú var
þrekið brostið.
Hrærðum hugaþökkum við þér
alla tryggðina og sérstaka vináttu
við börnin, vottum sonunum þin-
um og öllu þinu ágæta fólki
dýpstu samúð.
Sólarbirtan minnir okkur á
þann y 1, sem þú varst svo rik af,
hljóðlát kyrrð sumarnæturinnar á
hógværð þina.
— Hjálmar ólafsson.
KENNARAR! KENNARAR!
íslenzkukennara vantar við Gagnfræða-
skólann á Akranesi.
Forskólakennara vantar við Barnaskól-
ann á Akranesi.
Söngkennara vantar við Barnaskólann á
Akranesi.
íþróttakennara stúlkna vantar við Barna-
og Gagnfræðaskólann á Akranesi.
Umsóknarfrestur er til 15. júli.
Upplýsingar gefur form. fræðsluráðs
Akraness, Þorvaldur Þorvaldsson simi
93 —1408.
Fræðsluráð Akraness.
Lögreglumannsstarf
Laust er til umsóknar starf lögreglu-
manns i lögregluliði Kópavogs.
Upplýsingar gefa yfirlögregluþjónar
Lögreglustöðinni, Digranesvegi 4( Kópa-
vogi.
Umsóknarfrestur er til 31. júli 1972.
Lögreglustjórinn
i Kópavogi.
V.'i
■_■_■_■_■_■_!
V.
RUSSNESKA SKAKKLUKKAN
SPASSKY KLUKKAN
NOTUÐ AF ÖLLUM RÚSSNESKU
MEISTURUNUM
AAest selda klukkan
Ótrúlegt verð
FÆST VIÐA
HEILDVERZLUN EIRÍKS KETILSSONAR,
Vatnsstíg 3. - Sími 23472.
!■■■■■■■■■■■■■■■■!
!_■_■_■ _■_■_!
k.s.i. LANDSLEIKURINN
fSLAND - DANMÖRK
ferframá Laugardalsvellinum mánudaginn3. júli og hefst kl. 20.00
Dómari: A. Mackenzie frá Skotlandi
Linuveröir: Guðmundur Haraldsson & Hannes Þ. Sigurðsson
Verð aðgöngumiða: Kl. 19.15 Sala aðgöngumiða stendur yfir úr sölutjaldi við Út- vegsbankann. A mánudag i Laugardal frá kl. 16.00
Sæti kr. 250.00 Kvennaknattspyrna: Armann .... i.A.
Stæði 150.00 Börn fá ekki aðgang að stúku, nema gegn stúku-
Barnamiðar 100.00 VALLARGESTIR ALLIR SAMTAKA NÚ. m iða.
Látum „ÁFRAM ISLAND" endurhljóma frá fylkingu þúsundanna, sem hvatningu fyrir íslenzkum sigri.
Knattspyrnusamband Islands.
S