Þjóðviljinn - 02.07.1972, Síða 15
Sunnudagur 2. júli 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15.
Áleiðis til
almennings
Framhald af 5. siðu.
lands komi svo lítið brot og
undarlegt af því sem talað er
um t.d. bara hér í V-Evrópu.
Skákir
Framhald af 10. siðu.
21. De2 cxd4
22. cxd4 b5
23. Re4 Bxd4
24. Rg5 Bxf2 +
25. Hxf2 Hd6
26. Hel Db6
27. Re4 Hd4
28. Rf6 + Kh8
29. Dxe6 Hd6
30. De4 Hf8
31. g5 Hd2
32. Hfl Dc7
33; Hxd2 Rxd2
34. Dd4 Hd8
35. Rd5 Kg8
36. Hf2 Rc4
37. He2 Hd6
38. He8 Kf7
39. Hf8 +
Og Fischer gafst upp.
Stór stund
Framhald af bls. 1.
mannganginn sex ára gamall og
hefur hann siðan óslitið stundað
skákina af fádæma áhuga. Hann
var undrabarn i skák og sumir
segja hann enn stórt barn, sem
ekkert hugsi um nema skák og
peninga. En hvað um það, hann
er óumdeilanlega einn af fremstu
skákmönnum heims i dag og það
verður fróðlegt að fylgjast með
þessu einstæða skákeinvigi sem
hér fer fram næstu tvo mánuði
þvi að þetta er i fyrsta sinn siðan
1946 að það eru ekki tveir sovézkir
stórmeistarar sem keppa um
heimsmeistaratitilinn.
í tilefni af heimsmeistaraein-
viginu birtir Þjóðviljinn i dag 4
siður um skák, einvigið og allar
skákir þeirra Fischers og
Spasský. Sdór.
ísafjörður
Framhald af bls. 1.
fastmælum bundið, þvi Frjáls-
lyndir voru með fund þá um
kvöldið, þar sem þeir ætluðu
væntanlega að taka afstöðu til
málsins.
í lok þessa viðræðufundar ósk-
aði foringi Frjálslyndra, Jón
Baldvin, eftir þvi, að Alþýðu-
flokksmennirnir yrðu eftir.
Maður vissi nú ekki hvað undir
þvibjó,ekkibeinlinis, en það kom
svo á daginn, að þá var hann ein-
mitt að tala um það við þá, að fá
þá til samstarfs með Frjálslynd-
um við Sjálfstæðisflokkinn.
Eftir þvi sem Frjálslyndir
segja, var siðan samþykkt á fundi
hjá þeim, með miklum meirihluta
atkvæða að óska eftir viðræðum
við Sjálfstæðisflokkinn um meiri-
hlutamyndun, og að fá Alþýðu-
flokkinn með í. púkkið.
Alþýðuflokknum barst svo bréf
frá þeim daginn eftir. Siðan gerist
það, að Jón Baldvin veður um bæ-
inn og talar við ýmsa Alþýðu-
flokksmenn, og grátbiður þá að
koma i þetta samstarf með ihald-
inu. Lét Jón Baldvin meðal ann-
ars i veðri vaka, að þetta væri
einn liður i sameiningarmálinu.
Krötum þótti sem svo, að samein-
ingarmálin ættu nú ekki að fara
fram i faðminum á ihaldinu.
Þá er haldinn fundur hjá
Alþýðuflokksmönnum ' i gær og
stóð hann fram á nótt, en ekkert
mun hafa gerzt þar eftir þvi sem
ég hef komizt næst.
Kosningu i nefndir var frestað
til næsta fundar, sem haldinn
verður væntanlega á fimmtudag-
inn kemur. Þessi frestun á
nefndarkjöri var borin upp af
ihaldinu og Frjálslyndum, en
næsta náið samstarf hefur verið
með þessum flokkum það sem af
er kjörtimabilinu.
— Heldurðu Halldór, að nauð-
synlegt geti orðið að kalla
ljósmóður á vettvang, vegna
þessarar faéðingar?
— Ja, þvi ekki það. Þörfin er
fyrir hendi. —
úþ
Stundum hefur mér fundizt að
hin margumtailaða maíbylting í
FrakWandi, stúdentahreyfingin
og allt það, hafi eiginlega aldr-
ei borizt til íslands. Það eru
mjög margir þættir sem í sam-
bandi við þessi atvik voru tekn-
ir til umræðu og endurskoðunar
allt í einu. Einhverjir öldutopp-
ar náðu til ísiands, en mér
finnst við sýnu fátækari eftir.
— Já, ég held að maíbylting-
in hafi ekki haft nein áhrif á
ísilandi nema að því leyti kann-
ski, að anarkismi hafi eflzt, eft
það held ég hafi ekki verið
byggt á neinum sérstökum
grundvelli.
— Já, manni finnst að þessi
anarkismi í mörgu ungu fólki
sé mjög tilfinninigalegur og
ekki . . .
— Já, já, hann er tilfinn-
ingalegur og skki byggður á
neinum grundvelli, heldur er
þetta einhver tilfinning sem
knýr fólkið út í þetta.
— En nú hafa ýmsar hug-
myndir anarkista vaðið uppi
undanfarið, eða hugmyndir sem
rekja má til anarkistisks skiln-
ings og afstöðu. Ungt folk vill
fara að skipta sér af, lagfæra
eða koma baráttu eða byltingu
í framkvæmd á þessu sem kölluð
hefur verið yfirbygginigin, og það
stangast náttúrlega fullkomlega
á við marx-lenínistíska hug-
myndafræði og barátmaðferðir,
sem kennir að ekki gagni að
gmfJa í yfirbyggingunni meðan
hinir efnislegu og efnahagslegu
þættir séu óbreyttir í auðvaLds-
skipulaginu. Og kannski er mjög
varasamt að gleypa hráar hug-
myndir og sensasjónir í sam-
bandi við sambýlishætti, list-
starfsemi og fjölmiðlun o.fL
— Jú, þetta er alveg satt, öll
slík uimræða hlýtur að byggjast
á mjög konkret rannsókn á
þjóðfélagsaðstæðum og það er
eimmitt það sem vantar á ís-
Iandi, að framkvæma marxist-
íska rannsókn á því þjóðfélagi
sem er fyrir hendi og eftir það
er hægt að fara að rasða um
hlutina.
— Eitt fyrirbæri er mjög ein-
kennandi á íslandi: að við eig-
um enga nútímasögu skráða,
Flestar þjóðir geta nokkum
veginn áttað sig á þeirri sögu
sem þar hefur orðið efir alda-
mót. Við ungir íslendingar verð-
um að tileinka okkur þessasögu
okkar á skotspónum á kaffihús-
um, hvergi hægt að lesa neitt af
viti, sjá hlutlausar lýsingar,
greinargerðir eða skilgreiningar
á stjóðrnmálaþróun eða jafnvel
bara byggðaþróun á íslandi frá
aldamótum. Við vitum aðmörgu
leyti ákaflega lítið um þetta
þjóðfélag eða þá áhrifaþætti
sem hafa verið þar um áratugi.
— Þetta er hverju orðisann-
ara, og ég held að nú sé ein-
mitt þörf á því að nokkuðmarg-
ir hópar slái 9ér saman; bæði
þjóðfélagsfræðingar, sálfrasðing-
ar, hagfræðingar og arkítektar,
þyrftu að koma saman og fram-
kvæma rannsókn á hvernig ís-
lenzkt þjóðfélag hefur þróazt á
þe9sari öld. Ég held að það gæti
verið mjög uppbyggjandi fyrir
íslenzka vinstristefhu.
Glötuð tœkifæri
Framhald af 10. siðu.
Reshevsky (svart) h6, og þegar
Fairhurst svaraði með Dh5 svar-
aði Bandarikjameistarinn með H-
f8. Þarna og reyndar i næstu
þremur leikjum sá hvorugur
meistarinn það, að Svartur gat
unnið umsvifalaust i þessari
stöðu og þar að auki kröftuglega
og með glæsibrag.
Með þekktari dæmum um skák-
blindu kom fyrir i skák sem von
Popiel og Marco tefldu i Monte
Carlo 1902. (Stöðumynd 2.) Marco
átti leik og þar sem hann taldi sig
vera búinn að tapa manni, gafst
hann upp með kurt og pi. Honum '
yfirsást að hann gat neyti aild-
stæðinginn til uppgjafar i næsta
leik. Hvaða leik? Það hlýtur að
hafa verið beizkur biti fyrir
Marco að hafa ekki tekið eftir
jafn augljósum leik og B-g8, en
það var of seint.
En hvað sem Marco hefur iðr-
azt hlýtur það að vera léttvægt
hjá þvi. þegar úrslitin i mikilvæg-
asta skákmóti sins tima voru
komin undir einni skák og þegar
hinn mikli Tsjigorin sem hafði
hvitt gegn hinum jafnvel enn
meiri Steinitz missti af vinningi
vegna ótrúlegrar yfirsjónar.
(Stöðumynd 3.) Hérlék hann B-b4
og hafði ekki komið auga á mát i
tveimur.
i skák milli tveggja fyrrverandi
heimsmeistara Max Euwe og
Emanuei Lasker (hvitur) 1936
urðu Euwe á mistök svo ,,æp-
andi” að jafnvel hinn auðmjúk-
asti skákahugamaður átti að
skammast sin fyrir.
i þessari stöðu (stöðumynd 4.)
lék Lasker K-d3 og i stað þess að
færa riddarann eða valda hann
lék Euwe B-a5. Hvers vegna tap-
aði hann þar með manni og skák-
inni i örfáum leikjum?
Þing
myndíðakennara
Dagana 4— 9. júli n.k. halda
norrænir myndiðakennarar þing
á Reykjavik. Slik þing eru haldin
árlega, til skiptis á Norður-
löndum. Hér er raunverulega um
námskeið að ræða, Hver þjóð
kynnir námsefni sitt i fyrirlestra-
formi og verklegri vinnu, þar sem
þingfulltrúar skiptast i starfs-
hdpa undir leiðsögn kennara frá
hverju landi.
Með þessu fyrirkomulagi er
leitazt við að koma á gagnkvæmri
kynningu á námsefni og kennslu-
háttum i myndiðagreinum á
Norðurlöndum.
Þingið munu sækja 70 erlendir
kennarar og um 30 islenzkir, auk
gesta. Af þessu tilefni verður
opnuð sýning á myndlist og
handavinnu barna og unglinga i
Norræna húsinu.
Verðbréfalán
í gær, 29. júni, var lokið i Sviss
útboði á bréfaláni rikissjóðs að
fjárhæð 25 milljónir svissneskra
franka. og gekk sala bréfanna
vel. Lánið er tekið i þvi skyni að
breyta stuttum lánum rikissjóðs
vegr.a Stpaumsvikurhafnar i löng
lán, en leigugreiosiur Islenzka ál-
félagsins af Straumsvikurhöfn
munu standa undir vöxtum og af-
borgunum af láni þessu.
Vextir af láni þessu er 5 3/4 á-
ári, en útboðsgengi 100%.
Kostnaður vegna útboðsins og
lántökuskattar i Sviss nemur
nálægt 5 % . Lánið endurgreiðist á
12 árum, og munu greiðstur af
láninu falla mjög saman við um-
samdar leigugreiðslur islenzka
álfélagsins af höfninni.
Bókavelta
Dregið var i bókaveltu Rit-
höfundafélags lslands 16. júni
siðast liðinn. Var það i annað
sinn, sem dregið er i bóka-
veltunni.
Þessi númer fengu vinning: 19
— 22 — 428— 436 —443 —484
—574 — 706 — 800 — 803.
Þriggja vinninga er enn óvitjað
frá drættinum 15. desember, en
þeir eru: 666 — 402 — 706.
Vinninga sé vitjað, að Mávahlið
22, 2. hæð. Simi 19287.
Norðmenn
á móti EBE
Framhald af bls. 16.
móti. t öðrum bæjum reyndust 46
af hundraði á móti og 35 með.
Ef litið er á skiptinguna eftir
stjórnmálaflokkum eru tölurnar
þannig:
Miðflokkurinn: 87 af hundraði á
móti og 6 með. Kristilegi Þjóðar-
flokkurinn: 74 á rnóti og 14 með,.
Sósialiski Þjóðarflokkurinn: 91 á
móti og 9 nieð. Vinstri flokkurinn:
50 á móti og 34 með.
Verkamannaflokkurinn: 42
ó móti og 41 með. Kommúnista-
flokkurinn: allir á móti. Hægri
flokkurinn: 83 með og 13 á móti.
Spurt var einnig að þvi, hvort við-
komandi myndi greiða atkvæði
um aðildina að Efnahagsbanda-
laginu i þjóðaratkvæða-
greiðslunni i september, og
sögðust 73 af hundraði örugglega
greiða atkvæði, 5 af hundraði
sögðust ekki greiða atkvæði, 21 af
hundraði var i vafa og 1 af
hundraði svaraði ekki
spurningunni.
TANNVERNDAR-
SÝNING
í Árnagarði
28/6 - 2/7
opin daglega
kl.14-22
Frá Iðnskólanum í
Hafnarfirði
Innritun nemenda fyrir næsta skólaár fer
fram i Iðnskólanum við Mjósund mánud.
3. júli og þriðjud. 4. júli n.k. kl. 18. - 22 báða
dagana.
Nýir nemendur hafi með sér nafnskirteini
og afrit prófskirteina. Skólinn tekur til
starfa i nýjum húsakynnum um miðjan
september n.k. Fyrirhugað er að starf-
rækja á næsta skólaári verkskóladeild
fyrir málmiðnir og verður innritun i þær
deildir auglýst siðar.
Skólastjóri
I viiuwqftSKAiiNn eguj
FEItÐAMENN
Margskonar grill-réttir, steitar kartöflur, salat og súpur. Kaffi, te, mjólk, smurbrauð
og kökur.
Fjölþættar vörur fyrir ferðafólk m.a. Ijósmyndavörur og sportvörur. — Gas og
gasáfyllingar. — Benzin og olíur. — Þvottaplan. — Verið velkomin i nýtt og fallegt hús.
VEITINGASKÁLINN BRÚ, Hrútafirði.