Þjóðviljinn - 29.07.1972, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 29.07.1972, Blaðsíða 11
Sunnudagur :!0. iúli 1072 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 11. Alþjóðadómstóllinn Framhald af bls. 1. nauðsynlegar af hálfu Islands, eina strandrfkisins á svæðinu. Orðsendingaskiptin frá 1961 áttu sér stað við sérstaklega erf- iðar aðstæður, þar sem að brezki flotinn hafði beitt valdi gegn farmkvæmd 12 milna fiskveiði- markanna, sem islenzka rikis- stjórnin ákvað árið 1958. Orð- sendingarnar fólu i sér lausn þeirrar deiiuenþvisamkomulagi, sem var um að ræða, varekki ætlað að gilda um aldur og ævi. Rikisstjórn Bretlands viður- kenndi hina sérstöku þýðingu fiskveiðanna fyrir lifsafkomu is- lenzku þjóðarinnar og efnahags- lega þróun og viðurkenndi 12 milna fiskveiðmörkin að áskild- um þriggja ára umþóttunartima. (Þess bera aö geta, að rikisstjórn Bretlands hefur siðan tekið upp 12 milna fiskveiðitakmörk undan ströndum Bretlands). Rikisstjórn íslands tók fram fyrir sitt leyti, að hún myndi halda áfram að vinna að framkvæmd ályktunar Alþingis frá 5. mai 1959, varðandi úrfærslu fiskveiðilögsögunnar umhverfis tsland, en myndi til- kynna rikisstjórn Bretlands slika útfærslu með 6 mánaða fyrirvara með möguleika á málskoti til Al- þjóðadómstólsins, ef ágreiningur risi um slika útfærslu. Rikisstjórn Bretlands var þannig gefið tæki- færi til málskots til dómstólsins, ef rikisstjórn lslands myndi fyrir- varalaust færa út mörkin þegar i stað eða innan skamms. Samkomulaginu um lausn þess arar deilu og þar með möguleika á sliku málsskoti til dómstólsins (sem rikisstjórn Islands var 2! ^2sinnui LENGRI LÝSIN n neOex 2500 klukkustunda lýsing við eðlilegar aðstæður (Einu venjulegu perurnar framleiddar fyrir svo langan lýsingartíma) NORSK ÚRVALS HÖNNUN Heildsala Smásala Einar Farestveit & Co Hf Bergstaðastr. 10A Sími 16995 ávallt mótfallin, að þvi er varðar deilur um viðáttu fiskveiðitak- marka við Island, svo sem viður- kennt er af hálfu Bretlands) var ekki I eðli sinu ætlað að gilda um aldurog ævi. Sérstaklega er ljóst, að skuldbinding um að hlita úr- skurði dómstóls er ekki i eðli sinu gerð til eilifðar. Ekkert i þessum málsatvikum eða neinni almennri reglu nútima þjóðarréttar réttlætir annað sjónarmið. 1 orðsendingunni frá 31. ágúst 1971 gaf rikisstjórn tslands brezku rikisstjórninni m.a. 12 mánaða fyrirvara varðandi ætlun sina um að færa fiskveiði-tak- mörkin umhverfis landið út, þannig að þau næðu yfir hafsvæð- ið yfir landgrunninu, en tók fram, að nákvæm takmörk þess yrðu tilkynntsiðar. Hún léteinnig i ljós vilja sinn til þess að kanna mögu- leika til að finna hagfellda lausn á þeim vandamálum, sem sneru að brezkri togaraútgerð, og slikar viðræður standa enn yfir milli fulltrúa beggja rikisstjórnanna með hliðsjón af þvi, að útfærslan hefur enn eigi komið til fram- kvæmda. Sérstaklega var tekið fram, að hin nýju mörk mundu ganga i gildi eigi siðar en 1. sept- ember 1972. Samtimis var þvi yfirlýst, að markmiði og tilgangi 1961 -samkomulagsins hefði að fullu verið náð. Afstaða rikis- stjórnar tslands var endurtekin i orðsendingunni frá 24. febrúar 1972, sem áréttaði, að orðsend- ingarnarfrá 1961 ættu ekki lengur við og væru brottfallnar. Afrit af þeirri orðsendingu voru send aðalframkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna og ritara Al- þjóðadómstólsins. Eftir brottfall sam komulagsins, sem skráð er i orðsendingunum frá 1961, var hinn 14. april 1972 enginn grund- völlur fyrir þvi, samkvæmt sam- þykktum dómstólsins, að hann hefði lögsögu i máli þvi, sem Bretland visar til. bar sem hér er um að ræða lifs- hagsmuni islenzku þjóðarinnar, vill rikisstjórn tslands leyfa sér að tilkynna dómstólnum, að hún vill ekki fallast á að heimila dóm- stólnum lögsögu 'i nokkru máli varðandi viðáttu fiskveiðitak- markanna við ísland og þá sér- staklega i máli þvi, sem rikis- stjórn Stóra-Bretlands og Norður- trlands hefur reynt að visa til dómsins hinn 14. april 1972. Af ofangreindum ástæðum mun rikisstjórn tslands ekki tilnefna umboðsmann af sinni hálfu”. Simskeytið frá 28. júli 1972: ,,Ég hef þann heiður að viður- kenna móttöku á simskeyti yðar varðandi beiðni af hálfu Bret- lands, er fram var lögð 19. júli 1972. 1 bréfi minu frá 29. mai 1972 lýsti ég þvi yfir, að ,,eftir brott- fall samkomulagsins, sem skráð er i orðsendingunum frá 1961, var hinn 14. april 1972 enginn grund- völlur fyrir þvi, samkvæmt sam- þykktum dómstólsins, að hann hefði lögsögu i máli þvi, sem Bretland visar til” og að „rikis- stjórn tslands mun ekki tilnefna umboðsmann af sinni hálfu”. Af þessu leiðir, að það er enginn grundvöllur fyrir beiðninni, sem simskeyti yðar visar til. Hvað sem öðru liður fjallar stefnan frá 14. april 1972 um réttarstöðu rikj- anna tveggja, en ekki um efna- hagsaðstæður vissra fyrirtækja i einkaeign eða annarra hagsmuna i öðru þessara rikja. Án þess að draga nokkuð úr þeim rétti, sem kemur fram i fyrri röksemdafærslu. mótmælir islenzka rikisstjórnin þvi sérstak- lega, að dómstóllinn kveði upp bráðabirgðaúrskurð samkvæmt 41. gr. samþykktarinnar og 61. gr. reglna um dómstólinn i máli þvi, sem Bretland visar til, þar sem einginn grundvöllur hefur skap- azt fyrir lögsögu. Til upplýsinga fyrir dómstólinn óskar rikisstjórn tslands i þessu sambandi að visa til röksemda þeirra fyrir útfærslu fiskveiðilög- sögunnar, sem fólust i bréfi henn- ar til dómstólsins. dags. 29. mai 1972, og þeim skjölum, sem fylgdu þvi”. Skákkyrrð Framhald af 5. siðu. i afkomendum, sem eru hinir óstýrilátustu enn i dag. ... Heim komu þeir með munka og kristindóm og meðan menn trúöu enn á Fjandann voru þeir frómir vel. Og þar lauk sögum — þá hófst nýr timi og beisklegri, kenndur við Dani. Við skulum okkar sjálfra vegna hlaupa yfir hann. Og láta okkur nægja að fara með þá framtiðarósk, að einhvern- tima veröi mögulegt að draga at- hygli heimsins að heimsmeist- aramóti i skák i borginni Belfast. Tengilína Framhald af bls. 3. sviði, en nú er sem kunnugt er svo ástatt að meginhluti allrar raf- orkuframreiðslu á tslandi er i höndum Landsvirkjunar, sem engir eiga aðild aö nema Reykja- vikurborg og rikissjóður. Með hinni nýju skipan raforkumála stefnir rikisstjórnin að þvi að dreifa valdi og auka lýðræði. Þegar nauðsynlegum undir- búningi iðnaðarráðuneytisins undir það er lokið verða væntan- lega lögð fyrir alþingi frumvörp um breytingar á gildandi lögum um raforkumál. Munu þá allir að- ilar, sem áhuga hafa eiga þess kost á nýjan leik að koma sjónar- miðum sinum á framfæri, en að lokum sker meirihluti alþingis úr um hugsanleg ágreiningsefm. Um tengilinu milli Eyjafjarðar og Skagaf jarðar, sem nokkuð hef- ur verið rætt um, er það að segja að tillagan um þessa tengilinu fólst i framkvæmdaáætlun þeirri, sem lögð var fyrir siðasta þing, en þar var um að ræða nákvæm- lega sams konar vinnubrögð og iðulega hefur verið beitt við á- kvarðanir af þessu tagi. Engin at- hugasemd var gerð viö tengilin- una, hvorki innan þings né utan og ekki heldur af neinum stjórn- armanni S.t.R. og frafnkvæmda- áætlunin var samþykkt mótat- kvæðalaust. Lagning þessarar tengilinu var að sjálfsögðu afleið- ing af áætlunum sem gerðar höfðu verið af Rafmagnsveitum rikisins og Orkustofnun og voru þær auðvitað tiltækar þingnefnd- um, ef frekari skýringa heföi ver- ið óskað.” NYLON hjólbarðarnir japönsku fóst hjó okkur. Allar stærðir ó fólksbíla, jeppa og vörubíla Sendum gegn póstkröfu um allt land. Verkstæðið opið alla daga fró kl. 7.30 til kl. 22.00. SKIPHOLTI 35, REYKJAVÍK, SÍMI 31055 I |úffcngir ictin «>.• |>t úl’uiuioAuí íj I r.imrcili It.i kl I Mi» I S «)0 , oj ki i'v i' Boróp.mianit li|a 1 \firfr;tinrciiV»lutii;tnni Sinn IH22 VEITINGAHUSID OÐAL VIÐ AUSTURVOLL Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut- hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta með svartri rönd. Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er. GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F. Skipholl! 35 — Reykjavík — Sím! 30688 BÍLASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32 LJÓSASTILLINGAR HJÓLASTILLINGAR MÓTORSTILLINGAR Látlð stilla i tima. 4 Fljót og örugg þjónusta. umi' 13-10 0 OPINBER STOFNUN Óskar eftir að ráða ritara til starfa nú þegarjstaðgóð kunnátta i bókhaldi og með- ferð skrifstofuvéla nauðsynleg. Upplýs- ingar um menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 10. ágúst n.k. merkt: ,,Þ-1000”. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Unnar Kjartansdóttur fyrrverandi kennslukonu frá Hruna Fyrir hönd aðstandenda Helgi Kjartansson Kr. Guðmundur Guðmundsson. Móðir okkar KRISTÍN VILHJÁLMSSON Alfheimum 31 andaðist i Borgarspítalanum 27. júli. Börn og tengdabörn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.