Þjóðviljinn - 05.08.1972, Qupperneq 2
2.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. ágúst 1972
Eftirliti með umbún-
aði minkabúanna
ábótavant?
_ J—
AÐVÖRUN 1 RAFMAGNSGlRÐINfi | STRANGI 1 mk \m 1 . UMFERÐ lega bönnui
7 ■■■■
K afmagnsgirðing stóð á skiltinu, en ekkert rafmagn var á girðingunni.
Sjáið girðinguna niðri við jörð. Að visu nær virnetið um það bil tvær til
þrjár tommur niðurfyrir spýtuna neðst við jörö, — en hvaða minkur
skriður ekki þar undir?
Horn
✓
1
síðu
Tillaga
í skattamólum
Einhverjir hafa verið að
fárast yfir þvi, að dæmi þau
sem tekin hafa verið til með-
ferðar hér i dálkunum úr
skattskránni, skuli öll hafa
verið valin af Suðurnesjunum,
nánar tiltekið úr Keflavik og
Njarðvik.
Við þessu sjónarmiði er
raunar ekkert að segja annað
en benda á, að mat undirritaðs
cr, að viðar en á Suðurnesjum
sé að finna Keflavikur og
Njarðvikur.
Sú sviksemi sem þar á sér
stað við skattaframlöl hlýtur
að eiga sér stað á öðrum
stöðum jafnt. Þó svo að svind-
lið i kring um Kanaleiguna sé
sérfyrirbæri Suðurnesjabæj-
anna, þá eru viðar en þar til
svikulir útvegsmenn, rakarar,
kaupmenn og leigubilstjórar,
og þvi auðvelt að herma
da-min upp á hvern þann sem
svikaiðjuna stundar, hvar svo
sem hann býr.
Þvi skal hér enn tekið dæmi
úr skattskrá þessara byggða.
Á þessu sva'ði eru starfandi
að minnsta kosti 50 leigubil-
stjórar. Af þessum sökum eru
tekjur þeirra mjög litlar, eða
frá 260 þúsund á ári og aðeins
upp yfir 400 þúsund, þannig að
skatlarnir liggja á bilinu
30—70 þúsund, þó einhver frá-
vik kunni að vera niður fyrir
lægri töluna.
Á sama tima og fjölskyldur
allra þessara leigubilstjóra
lepja dauðann úr skel, og
utanlandsferð sé ekki nema
svo sem ein pr. fjölskyldu á
ári, býr i Keflavik kona ein,
rúmlega sjötug, og lifir af
eftirlaunum, sem hún lagði
fyrir með áratuga barna-
kennslu þar i plássinu. Fram-
lag þessarar konu til uppeldis
æskunnar er ekki það eitt að
hafa kennt henni á bók, heldur
hafði hún um árabil yfirum-
sjón með barnastúkunni þar á
staðnum, svo eitthvað sé
nefnt.
1 heiðursskyni fyrir allt sitt
starf fékk kona þessi ein-
hverja tegund af riddara-
krossi lyrr á þessu ári.
Nú heiðra skattayfirvöldin
konu þessa með þvi að leggja
á hana rúmlega 90 þúsund
krónur i skatta.
Þvi er það að ég geri það að
tillögu minni, að yfirvöld þar
syðra heiðri konuna á annan
hátt en með slikri sköttun.
Vegna baráttu hennar gegn
áfengi og áfengisneyzlu
undanfarin ár, verði hún gerð
skattfri, en sköttum hennar
skipt niður á leigubilstjórana
á svæðinu, sem — án þess ég
sé maður til að áfellast það —
hala drýgl tekjur sinar með
útsölu á áfengi eftir lokunar-
tima verzlana. úþ
Sjálfsagt muna allir þær
deilur er upp komu, þegar
alþingi leyfði aftur minka-
rækt hér á landi árið 1969.
Menn höfðu slæma reynslu
af minkarækt, svo slæma
að hún var bönnuð um
margra ára skeið.
Helztu rök
minkaræktunarmanna
voru þau, að nú væri kom-
inn svo fullkominn útbún-
aður í sambandi við minka-
búin, að alls engin hætta
væri á því, að dýrin slyppu
út. Slíkt er fráleitt.
Hinir, sem voru á móti
minkarækt sögðu aftur á
móti, að aldrei yrði hægt að
búa svo um hnútana að dýr
slyppu ekki út. Menn
skyldu biða og sjá. Það liði
sjálfsagt ekki á löngu þar
til fyrsta slysið yrði.
En hvað sem öllum deilum leið,
þá samþykkti alþingi að leyfa
minkarækt aftur, og strax er
þeirri samþykkt fenginni hófust
minkaræktunarmenn handa.
Hvert minkabúiö af öðru reis upp,
og sagt var að umbúnaður búr-
anna væri eins fullkominn og
hugsazt gæti.
t>að leið þó varla meira en eitt
ár þar til fyrsti aliminkurinn
veiddist út á viðavangi. Hvaðan
var sá minkur? bað tókst aldrei
að sanna. Oll búin sóru og sárt við
lögðu, að þau hefðu engum mink
tapað. En aliminkur var það
samt.
Fyrir aðeins örfáum dögum
veiddist aftur aliminkur uppi á
Kjalarnesi. Aftur gerðist sama
sagan og fyrr: Ekkert búanna
viðurkendi, að minkurinn væri
frá sér. En aliminkur var það
samt.
Þetta leiðir hugann að þvi, að
Magnús Kjartansson iðnaðarráð-
herra bar á sinum tima fram
þingsályktunartillögu um að
marka aliminka, rétt eins og
bændur gera við sinn búpening.
Þessi þarfa tillaga var felld, eins
og svo margar góðar tillögur
stjórnarandstæðinga i tið við-
reisnar. Það er nú enn betur að
koma i ljós hversu þörf þessi til-
laga Magnúsar var. Hefði hún
verið samþykkt, þá þýddi ekkert
fyrir forráðamenn minkabúanna
að þræta fyrir sin dýr, sem
veiðast á viðavangi.
Og einni spurningu er ósvarað.
Er eftirliti með umbúnaði minka-
búanna ábótavant? Blaðamaður
Þjóðviljans brá sér upp að
minkabúinu Lykkju á Kjalarnesi
þar sem rekið er stórt minkabú.
Þetta var um miðjan dag i miðri
viku, sem blaðamann bar þarna
að. Hann stanzaði rúma klukku-
stund við búið, en þar var
ENGAN MANN AÐ FINNA.
Samt var enginn lás fyrir dyrum,
þannig aö hægt var ef vilji hefði
verið fyrir hendi að fara inn um
allt búið. Þá stóð á girðingunni i
kringum búið, að hún væri raf-
magnsgirðing. Það má vera að
hægt sé að setja rafmagn á hana,
en þennan dag var enginn
straumur á henni. 1 stuttu máli
sagt þá heldur hún engum mink
sem sleppur úr búri sinu, eins og
myndirnar hér á siðunni sýna vel.
Umbúnaði þessa minkabús er
greinilega ábótavant, auk þess
sem það verður að teljast kæru-
leysi, að enginn skuli koma og
gæta að þvi hvað ókunnur maður
er að sniglast i kringum búið.
Nú má vera að umbúnaður
þessa minkabús sé eins og lögin
segja fyrir um, og eflaust er hann
ekki verri þarna en annarsstaðar.
Við erum heldur ekki að halda þvi
fram, að minkurinn sem veiddist
á dögunum sé frá Lykkju, siður
en svo. Hinsvegar varð þetta bú
fyrir valinu þegar við ákváðum
að skoða eitt þessara búa án þess
að gera boð á undan okkur. Eftir
þá skoðun heldur undirritaður þvi
fram, að girðingin i kringum
Lykkju-búið sé ekki minkaheld.
S.dór.
AUGLÝSING UM GJALDDAGA 0G
INNHEIMTU ÞINGGJALDA í KÓPAV0GI
Skattskrá fyrir árið 1972 hefur verið lögð
fram i Kópavogi og hefur gjaldendum ver-
ið sendur álagningarseðill, þar sem til-
greind eru gjöld þau, sem greiða ber sam-
kvæmt álagningu 1972.
Þinggjöld, sem greiða ber 1972, eru þessi:
Tekjuskattur, eignarskaltur, kirkjugjald, slysatrygginga-
gjald vegna heimilisslarfa, iðnaðargjald, slysatrygging-
argjald atvinnurekenda skv. 36. gr. laga nr.. 67/1971, lif-
eyristryggingagjald skv. 25. gr. sömu laga, atvinnuleysis-
tryggingagjald, alm. launaskattur, sérstakur launaskatt-
ur, kirkjugarðsgjald og iðnlánasjóðsgjald.
Samkvæmt ákvæðum i reglugerð nr.
245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt,
sbr. lög nr. 68/1971 og lög nr. 7/1972, ber
hverjum gjaldanda að greiða álögð gjöld,
að þvi frádregnu,sem greitt hefur verið
fyrirfram, með 5 jöfnum greiðslum 1.
ágúst, 1. sept., 1. okt., 1. nóv., og 1. desem-
ber. Vanskil að hluta skv. framansögðu
valda þvi, að allir skattar gjaldandans á
gjaldárinu falla i eindaga 15 dögum eftir
gjalddagann og eru lögtakskræfir ásamt
kostnaði þ.á.m. dráttarvöxtum.
Gjaldendum er skylt að sæta þvi, að kaup-
greiðendur haldi eftir af kaupi þeirra til-
skyldum mánaðarlegum greiðslum, enda
er hverjum kaupgreiðanda skylt að ann-
ast slikan afdrátt af kaupi, að viðlagðri
eigin ábygð á skattskuldum starfsmanns.
Kópavogi, 2. ágúst 1972.
Bæjaríógetinn i Kópavogi.
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32
LJÓSASTILLINGAR
HJÓLASTILLINGAR MÓTORSTILLINGAR
Látið stilla í tíma. 4
Fljót og örugg þjónusta. I
13-10 0