Þjóðviljinn - 05.08.1972, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. ágúst 1!>72
DJÓBVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Sigurður Guðmundsson,
Svavar Gestsson (áb.).
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 línur).
Áskriftarverð kr. 225.00 á mánuði.
Lausasöluverð kr. 15.00.
Prentun: Blaðaprent h.f.
TVEIR MEGINGALLAR SEM VERÐUR AÐ LAGFÆRA
Eftir að skattseðlarnir komu út hefur
Þjóðviljinn bent á tvö atriði, sem laga
verður i sambandi við endurskoðun
skattalaganna, annað atriðið verður
raunar að laga tafarlaust. Hið fyrra er, að
augljóslega hefur ekki tekizt nógu vel að
ná til þeirra sem breiðust hafa bökin.
Kveður svo rammt að þessu að jafnvel
málgagn auðstéttarinnar hefur látið koma
greinilega fram að það telur að auðstéttin
geti borið hærri skatta, jafnvel svo um
munar. Þjóðviljinn birti þrjú skattadæmi i
gær sem sýna ákaflega vel að nauðsynlegt
er að breyta skattalögunum i þá átt að
betur nái til þeirra sem fjármagnið hafa.
Þessi dæmi eru:
Einn rikasti útgerðarmaður landsins —
ineð viðurnefnið ,,riki” — telur fram
eignir að matsverði fyrir 75—80 miljónir
króna og tekjur sem nema — samkvæmt
úlsvarinu — um tveimur miljónum króna.
En þessi riki útgerðarmaður borgar
engan tekjuskatt.
Annar útgerðarmaður telur fram tekjur
upp á 000 þúsundir króna en hann hefur
þvilikan vaxtafrádrátt að hann greiðir
lieldur engan lekjuskatt!
Kaupmaður hér i borg, fyrrum borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, greiðir
aðeins liðlega 20 þúsund krónur i útsvar,
samkvæmt þvi virðist liann hafa tekið
laun samkvæmt öðrum taxta Dagsbrúnar
— en kunnugir vita betur, og útsvar hans
sannar aðeins möguleika kaupmanna-
stéttarinnar til þess að koma írain við
lagabókslafinn á hagkvæman og ódýran
hátt.
Þau dæmi, sem hér hafa verið nefnd,
benda ótvirætt til þess að skattalögin
verður að endurskoða með tilliti til þess að
breiðu bökin beri byrðar af sama þunga og
aðrir— sem þáu gera enn ekki, þó að fast-
eignaskatturinn hafi verið mjög til bóta og
nái til eigna þessara manna i rikari mæli
en áður hefur verið.
Ilitt atriði skattalaganna sem verður að
laga og það tafarlaust eru ákvæðin sem
snerta skattagreiðslur aldraðra. Þar
verður að tryggja, að aldraðir 'fái léttari
skatta en þeir sem eru á góðum aldri og
við góða heilsu. Að visu eru skattalögin
þannig að aðeins minnihluti aldraðra ber
tekjuskatt — eða um 1/2 aldraðra — en
skattalögin verður að útbúa þannig að
þessi minnihluti fái viðunandi útkomu.
Þjóðv. leggur áherzlu á það enn einu
sinni, að mistök hafa verið gerð að því er
varðar skattlagningu aldraðra, mistök
Þegar landhelgin verður færð út við
ísland, 1. september, renna út neyðará-
standslögin sem Elisabet Bretadrottning
undirritaði i fyrradag. Þetta er i fjórða
sinn á þessu ári sem ihaldsstjórn Edwards
Heaths lýsir yfir neyðarástandi i landinu
— en neyðarástandi er lýst vegna þess að
rikisstjórn Bretlands á sifellt i höggi við
verkalýðinn i landinu, sem unir ekki
sem verður að leiðrétta.Það þarf karl-
mennsku til þess að viðurkenna mistök, en
það þarf enn meiri styrk til þess að leið-
rétta mistökin. Stjórnarvöldum hafa oft
orðið á mistök, og flokkar rikisstjórnar
hafa ævinlega fallið i þá gryfju að verja
hverskyns vitleysur — jafnvel augljósar
vitleysur — i eld og blóð. Þarf ekki að
rifja upp fyrir blaðalesendum þess konar
dæmi frá tið viðreisnarstjórnarinnar.
Núverandi stjórnarflokkar mega ekki og
munu ekki falla i gryfju hins óbilgjarna
sjálfbirgingsáróðurs.
Verði nú á næstunni gerðar breytingar á
skattaákvæðum með tilliti til aldraðra,
telur Þjóðviljinn, að um leið ætti að nota
tækifærið til þess að færa byrðarnar yfir á
þá sem breiðust hafa bökin, til dæmis þá
þrjá skattgreiðendur, sem greint var frá
hér i blaðinu i gær. Þannig yrðu lagfærðir
tveir megingallar nýju skattalaganna.
afarkostum ihaldsstjórnarinnar. íslenzkt
verkafólk hefur fulla samúð með verka-
fólki i Bretlandi, en Þjóðviljinn bendir i
fullri vinsemd á, að rikisstjórn sem ekki
getur ráðið við ástandið i sinu eigin landi
— nema með neyðarástandslögum — ætti
ekki að vera að skipta sér af innanlands-
málum annarra þjóða, til dæmis land-
helgismáli islendinga.
HEATH, LEYSTU ÞÍN VANDAMÁL
OG LÁTTU OKKUR 1 FRIÐI!
Fyrrum bœjarstjóri
verður konrektor
RÍFA
BERNHÖFTSTORFUNA?
Á fundi borgarráðs s.l.
þríðjudag var lagt fram
bréf forsætisráðuneytisins,
dags. 26. f.m., um itrekun á
boði rikisstjórnarinnar frá
1964 um að gefa Árbæjar-
safni tvö gömul hús,
Bernhöftsbakari, ásamt til-
heyrandi geymsluhúsum,
og hús það, sem nefnt var
Gunnlögsenshús eða
Smithshús. Enn fremur að
ríkissjóður muni kosta
flutning og uppsetningu
húsanna við Árbæ.
v;ití vcriö aö leita eltir hvort
borgaryl'irvöld vildu þiggja þetta
boö.
..Þetta heíur veriö i deiglunni
lengi," sagöi Guðmundur. ,,þvi
um þetta hafa verið skiptar
skoöanir, en þær veröa þarna
borgarráhs, og það veröur aö ráð
þaö viö sig hvort þaö vill taka
þessu boöi eöa ekki."
Hjálmar Ólafsson, mennta-
skólakennari (fyrrum bæjarstjóri
i Kópavogi) hefur verið ráðinn
aðstoöaskólastjóri, öðru nafni
konrektor, menntaskólans i
Hamrahlið frá 1. júli s.l. að telja.
Starf konrektors er nýtt við
menntaskólana, en á fjárlögum
þessa árs var veitt fé til þess að
ráða konrektor við stærstu
menntaskólana.
Yfir 16 þús. erlendir
gestir hér í síðasta mánuði
Blaðið náði tali af Guðmundi
Benediktssyni, ráðuneytisstjóra i
forsætisráðuneytinu, til að spyrj-
ast frekar fyrir um málið.
Sagði Guðmundur að ráðu-
neytið hefði með þessu bréfi sinu
viljað itreka aö boð stjórnvalda
frá 1964 stæði enn, og með þvi
Yfir 1(> þúsund út-
lendingar komu liingað
til lands i siðasta
inánuði samkvæmt yfir-
liti útlendingaeftir-
litsins, sem blaðinu
hefur borizt. Erlendu
gestirnir voru frá 64
löndum i öllum heims-
álfuin.
Langflestir komu frá Banda-
rikjunum eða 4554, þá frá Vestur-
Þýzkalandi, Stóra-Bretlandi, Svi-
þjóð, Danmörku og Noregi. Fleiri
en 100 ferðamenn komu ennfrem-
ur frá Finnlandi, Austurriki,
Belgiu. Frakklandi, Hollandi,
trlandi. Italiu, Kanada, Sviss.
Einn eða tveir ferðamenn komu
frá þessum löndum: Afganistan,
Boliviu, Búlgariu, Kambódiu,
Egyptalandi, Ekvador,
Fillippseyjum, Nikaragúa,
Nigeriu, Sádi-Arabiu, Singapúr,
Trinidad/Tobago, Túnis,
Uruguay, Sómaliu, Hong Kong.