Þjóðviljinn - 05.08.1972, Side 11
Laugardagur 5. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11.
Alheimsskákmótið
Framhald af bls. 7.
öllum heimshornum á mót, þar
sem svona heimsmeistarar
keppa. Hundruð þúsunda manna
munu streyma til Vasjúki.
Auðugra manna. Það verður ekki
hægt að flytja allan þennan f jölda
með fljótaskipum. Og þar af
leiðandi mun Samgöngumála-
ráðuneytið láta leggja hraðjárn-
brautina Moskva — Vasjúki.
Þetta er eitt. Annað er hótel og
skýjakíúfar fyrir gestina. t þriðja
lagi stórfelld aukning land-
búnaðarframleiðslu á svæði með
þúsund km. radiusi út frá
Vasjúki; þaö þarf að sjá gestun-
um fyrir næringu, grænmeti,
ávextir, styrjuhrogn, konfekt.
Höllin þar sem mótið fer fram —
það var i fjórða lagi. Fimm:
bygging bilskúra fyrir bifreiðar
gestanna. Til að senda út um
allan heim fréttir af ótrúlegustu
úrslitum þarf að reisa sérstaka
útvarpsstöð af yfirmáta styrk-
leika. Það var i sjötta lagi. Og
hvað viðvikur harðbrautinni
Moskva — Vasjúki, þá er enginn
vafi á þvi, að hún annar ekki að
flytja alla sem þess óska til
Vasjúki. Og af þvi leiðirað byggja
verður flugvöllinn Stóra-Vasjúki,
og þaðan mun haldiö reglubundn-
um áætlunarferðum með póst og
fólk um allan heim og þar með
taldarLos Angelos og Melbourne.
Blindandi framtiðarhorfur
lukust upp fyrir skákáhuga-
mönnunum i Vasjúki — af rústum
félagsheimilisins hóf sig til
himins þrjátiu og þriggja hæða
skýjakljúfur úr gleri: Skáklistar-
höllin. 1 hverjum sal, i hverju
herbergi og meira að segja i
lyftunum, sem þutu á ofsahraða
upp og niður, sat fólk i djúpum
hugsunum og lék skák á skinandi
skákborðum...
Marmaratröppur lágu niður að
blárri Volgu. Á ánni stóðu úthafs-
skip. Hvaðanæva að streymdu i
borgina skeggjaðir útlendingar,
skákleidiur, ástralskir aðdáendur
indverskrar varnar, Indverjar
með hvita túrbana, ákafamenn
um spánskan leik, Þjóðverjar,
Frakkar, Nýsjálendingar, ibúar
óshólma Amason, og öfundsjúkir
ibúar frá Moskvu, Leningrad,
Kiev, Siberiu og Odessu.
Allt i einu stöðvaðist öll umferð.
Út úr töfrahvitu hótelinu „Fram-
hlaupspeð” sté heimsmeistarinn
sjálfur: José Raul Capablanca.
Fagrar konur fylgdu honum. Lög-
regluþjónn klæddur i sérstakan
skákbúning heilsaði með heiðurs-
kveðju. Eineygður formaður
vasjúkinska skákklúbbsins
„Riddararnir fjórir” gekk virðu-
lega til móts við heims-
meistarann. Samtal þeirra
truflaðist við flugvélarlendingu,
en þar voru komnir þeir doktor
Grigoréf og tilvonandi heims-
meistari Aljokin.
Grigoréf þaut niður marmara-
stigann, sem rennt var að flug-
vélinni, veifaöi með nýjum hatti
sinum og ræddi á hlaupum við
fréttamenn og hafði mestan
áhuga á að spjalla um hugsan-
legan afleik Capablanca i til-
vonandi skák hans við Aljokin.
Allt i einu sást svartur depill út
við sjóndeildarhring. Hún
nálgaðist hraðfara og stækkaði
óðum og brátt sást að þetta var
fallhlif. Neðan i henni hékk
maður með tösku.
. — Þetta er hann, hrópaði sá
eineygði upp yfir sig — þetta er
hann. Hurra, húrra, húrra! Ég
þekki hinn mikla heimsspeking
og skáksnilling doktor Lasker.
Hann er eini maðurinn i Heimin
um, sem gengur i svona grænum
sokkum.
José Raul Capablanca hlepti
aftur i brúnir.
Lasker steig niður á marmara-
tröppurnar og dustaði rykkorn af
vinstri jakkaerminni, en þar
hafði það sezt á ferð hans yfir
Slesiu — og féll i faðm hins ein-
eygða. Hinn eineygði tók um mitti
Laskers, leiddi hann til heims-
meistarans og sagði:
— Sættizt! Eg skora á ykkur að
sættast. 1 nafni allrar alþýðu i
Vasjúki: Sættizt!
José Raul stundi hátt.rétti hin-
um aldna kappa höndina og
sagði:
— Ég hef alltaf dáðst að þeirri
hugmynd yðar i spánskri vörn að
leika biskupnum af b5 á 'c4.
—Húrra, hrópaði sá eineygði.
Einfalt og sannfærandi, i stil
heimsmeistarans.
Og manngrúinn tók undir:
Húrra! Húrra! Húrra!.....
— Hafið engar áhyggjur, sagði
Ostap, áætlun min tryggir borg-
inni ykkar óheyrilegar framfarir
i framleiðsluöflunum. Hugleiðið
hvað gerist, þegar mótinu er lokið
og allir gestirnir hverfa á burt.
Moskvubúar, sem eru aðþrengdir
af húsnæðisvandræðunum
flykkjast i borgina ykkar. Höfuð-
borgin flyzt sjálfkrafa til Vasjúki.
New Noskva verður skjótlega
glæsilegasta miðstöð Evrópu og
fyrr en varir allrar heims-
byggðarinnar.
Allrar heimsbyggðarinnar,
stundu vankaðir Vasjúkarnir.
— Já og síðan algeimsins.
Skákhugsunin sem breytt hefur
afskekktu þorpi i höfuðborg
heimsins breytist i raunvisindi og
finnur upp aðferð til að koma á
sambandi milli plánetanna! Frá
Vasjúki flúga merki til Mars,
Júpiters og Venusar. Og hver veit
— eftir svona átta ár verður hér i
Vasjúki haldið fyrsta milli-
plánetamót i sögu mannkynsins.
Ostap þurrkaði af göfugleitu
enni sinu. Hann var svo glor-
hungraður, að hann hefði með
ánægju étið steikta taflmenn.
— Jaaaá — kom sá eineygði upp
úr sér og augað hvarflaði um ryk-
uga herbergiskytruna með
einkennilegum glampa.
— En hvernig eigum við að
hrinda þessari hugmynd i fram-
kvæmd? Koma henni á traustan
grundvöll, ef svo mætti segja?
Allir viðstaddir störðu á stór-
meistarann með öndina i hálsin-
um.
— Ég itreka það sem ég sagði
áðan. t raun og veru eru fram-
kvæmdir aðeins komnar undir
áhugastarfi ykkar sjálfra. Efna-
hagsleg útgjöld verða engin, ef
simskeytakostnaður er ekki tek-
inn með i reikninginn.
— Hvað ætli þurfi mikið i sim-
skeyti?
— Þaö er hlægilega litið, svar-
aði Ostap, — hundrað rúblur.
— En við eigum ekki nema tutt-
ugu og eina rúblu og sextán
kópeka i sjóði. Við skiljum vel að
þetta er auðvitað engan veginn
fullnægjandi...
En stórmeistarinn reyndist
vera frábær skipuleggjandi.
— Skitt með það, sagði hann.
Komið með þessar tuttugu
rúblur.
—■ En er það nóg? spurði sá ein-
eygði?
— I undirbúnings-skeytin er
þetta nóg. Og siðan fara fjár-
framlögin að streyma inn og eng-
inn veit, hvað á að gera við alla
þessa peninga.
Um leið og stórmeistarinn
stakk rúblunum i vasann minnti
hann alla viðstadda á fyrirlestur-
inn og fjölteflið á hundrað og
sextiu borðum, kvaddi kurteis-
lega og hélt hraðfara á fund
Ippolits Matveevistj Voro-
bjaninofs sem stóð i afgreiðslunni
i félagsheimilinu.
— Ég er glorhungraður, sagði
Vorobjaninof munaðarleysislega.
Hann var búinn að sitja lengi i
afgreiðslunni en hafði ekki selt
einn einasta miða.
— Heyrið nú, Vorobjaninof,
hrópaði Ostap — gerið nú klukku-
timahlé á miðasölunni. Komum
og fáum okkur i svanginn. Ég lýsi
stöðunni á leiðinni. Meðal ann-
arra orða, þér verðið að raka
yður og þvo. Stórmeistarinn getur
ekki átt svona grunsamlega
kunningja.
— Ég er ekki búinn að selja einn
einasta miða — tilkynnti Ippolit
Matveevitsj.
— Það gerir ekkert til. Þeir
koma i striðum straumum i
kvöld. Borgarbúar hafa þegar
fengið mér i hendur tuttugu
rúblna framlag til að skipuleggja
alþjóðlegt skákmót i borginni.
— Og hvers vegna þá fjöltefli?
hvislaði miðasalinn.
Þeir gætu unnið. En með
tuttugu rúblur i vasanum getum
við strax keypt okkur far með
fljótabátnum.
A fastandimaga er ómögulegt að
hlýða á svona bölvaða vitleysu.
Fyrir tuttúgu rúblur komumst við
kannski áleiðis, en fyrir hvað eig-
um við þá að kaupa mat. Vitamin,
kæri framleiðandi, eru ekki gefin
ókeypis. Vasjúkinar eru reiðu-
búnir að punga út með 30 rúblur i
viðbót — til að hlusta á fyrirlest-
urinn.
— Þeir lúskra áreiðanlega á
okkur, sagði Vorobjaninof beisk-
lega.
— Auðvitað er þarna ákveðin
áhætta. En ég hef smáhugmynd,
sem tryggir öryggi yðar, hvað
sem öðru liður. En meira um það
seinna..
(Framhald i næsta blaði).
Athugasemd
1 Þjóðviljanum i gær, föstudag,
birtist frétt i tilefni af ársskýrslu
Búnaðarbankans. Á það hefur
verið bent að bankastjórar væru
fleiri viö Búnaðarbankann en
aðra banka. Þetta er ekki rétt.
Bankastjórar eru tveir við
Búnaðarbankann og þar er eng-
inn aðstoðarbankastjóri. Útibús->
stjórar bankans i Reykjavik eru
ekki bankastjórar; þeir starfa
sem deildarstjórar og taka laán
samkvæmt þvi.
Búnaðarbankinn er næststærsti
bankinn i landinu og hefur samt
færri bankastj. en aðrir bankar,
jafnvel þótt þeir séu minni en
Búnaðarbankinn. Það er þvi ekki
ástæða til þess að nefna Búnaðar-
bankann fyrstan i sambandi við
þenslu i stjórnkerfi bankanna.
Þrjárnýjar
kennslu-
bækur
í íslenzku
Bókaútgáfan Valfell hefur gefið
út þrjár kennslubækur i íslenzku
eftir Gunnar Finnbogason cand.
mag.
Tvær þeirra heita einkenni-
legum nöfnum — Listvör og Rit-
vör , en höfundur sagði á blaða-
mannafundi i gær, að hann teldi
meira i anda timans að velja
kennslubókum heiti i ætt við út-
breidd kvennanöfn en að fylgja
fyrri háttum. Þessar bækur eru
skyldar að efni, nema hvað hin
siðarnefnda er nokkuð auðveldari
hinni fyrri. Listvör er kennslubók
i ritgerðasmið og fylgir nokkur
þjálfun i stafsetningu. Höfundur
hugsar sér þessa bók fyrir fyrsta
námsár i menntaskólum,
kennaraskólum og framhalds-
deildum. Ritvör er ætluð sérskól-
um ýmiskonar — þar er byrjað á
stafsetningu, en siðan farið út I
ritgerðasmið og ýmsar æfingar er
varða framsetningu i rituðu máli.
Málið initt heitir þriðja bók
Gunnars og spannar víðara svið.
Þar er fjallað um málnotkun
(merkingafræði, orðaforða o.fl.),
bragfræði, og Ijóðalestur (þ.á.m.
nútimaljóð), þá eru rifjuð upp
uokkur atriði úr málfræði og setn-
ingarfræði, einkum frá hagnýtu
sjónarmiði, nokkuð farið inn á
liíjóðfræði og orðmyndun. Bæk-
urnar eru allar um 1B0 bls. aö
stærð.
77 erlendir
togarar á
veiðum 1. 8.
1. ágúst voru aö veiðum hér við'
land 54 brezkir togarar, 18 vestur-
þýzkir, 3 færeyskir, 1 belgiskur og
1 franskur, samtals 77 togarar.
Lítil sala í
„ríkinu”
í gœrdag
t gær bjuggumst við hér á
blaðinu við þvi, að fullt væri útúr
dyrum i afgreiðslubúðum
Áfengisverzlunarinnar. En þegar
að var komiö (aðeins i fréttaleit)
var þar engan mann að finna,
nema afgreiðslumennina. Þeir
sögðu að óvenju litið hefði verið
að gera i gær, en hinsvegar hefði
sala verið söm og jöfn alla siðustu
viku. —S.dór
Sfór sending ó
kynningarverÓi!
Kr. 1.590-
staerð 560- 13/4
Kr. 1.775- Kr. 2.970-
stærð 560-15/4
Höfum fengið sfóra sendingu
af BARUM hjólbörðum i
flestum stærðum
ó ótrúlega hagstæðu verði,
eins og þessi verðdæmi sanna.
BARUM KOSTAR MINNA
— EN KEMST LENGRA
stærð 650- 16/6
fÉKKNESKA BIFREIDAUMBODIO A ÍSLANDI H.F.
SOLUSTAÐIR:
GARÐAHREPPI SlMI 50606
(öður Hjólbarðaverkstæði Garðahrepps
Sunnan við lækinn, gengt benzínstöð BP)
Shooh ®
BÚDIN
AUÐBREKKU 44-46,
KÖPAVOGI — SlMI 42606
AUGLÝSING
um gjalddaga og
innheimtu þinggjalda
í Kópavogi
Skattskrá fyrir árið 1972 hefur verið lögð
fram i Kópavogi og hefur gjaldendum ver-
ið sendur álagningarseðill, þar sem til-
greind eru gjöld þau, sem greiða ber sam-
kvæmt álagningu 1972.
Þinggjöld, sem greiða ber 1972, eru þessi:
Tekjuskattur, eignarskattur, kirkjugjald,
slysatryggingargjald vegna heimilis-
starfa, iðnaðargjald, slysatryggingar-
gjald atvinnurekenda skv. 36. gr. laga nr.
67/1971, lifeyristryggingagjald skv. 25. gr.
sömu laga, atvinnuleysistryggingagjald,
alm. launaskattur, sérstakur launaskatt-
ur, kirkjugarðsgjald og iðnlánasjóðsgjald.
Samkvæmt ákvæðum i reglugerð nr. 245-
/1963 um tekjuskatt og eignarskatt, sbr.
lög nr. 68/1971 og lög nr. 7/1972, ber hverj-
um gjaldanda að greiða álögð gjöld, að þvi
frádregnu sem greitt hefur verið fyrir-
fram, með 5 jöfnum greiðslum 1. ágúst, 1.
sept., 1. okt., 1. nóv., og 1. desember. Van-
skil að hluta skv. framansögðu valda þvi,
að allir skattar gjaldandans á gjaldárinu
falla i eindaga 15 dögum eftir gjalddagann
og eru lögtakskræfir ásamt kostnaði
þ.á.m. dráttarvöxtum.
Gjaldendum er skylt að sæta þvi, að kaup-
greiðendur haldi eftir af kaupi þeirra til-
skyldum mánaðarlegum greiðslum, enda
er hverjum kaupgreiðanda skylt að ann-
ast slikan afdrátt af kaupi, að viðlagðri
eigin ábyrgð á skattskuldum starfsmanns.
Kópavogi, 2. ágúst 1972.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.