Þjóðviljinn - 05.08.1972, Side 12

Þjóðviljinn - 05.08.1972, Side 12
1OÐVIUINN Kvöldvarzla lyfjabúða vikuna 29. júli til 4. ágúst er i Lyfja- búðinni Iðunni og Garðs Apóteki. Næturvarzla er i Stór- holti 1. Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavfkur, simi 18888. Laugardagur 5. ágúst 1972 Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Simi 81212. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstöðinni. Simi 21230. Muskie vara- forsetaefni demókrata? WASHINGTON 4/8. George McGovern forseta- efni demókrata sagði i gær- kvöld/ aö hann mundi ekki taka ákvörðun um það, hver yrði varaforsetaefni hans fyrr en hann hefði ráðfært sig rækilega við Edmond Muskie öldungar- deildarþingmann. McGorvern skýrði frá þessu eftir að öldungardeildarþing- mennirnir Hubert Humphrey, Kdward Kennedy og Abraham Ribicoff höfðu allir hafnað tilboöi um að bjóða sig fram til varafor- seta. Muskie, sem átti allmiklu fylgi að fagna meðal demókrata sem forsetaeíni, hefur sagt, að McGovern hafi ekki enn spurt sig að þvi hvort hann vilji i framboð. Ætluðu að ræna syni Kennedys? AÞENU 4/8. Saksóknari leggur til að meintur foringi átta manna hóps griskra stjórnarandstæð- inga verði dæmdur i fjögurra ára fangelsi i'yrir á.'orm um ólög- mætar athafnir. Andspyrnuhópur þessi er meðal annars sakaður um áform um að ræna ellefu ára gömlum syni Johns F. Kennedys og Jacqueline Onassis. Saksókn- arinn heldur þvi l'ram, að hópur þessi hai'i viljað elna til borgar- skæruhernaðar á Grikklandi i anda Tupamaroshreyfingarinnar i Uruguay. Ólíkt mat á heimsendingu KAIRO 4/8. Heykal, ritstjóri hins hálfopinbera blaðs A1 Ahram, segir i blaði sinu i dag, að sú ákvörðun Egypta að senda heim sovézka hernaðarráðunauta hafi áreiðanlega leitt til hvassra deilna meðal ýmissa æðstu ráða- manna i Moskvu. Heykal telur sig vita, að lengi hafi rikt allmikill ágreiningur innan stjórnar sovézka kommún- istaflokksins um ástand og stefnumið i Austurlöndum nær. Samdægurs berast þær fréttir, að egypzk blöð hafi þakkað sovézkum hernaðarráðunautum fyrir framlag þeirra til uppbygg- ingar egypzkra landvarna og þá einkum flughersins. Neyðar- ástand á Bretlandi LONDON 4/8.Tillögum sátta- nefndar i máli brezkra hafnar- verkamanna var i dag hafnað af stjórn sambands þeirra með 38 atkvæðum gegn 28 en 18 sátu hjá. Fulltrúar brezku stjórnarinnar létu i dag i ljós vonir um að hægt veröi að ljúka verkíallinu i næstu viku. Neyðarástandi var um mið- nætti lýst yfir i landinu vegna verkfallsins. Enn er enginn mat- vælaskortur i landinu, en bændur kvarta mjög yfir skorti á fóður- vöru. Siðari fréttir: Þeir Muskie og McGovern ræddust við einslega i um það bil tvær stundir i dag, og eru flestir fréttaskýrendur á einu máli um það, að flest bendi til þess að Muskie verði i framboði. Hann hefur allgóð sambönd við bandariska verklýðshreyfingu, sem hingað til hefur veitt McGovern mjög dræman stuðning. Muskir Loftárásir á stiflugarða: Kennedy ákærirNixon stjórnina WASIiINGTON 4/8. Edward Kennedy öld- unga-deildarþingmaður ásakaði i dag Nixon og ráðunauta hans fyrir að Miljón fyrir að ganga með barn PHILADELPHIA 4/8. Hjón ein i Philadelphíu i Bandaríkjunum, sem ekki geta sjálf átt barn, hafa boöið þeirri konu 10 þús. dollara sem fæst til að eiga barn með eigin- manninum. Auk þess vilja hjónin greiða ýmisleg útgjöld fyrir konuna i átján mánuði og veita henni námsstyrk ef vill. Auglýsing um þetta efni kom i blaði einu i Philadelpiu og svöruðu 20 konur játandi, en aðeins fjórar munu hafa mætt til að tala við fulltrúa hjónanna. Hjónin hafa ekki gert það upp við sig enn, hverja þau ætla að ráða til þessa starfa. Ekki er annað vitað um barnlausu hjónin en að eigin- maðurinn mun rúmlega þritugur og gyðingatrúar. Þau vildu að umsækjendur væru ekki eldri en 26 ára og hefði nokkra menntun að baki. Öldungadeild Bandaríkj aþings: Samkomulag um eldflaugavarnir staðfest WASIIINGTON 4/8. Bandariska öldunga- deildin samþykkti i gær með yfirgnæfandi meiri hluta atkvæða samning milli Sovétrikjanna og Bandarikjanna um tak- markanir á smiði gagn- eldflaugakerfa. Aðeins Iveir þingmcnn greiddu atkvæöi gegn samkomu- laginu, sem lýtur að þvi, að livorugt landið komi sér upp nema tveim varnarkerfum gegn eld- flauguin. Frestað var tii mánudags at- kvæðagreiðslu um samkomulagið um takmörkun á fjölda árásar- eldflauga, vegna framkominna breytingartillagna. Lúta þær að þvi, að Sovétrikin seu vöruð við að smiða eldflaugar með fleiri en einum kjarnaoddi. William Ful- bright, formaður utanrikismála- nefndar deildarinnar, lagðist mjög gegn þessum tillögum og sagði, að nú sem stæði væri visst valdajafnvægi milli risaveldanna á þessum sviðum vigbúnaðar. standa að loftárásum á stiflugarða i Norður- Vietnam af ásettu ráði. Kennedy bar fram ásakanir sinar i sambandi við umræðu i öldunga-deildinni um tillögu frá fimm demókrötum um fordæm- ingu á loftárásum á áveitukerfi Norður-Vietnams. Hugh Scott, talsmaður Repúblikana í deildinni, sagði, að staðhæfingar um loftárásir á stiflugarðana væri uppspuni og áróður, sem kæmi annaðhvort frá Hanoi, Paris eða Stokkhólmi. Kennedy visaði til tilkynninga utanrikisráðuneytisins um að nokkrir garðar hefðu orðið fyrir sprengjum vegna þess, að þeir væru nálægt mannvirkjum sem Bandarikjamenn teldu sig hafa rétt til að sprengja. Þar með væri ljóst, sagði Kennedy, að stjórnin teldi sig hafa rétt til að gera loft- árásir án tillits til þess hvaða áhrif þær höfðu á áveitukerfið. MANILA 4/8. Kólera hefur brotizt út á eynni Luzon á Filippseyjum, en þar hafa um 2 miljónir manna orðið fyrir barðinu á verstu flóð- um i sögu landsins.Fjórirhafa lát- izt úr veikinni og 1700 eru komnir á sjúkrahús Flóðin hafa þegar kostað 400 mannslif, en tugþúsundir manna eiga hungursneyð yfir höfði sér. Matvælabirgðir eru nokkrar en samgöngur i ólestri. Marcos for- seti hefur aflýst þátttöku Filipps- eyja í öllum alþjóðaráðstefnum vegna flóðanna og einnig farið þess á leit, að hætt verði við þátt- töku i Ólympiuleikunum Síðari fréttir herma, að fólk á Luzon sé neytt til að éta ketti, rottur og slöngur til að halda i sér lifi. Andstaða og stuðningur við EBE vega salt í Noregi OSLO 4/8. Skoðana- könnun Evrópuhreyfingar- innar svonefndu i Noregi bendir til þess, að 45% Norðmanna telji að Noregur eigi að ganga í Efnahagsbandalagið ef að Danmörk og England ganga i það.40% eru á móti en 15% hafa ekki ákveðið sig enn. Tölur þessar hafa litið breytzt siðustu mánuðina, en i janúar svöruðu 44% spurningunni ját- andi en 45% neitandi. Andstaðan gegn aðild er mest i Norður- Noregi, en þar svöruðu 57% neit- andi, en stuðningur við EBE mestur i Oslo, þar sem 59% svöruðu játandi. Yfirgnæfandi meirihluti stuöningsmanna Mið- flokksins og Sósialiska alþýðu- flokksins eru andvigir aðild og um helmingur stuðningsmanna Vinstri flokksins. Fyrsta kvikmynd á grœnlenzku KUDLIGSSAT, Grænlandi. Verið er að taka fyrstu leiknu kvikmyndina á grænlenzku, og fjaliar liún um lif og starf fjölskyldu frá námabæn- uin Kutdligssat á norður- strönd Diskoeyjar, sem nú er verið að leggja i eyöi. Á Disko hefur um áratuga skeið verið starfrækt kola- náma, en nú hafa yfirvöld Grænlandsmála ákveðið að hætta rekstrinum og flytja 1.400 ibúa Kudligssats á brott. Danski kvikmyndastjórinn Per Kirkeby og Græn- lendingurinn Arkaluk Lynge vinna saman að gerð myndarinnar. Fjölskyldan, sem ..leikur” sjálfa sig i myndinni, vildi fyrst ekki að danskir menn kæmu inn fyrir dyr hjá sér, enda sjálf ekki vön heimboðum af hálfu danskra manna á Grænlandi. En nú er samstarfsvandamál leyst og unnið af kappi að gerð myndarinnar. Myndin mun að likindum sýnd i danska sjónvarpinu áður en langt um liður. Kvikmyndaupptaka á stöðinni við Kutdligssat: 16 fjölskyldur yfir- gefa staðinn fyrir fullt og allt.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.