Þjóðviljinn - 10.08.1972, Blaðsíða 1
UOmiUINN
Fimmtudagur lO.ágúst 1972 — 37. árangur —176. tölublað
Alþýóubankinn hf
ykkar hagur
okkar metnaður
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
Látið vita um einkenni
Gunnar Stcinn.
Bílslys í Kömbum
Upp úr miðjum degi i gær
vildi það slys til í Kömbun-
um að hemlar oliubíls bil-
uðu og rann bíllinn stjórn-
laust áfram niður Kamba
Neöar i Kömbunum stóö mann-
laus jeppi, en þeir sem i honum
höföu veriö voru nýstignir úr hon-
um til aö taka félaga sina tali,
sem þar voru á ferð i öörum bil.
Oliubillinn lenti á mannlausa
jeppanum, en við það valt oliu-
billinn margar veltur niður hlið-
arnar og er næsta ónýtur að sögn
lögreglunnar á Selfossi.
Bilstjóri oliubilsins kastaðist úr
honum við velturnar og var hann
fluttur á Slysavaröstofuna i
Reykjavik, en samkvæmt upplýs-
ingum þaöan i gærkveldi hafði
hann ekki hlotið alvarleg meiðsl
lokið á
Bárðar-
bungu
Borun á Báröarbungu mun
nú vera lokið, og komið er i
gegn um jökulinn en siðustu
viku liefur boruninni miðað
mjög vel, eða um 200 metra,
sem er jafn mikið og 7 vikurn-
ar á undan.
Þessi aukni borhraði er
einkum aö þakka nýjum kapli
sem jöklafararnir fengu, en sá
sem þeir höfðu notazt við til
þess tima hafði reynzt þeim
miður vel. Einnig eiga endur-
bætur þær, sem jöklafararnir
hafa gert á bornum sinn þátt i
þessum árangri.
Blaðinu tókst ekki að ná tal-
sambandi upp á Vatnajökul i
gær, en búizt er við að leiðang-
ursmenn komi niður i byggð
öðru hvoru megin við helgina.
Upphaflega mun ætlunin
hafa verið að rannsaka bergið
undir jökhnum, en hvort af þvi
verður, eða hvenær það þá
yrði, er ekki vitað.
legar skattaálögur
greiða þær sem árlegt nöld-
ur, sem ekkert mark sé tak-
andi á, og fjari út og verði
loks að engu?
Blaðið hafði samband við skatt-
rannsóknarstjóra og spurði hann
þessara spurninga.
Ekki vildi hann gefa ákveðin
svör, heldur sagði aðeins að þeir á
skattrannsóknardeildinni læsu
blööin, og veittu þar eftirtekt þvi,
sem um skattamálin væri skrifað.
Það er þvi fullkomin ástæða til
að hvetja fólk til að senda upplýs-
ingar um einkennilega sköttun,
hvort sem hún er einkennileg
vegna þess hve há hún er, eða lág,
óeðlilegt misræmi milli útsvars
og tekjuskatts eða að einhverju
öðru leyti áhugaverð.
Slikar upplýsingar geta einmitt
orðið til þess að hafin verði rann-
sókn á fjárreiðum manna, eða þá
flýtt fyrir þvi að slik rannsókn
hefjist, og er i þvi sambandi
skemmst að minnast skrifa Þjóð-
viljans um fjárreiður forstjóra
Bifreiða og Landbúnaðarvéla, en
skattalögreglan tók það mál ein-
Framhald á bls. 11.
Hvaö verður af upplýs- gefa um skatta og gjöld skattayfirvöld þær sem
ingum þeim sem blööin einstakra gjaldenda? Láta vind um eyrun þjóta, og af-
KVÖLD í REYKJAVÍK
Sœmileg síld
í Norðursjó
Fátt fréttist af síldveiði-
bátunum í Noröursjó
þessa dagana, annað en
þaö aö veiðin er eitthvað
að glæðast, og síldarverð-
ið fer hækkandi.
Þjóðviljinn náði tal-
stöðvarsambandi við m/b
Birting frá Neskaupstað í
gær og spurðist frétta hjá
skipstjóranum isak
Valdemarssyni.
— Það er ósköp litið að frétta
hjá okkur. Við erum að koma
frá Skagen i Danmörku og á leið
á miðin.
— Hvernig var salan?
— Við seldum fyrir tæpar 100
þúsund danskar.
— Hvað voruð þið með mikla
sild?
— Við vorum með 1850 kassa.
— Er þetta þá sæmileg sala?
— 1200 þúsund islenzkar. Já,
þetta er svona dágott.
— Er verðið eitthvað að auk-
ast á sildinni?
— Það er jafnara núna en það
hefur verið i sumar,já.
— Sigla bátarnir eitthvað á
Þýzkaland?
— Þeir hafa litið gert af þvi,
og ég hef engar fréttir af sölum
þar.
— Hvar hafa veiðarnar mest
verið i sumar?
— Þær hafa verið að færast
vestur eftir núna siðustu vik-
urnar, annars hafa þær mest
verið niðri i Skagerak.
— Er þetta sæmileg sild?
— Hún er misjöfn.
— Er makrill i henni?
— Nei, það er nú ekki. Hún er
bara svona blönduð. Stundum
fáum við sæmilega góða sild,
annars er tröppugangur á þvi.
— Eru Danirnir nokkur reiðir
við ykkur yfir veiðunum?
— Það ber ekki á þvi.
— En Færeyingarnir?
— Við höfum ekkert hitt á þá
hér. Þeir eru mest i Hirtshals,
en við hins vegar i Skagen, svo
ég get litið sagt þér af þeim.
— Hvað eruö þið búnir að
selja fyrir mikið i sumar?
— Ég hef nú ekki tekið það
nákvæmlega saman, en það er
einhvers staðar á milli 8,5 og 9
milljónir króna.
— Hvað var það i fyrra, 10,5
milljón?
— Jú, eitthvað nálægt þvi.
— Hvað er eftir mikið af
veiðitimabilinu?
— Það stendur fram i miðjan
september.
— Hafa strákarnir eitthvað
farið heim i fri, eða hefur fólkið
þeirra komið út?
— Þeir hafa eitthvað gert af
þvi að fara i fri, og einhverjir
hafa fengið konurnar hingað
niðureftir. Þeir hafa þó ekki far-
Þessi mynd af Birtingi NK er kom hlaðinn loðnu í heimahöfn, var
tekin á Norðfirði að vetrarlagi.
ið neitt i fri hérna á Birtingi, né
konurnar komið, en það er þó
dálitið um það i hinum bátun-
um.
— Hafið þið kannski siglt eitt-
hvað heim?
— Ekki ennþá.
— Og ekki á döfinni?
— Maður veit aldrei neitt um
það, það er ekki ákveðið.
— Hvað haldið þið lengi út,
veiztu það?
— Nei, ætli það verði þó ekki
fram i miðjan september, fyrra
úthaldið, hvað sem svo verður.
— Nokkuð annars nýtt að
frétta af miðunum?
—Ég hef ósköp litlar fréttir af
veiði þessa stundina. Annars
hefur verið einhver veiði, en hún
hefur verið á grunnu vatni og
leiöinlegt að eiga við hana og
mikill straumur.
— ú.þ.