Þjóðviljinn - 10.08.1972, Side 11
ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11.
Fiskimál
Á LEIK !
Öragg gce&^jun
Ótrúleg verl^T
VeriÖ örugg veÖjiÖ a BARUM
Sterkur leikur þab
- öllum
bílaeigendum
I hag!
BARUM
BREGZT
EKKI.
w
SHODH BÚDIN
AUOBREKKU 44 - 46, KÓPAVOGI — SlMI 42606
Aðstoðarlæknisstaða
Staða aðstoðarlæknis við taugalækninga-
deild Landspitalans er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningum
Læknafélags Reykjavikur og stjórnar-
nefndar rikisspitalanna.
Umsóknir, er greini frá aldri, námsferli
og fyrri störfum, sendist stjórnarnefnd
rikisspitalanna, Eiriksgötu 5 fyrir 1.
september n.k.
Ileykjavik, !). ágúst 1972
Skrifstofa rikisspitalanna.
Stúlkur 17 ára og eldri
Húsmæðraskóli kirkjunnar á Löngumýri
i Skagafirði býður ykkur upp á hagnýtt
nám.
Skólinn starfar frá 1. október til mailoka,
en býður einnig upp á styttri námskeið
frá októberbyrjun til 16. desember og frá
7. janúar til mailoka.
Upplýsingar eru gefnar á Löngumýri og i
sima 15015 i Reykjavik.
Umsóknir óskast sendar sem fyrst til
Margrétar Jónsdóttur, Löngumýri.
Vélamiðstöð
Rey kj avíkurborgar
vill ráða nokkra menn til vinnu á vinnu-
vélum; upplýsingar veitir vélamiðlari
fyrirtækisins i Skúlatúni 1.
Framhald af 5. siöu.
Þá er komið að siðasta liðnum
sem eru niðursoðnar og niður-
lagðar fiskafurðir. Þarna eru
Bandariki Norður-Ameriku lang-
stærsti kaupandinn en næst koma
Bretland ásamt Norður-lrlandi,
Ástralia og Sviþjóð. Það er at-
hyglisvert að fylgjast með þvi, að
með hverju ári stækkar fiskniður-
suðumarkaður Norðmanna i
Bandarikjunum.
Eftirliti með
möskvastærð í
togvörpum ábótavant
Þvi aöeins koma samþykktir að
gagni, að eftirlit sé haft með
framkvæmd þeirra, og þau lönd
sem að þeim standa, virði i verki
samþykktirnar. i gildi á að vera
lámarks möskvastærð i tog-
vörpum, sem notaðar eru á norð-
austur Atlanzhafi. En sökum
ónógs eftirlits og vöntunar á
skilningi margra þeirra sem
þarna eiga hlut að máli, er sam-
þykktin um lágmarks möskva-
stærð meira og minna brotin.
Norsk eftirlitsskip rannsökuöu
möskvastærð fimm franskra
togara á hafi úti út af Noregs-
strönd nú i sumar og reyndust
þeir allir með of litla möskva-
stærð i vörpu. Þetta hefur verið
kært til franskra yfirvalda. En
samkvæmt gildandi samþykkt
um möskvastærð hefur strandriki
rétt til rannsóknar á möskva-
stærð erlendra skipa á hafi úti.
í tilefni af þessari frétt svo og
þrálátum orðrómi um, aö
möskvastærðarsamþykktin sé
bæði sniðgengin og brotin af
veiðiskipum margra þjóða, þá
vill fiskimálaþátturinn beina þvi
til landhelgisgæzlunnar svo og
hlutaðeigandi yfirvalda, að
rétturinn til mælingar á möskva-
stærð i togvörpum, ekki aðeins
islenzkra skipa, heldur lika er-
lendra, bæði i islenzkum höfnum,
svo og á hafi úti við strendur
tslands sé notaður, og niðurstöður
þeirra athugana birtar opinber-
lega.
Verður Norðursjóvar
síldveiði Norðmanna
takmörkuð í bræðslu?
1 stjórn fiskimála i Noregi hefur
það verið rætt i vor og sumar
hvort ekki sé orðin nauðsyn á að
takmarka veiðar norskra skipa á
Norðursjávarsild i bræðsiu.
Fiskimálastjórnin hefur stungið
upp á þvi, að leyfð hámarksveiði
yrði bundin við 90,000 tonn af
bræðslusild úr Norðursjó, en
þetta er 75-80% af veiði þeirra i
bræðslu siðustu árin.
Árið 1969 fengu norskar sildar-
verksmiðjur 121,000 tonn af
Norðursjávarsild til vinnslu. 1970
16^000 tonn og 1971 117,000 tonn.
Fiskimálastjórnin hefur sent
norska Sjávarútvegsráðuneytinu
framangreinda ósk um tak-
mörkun á veiði Norðursjávar-
sildar i bræðslu. Þá hefur þetta
mál lika verið lagt fyrir Norges
Fiskarlag til umsagnar, og hefur
nýlega borizt svar þaðan, þar
sem þessi félagsskapur norska
sjávarútvegsins styður tillögu
fiskimálastjórans.
Stúlka með vörtu
Framhald af bls. 2.
um til þess að verðlauna þýð-
ingu á erlendri barnabók”.
Sem sagt: Árlega skal veita
verðlaun fyrir islenzka frum-
samda barnabók og þýdda er-
lenda barnabók,—ekkert
undanfæri.
Reykjavfkurborg hefur rutt
brautina og sem mikil fyrir-
mynd haft áhrif á aðrar borgir
á landinu.
Stærsta borgin á Norður-
landi, Akureyri, veitir hlið-
stæð verðlaun á næsta ári, og
metnaðarins vegna hækkar
upphæðin i 31 þúsund krónur
og 15 þúsund 250 krónur. Á þvi
ári veitir Vestmannaeyjaborg
á Heimaey til verðlauna fyrir
barnabækur 31 þúsund og
400 krónur og 15 þúsund og 300
krónur. Og enn bætast við á
þjóðhátiðarárinu borgir úr
öörum fylkjum landsins.
Stærsta borg Vestfjarða, Isa-
fjörður, — Nesborg við Norð-
fjörð og borgirnar á Suður-
nesjum, Keflavik, Hafnar-
fjörður og Kópavogur. Verð-
launaupphæðin er þá komin
upp i 32 þúsund 125 krónur og
16 þúsund 230 krónur.
Og þá hafa þessi tiðindi
gerzt: Átta borgir á tslandi
hafa skipað átta dómnefndir
um beztu barnabókina, en
engum ber saman. Til hátiðar
landsbyggðarsögunnar á
Þingvöllum mæta þvi átta
verðlaunahöfundar fyrir það
herrans ár. Þar mynda þeir
stétt og stofna Félag verð
launahöfunda á tslandi. Og
þar eö reikna má með þvi, að
ver.ðlaunahöfundum fækki
ekki á árunum til aldamóta,
verða verðlaunamenn áriö
2000 orðnir 208. En þó að
reikna megi með þvi, að 10%
af þessum fjölda verði kominn
á hærri plön, þar sem hver og
einn gefur sjálfum sér verð-
laun, þá verða félagsmenn þó
að minnsta kosti 188 um alda-
mótin.
En á þjóðhátiðarárinu er
svo komið, að litið verður nið-
ur á Reykjavik með lægstu
verðlaunaveitinguna.
Þannig eru laun heimsins.
Gunnar M. Magnúss.
Breiðablik
Framhald af bls. 9.
Þetta mun vera fyrsti sigur
Breiöabliks yfir Skagamönn-
um, en þessi lið hafa leikiö
fjölmarga leiki, bæði i 1. deild
og Litlu bikarkeppninni.
Næstu leikir i 1. deild eru á
iaugardaginn, þá mæta
Skagamenn Fram á Akranesi
og ÍBV mætir ÍBK i Vest-
mannaeyjum.
— S.dór
Skattar
Framhald af bls. 1.
mitt fyrir um mjög svipað leyti,
lauk rannsókn á þvi og sendi til
saksóknara.
Hvert á veg dómstigsins það
mál er nú komið er ekki vitað,
ánnað en það að þvi mun ekki
vera lokið fyrir dómstólum.
Þó að svo virðist i fljótu bragði
sem slikar uppljóstranir séu þar
með til litils, er virkilega ástæða
til að ætla að einhver breyting til
bóta sé i vændum á dómskipan i
landinu, og þar verði miðað að þvi
að hraða dómsmálum, og koma
rekstri slikra mála úr höndum
ýmissa þeirra sem nú fjalla um
þau og hafa fjallað allt of lengi.
Slik breyting á dómskipaninni
,mun vera skemur undan, en
margan grunar.
— ú.þ.
Þúsund ár
Framhald af bls. 3.
Þóra segir okkur að það sem
þarna blasir við sé frá Innrétt-
ingunum, sem stóðu þarna á 18.
öld. Hinsvegar hefur verið graf-
iðdýpra i einu horninu og þar er
þegar komin i ljós vegghleðsla
frá landnámstið, en nokkuð er
langt i land með að hún verði
fullkönnuð og jafnvel kemur fátt
markvert þar i ljós fyrr en
næsta sumar þegar haldið verð-
ur áfram uppgreftri þar.
Til gamans má geta þess að
þau Mjöll og Guðmundur sögð-
ust hafa fengið óvænta og
skemmtilega heimsókn á dög-
unum, sem var Kristján Eld-
járn forseti. Hann er eins og
menn vita fornleifafræðingur.
Mjöll fullyrti að hann hefði öf-
undað þau af starfinu, — ég sá
það á svipnum á honum, sagði
hún. - — S.dór
Husak
Framhald af bls. 4
þjóðernisstefnu”. Á Dubecek-tim-
anum skrifaði Htibl meðal annars
þetta: ,,Það er alveg i anda Karls
Marx þegar ég heid þvi fram, að
það nægi ekki að treysta góðum
vilja leiðtoga eða halda að aðeins
hinir beztu menn verði leiðtogar.
Félagarnir verða að hafa lög-
bundna tryggingu fyrir þvi að
þeir ráði eðlilegu vali leiðtoga,
geti stöðugt haft eftirlit með þeim
og skipt um foringja ef vill.”
En á miðstjórnarfundi
Kommúnistaflokks Tékkósló-
vakiu, áriö 1969 tilkynnti Husák,
að sá timi sé liðinn að hægt sé að
skipta um foringja. „Þið skuluð
ekki halda að þið getið farið á bak
við mig og undirbúið nýjan jan-
úar (i janúar uröu mikil manna-
skipti i forystu tékkneska
kommúnistaflokksins). Ég hefi
lært af ávirðingum Novotnys og
ég þoli enga andstöðu —■ hvorki i
blöðum, visindaakademiunni né
flokksapparatinu, Þið munuð
ekki getað sett mig af eins og
Novotný.*'
Aðalforsenda hinna nýju
réttarhalda sýnist einmitt vera
óttinn við nýja andstöðuhreyf-
ingu, en ekki hefnd eða refsing
fyrir það sem gerðist 1968. Til
þessa bendir og þungi refsing-
anna, sem auðsjáanlega á að hafa
þau áhrif að hræða menn. Hðbl er
sá sem hingað til hefur hlotið
þyngsta refsingu, eöa 6 1/2 árs
iangelsi* Kyncl 20 mánaða og
Bartosek tólf mánuði skilorðs-
bundið...
„Þessi málaferli varða ekki
innanlandsástandið eitt, — þau
vekja upp spurningar sem við
verðum að svarat*sagði 1’ Unitá,
málgagn italska kommúnista-
flokksins um málaferlin i Prag.
Og eftir langvarandi hik hressti
einnig Kommúnistaflokkur
Frakklands sig upp i aö láta i ljós
vanþóknun — en hann hefur siðan
i júni verið i alþýðufylkingar-
bandalagi við sósialista: „F'jand-
menn sósialismans ber að ein-
angra með virkri pólitiskri og
hugmyndafræðilegri baráttu —
en ekki með málaferlum”.
(Eftir der Spicgel)
Iimilegt þakklæti til allra sem sýndu okkur samúö og
vinarbug við andlát og jarðarför eiginmanns mins, fööur
okkar, tengdafööur og afa,
BJÖRNS GUÐMUNDSSONAR
FELLSMÚLA 14
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki dcildar
3C, Landsspitalanum, fyrir góða hjúkrun og umönnun í
veikindum bans.
Aðalbjörg Sigurðardóttir
Eygló Bjarnardóttir Magnús Bjarnarson
Erla Bil Bjarnardóttir Guðlaugur Hallgrimsson
Ingibjörg Bjarnardóttir Geir Ólafsson
og barnabörn.
Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og viná'l
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömn,
KRISTÍNAR VILHJÁLMSSOl'
ÁLFHEIMUM 31
Sérstaklega þökkum við Eimskipafélagi tslands h.f. þá
viröingu, sem félagið sýndi hinni látnu við útför hennar.
Thor Vilhjálmsson
llclga Vilíijálmsson
Guömundur W. Vilhjálmsson
Margrét Norland
Margrét Indriðadóttir
Magnús Magnússon
Guðbjörg Vilhjálmsson
Sverrir Norland
og barnabörnin.