Þjóðviljinn - 18.08.1972, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.08.1972, Blaðsíða 1
DJÚDVIUINN Föstudagur 18. ágúst — 37. árgangur —183. tölublað Alþýðubankinn hff ykkar hagur okkar metnaöur ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA í KRON Urskurðurinn skiptir engu Stórhugur í Norðfirðingum: l>etta skip er Slldarvinnslan á NorAfirði að kaupa frá Noregi. t>að á að heita Börkur. Þ jóðviljinn sneri sér i gær til Einars Ágústssonar "utanrikisráöherra vegna þessa máls og sagði hann eitthvað á þessa leið: — Rikisstjórnin mun halda fund um málið i fyrramálið. A þessu stigi málsins get ég látið koma fram — sem raunar hefur alltaf verið sagt áður — að við teljum að Alþjóðadómstóllinn hafi enga lögsögu i landhelgis- málinu og þess vegna hafi úr- skurður hans ekkert að segja. Við munum þvi halda okkar stefnu i landhelgismálinu hvað sem þessum úrskurði liður. Kaupa 1000 tonna skip til nóta- og flotvörpuveiða Norðfirðingar eru nú í óðaönn að endurnýja fiski- skipaflota Sildarvinnslunn- ar. Fyrirum það bil tveim- ur árum keyptu þeir skut- togarann Barða, í vetur undirrituðu þeir kaup- samninga um stóran skut- togara frá Japan,og nú ný- verið gengu forráðamenn Síldarvinnslunnar frá kaupum á 1000 tonna skipi frá Noregi. Samhliða þessu hafa þeir selt tvo af 250 tonna bátum sínum, Barða og Bjart, og fyrirhugað er að selja þá tvo sem enn eru eftir af þessari stærð, Birting og Börk. Eins og að ofan segir er nýja skip Sildarvinnslunnar 1000 tonn að stærð. Eins og nú standa sakir er i skipinu sildarverksmiðja, Skákæði segir til sín: Skákæðið sem gengið hefur yfir island, eftir að HM ein- vigið hófst, hefur vist ekki farið framhjá neinum. En það er ekki vist að menn geri sér grein fyrir þvi;að þetta er að verða meira en æði; hér er um hreinan faraldur að ræða. Nú er svo komið að töfl eru að verða uppseld i landinu og verzlunarstjórar hjá þeim verzlunum sem selja töfl og skákklukkur segjaað öðru eins hafi þeir aldrei kynnzt. Sigriöur Sigurðardóttir verzlunarstjóri hjá ritfanga- verzlun Isafoldar sagði, að töfl hefðu alltaf selzt vel á Islandi og að fyrir jólin væri að jafnaði mikil sala i töflum-,„en ég hefði aldrei getað imyndað mér annað eins og gengiö hefur á i taflsölu undanfarnar Þær selja mikið af töflum eins og gerist í öllum verzlunum um þessar mundir. Myndin er tekin í bókabúð Máls og menningar. Töfl eru að verða uppseld á Islandi vikur. Ég pantaði inn i vetur eða vor það sem ég áleit að myndi duga fyrir þetta ár og þá að jólasölu meðtalinni, en þetta hvarf allt saman eins og dögg fyrir sólu eftir að ein- vigið byrjaði. Sem dæmi get ég sagt þér, að við seldum yfir 150 vasatöfl á einum degi um daginn og nú er engin leið að fá vasatöfl lengur”. — Hvaö eruð þið búin að selja mörg töfl eftir að ein- vigið byrjaði? — Ég veit það ekki nákvæmlega,en þau eru fleiri en nokkur getur imyndað sér. — Þúsund? — Miklu meira. 1 bókaverzlun Máls og menningar sagði verzlunar- stjórinn Jónsteinn Haralds- son, að hann hefði ekki trúað þvi, að hægt væri að selja annað eins af töflum og klukkum á tslandi á jafn skömmum tima og þau hefðu gert hjá MM undanfarið. ,,0g þaö merkilega er,” sagði Jón- steinn ,, að við seljum enn jafn mikið .og fyrstu dagana eftir að einvigið hófst. Nei, ég hef ekki tekið það saman hvað við erum búin að selja af töflum, en það er miklu meira en nokkru sinni áður”. t Ritfangaverzlun VBK var okkur sagt aö áður en einvigiö hófst hefðu þar verið seld svona 2-3 töfl á viku, en nú Framhald á 11. siðu. lestarnar með millidekki, en ætlunin er að breyta þvi i tank- skip. Sildarverksmiðjan verður seld, en hún malar um 100 tonn á sólarhring. Skipið er ætlað til nóta- og flot- vörpuveiði. Lestarnar verða áfram með millidekki, en þær verða einangraðar þannig að i þeim verði unnt að geyma ferska sild, loðnu og kolmunna. Skipið er ætlað til loðnuveiða siðari hluta vetrar; einnig er hugsanlega hægt að senda það til sildveiða i Norðursjó, og gæti það hvort tveggja gert, að geyma sildina ferska i tönkunum og isað hana i kassa vegna tviskiptingar lestanna. Kolmunnaveiðar hafa litið sem ekki verið stundaðar hér við land hingað til, en mikiö magn kolmunna hefur fundizt við landiö, svo aö Norðfirðingar hafa fulla ástæðu til að vera bjartsýnir á, að flotvörpuveiðar á kolmunna beri góðan árangur. Aætlað er að breytingum á skipinu verði lokið um áramótin, en nú et- verið að vinna að útboði á þeim breytingum sem gerðar verða á þvi. Þetta nýja skip, sem ákveðið er að skýra Börk, mun bera 1100 tonn. Það er með 1200 hestafla Vikkman-vél, og þrem ljósavél- um, hverri 178hestöfl. öll aðstaða fyrir áhöfn er fyrsta flokks. Kaupverð skipsins er 69,9 miljónir, en áætlað verð breytinga er 27 miljónir, og eru þá meötaldar breytingar sem geröar verða á lestunum, flot- vörpuútbúnaður, tromma fyrir flotvörpu og auka-radar. ,,Við erum að kaupa þetta skip til að þjóna verksmiöju okkar hér”, sagði Jóhann K. Sigurðsson, útgeröarstjóri Sildar- vinnslunnar, sem gaf okkur allar upplýsingar um nýja skipið. Enn- fremur sagði Jóhann; „Við höfum þurft aö sækja tölu- vert langt á okkar bátum. Þeir hafa sótt á mið sem 16-18 tima stim hefur verið á. Með sliku er- um við bæöi að skaöa útgerð og fólkiö. Meö kaupum á þessu skipi, sem ber 1100 tonn, breytist þessi aðstaöa öll, og hagnaðurinn er tvimælalaust fyrir alla aðila.” Þess má geta i lokin að nýi togarinn, sem afhentur verður i Japan um áramótin, á að heita Bjartur NK 121, svo hinum happasælu nöfnum, Berki, Bjarti og Barða, verður öllum við haldið. —úþ Einar AgÚRtnon. Úrskurður Alþjóða- dómstólsins Utanrikisráðuneytinu barst skeyti i gærmorgun um úr- skurð Alþjóðadómstólsins, Þar segir að Alþjóðadómstóll- inn hafi samþykkt með 14 at- kvæðum gegn einu að til bráðabirgða skuli eftirfarandi úrskurður gilda (lauslega þýtt): a) Rikisstjórnir Islands og Bretlands tryggi að ekkert veröi gert sem dýpki eða auki viö þá deilu sem er fyrir rétt- inum; b) ekkert verði gertsem skaði möguleika annars aðilans til þess að framkvæma þær ákvarðanir sem kunna aö veröa teknar; c) lslendingar framkvæmi ekki reglugerðina frá 14. júli 1972 gagnvart skipum Breta sem eru á veiðum utan 12 milna landhelginnar umhverf- is Islands; d) tslendingar gripi ekki til neinna aðgerða gegn skipum sem skráð eru i Bretlandi, áhöfnum þeirra eða öðrum þeim tengdum einstaklingum, enda þótt stundaöar séu fiskveiðar við ísland utan 12 milna fiskveiðimarkanna. e) Bretar tryggi að skip þeirra veiði ekki meira en 170 þúsund tonn árlega 3 hafinu umhverfis tsland. f) Bretar sjái tslendingum fyrir skrám og upplýsingum til þess að framkvæma eftirlit með fiskveiðum á svæðunum umhverfis tsland. Hafi rétturinn ekki lagt fram lokaúrskurð sinn fyrir 15. ágúst 1973, getur hvor aðili um sig farið fram á breyt- ingar. Skilaboð NEW YORK 17/8. Pierre Salinger, fyrrum blaðafulltrúi Kennedys forseta, skýrði frá þvi i gærkvöld að hann hefði átt við- ræður við fulltrúa Norður- Vietnama i Paris i nafni McGoverns, forsetaefnis Demókrata. Hefði hann vitnað til afstöðu McGoverns til Vietnam- striðsins, en lagt um leið áherzlu á að Vietnamir leituðu sem fastast eftir friöi án þess að biöa eftir hugsanlegum stjórnarskipt- um i Bandarikjunum eftir kosningarnar i haust.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.