Þjóðviljinn - 18.08.1972, Blaðsíða 8
8. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Köstudagur 18. ágúst 1872
EVA RAAAM:
AAANNFALL
OG
AAEYJAVAL
— Forseti! sagði Persrud.
En nú lét Gunda sér ekki nægja
að berja hamrinum i borðið, nú
lét hún allan lófann fylgja með.
— Kemur ekki til mála. Nú er
það ég sem hef orðið. Og svo að
við snúum okkur aftur að málinu
— sem er alveg komið á kamar-
inn — þá ætla ég aö segja öllum
þeim, sem eru svo hræddir um að
bæjarfélagið hafi ekki efni á að
leggja vatn og klóak i norðurbæ-
inn, að það er allt saman á hreinu.
fcg get lýst þvi yfir undir eins að
við gerð fjárhagsáætlunar fyrir
næsta ár mun Káti kvennaflokk-
urinn i Totta beita sér fyrir þvi að
áætlun um bilastæði á Græna-
vangi verði felld niður, og við það
fáum við næga peninga til að sjá
norðurbænum fyrir vatni og kló-
aki. Og þar með finnst mér að við
ættum að binda enda á þessar
umræður og snúa okkur að þvi
hver á að taka að sér verkið, ef
tillagan verður samþykkt. Full-
trúarnir geta fengið að lita á til-
boðin, en á þeim munar 497,50
krónum. Tilboðshafar eru beðnir
að vikja úr salnum meðan á um-
ræðum stendur. þar sem þeir
hafa ekki atkvæðisrétt i málinu.
Vatneog llvistendahl röltu með
semingi fram á ganginn, þar sem
þeirstóðu og gutu augum hver til
annars og nöguðu á sér negl-
urnar, meðan raddirnar að innan
náðu til þeirra eins og fjarlægar
stórskotadrunur.
Jens Storhaug hafði lyppazt
niður i stólinn eins og eftir rot-
högg þegar hann heyrði tiðindin
um bilastæðið á Grænavangi, og
hann mælti ekki orð af munni það
sem el'tir var íundarins. Það var
eins og andi hans heföi yfirgefið
likamann ogsvifi eirðarlaus um i
skelfilegu tómrúmi, meðan
likami hans sat eftir eins og eins
konar varðmaður. Og umræð-
urnar héldu áfram án þátttöku
hans.
— Tilboð Vatnes er óneitanlega
lægra, upplýsti Gunda, —• en á
hinn bóginn hefur Hvistendahl
lofað framkvæmdum á skemmri
tima.
Fiskevann ungi fékk orðið og
reis á fætur taugaóstyrkur og
stakk visifingri inn fyrir flibb-
ann. Þetta var jómfrúræða hans i
bæjarstjórn, og þetta var stærsta
stundin i lifi hans til þessa, eld-
raun og takmark.
— Tja, ég er ekki sérlega þjálf-
aður i þessum hlutum i saman-
burði við aðra hér inni, byrjaði
hann og brosti afsakandi til hægri
og vinstri — en mér finnst rétt aö
þeir yngri láti lika til sin heyra.
Mér hefur skilizt að það muni allt
að 500 krónum á tilboði Vatnes og
Hvistendahls. Ég vil leggja til að
lægra tilboöinu verði tekið, en það
hefur Vatnes pipulagningameist-
ari lagt fram. Fimm hundruð
krónur eru lika peningar, og það
er ástæðulaust að sóa fimm
hundruð krónum að óþörfu:
kapitalistar hafa kannski efni á
þvi, en ekki við verkafólkið.
Hann þagnaði andartak og
horfði fram fyrir sig fjarrænum
augum eins og hann væri að
reyna að muna hvað hann hefði
átt að segja.
— Fimm hundruð krónur eru
miklir peningar i augum margra
félaga okkar: hugsið bara til
þreyttra og útslitinna sjó-
mannanna langt fyrir norðan og
kotbænda um allar jarðir. Enda-
þótt stjórnin geri það sem i henn-
ar valdi stendur til að bæta hag
þeirra á allra handa máta, þá er
erfitt að bæta fyrir óstjórnina á
fjórða áratugnum og —
Ein minúta er liðin, sagði
Gunda.
Fiskevann ungi hneig þreytu-
lega niður á stólinn og skotraði
augunum til flokksbræðra sinna
eins og hann vildi spurja hvernig
hann hel'ði staðið sig. Hafði hann
túlkað mál sitt sómasamlega?
Þeir kinkuðu til hans kolli og
brostu, já, þetta hafði vist bjarg-
azt alll saman. Hann hallaði sér
feginsamlega aftur á bak i
slólinn, nú gat honum svo sem
staðið á sama hvernig allt fór.
— l>á er röðin komin að
Kjemperud kaupmanni, tilkynnti
Gunda.
Meðan Kjepmerud mælti með
tilboðillvistendahls — (497,50 var
svo sem engin fjárhæð, sagði
hann, það er útsöluverðið á svo
sem 70 kiloum af þorskhrognum )
- sat Gunda og nagaði blýantinn
og hugsaði baki brotnu. Hún varð
að komast heim sem allra fyrst,
hamingjan mátti vita hvað strák-
arnir voru að bauka, og hún var
búin að taka það i sig að kamra-
málið i norðurbænum yrði leyst i
dag. Það l'lögraði ekki að henni að
fresta málinu; hún þoldi ekki taf-
ir, allur seinagangur fór i taug-
arnar á hcnni, hún fékk kláða og
hjartslátt og hitakóf.Og iþessari
pressu bár heilastarfsemi Gundu
nokkurn árangur; hún notfærði
sér reynslu sina frá dælunni, þar
sem hún setti upp sundurliðaða
reikninga. (An 20 litrar bensin, an
1 litri olia og þar fram eftir götun-
um). Þetta kerfi heimfærði hún af
miklum klókindum upp á kamr-
ana i norðurbæ og þegar minúta
var liðin. stöðvaði hún kaup-
manninn og sagði um leið og hún
heiðraði Henriksen bæjarfulltrúa
litið eitt af hjartagæzku sinni:
— Eins og Henriksen sagði
réttilega hérna áðan, þá eru tvær
hliðar á þessu máli. Já, þær eru
ekki aðeins tvær, heldur þrjár. t
fyrsta lagi sú hvort norðurbær
eigi að fá vatn og klóak eða ekki. t
öðru lagi hvort Vatne pípulagn-
ingameistari eigi að fá djobbið
eða ekki og i þriðja lagi
hvort Hvistendahl pipulagninga-
meistari eigi að fá djobbið eða
ekki. Nú legg ég til að við hættum
þessum umræðum og göngum til
atkvæða. Við greiðum atkvæði
um hvert atriði fyrir sig. Jæja þá:
Á norðurbærinn aö fá vatn og
klóak eða ekki? Þeir sem eru með
þvi, sitja kyrrir, hinir rétta upp
hönd. Greiðið nú atkvæði.
Karlmennirnir hristu höfuðin
með vanþókun; þessi æðibunu-
gangur eyðilagði alveg and-
rúmsloftið i bæjarþingsalnum.
En þeir sátu kyrrir næstum allir,
þvi að þeir vissu að meirihluti
Gundu myndi ráða úrslitum og
þeir gætu eins greitt atkvæði með
þess vegna. Seinna væri hægt að
segja; við höfum alltaf greitt at-
kvæði með vatni og klóaki i norð-
urbæinn, og viö höfum verið
þessu fylgjandi allt frá upphafi,
viðviljum alltaf framfarir, það er
alkunna, litið bara á fundargerð-
irnar. Persrud einn rétti hetju-
lega upp hönd og sýndi með þvi að
hann væri maður fyrir sinn hatt,
stæði einn gegn öllum, og ef norð-
urbærinn fengi klóak, þá yrði það
yfir likið af honum.
Nú barði Gunda með hamrinum i
borðið og tilkynnti að það hefði
verið samþykkt með öllum at-
kvæðum gegn einu að leggja vatn
og klóak i norðurbæinn.
— Og nú greiðum við atkvæði
um það hvort Vatne pipulagninga
meistari á að fá djobbið og siðan
um Hvistendahl —
— F’orseti!
— Gerið svo vel, frú Hammer-
heim!
— Ég legg til að við kjósum
milli þeirra i einu lagi.
— Þaö var og, sagði Gunda. —
Alveg eins og þér viljið. Biðið að-
eins andartak, ég þarf að skreppa
fram og sækja vasaklút.
Hún flýtti sér út i ganginn og
sótti bæjarmálabókina i skjóðu
sina. Hún var svört og sótug eftir
dvölina i kokshlaðanum. Hún
fletti upp kosningum, las i skyndi
nokkra kafla og þaut aftur inn.
— Já, við kjósum þá i milli
þeirra. Þeir sem greiða Vatne at-
kvæði sitja kyrrir, þeir sem kjósa
Hvistendahl rétta upp hönd. Nú
kjósum við.
Útkoman voru ellefu atvkæði á
Hvistendahl og ellefu á Vatne,
meðan tilboðshafarnir tveir stóðu
frammi á gangi og voru ógildir.
Persrud hafði laumazt burt af
fundi.
— Við skulum endurtaka kosn-
inguna, sagði Gunda.
Endurkosningin gaf sama
árangur.
— Hamingjan sanna, þú talar
eins og þú hafir verið forseti i
mörg ár, hvíslaði Brita hrifin. —
Ein hvað eigum við nú að gera,
Gunda? Ekki geta báðir fengið
verkið!
Gunda horfði ihugandi á hana.
— Ekki það?
Hún rýndi stundarkorn i tilboð-
in, siðan barði hún hamrinum i
borðið.
— t þessu máli virðist ekki
vera neitt annaðhvort eða, heldur
bæði og. Varaforsetinn og ég höf-
um komizt að þeirri niðurstöðu
el'tir nákvæma yfirvegun og at-
hugun á gögnum, að ekkert mæli
á móti þvi að skipta verkinu og
láta Hvistendahl og Vatne fá sinn
hvorn hlutann. Á þann hátt geng-
ur verkið helmingi fljótar og það
kostar okkur það sama. Ég legg
til að við skiptum upp verkinu og
deilum þvi milli Vatne og
Hvistendahls. Nokkur á móti?
Jens Storhaug vaknaði að
nokkru til lifsins og opnaði munn-
inn til að andmæla þessari
ósæmilegu tillögu, en áður en
hann gat komið upp hljóði, barði
Gunda hamrinum i borðið:
— Samþykkt samhljóða!
Storhaug lokaði munninum
aftur i uppgjöf.
— Og svo slúttum við þessu i
dag, sagði Gunda. — Við höfum
vist öll nóg að gera heima lika,
mætti segja mér. Jæja, þökk fyrir
i dag og hittumst heil aftur. Fundi
er slitið!
XVIII
Marz byrjaði og endaði, en
Totta stóð enn þrátt fyrir manna-
skiptin i bæjarstjórninni. Engir
ógnvekjandi viðburðir höfðu átt
sér stað; þvert á móti fannst hin-
um almenna borgara sem full-
ástæða væri til að gleðjast yfir
gangi mála. Ýmsar umbætur
höfðu þegar átt sér stað og frá
þeim var sagt i bæjarmáladálk-
um Tottatiðinda. Það varrétteins
og nýji forsetinn fylgdi hverju at-
riði i stefnuskrá kvennaflokksins
með fingrinum og krossaði við
jafnóðum og hún kæmi einhverju
i verk. Þannig var þvi komið i
kring að tæma ruslatunnurnar
tvisvar i viku og sett var á stofn
nefnd til að undirbúa skipti á
gömlu tunnunum fyrir nýtizku-
legri sorpilát. Tvö veitinghús i
Totta fengu leyfi til að selja sterkt
öl; Sererinsen garðyrkjumaður
var að skipuleggja skreytingu á
torginu; nefnd hafði verið sett á
stofn til að athuga möguleikana á
fleiri leikvöllum fyrir litlu börnin,
Húsbyggjendur —
Verktakar
Kambstál: 8, 10, 12, 16, 20, 22, og 25 m/m. Klippum og
beygjum stál og járn eftir óskum viðskiptavina.
Stálborgh.f.
Smiðjuvegi 13, Kópavogi. Simi 42480.
FÖSTUDAGUR 18. ágúst 1972
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Guðjón Sveinsson les
framhald sögu sinnar um
,,Gussa á Hamri” (3). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli liða. Spjallað við
bændur kl. 10.05. Tónleikar
kl. 10.25: Jacques Abram og
hljómsveitin Fiharmónia i
Lundúnum leika Páinókon-
sert nr. 1. i D-dúr op. 13 eftir
Benjamin Britten: Herbert
Menges stjórnar. Fréttir kl.
11.00. Hússnesk tónlist:
Susse Romande hljóm-
sveitin leikur Prelúdiu og
Dans persnesku þrælanna
eftir Mússorgský: Ernest
Ansermet stj. / Boris
Christoff syngur nokkur lög
eftir Glinka/Hljómsveitin
Fiharmónia leikur
„Francesca da Rimini”,
hljómsveitarfantasiu op. 32
eftir Tsjaikovský: Carlo
Maria Giulini stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 Síðdegissagan: „Þrútið
loft” eftir P.G. Wodehouse
Jón Aðils leikari les (5).
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Lesin dagskrá næstu viku.
15.30 Miðdegistónleikar:
Bandarisk tónlistColumbiu-
hljómsveitin leikur ,,E1
Salón México”, hljóm-
sveitarverk eftir Aaron
Copland: Leonard Bern-
stein stj. Hátiðarhljóm-
sveitin i Lundúnum leikur
„Grand Canyon” eftir
Ferdé Grofé: Stanley Black
stj.
16.15 Veðurfregnir. Létt lög.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.30 Ferðabókarlestur: Frá
c y ð i m ö r k u m M i ð - A s í u
Rannveig Tómasdóttir les
úr bók sinni „Andlit Asiu”.
18.00 Fréttir á cnsku
18.10 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Fréttaspegill
19.45 Við bókaskápinn Jónas
Sigurðsson skólastjóri talar.
20.00 Éinsöngur: Leonie
Rysanek syngur óperuariur
eftir Giordano, Mascagni,
Puccini o.fl.
20.30 Mál til meðferðar Arni
Gunnarsson fréttamaður
sér um þáttinn.
21.00 Strengjakvartett i C-dúr
op. 59 nr. 3 eftir Beethoven
Amadeuskvartettinn leikur.
21.30 Útvarpssagan: „Dala-
líf" eftir Guðrúnu frá Lundi
Valdimar Lárusson les (12).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöld-
sagan: „Maðurinn, sem
breytti utn andlit’’ eftir
Marcel AyméKristinn Reyr
les (11).
22.35 Danslög i 300 ár Jón
Gröndal kynnir.
23.05 Á tólfta timanum Létt
lög úr ýmsum áttum.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR 18. ágúst.
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Gömlu skipin Mynd frá
danska sjónvarpinu um
varðveizlu og endursmíð
gamalla tréskipa. Sýnd eru
skip ýmissa tegunda og rætt
við skipasmiðinn, sem haft
hefur forgöngu um að
bjarga þessum minjum
gamalla tima frá glötun.
(Nordvision —Danska sjón-
varpið) Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
20.55 Einleikur i sjónvarpssal
Rögnvaldur Sigurjónsson
leikur á pianó verk eftir
Hummel, Schumann, Chop-
in og Prókoffieff.
21.20 Ironside Mcrktur fyrir
morð Þýðandi Sigriður
Ragnarsdóttir.
22.10 Erlend málefni Um-
sjónarmaður Jón Hákon
Magnússon.
22.40 Frá heimsmeistaraein-
viginu i skák Umsjónar-
maður Friðrik Ölafsson.
23.00 Dagskrárlok
Kúlulegasalan h.f.
er flutt úr Garðastræti 2 að
Suðurlandsbraut 20 ,
Simar óbreyttir:
Verzlunin 13991 og 38650.
Skrifstofan 22755.
Verzlunin verður opin mánudaga til föstu-
daga kl. 8 til 6, laugardaga 10 til 12.
Næg bilastæði og greið aðkeyrsla.
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32.
LJÖSASTILLINGAR
HJÓLASTILLINGAR MOTORSTILLINGAR
Látiö stilla i tíma. 4
Fljót og örugg þjónusta. I
13-10 0