Þjóðviljinn - 12.09.1972, Page 1
UÚWIUINN
Þriðiudagur 12. september—37. árg. — 204. tbl.
0 (ROlJ)
Alþýðubankinn hf ykkar hagur ÞAÐ BORGAR SIG
okkar metnaöur AÐ VERZLA í KRON
Á sunnudaginn voru 23
vestur-þýzkir togarar að
veiðum við ísland og
voru nokkrir þeirra fyrir
innan 50 milna linuna en
aðrir á mörkunum. 46
brezkir togarar voru að
veiðum i nýju land-
helginni en 7 sáust á
siglingu.
Samkvæmt upplýsingum Haf-
steins Hafsteinssonar blaöafull-
trúa Landhelgisgæzlunnar i gær
voru samtals 76 brezkir og vestur-
þýzkir togarar að veiðum eða á
siglingu við ísland á sunnu-
daginn. Vestur-þýzku togararnir
voru 23, allir á veiðum. 21 suð-
vestur af Reykjanesi og voru 4
þeirra rétt við linuna. Einn
vestur-þýzkur togari var á Halan-
um i landhelgi og annar suður af
Hvalbak, og var hann einnig
innan nýju markanna.
46 brezkir togarar voru hér að
veiðum, allir ilandhelgi. 6voru út
af Barða, 23 norður af Horni, 1 á
Hala, 2 út af Gerpi og 4 út af Hval-
bak. Landhelgisgæzlan varð vör
við 7 brezka togara á siglingu, og
voru 3 þeirra út af Dalatanga, 2 út
af Gerpi og 2 fyrir Vesturlandi.
Um tvo síðasttöldu er það að
segja, að þar voru á ferðinni
Boston Explorer, með togara frá
Fleetwood, FD 169, i drætti. Þeir
eiga væntanlega timafreka ferð
fyrir höndum, þvi að tæplega
leitar Fleetwoodtogarinn til
Þeir voru margir sem fylgdu varðskipsmönnum á ÆGI til skips f gær cr þeir héldu á miðin á nýjan leik eftir stutta viðdvöl f Reykjavik.
Myndin er tekin er skipið Ieggur frá. — A 3ju siðu er birt viðtal við skipherrann þar sem hann hrekur ósannindaskrif Morgunblaðsins
um komu varðskipsins inn á Norðfjörð á dögunum.
islenzkrar hafnar, þótt vélin sé
biluð.
Ekki sást til brezka eftirlits-
skipsins Miröndu, en liklega er
hún einhvers staðar fyrir norö-
vesturlandi.
Herskipiö Aurora hefur enn
ekki sézt hér við land. Heyrzt
hefur til hennar djúpt út af Suður-
landi, en hún er enn það fjarri, aö
ekki er unnt að staösetja hana
nákvæmlega.
Draga bilaðan togara til
' i
FOLKSFUNDUR^&ue"
. ^* rt^, L£f>TUK GÓ£>RA
““SS;
EINAROS H]tfRTUR EINfift OG
ALLIR Á VEIÐAR HJÖRTIIR
Gæsavefear
Héraveicíar
Músaveiðar
5TÚLKUVEIDAR
Auglýsingar um fegurðarsamkeppnina sem Perla Fáfnisdóttir Blesasonar vann með glæsibrag.
Rauðsokkar efndu til
almenns fundar á Akra-
nesi á sunnudaginn var.
Fundurinn var haldinn i
samkomusal Hótel
Akraness og var hann
vel sóttur. Framsögu-
ræður á fundinum fluttu
þær Svava Jakobsdóttir
alþingismaður og Her-
dis ólafsdóttir formaður
kvennadeildar Verka-
lýðsfélagsins. Siðan
hófust fyrirspurnir og
almennar umræður og
var þátttaka i þeim
mikil. Stóð fundurinn frá
kl. 4 til 7.
Anægjulegur
fundur
rauðsokka
Krýndu fegurðardrottningu:
Perlu Fáfnisdóttur, Blesasonar
Svo vildi til að um kvöldið átti
aö fara fram svonefnd „feguröar-
samkeppni" i tengslum við
dansleik á Hótel Akraness en for-
stööumenn hennar voru tveir
„ungir menn úr Reykjavik” eins
og fram kom i viðtali við þessa
heiðursmenn I Visi, 2. þ.m.
Rauðsokkar efndu af þessu til-
efni til fegurðarsamkeppni fyrir
utan hótelið og krýndu þar
feturöardrottninguna Perlu
Fáfnisdóttur Blesasonar i Skil-
mannahrcppiykvigu undan forláta
kynbótanauti frá Galtalæk. Var
hún sæind titlinum Ungfrú tsland
— Miss young Iceland — og tóku
áhorendur henni forkunnar vel og
óskuðu henni velgegni á þeirri
framabraut sem hún á nú
framundan á alþjóðavettvangi.
Siöar mun verða skýrt frá fundi
rauðsokka á sunnudaginn, en
áður en vikið er að fegurðarsam-
keppni þeirra, er rétt að skýra frá
þvi, að „fegurðarsamkeppni” sú
sem hinir ungu menn úr Reykja-
vik hugðust halda um kvöldið átti
að fara fram i tengslum við dans-
leik á Hótel Akraness. Hljóm-
sveitin Ópus átti að leika fyrir
dansi, en annar aðstandenda
„Fegurðarsamkeppni Islands”
íeikur einmitt i hljómsveitinni og
heitir sá Einar D. Einarsson.
Hinn „aðstandandinn” er Hjörtur
Blöndal.
Þessir menn hafa, eins og fram
kemur i áðurnefndu viðtali i Visi,
keypt sér rétt til að reka
„Fegurðarsamkeppni Islands”
og kaupverðið var að sögn fróðra
manna litil hálf miljón.En til að
spara nú á einhverjum sviðum
komust þessir náungar þannig að
orði i Visi: „Við veljum
stúlkurnar sjálfir i hverju héraði,
það er of kostnaðarsamt að hafa
sérstaka dómnefnd”.
Háftima áður en dansleikurinn
átti að hefjast voru rauðsokkar
mættir með þátttakanda sinn i
keppninni á stéttinni fyrir utan
hótelið.
Rétt þykir að gefa hér stutta
lýsingu á þátttakandanum:
Nafnið er Perla Fáfnisdóttir,
Blesasonar, frá Galtalæk i Skil-
mannahreppi. Faðir hennar er
Framhald á 3. siðu.