Þjóðviljinn - 12.09.1972, Blaðsíða 3
^riujuaagur iz. sepiemDer l»7Z.| ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Guðmundur Kjœrnested skipherra
um jréttaflutning Morgunblaðsins:
„Þetta eru ósannindi”
,,Þetta eru mjög ósmekk-
leg vinnubrögð," sagði
skipherran á Ægi,
Guðmundur Kjæmested,
um frétt Morgunblaðsinsaf
komu varðskipsins til Nes-
kaupstaðar á dögunum.
„Við komum inn, alveg til-
fallandi, hvorki kallaðiraf
einum né neinum."
Þriðjudaginn 5. september birti
Morgunblaðið rammafrétt á 2.
siðu. Þar segir frá þvi að varð-
skipið Ægir hafi komið inn til
Norðfjarðar, og siðan að sjávar-
útvegsráðherra, Lúðvik
Jósepsson, hafi, hvorki meira né
minna,en farið um borð i skipið. t
enda fréttarinnar er svo gefin
eftirfarandi fréttaskýring:
,,Ægir hélt út aftur i bitið á
sunnudagsmorguninn og er ekki
vitað til þess, að ÞAÐ hafi átt
annað erindi á Neskaupstað en
hitta ráðherra.”
Leiðarhöfundur Morgun-
blaðsins lætur siðan birta eftir sig
leiðara i sama blaði, þar sem
hann leggur út frá þessari fals-
frétt og gefur sér þar ýmsar stað-
reyndir, sem eru jú ekki
ósvipaðar öðrum staðreyndum
þess blaðs. En i leiðaranum
segir:
,,..varðskipið Ægir var kallað
ínn til Neskaupstaðar frá að-
kallandi verkefnum á miðunum
til þess að skipherra gæti þegið
góð ráð af Lúðvik Jósepssyni.”
Með þessum orðum hugðist
Morgunblaðið sanna mikið grá-
lyndi á Lúðvik, óheilindi og frekju
i samskiptum við aðra ráðherra.
Eins og áður segir hafði hvorki
einn eða annar kallað Ægi inn, og
áfram sagði skipherrann um
þetta mál, er blaðið ræddi við
hann i gær:
„Ráðherrann kom um borð rétt
Brezkir landhelgisbrjótar i kanadiskri landhelgi. Cassio og Defiance til vinstri, Coriolanus til hægri.
Brezkir togarar
teknir í landhelgi
Kanada
Bretarveiða víðar í land-
helgi en við íslandsstrend-
ur. Eftirfarandi frétt af
töku þriggja brezkra togara
i landhelgi Kanada birtist í
blaðinu FISHING NEWS
18. ágúst siðastliðinn.
Þrem brezkum togara-
skipstjórum hefur verið
gert að greiða 600 sterl-
.ingspund — rösklega 130
þús. íslenzkar krónur —
vegna ólöglegra veiða i
landhelgi Kanada.
Kanadíska landhelgis-
gæzlan sá til togaranna
þriggja, Cassio, Defi-
ance og Coriolanus, úr
lofti, er þeir voru að
veiðum innan 12 mílna
landhelgi.
. Kanadamennirnir náðu svo
skipstjórum Coriolanus og
Cassio frá Hull, þeim Joe
Russel og John Lilley, er þeir
komu til Corner Brook á Ný-
fundnalandi þriðjudaginn 16.
ágúst til að afla sér vista. Pet-
erPulfrey, skipstjóri Grimsby
togarans Defiance, náðist
daginn eftir.
Allir viðurkendnu þeir að
hafa verið að veiðum innan 12
milna markanna, en báru þvi
viö, að þeim hefði verið
ókunnugt um, að landhelgi
Kanada næði svo langt út.
Kanadamenn færðu landhelgi
sina út i 12 milur i marz siðast-
liðnum.
Afsakanir Bretanna voru
ekki teknar til greina og var
hverjum skipstjóranna gert að
greiða 1500 kanadiska dollara,
en þriggja mánaða fangelsis-
vist ef sektin greiddist ekki.
Talið er liklegt að skipstjór-
inn á Defiance verði einnig
ákærður fyrir að hafa eyðilagt
net kanadiskra fiskimanna
með þvi að toga yfir þau. Sam-
kvæmt upplýsingum fram-
kvæmdastjóra Hellyers-
bræðra i Hull höfðu Cassio og
Coriolanus verið að veiðum i
32 daga en Defiance i 14 daga.
Eins og sjá má af myndum eru
þetta allt stór verksmiðjuskip.
öll skipin héldu áfram veiðum
að réttarhöldum loknum.
eins og gerist og gengur, en þarna
voru einnig fleiri þingmenn
Austurlandskjördæmis, og ræddi
ég meðal annars við Vilhjálm
Hjálmarsson sem þarna var
staddur. Einnig sá ég Sverri Her-
mannssyni bregða fyrir, en hann
kom hins vegar ekki um borð
Mér þykir mjög leitt að slikur
fréttaflutningur skuli eiga sér
stað, og þeim mun undarlegri er
hann, þegar þess er gætt, að
fréttaritari Morgunblaðsins á
staðnum kom um borð til okkar.
Hefði honum verið i lófa lagið að
bera hugrenningar sinar undir
okkur, ef hann hefði viljað”. —-úþ
Fjórum miljómim
ríkari i dag en
1 gœrmorgun
Miðvikudaginn 11. september
var dregið i 9. flokki Happdrættis
Háskóla Islands. Dregnir voru
4.500 vinningar að fjárhæð
28,920,000 krónur.
Hæsti vinningurinn, fjórir
miljón króna vinningar, kom á
númer 41958. Voru allir fjórir
miðarnir seldir i Aðalumboðinu,
Tjarnargötu 4. Eigandi eins
miðans átti röð af miðum og fær
þvi báða aukavinningana.
200,000 króna vinningurinn kom
á númer 10231. Tveir miðar af
þessu númeri voru seldir i Ólafs-
vik, sá þriðji á Laugarvatni og sá
fjórði i Aðalumboðinu.
10,000 krónur:
186 - 282 - 1301 - 1360 - 2613 - 2823 -
3215 - 3384 - 4575 - 4584 - 5438 - 5530 -
5933 - 7136 - 8443 - 10552 - 12610 -
13421 - 17179 - 18076 - 20001 - 20620 -
20628 - 20744 - 21304 - 21956 - 22376 -
22704 - 23050 - 23330 - 25061 - 25278 -
27085 - 27884 - 28105 - 28287 - 33829 -
37205 - 38000 - 38979 - 43019 - 43523 -
43631 - 43783 - 44096 - 44656 - 45630 -
46089 - 46203 - 47400.- 48810 - 50337 -
50738 - 51736 - 51881 - 52125 - 52266 -
54468 - 54754 - 55821 - 56315 - 58443 -
58667 - 59227 - 59762.
(Birtán ábyrgðar)
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 18 III. hæð (lyfta)
Simi 24-6-16
Perma
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 Sími 33-9-68. ’
„Maííe
torsken
leve!
99
Landssöfnunin í land-
helgissjóð er nú í fulium
gangi, og hafa nú
safnazt hátt á fjórðu
miljón króna. Fé hefur
borizt bæði frá fyrirtækj-
um og einstaklingum,
meðal annars frá næsta
nágrannalandi okkar,
Grænlandi, en þar i landi
virðast menn kunna að
meta aðgerðir
islendinga. A.m.k.
vonar Peter Berg i
Egedesminde, að fjár-
framlag hans stuðli að
þvi, að þorskurinn deyi
ekki út. „Mátte torsken
leve" segirhann í kveðju
sinni til íslendinga.
Eins og fram hefur komið i
fréttum, beitti Ólafur
Jóhannesson forsætisráðherra
sér fyrir þvi, að hafin yrði
landssöfnun i Landhelgissjóð
vegna útfærslu landhelginnar.
Skipuð hefur verið 9 manna
framkvæmdanefnd, og hefur
söfnunin fengið húsnæði að
Tjarnargötu 3, þar sem fram-
lögum verður veitt móttaka á
almennum skrifstofutima.
Simi þar er 26723.
Þá hafa bankar og póst- og
simstöðvar sýnt þá velvild að
taka á móti framlögum, og nú
þegar hafa sumir opnað
reikninga i þvi skyni, svo sem:
Pósturogsimi Giró nr. 11000
Alþýðubankinn
hf. Giró nr. 7900
Landsbanki
isiands Hlr. nr. 15800
Útvegsbanki
íslands Hlr. nr. 6140
Búnaðarbanki
isiands Hlr. nr. 111
Vcrzlunarbanki
islands Hlr. nr. 22128
Nefndin hefur ákveðið að fénu
skuli ekki varið i almennan
rekstur landhelgisgæzlunnar,
heldur skuli þvi varið til kaupa
á skipi eða flugvél eða tækja-
búnaði eftir þvi, hver þörfin er
brýnust.
Nú þegar hafa safnazt hátt á
fjórðu miljón króna viðs vegar
af á landinu, mest frá fyrir-
tækjum og sveitarfélögum, en
einnig mikið frá einstakling-
um. Til tiðinda má telja, að er-
lendir einstaklingar hafa látið
fé af hendi rakna til söfnunar-
innar. Meðal annarra sendi
Peter Berg i Egedesminde á
Grænlandi 20 danskar krónur
og lét fylgja þessa kveðju:
„En skilding til hjælp. MStte
torsken leve.”
Kokhraustur lögbrjótur:
nSpyrjum eng-
an um leyfi99
Rauðsokkar
Framhald af bls. 1.
frægt kynbótanaut, og vann hann
1. verðlaun á sinum tima.
Litarháttur:. Hvit en rauð-
hosótt.
Klæðnaður: Búin skykkju úr
dýrasta pesii og á skykkjuna var
ietrað: Ungfrú tsland — Miss
young Iceland. Á höfði bar hún
silfurkórónu, og i haia hennar
var bundin rauð slaufa.
Til keppninnar kom Perla
Fáfnisdóttir á langferðabil sem
flutti sýningargesti úr Reykjavik.
Tóku þeir hana uppi á vegamót-
unum heim að Galtalæk þar sem
hún nennti ekki að biða eftir kvigu
ofan úr Borgarfirði, sem hún
hafði hitt á sýningunni þegar
pabbi hennar fékk 1. verðiaunin.
Óþarft er að tak það fram að
Perlu var ákaft fagnað, þegar
hún steig út úr bilnum á Akranesi
ásamt snyrtidömum sinum. Hún
þótti bera svo af öðrum þátt-
takendum i keppninni, að enginn
var i vafa um að hún hlyti titilinn.
Meðan á sýningunni stóð
heyrðust einhverjar raddir segja:
Að þið skulið ekki skammast ykk-
ar fyrir að fara svona með
skepnuna. En þegar eigandi
Perlu var að þvi spuröur af lög-
gæzlumönnum hversu lengi þetta
ætti að standa yfir, svaraði hann
af mestu hógværð: ,,Ég hef ekki
reiknað með að þær hafi hana á
fóðrum i vetur.” Hann staöfesti
það einnig, að Perla hefði ekki
hlotið neina misþyrmingu, enda
var varla tekið upp málband
meðan á sýningunni stóð, svo að
útilokað var að hin hefðbundnu
prófunartæki, sem notuö eru á
svona keppnum, hafi getað sært
hana hið minnsta.
Rauðsokkar gengust fyrir
skoðanakönnun á staðnum og var
til þess ætlazt (!) aö áhorfendur
krossuðu við ýmsar þýðingar-
miklar spurningar um fegurðar-
samkeppnir hliðstæðar þeirrisem
fram átti að fara inni i húsinu.
„Hvaða eiginleika á aö verðlauna
hjá fólki að yðar mati?” „Hvað
veldur þvi að fólk lætur sýna
sig?” „1 hvers þágu teljið þér að
svona sýningar séu haldnar?” Og
að siðustu? „Hvert teljið þér að
ágóðinn af sýningunni renni?”
Undirpunktar, með siðustu
spurningunni voru þessir: ,, — til
stúlknanna, sem sýndar eru. — til
stúlknanna, sem horfa á. — til
mjaltavélarinnar ópus. — i land-
helgissjóðinn”.
Þá höfðu rauðsokkar á lofti
spjöld með nokkrúm minnisatrið-
um fyrir þá, sem enn láta glepjast
af þeim veiðum sem þarna fóru
fram innan dyra. — Þar munu
þrjár stúlkur hafa þrammað upp
á svið til „dómnefnarinnar”
Hjartar og Einars.
Ekki hefur okkur tekizt að fá
neinn samanburð á þeim og þátt-
takandanum sem krýndur var
fyrir utan húsið, en svo mikið er
vist að þær voru ekki i eins
fallegum hosum og Perla, og svo
höfðu þær vist enga slaufu. —gg
YFIRDEKKJUM
HNAPPA
SAMDÆGURS
SELJUM SNIÐNAR StÐBUX-
UR OG ÝMSAN ANNAN' 4
SNIÐINN FATNAD.'
BJARGARBtJÐ H.F.
Ingólfsstr. 6 Simi 25760. '
Vísir hefur eftir Jóni
Ingimarssyni, stjórnar-
manni i Alþýðuhúsinu h/f,
það sem i fyrirsögn
stendur, og jafnfarmt að
„almenningi komi þessi
mál ekkert við." Ummælin
eru um húsaleiguhækkun á
Iðnó.
Sem kunnugt er neyddi stjórn
Alþýðuhússins h/f, sem er
eigandi að Iðnó , Leikfélag
Reykjavikur til þess að skrifa
undir leigusamning sem felur i
sér allt að 50% hækkun á húsa-
leigu.
Til að hækka megi húsaleigu
þarf að koma til leyfi frá rikis-
stjórninni, en sliks leyfis hefur
stjórn Alþýðuhússins h/f ekki
aflað sér, og hækkun húsa-
leigunnar þvi brot á verðlagslög-
um.
Mörgum kann að þykja um-
mæli Jóns þessa all undarieg, þar
sem um skýlaust lögbrot er að
ræða, en fleirum mun þó þykja
enn meira undur ef stjórn
Alþýðuhússins liðst að brjóta svo
gildandi landslög án þess að yfir-
völd hreyfi legg né lið, en það
hlýtur að skýrast nú næstu daga
hvort mennirnir verði réttilega
sóttir til saka eða ekki. Ef ekki,
má búast við að þessir sömu lög-
brjótar, og aðrir, færi sig enn upp
á skaftið við lögbrotaiðjuna. —úþ