Þjóðviljinn - 12.09.1972, Page 2

Þjóðviljinn - 12.09.1972, Page 2
2 SÍDA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 12, september 1972. ÓLAFUR JÓHANN SIGURÓSSON HRQflRIB VARNARSKJAL „Hreiöriö er fortakslaust ein af merkustu íslenzkum skáldsögum síöustu ára.” Gunnar Stefánsson (Tíminn) Verö ib. kr. 680,00, ób. kr. 500,00 f + sölusk.) HEIMSKRINGLA. Frá Námsflokkum Hafnarfj arðar Gagnfræðadeildir verða starfræktar i Námsflokkum Hafnarfjarðar i vetur. Kennt verður námsefni 3. og 4. bekkjar. Væntanlegir nemendur geta þvi valið um að taka gagnfræðapróf á einum eða tveim vetrum. Kennt verður 5 kvöld vikurnnar, samtals ^20 stundir i viku. Kenndar verða allar 'greinar gagnfræðaprófs. Kennsla fer fram i húsi Dvergs h.f., Brekkugötu 2, og þar mun skrifstofa Námsflokka Hafnarfjarðar einnig verða til húsa. Innritun fer fram dagana 13/9 til 15/9 kl. 17-21 i Lækjarskóla. Skólinn verður settur 20/9 i húsi Dvergs h/f. Upplýsingar munu liggja frammi frá og með 12. þ.m. á fræðsluskrifstofunni og i bókabúðum bæjarins. Allar nánari upp- lýsingar gefa forstöðumaður i sima 51792 eða 41228 (heima) og Fræðsluskrifstofe Hafnarfjarðar, simi 53444. FOIiSTÖÐUMAÐUR. Húsbyggjendur — Verktakar Kambstál: 8, 10, 12, 16, 20, 22, og 25 m/m. Klippum bg beygjum stál og járn eftir óskum viöskiptavina. Stálborg h.f. Smiöjuvegi 13, Kópavogi. Simi 42480. Leiðbeiningar fyrir verðandi skattgreiðendur Þaö hefur ekki veriö um annaö meira rætt en skattamál undan- farnar vikur, fyrir utan skákina auðvitaö, sem slær öll umræðu- met, — og þar sem búið er að benda allrækilega á ýmsa van- kanta á nýju skattalögunum, ætla ég ekki aö fara út i neitt saman- burðarnöldur á sjálfum mér og nágrönnum minum. Ég læt þess bara getið, að ég er dálitið mont- inn yfir þvi, að vera allt i einu kominn með stórum „breiðara bak” en verktakarnir, kaup- mennirnir, verzlunarstjórarnir og smáatvinnurekendurnir hérna i grenndinni, að ég ekki nefni húsasalana, sem viröast, sam- kvæmt skattskránni, vera ein- hver tikarlegasta stétt þjóðfé- lagsins um þessar mundir. Ég ætla heldur að gefa verðandi skattþegnum nokkrar leiðbein- ingar um það, hvernig þeir skuli koma sér fyrir i þjóðfélaginu, með tilliti til skattanna, en efni þessara leiðbeininga er sótt beint i skattskrána, sem liggur hérna á borðinu fyrir framan mig. 1. Verðandi skattþegnar skulu forðast að ráða sig i vinnu hjá „hinu opinbera”, a.m.k. ekki i neina þá vinnu, sem heyrir undir 13.-20. launaflokki, þeir eiga á hættu að verða að lifa hallærislifi, siðari helming árs hvers. Aftur á móti er vel athugandi fyrir þá hina sömu að koma á fót útgerð eða kjötsölu. 2. Verðandi skattþegnar skulu kappkosta, „að viðlögðum dreng- skap” að gefa upp lágar tekjur á skattskýrslunni, en safna þá held- ur eignum upp á nokkra tugi milj- óna. Það hvarflar aldrei að skattayfirvöldum að grafast fyrir um það, hvernig hægt er að safna stóreignum af lágum tekjum, a.m.k. ekki meðan hægt er að hlaða meginþunga skattbyrðanna á útivinnandi einstæðingsmæður og bjargálna launamenn með stórar fjölskyldur. 3. Veröandi skattgreiðendur skulu koma sér upp svo sem 200 fermetra einbýlishúsi við fyrsta tækifæri. Það finnst skattyfir- völdúm (og mér raunar lika) ákaflega trúlegt, að fólk, sem stendur i þvilikum stórræðum, geti ekki borið þungan tekjuskatt né útsvar. Auðvitað getur þetta kostað nokkur þúsund króna eignaskatt, en skitt með það. 4. Verðandi skattþegn ætti að forðast að hlaða niður ómegð, það gæti kostað að frúin yrði að hætta að vinna úti, og i annan stað gæti skattheimtan þá læst klónum i fjölskyldubæturnar. Alla vega liggur það i augum uppi, að meiri tekjur þarf til að framfleyta fjöl- mennri fjölskyldu en fámennri, svo af þeirri ástæðu verða mögu- leikar til þess að skammta sér hæfilegar tekjur (framtalstekjur) minni en ella. Auk þess geta krakkarnir orðið dálitið dýrir i rekstri, og þeim fylgir alls konar amstur og þras og aukafyrirhöfn, sem gott er að vera laus við. Einnig er nokkur hætta á, að mik- ið krakkaarg hafi truflandi áhrif á framteljanda við gerð skýrsl- unnar, þannig að haganlega tilbú- in tala, sem átti að fara i frádrátt- ardálkinn, lendi á tekjudálki og raski ónotalega heppilegu hlut- falli milli niðurstöðutalna dálk- anna og geri strik i reikninginn hvað aumingja drengskapinn snertir. 5. Verðandi framteljandi skal strax i upphafi framtalsferils sin leggja megináherzlu á að safna tölum i frádráttardálkinn, skv. 52. gr. skattalaganna. (Ég hef ekki hugmynd um, hvernig sú grein hljóðar, enda skiptir það ekki máli, þvi sjálfsagt er hægt að fara dálitið i kring um hana, eins og aðrar greinar, og það eru jú tölurnar sem máliskipta.) Fram- teljandi skal þó gæta þess, að frá- drátturinn verði aldrei meiri en tekjurnar, það lftur dálitið illa út, jafnvel i augum skattheimtu- manna. 6. Neyðist framteljandi til að ráða sig i opinbera þjónustu og lendi i 13.-20. launaflokki, er eina ráðið hjá honum að hraða sér að komast á ellilaunaaldur. Þá fyrst er hugsanlegt, að Skattayfirvöld fari að endurskoða afstöðu sina varðandi álögur á hann. Þangað til má hann vera i órjúfanlegum vitahring aö afplána gjöld sfn, einkum seinni hluta ársins. Og þótt mikið sé á sig leggjandi fyrir einara og þorbirni þjóðfélagsins, þá verður þetta dálitið þreytandi til lengdar. 7. Það vottast hér með aö við- lögðum drengskap, að leiðbein- ingar þessar eru gefnar eftir beztu vitund, og gildi þá dreng- skaparheitið ekki minna en það virtist hafa gert hjá byggingar- meistaranum, granna minum, sem naut varla svefns og alls ekki matar allt siðasta ár vegna ann- rikis og er nú (samkv. skatt- skránni) skikkaður til að greiða nærri þvi 30 þúsund kall i tekju- skatt og hér um bil annað eins i útsvar, auk pinkulitils eigna- skatts. B. Kaupum hreinar og heilar léreftstuskur. Prentsmiðja Þjóð- viljans Skólavörðustig 19 STDRLÆKKAÐ VERÐÁ Vauxhall Viva Notið tækifærið og eignist Vívu á stórlækkuðu verði. Rúmgóðan bíl með stórum vönduðum sætum. Þýðan og lipran í akstri. Sparneytinn: 64 ha vél eyðir ekki nema 8 lítrum á hundraðið. Hátt endursöluverð sannar góða endingu. Við bjóðum einnig stórbætt greiðslukjör. Notið tækifærið — komið eða hringið — kynnist Vauxhall Vívu af eigin raun. SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFELAGA @ Véladeild ARMULA 3 REYKJAVIK SIMI 38900

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.