Þjóðviljinn - 20.09.1972, Qupperneq 2
2.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. september 1972
Nýkomið
röndóttar og köfl-
óttar skyrtublússur
i mörgum litum
úr 100% bómull
og terylene.
Síðbuxur með uppá-
broti nýkomnar
í mörgum litum.
MÍMIR
Vinsælt og skemmtilegt tungumálanám
ENSKA DANSKA ÞÝZKA FIIANSKA
SPANSKA ÍTALSKA NORSKA SÆNSKA
ÍSLENZKA FYRIR ÚTLENDINGA.
Kvöldnámskeið fyrir fullorðna
Síðdegistimar fyrir húsmæður
Iljálpardeildir fyrir unglinga
Enskuskóli barnanna
Simi 11109 og 10004 (kl. 1—7 e.h.)
Málaskólinn Mímir
Brautarholti 4
ÁSKORANIR
til bifreiðaeigenda í Reykjavik
Hér með er skorað á bifreiðaeigendur i
Reykjavik, sein enn eiga ógoldinn þunga-
skatt af bifreiðum eða önnur bifreiðagjöld
fyrir árið 1972, sem féllu i eindaga 1. april
1972, að ljúka greiðslu þeirra nú þegar,
ella verði bifreiðar þeirra teknar úr um-
ferð samkv. heimild i 5. málsgr. 91. gr.
vegalaganna og ráðstafanir gerðar til
uppboðssölu á bifreiðunum nema full skil
hafi áður verið gerð.
Tollstjórinn i Reykjavik
15. sept. 1972.
Auglýsingasiminn er 17 500
Þjóðviljinn
TJtfærslunni líkt við
innrásina í Pólland
Svissneskt blað sker upp herör gegn okkur, en verður
illilega fótaskortur á staðreyndum
Þaö mætti ætla að Svisslend-
ingar væru einhverjir sérstakir
óvinir islendinga, ef dæma skyldi
eítir þeim einu skrifum sviss-
nesks blaös um landhelgismál,
sem okkur hér á Þjóðviljanum er
kunnugt um. Samskipti tslend-
inga og Svisslendinga eru ekki
svo mikil, að ótrúlegt má teljast,
að þeir þar ytra hafi haft tækifæri
til að fá á okkur mikla óbeit, en á
það skal þó bent, að islenzkir fjár-
málamenn eru taldir eiga inn-
hlaup i svissneskum bönkum, og
svo hefur auðvitað verið stofnað
til nokkurra kynna i sambandi við
álverksmiðjuna i Straumsvik...
En sem sagt, þeir hjá vikuritinu
journaleru i hinu mesta baráttu-
skapi gegn okkur i landhelgis-
málinu, en virðast hins vegar
ekki vel búnir að upplýsingum,
svo sem fram kemur á eftirfar-
andi glefsum úr þvi blaði:
..Bretar veiddu árlega 1B þús-
und tonn og Þjóðverjar 12 þúsund
tonn af fiski af tslandsmiðum (hið
sanna er að þeir veiða 10-15 sinn-
um meira - þjv.i. Þar með væru
þau ..ofveidd”, sagöi forsætisráð-
herra íslands Fétur Thorsteins-
son (hann hefur lengi gegnt störf
um i utanrikisráðuneytinu — Þjv.
) og fór i 50 milna stigvél; rikis-
stjórn hans færði 12 milna lögsög-
una, sem hefur gilt að alþjóða-
lögum i 13 ár, út um 38 milur.
Með 14 atkvæðum gegn 1 for-
dæmdu dómarar Alþjóðadóm-
stólsins i Haag framferði Islend-
inga. Til áhyggju fyrir isienzka
utanrikisráðherrann og kommún-
istann Einar Ágústsson (hvað
segir Framsókn við einkuninni'?
— þjv.) sem hafði treyst á sósial-
iskt bræðraþel i merki vatnsber-
ans, var meira að segja sovézki
dómarinn P.D. Morosof á móti
(þ.e. framferði lslendinga).
Fullnaðarúrskurð ætla
alheimsdómararnir ekki að
kveða upp fyrr en siðar eða fyrir
15. ágúst 1973. En svo lengi vilja
islendingar ekki biða. Á afmælis-
degi innrásar Hitlers i Pólland
færðu þeir hin votu landamæri sin
út af eigin sjómannsafli. Thor-
steinsson; ..Haag er ekki dóm-
ba'r ".
En jafnvel þótt Islendingum
tækist að taka hina erlendu fiski-
menn höndum eða reka þá i
burtu, geta þeir ekki sigrað. Þeir
eru háðir þvi að einmitt þau
Efnahagsbandalagsriki, sem þeir
hal'a nú haíið þorskastriðið við,
kaupi af þeim fiskinn þeirra. Ella
rotnar efnahagslif tslands ásamt
fiskinum. Og þá verða það ekki
fiskarnir. heldur fiskimenn Is-
lands. sem sprikla i netinu”.
Þetta eru ályktunarorð grein-
arinnar .T’iskimenn i netinu” i
36. hefti þessa árs af fréttaritinu
Sonntags-Journal sem er gefið út
i Ziirich.
Reiðir yfir
birtingu
mynda
Gyðingar i Bretlandi eru nú
æfir yfir þvi að enska blaðið „The
Sunday Times” skyldi biðja Leni
Riefenstahl um myndir frá
Ölympiuleikunum i Munchen.
Leni Riefenstahl var áður mjög
frægur ljósmyndari og kvik-
myndahöfundur, þegar nazistar
komust til valda, snerist hún á
band með þeim og gerði áróðurs-
myndir fyrir þá. Hún gerði fyrst
tvær myndir um flokksþing
nazista,,Sieg des Glaubens
(1933) og Triumph des Willens”
(1934), sem höfðu mikið gildi fyrir
áróður þeirra, en frægasta mynd
hennar fjallar um Ólympiu-
leikana í Berlin 1936.
greinum og skýringum. Steiner
telur þetta stafa af þvi að tengslin
við fortiðina hafi slitnað, klassisk
menntun sé úr sögunni, enginn
skilji hugmyndatengsl, sem fyrir
30-40 árum hafi verið öllum auð,-
skilin. þegar klassikin var enn
stunduð. Þetta er aðeins einn
þáttur úr þessari ágætu ritgerð.
Skrif hans um poppið eru ekki
siður eftirtektarverð, og þá skrif-
in um gyðingatrú. Ritgerðir
Steiners eru skrifaðar af þörf og
skaphita, þvi eru þær alltaf mjög
skemmtileg lesning, auk þess er
hann ákaflega viðfeðma, án þess
að drabbast niður i merkingar-
leysu og innantómt fjas.
Book Indcxing. Cambridge
Authors’ and Printers’ Guid-
es. M.D. Anderson, Cam-
bridge University Press
1971.
Cambridge útgáfan hefur sent
frá sér nokkur leiðbeiningakver
fyrir höfunda og prentara og er
þetta eitt þeirra, ætlað þeim sem
semja efnisskrár og rita nafna-
skrár. Þetta er hið þarfasta kver
og nauðsynlegt hérlendis þar
sem gagnsemi slikra skráa er
takmörkuð af kunnáttuleysi
þeirra. sem vinna þær.
Sclincepart. Paul Celan.
Suhrkamp Verlag 1971.
Paul Celan hvarf úr tölu lifenda
i nóvember 1970, i Paris. Eftir
hann lannst umslag. og i þvi var
fullunnið handrit að þessari ljóða-
bók. Celan er af mörgum talinn
hafa verið merkasti lyriker Þjóð-
verja eftir styrjöldina siðustu.
Celan varð fyrir áhrifum frönsku
symbólistanna og surrealistanna,
kvæði hans einkennast af slipuðu
og nákvæmu orðfa'ri, myndrikum
hugrenningatengslum ásamt lif-
andi hrynjandi og þunglyndis-
legum baktón, hrein lýrik, þar
sem engu orði er ofaukið og ljóðið
verður heilt og satt. Bók þessi ber
með sér öll beztu einkenni Celans.
Hann hefur auk þess þýtt franska
höfunda á þýzku af næmri tilfinn-
ingu fyrir merkingu og tón or.ð-
anna.i frönsku og þýzku.
In Bluebcard’ s Castle.Some
Notes Towards the Re-defin-
ition of Culture. George
Steiner. Faber and Faber
1971.
Á sinum tima vakti ritgerð
Eliots. Notes Towards a Definit-
ion of Culture, mikla athygli.
Skrif Steiners er að nokkru and-
svar við þeim kenningum, sem
Eliot hélt fram. auk þess sem
hann ræðir efnið frá stórbreyttum
sjónarhóli. Steiner snertir margt i
ritgerðinni. meðal þess eitt ein-
kenni nútimans, sem er umbúðir,
það hafa aldrei verið skrifuð slik
ósköp um bókmenntir og nú, og
ljóð eða ritverk fyrri skálda hafa
aldrei fyrr verið gefin út með
slikum ósköpum af athuga-