Þjóðviljinn - 20.09.1972, Side 3
Miðvikudagur 20. september 1972 ÞJóÐVILJINN — StÐA 3,
FORVAL Á BJÓÐENDUM
í SIGÖLDUYIRKJUN
FER NÚ FRAM
Blaðinu hefur borizt
svofelld frétt frá
Landsvirkjun um virkjun
Tungnaár við Sigöldu.
Aandsvirkjun hefur ný-
lega fengið heimild eignar-
aöila sinna, rikisins og
Reykjavíkurborgar, til að
taka bráðabirgðalán að
fjárhæð tvær miljónir
Bandarikjadollara vegna
undirbúnings að virkjun
Tungnaár við Sigöldu . I
tilefni af þvi þykir rétt að
gera eftirfarandi grein fyr-
ir undirbúningi Sigöldu-
virkjunar."
Með lögum nr. 37 frá 1971 veitti
Alþingi Landsvirkjun heimild til
virkjana i Tungnaá, og ákvað
stjórn Landsvirkjunar i septem-
ber 1971 með samþykki eignarað-
ila fyrirtækisins, að haldið skyldi
áfram undirbúningi að 150 MW
virkjun Tungnaár við Sigöldu. 1
framhaldi af þvi var gerður
samningur við verkfræðiráðu-
nautana Klectro-Watt og Virki
um gerð útboðsgagna vegna
virkjunarinnar og aflað nauðsyn-
legs virkjunarleyfis iðnaðarráð-
herra. Gerð útboðsgagna er lokið
íyrir véla- og rafbúnað virkjunar-
innar, og hala þau verið send um
25aðilum.sem i alþjóðlegu útboði
hafa sýnt áhuga á að bjóða i hlut-
aðeigandi verk. en ráðgert er að
opna tilboð i afhendingu og upp-
setningu þessa búnaðar hinn 5.
janúar n.k. Útboðsgögnin eru
þannig úr garði gerð, að stjórn
Landsvirkjunar getur samið við
hlutaðeigandi verktaka um niður-
setningu véla i áföngum, en út-
boðið gerir kröfu til þess, að hver
og einn bjóðandi bjóði i verkið i
heild að meðtalinni niðursetningu
vélanna, sem Landsvirkjun er þó
innan handar að taka að sér sjálf.
Um þessar mundir fer fram
forval á bjóðendum i byggingar-
hluta virkjunarinnar. Hafa 16
verktakar óskað eítir að fá að
bjóða i þann verkhluta að undan-
gengnum alþjóðlegum forvals-
auglýsingum. Byggist forvalið á
kröfum, sem Landsvirkjun gerir
til ta'knilegrar reynslu og fjár-
hagslegs bolmagns hlutaðeigandi
aðila, og eru kröfur þessar settar
lram i hlutaðeigandi forvalsgögn-
um, sem gefin voru út i júni s.l.
Standa vonir til, að forvali þessu
verði lokið i október n.k. og sam-
þykktum bjóðendum þá afhent
útboðsgögnin, en ekki er enn
ákveðið um opnunartima tilboðá.
Auk verkfræðiundirbúningsins
á þessu ári, hefur Landsvirkjun
komið upp vinnubúðum við Sig-
öldu fyrir um 250 manns, leitt
SF í Noregi:
Norðmenn láni Islendingum
skip og tæki ef með þarf
Eru taugar
Ijónsins að bila?
Bretar œfir við
Belga og óttast um
Norðmenn
i brezka blaðinu The
Guardian þann 16. þ.m.
er fjallað um viðhorfin i
landhelgisdeilunni eftir
samningana við Belgíu-
menn.
Kemur þar greinilega
fram það mat, sem al-
mennt mun ríkjandi hjá
Bretum, að samningsað-
staöa þeirra við íslend-
inga hafi versnað til
muna við gerð þessara
samninga — og að Belg-
ar hafi eiginlega svikiö
þá i nauðum.
Þegar rakin hafa verið
skipti islenzku varðskip-
anna við brezku land-
helgisbrjótana segir svo:
,,Greinilegt er. að Islending-
ar hafa 12 dögum eftir út-
færslu fiskveiðilögsögunnar
taiið timabært að taka brezku
togaramennina til bæna , og
hefja klippingu togviranna.
Ekki er að efa að slikt hefur
verið gert samkvæmt
pólitiskri ákvörðun og að und-
irlagi kommúnistans Lúðviks
Jósefssonar i sæti sjávarút-
vegsráðherra.
Á sama tima hafa tslending-
ar samið við Belga um vissar
undanþágur til veiða innan 50
milna og er það fyrsti meiri-
háttar millirikjasamningur
þeirra um landhelgismál eftir
útfærsluna.
Mikilvægi þessa samnings
felst i þvi, að hann er gerður
við eitt af rikjum Efnahags-
bandalagsins, en bandalagið
helur, sem kunnugt er, neitað
að staðfesta verzlunarsamn-
ing við Islendinga i mótmæla-
skyni við útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar.
Auk þess hefur pólitik Efna-
hagsbandalagsins i landhelg-
ismálum valdið verulegri ólgu
i Noregi. en verði af inngöngu
Noregs i Efnahagsbandalagið
eru Norðmenn bundnir við 6
milur til næstu 10 ára.
Samningur Belga og íslend-
inga gæti þcss vegna haft úr-
slitaáhrif á þjóðaratkvæða-
grciðsluna i Noregi, sem nú
stendur fyrir dyrum um inn-
göngu Norcgs i Efnahags-
bandalagið.
Kinnig er ljóst að samningur
tslendinga og Belgiumanna
grefur undan baráttu Breta
gegn 50 milunum þar scm
Belgar skuldbinda sig til að
veiða aðeins samkvæmt út-
gefnum leyfum islcnzka
sjávarútvcgsráðuneytisins.
betta þýðir i raun , að það er
islenzka rikisstjórnin, sem fer
með alla lögsögu innan 50
milnanna, enda lýstu þrir
islenzkir ráðherrar frá öllum
stjórnarílokkunum þvi yfir, að
samningum loknum, að samn-
ingurinn jafngilti ,,de facto”
viðurkenningu á 50 milna
islenzkri fiskveiðilögsögu. Við
erum einnig þeirrar skoðunar
að i samningnum felizt viður-
kenning að vissu marki og þvi
sizt að undra þótt islenzku
ráðherrarnir væru sigrihrós-
andi”.
Petta voru orð brezka blaðs-
ins ,,The Guardian”, sem cr
eitt kunnasta blað þar i landi
— og þcir bæta við að lokum,
að incðan Bretar reyni enn að
fiska innan 50 milnanna^gæti
togarar frá Póllandi og þýzku
rikjunum báðum fyllstu
varkárni, enda sé þeim cnsku
það erfiður biti að kyngja, cf
islenzkir draga til sin dóms-
vald i málutn þeirra erlendu
togara, er bætta sér inn fyrir
50 milna mörkin.
Sósialiski þjóðarflokk-
urinn i Noregi vill að
Lokað frá
hádegi vegna
útfarar
Vegna útfarar herra Aágeirs
Ásgeirssonar, fyrrverandi for-
seta Islands, verður Stjórnar-
ráðið lokað frá hádegi föstudag-
inn 22. september n.k/
Jafnframt er mælzt til þess,að
aðrar opinberar stofnanir verði
einnig lokaðar, þar sem þvi verð-
ur við komið.
Norðmenn leggi íslend-
ingum til skip og önnur
tæki ef þörf krefur i deil-
unni við Breta.
Það eru ekki bara okkar ágætu
islenzku stúdentar i Noregi, sem
senda hlýjar kveðjur yfir hafið
frá þessu forna ættlandi okkar, nú
þessa dagana. Þjóðviljanum hafa
þegar borizt samþykktir frá ýms-
um norskum félagasamtökum, er
vilja ganga i slaginn með okkur i
landhelgisdeilunni. Við birtum
hér á eftir samþykkt sem er frá
Sósialiska þjóðarflokknum.
Kannski sýnum við brezka
heimsveldinu framan i vikinga-
skip áður en lýkur — minnugir
þess að langskip klufu hér öldurn-
ar löngu áður en floti hennar há-
tignar lagði undir sig heimshöfin.
„Miðstjórn Sósialiska þjóðar-
flokksins i Noregi hvetur norsk
stjórnvöld og sjómannasamtök til
aö veita tslendingum fullan
stuðning i baráttu þeirra fyrir út-
færslu landhelginnar og taka af-
stöðu gegn ólögmætum veiðum
togara útgerðarhringanna i Bret-
landi eða frá löndum Efnahags-
bandalagsins.
Hagsmunir þeirra rfkja, er nær
eingöngu veiða fjarri eigin heim-
kynnum, verða að vikja fyrir
hagsmunum strandrikja svo að
komið verði i veg fyrir eyðingu
fiskistofnanna.
Þjóðartilvera islendinga bygg-
ist á fiskveiðum og hún er dýr-
mætari, cn brezkir og þýzkir
gróðahagsmunir, Sósialíski þjóð-
arflokkurinn (SF) styður af alhug
baráttu norsku hreyfingarinnar
til stuðnings tslendingum i land-
helgismálinu.
Norska landhelgi ber einnig að
færa út i 50 sjómflur til að tryggja
verndun fiskistofna og lifs-
bjargarmöguleika strandbúa.
Stuðningur við íslendinga i
landhelgisinálinu, er þvi einnig
barátta fyrir norskum hagsmun-
um.
Þess vegna ber Norðmönnuin,
ef i nauðir rekur, að bjóða fram
skip og tæki til utnráða i barátt-
unni fyrir 50 milna islenzkri land-
helgi”.
þangað rafmagn og komið upp
vegakerfi, innan virkjunarsvæð-
isins. Eru þessar framkvæmdir
liður i þvi að flýta fyrir, að verk-
takinn við byggingarhlutann geti
hafist handa á vori komanda, en
vonir standa til, að þá verði út-
boði byggingarhlutans lokið með
gerð verksamnings við hlutaðeig-
andi verktaka. t þessum hluta
verksins felst bæði stöðvarhús
Sigölduvirkjunar og stiflugerð.
Framhald á II. siðu.
Meirihluti
útvarpsráðs
hafnaði
tillögu
íhaldsins
— Rœtt við Stefán
Jónsson vegna
samþykktar
útvarpsráðs um
þáttinn
„Álitamál”
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins I útvarpsráði lögðu til að
Stefáni Jónssyni dagskrár-
fulltrúa yrði vikið frá stjórn
þáttarins „Alitamál”. Ástæð-
an til viðkvæmni ihaldsfulltrú-
anna var þátturinn sem fjall-
aði um kynningu landhelgis-
málsins, en þar komu fram
auk Stefáns, Sighvatur
Björgvinsson, Svavar Gests-
son og Þorsteinn Pálsson.
Meirihluti útvarpsráðs
hafnaði þeirri kröfu ihalds-
fulltrúanna að Stefáni yrði
vikið frá stjórn þáttarins en
siðan voru samþykkt i
útvarpsráði eftirfarandi fyrir-
mæli:
„Þar sem útvarpsráð telur
að Stcfán Jónsson mcð stjórn
sinni á þættinum „Álitamál”
sl. miövikudag hafi farið út
fyrir verksvið stjórnanda
beinir ráðið þeim ákveðnu
fyrirmælum til hans, að hann
taki ekki þátt í umræðum sem
dciluaðili f þáttum sem hann
stjórnar”.
Þjóðviljinn bað Stefán Jóns-
son segja álit sitt á samþykkt
útvarpsráðs:
Þetta er alveg eðlileg sam-
þykkt. Útvarpsráð gerir hér
aðeins samþykkt uin vinnu-
brögð, um það, að ég skuli
stjórna þættinum áfram og út-
vega menn til þess að ræða
málin. Þaðer að stýra umræð-
unni þannig að aðalatriðin
komi fram í þessu tilfelli var
aðalatriðið — sem raunveru-
lega kom fram hjá Þorsteini
hlaöamanni Morgunblaðsins,
— að þeir menn sem stóðu að
samningunum 1961, eru ekki
liklegir til að túlka af einurð
og undirhyggjulaust stefnu
núverandi rikisstjórnar i iand-
bclgismálinu, sem ógilti
þennan samning.