Þjóðviljinn - 20.09.1972, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. septcmber 1972
JENNY BARTHELIUS:
SPEGIL -
MYND
á fætur. — Einhver hefur haft upp
á henni...
Bert reis á fætur og svaraði i
simann. Samtalið varð stutt,
aðeins nokkrar sekúndur.
— bað var Bea aftur, sagði
hann þegar hann kom út úr svefn-
herberginu. — Hún var búin að ná
i Piu. En Pia þekkti Mirjam ekki
heldur. Svo að við verðum vist að
gefa þetta upp á bátinn.
Itann lá þögull útaf i sófanum.
Það var eins og allt hryndi til
grunna kringum hann. Mirjam
var ekki til. Beata Lovén hafði
arfleitt hann að eigum sinum.
Sennilega hafði hann þá lika
heimsótt hana fyrir nokkrum
dögum. þótt hann gæti ekki
munað eftir þvi. Hann var veikur.
Hann var ekki lengur ábyrgur
gerða sinna
— Bert, sagði hann. - Ég vildi
að ég væri dauður.
Bert var samstundis kominn að
hlið hans.
— Þú þarft að sofa. sagði hann
vingjarnlega. - Sjáðu nú til.
Hann tók hylki upp úr vasa sin-
um.
—- Eg er hór með ósköp veikar
svefntiiflur. Þér er alveg óhætt að
taka þrjár eða fjórar. Ég skal
sækja handa þér vatn. Þá geturðu
sofið. A morgun verður allt auð-
veldara. Þá getum við ákveðið
hvernig við getum bjargað þér úr
þessum vanda.
Bert sótti glas af vatni og setti
það á borðið hjá tóma whiský-
glasinu. Hann taldi l'ram Ijórar,
hvitar tiiflur og lagði hylkið með
alganginum á borðið hjá glasinu.
Taktu nú þetta inn, sagði
hann. — Þá geturðu hvilzt. Ég
ætla lika að fara að sofa. Það
verður nóg að gera hjá okkur á
morgun.
Bert klappaði honum á
herðarnar og gekk að glugganum
og dró rimlatjiildin fyrir.
— Viltu teppi'.' spurði hann.
— Nei, þakka þér fyrir. Mér er
ekki kalt.
Ilann reis upp viðolnboga og lét
töflurnar lalla niður i glasið. Þær
leystust upp og hann drakk stóran
sopa, siðan annan.
Bert stóð kyrr meðan hann
ta'mdi glasið. Hann l'ór og sótti
meira vatn.
— Ef þú sofnar ekki samt, þá
skaltu bara taka nokkrar i viðbót.
Ég læt þa»r vera hérna. Sofnaðu
nú og við skulum sjá til i fyrra-
málið. Siðan kinkaði hann kolli,
hvarf inn i svefnherbergið og
lokaði dyrunum.
Ilann heyrði að Bert var enn að
tala i simann, i lágum hljóðum
eins og hann vildi ekki trufla.
Hann reis aftur upp á olnboga og
lét það sem eftir var af töflunum
renna niður i glasið. Þær leystust
hægt upp og vatnið varð ógagn-
sa'tt skamma stund. siðan
skirðist það og varð ofursak-
leysislegt, næstum eins og tært
vatn..
Hann fann hvernig svefninn n-
algaðist og lét höiuðið siga niður á
púðann. Það er eins gott að ljúka
þessu af undir eins, hugsaði hann
og teygði sig eftir glasinu meö
uppleystu töflunum.
Kimmtudagur
Þegar hann vaknaði var sólin
lágt á lolti og geislarnir llæddu
eins og gullinn árstraumur yfir
indverska teppið hans Berts.
Hann lyfti höfðinu og reyndi að
setjast upp en lét i'allast niður á
koddana aftur. Angistin, sem
hann var næstum l'arinn að
venjast. sótli á hann eins og þrá-
lát tannpina. hann verkjaði i
brjóstið eins og hvassar klær
hefði rifið á það gat. Hann var
þurr i kverkunum. augnalokin
virtust þrútin og inni i höfðinu var
hamrandi verkur, ekki ólikur þvi
sem hann hafði vanizt á
s júkrahúsinu. Hann reyndi að
va'ta varirnar með tungunni,
mundi eftir glasinu með vatni
sem staðið hafði á borðinu
kvöldið áður og hann hafði teygt
sig eftir en vplt um koll.
Ilonum tókst að setjast upp
þrátt fyrir sáran verkinn i
hnakkanum. Honum leið skelfi-
lega illa i öllum skrokknum, rétt
eins og hann hefði orðið fyrir ein-
hvers konar pyntingum meðan
hann svaf.
Reikulum skrefum riilti hann
Iram i baðherbergið. kla'ddi sig
úr fötunum og fór i iskalt steypi-
bað. Verkurinn i höfðinu
minnkaði ekki. en kalda vatnið
gerði hugsunina skýrari. Hann
mundi eftir Mirjam og samtalinu
við Beatrice. Mirjam sem var
ekki til....
Brúðkaup
Þann 10. ágúst voru gefin
saman i hjónaband i Dóm-
krikjunni af séra Þóri Stefensen,
ungfrú Björg Eliasdóttir og
Róbert Reginberg Óskarsson.
Heimili þeirra er að Hellisbraut 7,
Heilissandi.
STUDIO GUÐMUNDAR
Garðastræti 2.
24. júni voru gefin saman i
hjónaband af séra Þorsteini
Björnssyni ungfrú Valborg Árna-
dóttir og Garðar Garðarsson raf-
virki. Heimili þeirra er að
Nýborg. Fáskrúðsfirði.
STUDIO GUÐMUNDAR
Garðastræti 2
Hann mundi eftir róandi orðum
Berts og svefntöflunum. Hve
margar hafði hann tekið? Hann
þurrkaði sér og klæddi sig og fór
aftur inn i stofuna. Hylkið sem
töflurnar höfu verið i, var tómt.
Hafði hann tekið þær allar?
Bert var hvergi sjáanlegur i
ibúðinni. S.iminn hringdi og hann
tók tólið upp. — Já? sagði hann.
— Það er ég, sagði rödd. — Allt
er klappað og klárt. bað
blessaðist. Tðlfti klefinn eins og
þú sagðir.
Hann hélt tólinu að eyranu og
vissi ekki hvað hann átti að segja.
— Bert, sagði röddin. Og siðan
hærra og gremjulegar: — Bert
ertu þarna? Hann svaraði ekki,
lét tólið aðeins siga niður aftur.
Aftur var hringt. margsinnis, en
hann kærði sig ekki um að svara.
Allt er klappað og klárt. Tólfti
klefinn. Hvað kom honum það
við?
Hann fór fram i eldhúsið og
fékk sér vatn að drekka, tók epli
sem lá á borðinu. Fór aftur inn og
settist i sófann. Hvað átti hann nú
að gera? Atti hann að fara heim?
Eða biða þangað til Bert kæmi
aftur?
Hann stakk hendinni i vasann
og fann lykilinn að ibúð sinni. Allt
i lagi. þá fér ég heim. hugsaöi
hann.
begar hann kom út á götuna
leið honum ögn betur. Ég þarf að
sofa .lengur. hugsaði hann, Ég er
ckki ennþá laus við áhrifin af
þessum svefntöflum. Og þegar ég
er búinn að hvila mig rækilega,
ætla ég til lögreglunnar. Segja frá
öllu sem ég veit og man.
Og samt vissi hann að nú mundi
hann varla eftir nokkrum
sköpuðum hlut. Mirjam...Ef til til
vill ga'ti lögreglan hjálpað honum
að linna hana. Ef hún var mikil-
vægt vitni. yrði allt gert til að
reyna að finna hana.
Hann opnaði dyrnar að ibúð
sinni og gekk inn fyrir. Gekk að
glugganum og opnaði. Sneri sér
hægt við og koma auga á litlu
hrúguna sem lá á borðinu. bað
voru óhreinir og moldugir hlutir,
sem hef'ðu getað verið grafnir i
jörð:
Rúskinnsjakkinn, gasbindin,
bréfin tvö og postulinsfuglarnir.
Hann langaði mest til að reka
upp öskur, láta skynsemi og
skilning lönd og leið i eitt skipti
l'yrir ö11.
En þess i stað varð hann reiður.
bað var eins og mælirinn væri nú
loksins fullur. Hann fann hvernig
isköld reiðin óx i honum. og hún
beindist að öllum heiminum, að
fókinu sem hafði aldrei veitt
honum viötöku. að föðurnum sem
hal'ði kallað hann tatarakróa, að
hinum óþekktu sem tekið höfðu
bilinn hans og eigur hans, að
Beötu Lovén sem hafði látið
myrða sig. svo að hægt væri að
dæma hann.
Ilann varð beinlinis hissa þegar
hann uppgötvaði að hann var ekki
lengur hræddur. Hvað gátu þeir
gert honum með þessum út-
smognu brögðum? Gert hann
hræddan og miður sin, efabland-
inn um athafnir sinar og gerðir?
Honum þótti leikurinn óskemmti-
legur. beir urðu að leika einir
ef'tirleiðis. Ef það var rétt að
bann 22. júli voru gefin saman i
hjónaband i Árbæjarkirkju af
séra Ólafi Skúlasyni. ungfrú
Gerður G. borvaldsdóttir og Finn
Soberg Nilssen. Heimili þeirra er
að Vesturgerði 30. Breiöholti.
STUDIO GUÐMUNDAR.
Garðastræti 2.
MIDVIKUDAGUR 20. september
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og -for-
ustugreinar. dagbl.), 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.45.
M orgunleikf imi kl. 7.50
Morgunstund harnanna kl.
8.45: Sigriður Eyþórsdóttir
heldur áfram að lesa söguna
,,Garðar og Glóblesa” eftir
Hjört Gislason (3). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli
liða. Kirkjutónlist kl. 10.25:
Pierre Froidebise leikur á
orgel sálmforleiki eftir
Bach/Yvonne Cianella,
Raymond Keast, Walter
Carringer og Robert Shaw
kórinn flytja ásamt
strengjasveit Messu nr. 2 i
G-dúr eftir Schubert:
Robert Shaw stj. Fréttir kl.
11.00 Tónleikar: Fil-
harmóniusveit Lundúna
leikur „Töfrasprota æsk-
unnar”. hljómsveitarsvitu
eftir Elgar: Sir Adrian
Boult stj. / Vladimir
Ashkenazý og Sinfóniu-
hljómsveit Lundúna leika
Pianókonsert nr. 1 i b-moll
op. 23 eftir Tsjaikovský:
Lorin Maazel stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar
14.30 „Lifið og ég”, Eggert
Stefánsson söngvari segir
frá Pétur Pétursson les (3)
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
15.15 islcnzk tónlist: a.
„Fornir dansar” fyrir
hljómsveit eftir Jón
Ásgeirsson. Sinlóniuhljóm-
sveit íslands leikur: Páll P.
Pálsson stj. b. Sónata fyrir
klarinettu og pianó eftir Jón
bórarinsson. Gunnar Egils-
on og Rögnvaldur Sigur-
jónsson leika. c. Fjórir
þættir úr Messu fyrir bland-
aðan kór og einsöngvara
eftir Gunnar Reyni Sveins-
son. Guðfinna D. Olafs-
dóttir, Halldór Vilhelmsson
og Gunnar Óskarsson
syngja með Pólýfón-
kórnum: Ingólfur Guð-
brandsson stj. d. Ballett-
svita úr leikritinu „Dimma-
limm” eftir Atla Heimi
Sveinsson. Sinfóniuhljóm-
sveit Islands leikur:
höfundur stj.
16.15 Veðurfregnir. Alþjóða
bankinn. stofnun lians og
starfshættir: Haraldur
Jónsson hagfræðingur
flytur fyrra erindi sitt.
16.35 Lög lcikin á flautu.
17.00 Fréttir. Tónleikar
17.30. „Jói norski”: A sleða-
veiðum með Norðmönnum.
Minningar Jóns Daniels
Baldvinssonar vélstjóra á
Skagaströnd Erlingur
Daviðsson ritstjóri skráði
og flytur (5).
18.00 Fréttir á ensku
18.10 Tónleikar. T i 1 -
kynningar.
18.45. Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir Tilkynningar.
19.30 Daglegt mál Páll
Bjarnason menntaskóla-
kennari flytur þáttinn.
19.35 ÁlitamákStefán Jónsson
stjórnar umræðuþætti
20.00 Konsert nr. 4 i B-dúr
fyrir fiðlu, klarincttu og
strcngjasveit eftir Karel
Stamic Pavel Ackermann
og Jiri Ptácink leika ásamt
strengjasveitinni i Prag
20.20 Sumarvaka-.a. Bildur og
blóðkorn borsteinn frá
Ilamri tekur saman þáttinn
og flytur ásamt Guðrúnu
Svövu Svavarsdóttur. b. i
hendingum Hersilia Sveins-
dóttir fer með stökur ortar i
göngum og réttum. c. Vopn-
firðingará FellsréthGunnar
Valdimarsson frá Teigi
flytur fimmta og siðasta
hluta frásagnar Benedikts
Gislasonar frá Hofteigi. d.
Visnalög Æsa Karlsdóttir
syngur sænsk lög: Guðrún
Kristinsdóttir leikur á
pianó.
21.30 Útvarpssagan:
„Dalalif" eftir Guðrúnu frá
Lundi Valdimar Lárusson
leikari les (25)
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Endur-
minningar Jóngcirs Daviðs-
sonar Eyrbekk Jónas
Árnason les úr bók sinni
„Tekið i blokkina” (2)
22.35 Djassþáttur i umsjá
Jóns Múla Árnasonar
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Ö'O
Miövikudagur 20. september
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Steinaldarmennirnir.
býðandi Guðrún Jörunds-
dóttir.
20.50 Olia á norðurslóðum
Norð-austur i Dumbshafi
liggja Svalbarði og
Bjarnarey, hrjóstrugar
eyjar og illa byggilegar. en
hernaðarlega mikilvægar
og ef til vill auðugar af dýr-
mætum jarðefnum. Eyjar
þessar tilheyra Noregi að
nalninu til. en á undanförn-
um árum hafa ýmsir aðilar
komizt þar yfir landspildur
og námaréttindi. og nú er
Norömönnum mikill vandi á
höndum þvi talið er vist að
olia finnist brátt i grennd
við eyjarnar. (Nordvision —
Norska sjónvarpið) býð-
andi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
21.35 Valdatafl.Brezkur fram-
haldsmyndaflokkur. 13.
þáttur. Misheppnað ráða-
brugg. Sögulok. Efni 12.
þáttar: Wilder kemst að
raun um. að Kenneth Bligh
hefur veitt ihaldsflokknum
fjárhagsaðstoð án vitundar
föður sins. Caswell Bligh
bregzt reiður við. þegar
hann fréttir þetta, en Wilder
bendir Kenneth á nýja leið,
til að fela greiðslur til
flokksins.
22.25 Dagskrárlok.
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32.
LJÚSASTILLINGAR
HJÓLASTILLINGAR MÓTORSTILLINGAR
LátiS stilla i tíma. Æ
Fljót og örugg þjónusta. I
13-10 0