Þjóðviljinn - 20.09.1972, Qupperneq 11
Miðvikudagur 20. september 1972 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 11
Enn er barizt
í Uganda
DAR-ES-SALAM 19/9. —
Flugvélar frá úganda köst-
uðu enn sprengjum á bæinn
Bukoba i dag. Sveitir úr her
Tansaníu hafa nú tekið sér
stöðu á þessu svæði, og eru
reiðubúnar til að mæta árás
frá úganda.
Klugvélarnar gerðu i morgun
tvær árásir á Bukoba, sem er i
norðurhluta Tansaniu, um 30 km
fyrir sunnan landamæri Uganda,
en þær urðu frá að hverfa i bæði
skiptin vegna skothriðar úr loft-
varnarbyssum, og árásirnar ollu
engu tjóni. Hluti af sprengjunum
datt i Viktoriuvatn.
I árásinni á Bukoba i gær fórust
hins vegar niu menn, þar á meðal
þrjár skólastúlkur og ein nunna,
og margir særðust.
SAMVINNU
BANKINN
SINNUM
LENGRI LÝSING
neOex
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
BergstaSastr. 10A Slmi 16995
Sveitir úr her Tansaniu tóku
sér stöðu við landamærin rétt hjá
Bukoba i nótt, en þær munu hafa
ströng fyrirmæli um að fara ekki
yfir landamærin.
Nú er talið vist, að þeir sem
gerðu innrás i Uganda um helg-
ina, séu hermenn úr her Úganda.
sem fylgdu Milton Obote, fyrr-
verandi forseta landsins i útlegð
eftir valdrán Idi Amins i fyrra,
Óstaðfestar fréttir herma að inn-
rásarherinn hafi tekið sér stöðu i
Úganda rétt fyrir innan landa-
mærin, en fréttir frá Kampala
herma að hann sé nú á undan-
haldi. Útvarp Úganda segist hafa
það eftir föngum, að innrásar-
mennirnir hafi búizt við að fá að-
stoð frá brezku herliði. Talsvert
mannfall mun hafa orðið i þess-
um atburðum.
Húsmæðraskólinn
Framhald af 5. siðu.
endur og stjórnunarmenn Ieyfa
ekkert slikt. og þvi búa piltarnir i
Héraðsskólanum að Laugum, en
eru þó að öllu öðru leyti i hús-
mæðraskólanum, s.s. á matmáls-
timum.
Knn hefur ekki komið til
árekstra milli kynjanna og
væntanlega verða engin slagsmál
þótt áður óþekktar verur hafi nú
hafið innreið sina i skólann. Sam-
búðin hefur verið hin bezta og
vonandi verður hún það áfram.
t>á má geta þess, að nú hefur
einn karlmaður innritazt, ásamt
unnustu sinni, á kvöldnámskeið
Húsmæðraskólans i Reykjavik og
vissulega hlýtur sambúð þeirra
hjónakorna að verða eins og bezt
verður á kosið. Einnig þar er
þetta fyrsti karlmaðurinn sem
innritast i skólann.
Auglýsingasíminn
er 17 500 Þjóðviljinn
Reglusöm eldri kona
óskast i söluturn.
Vinnutimi frá 5 til 11.30.
Upplýsingar i sima 25585.
HERRA ÁSGEIR ÁSGEIRSSON,
fyrrverandi forseti íslands.
sem lézt 15. þ.m. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni I
Reykjavik, föstudaginn 22- september kl. 14.
Rikisstjórn ísland
Faðir okkar og tengdafaðir,
Björn Sigurðsson,
Brekastig 16, Vestmannaeyjum
andaðist I Sjúkrahúsi Vestmannaeyja, 17. september.
Jarðarförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 23.
þ.m. klukkan 11.
Asbjörn Björnsson, Bjarney Sigurðardóttir
Eirikur Björnsson, Asdís Jónsdóttir.
Kúba
Framhald af bls. 7.
ætla að verða mun betri en á sið-
ustu tveim árum. Þá var hún rýr
sakir þurrviðra. en tiðarfar hefur.
verið mun betra i ár.
Eins og aðrar landbúnaðarþj.,
erum við háðir veðurfari, og upp-
skeran er komin undir nægri úr-
komu um regntimann, sem hefst i
mai en lýkur i október. Þessu
fylgir mikið óöryggi, og nú er
unnið að undirbúningi áveitukerf-
is. til að tryggja sykurreyrnum
nægan raka. Hafizt hefur verið
handa um að reisa stiflur, sem
eru fyrsti liður áveitukerfisins, en
þetta er mikið verk og krefst sins
tima, þar sem landið er fjöllótt og
ár fremur stuttar.
Vináttufélag.
— Nú hefur verið stofnað
Vináttufélag Islands og Kúbu.
hver eru hugsanleg verkefni þess
félags?
— í Sviþjóð, Danmörku og
Noregi eru starfandi samskonar
félög og standa þau m.a. fyrir
vinnu- og kynnisferðum norræns
fólks til Kúbu. Hafa þessar ferðir
gefizt vel og höfum við mun meiri
áhuga á slikum hópferðum en að
auka ferðir einstaklinga til lands-
ins. Það væri e.t.v. mögulegt að
hópur færi héðan til Kúbu á veg-
um vináttufélagsins i júli næst-
komandi.
Við munum senda islenzka
félaginu kúbanskar kvikmyndir
til sýninga og ýmiskonar lesefni
um kúbönsk málefni. Það gæti
komið til greina að stofnað yrði
samsvarandi félag á Kúbu sem
stuðlaöi þá að þvi að kynna
islenzk málefni þar. Þáð veitir
vist ekki af, t.d. vissum við sjálf
ákaflega litið um island áður en
við komum hingað. Við stönzum
aðeins i tæpa viku en höfum hug á
að koma aftur innan langs tima
og skoða okkur þá betur um. Ég
hef lika orðið var við að fólk hér
veit álika litið um Kúbu og við um
island, og brýn þörf er á að bæta
úr þessari gagnkvæmu fáfræði.
íþróttir
Framhald af bls. 9.
vörður nr. 4, 20 ára netagerðar-
maður. Hefur leikið 4 unglinga-
landsleiki. Itólegur og yfirveg-
aður leikmaður.
Friðfinnur Finnbogason mið-
vörður nr. 5, 22 ára verzlunar-
maður. Hefur leikið með meist-
araflokki siðan ’67. Leikreyndur
og harðfylginn varnarleikmaður,
sem gefur fá skallaeinvigi eftir.
Kristján Sigurgeirsson fram-
vörður nr. 6, 22 ára laganemi.
Fylginn leikmaður, hefur leikið
með meistaraflokki siðan 1968.
Orn Óskarsson útherji nr. 7, 19
ára húsamálari. Hefur leikið i
landsleik og skoraði þá eina mark
lslendinga gegn Noregi i Staf-
angri. 4 unglingalandsleikir
Geysifljótur og harðfylginn
leikmaður, sem ógnar stöðugt.
Óskar Valtýsson, framvörður
nr. 8, 21 árs verkamaður. Hefur
leikið tvo landsleiki og þrjá
unglingalandsleiki. Hefur viður-
nefnið fellibylurinn fyrir hin föstu
og hættulegu skot sin.
Tómas Pálsson miðherji nr. 9,
22 ára bankamaður. Hefur leikið 5
landsleiki, 3 unglingalandsleiki
og er nú markahæzti leikmaður I.
deildar með 15 mörk. Mjög hættu-
legur sóknarleikmaður.
Haraldur Júliusson framherji
nr. 10, 25 ára netagerðarmaður.
Hefur viðurnefnið gullskallinn
fyrir hina hættulega skallabolta
sina. Hefur leikið með meistara-
flokki siðan 1967.
Asgeir Sigurvinsson útherji nr.
11, 17 ára pipulagningarmaður.
Hefur leikið 3 landsleiki og tvo
unglingalandsliðsleiki. Af flestum
talinn eitt mesta efni sem fram
hefur komiö á íslandi i knatt-
spyrnu.
Gisli Magnússon nr. 13, bak-
vörður, 25 ára iþróttakennari. Hóf
leik með meistaraflokki 1965.
Ákveðinn og harður varnarleik-
maður.
Sævar Tryggvason framherji
nr. 14. 25 ára húsamálari. Hefur
leikiö 2 landsleiki og 3 unglinga-
landsleiki. Sævar er hættulegur
sóknarmaður og á gott með að
opna vörn andstæðinganna.
Snorri Ilútsson framvörður nr.
15, 19 ára gamall nemandi. Hefur
leikið 4 unglingalandsleiki. Mjög
leikinn og vaxandi leikmaður.
Forval
Framhald af bls. 3.
I útboði véla- og rafbúnaöar fyr
ir virkjunina er óskað eftir, að til-
boðum fylgi vörukaupalán. en aö
öðru leyti verður leitað til
erlendra lánastofnana og þá eink-
um Alþjóðabankans um lán til
framkvæmdanna, auk þess sem
til koma framlög eigenda og eigið
fé Landsvirkjunar.
Núverandi framkvæmda-
áætlanir gera ráð fyrir, að fyrsta
vélasamsta-ða virkjunarinnar
verði komin i rekstur 1. desember
1975. önnur vélasamstæða hinn 1.
april 1976 og sú þriðja 1. desem-
ber 1976, en hver vélasamstæða
er 50 MW.
Reykjavik, 19. sept. 1972.
LANDSVIRKJUN.
FELAGSLÍF
Ferðafélagsferðir.
Föstudag 22/9. kl. 20.
Landmannalaugar.
Laugardag 23/9. kl. 8.
Þórsmörk (Haustlitaferð).
Sunnudag 24/9. kl. 9.30.
Þingvellir (Haustlitaferð).
Ferðafélag Islands
Oldugötu 3,
Simar 19533 og 11798.
Kópavogsbúar
takið eftir.
Séra Bernharður
Guðmundsson, æskulýðsfull-
trúi, mun ræða um trúarlegt
uppeldi barna á fundi hjá
Kvenfélagi Kópavogs 21. sept.
kl. 22.00, i Félagsheimilinu
efri sal.
Ungir foreldrar sérstaklega
velkomnir.
Stjórnin.
Vélskólanemar
eldri og yngri!
Nú fer senn aö ljúka innköllun spuringalista
„Vélstjóratals” sem hefur verið unniöað nú i 2ár.
Þess er óskað, að allir, sem lokiö hafa prófi frá Vél-
skólanum frá þvi hann hóf starfsemi sina taki þátt I þessu,
einnig þeir mótorvélstjórar, sem voru I sinu félagi, þegar
Vélstjórafélag tslands og Mótorvélstjórafélag tslands
sameinuöust.
Siðasti skiladagur er 1. október 1972
Munið, allir veröa aö vera með!
Ljósmynd þarf að fylgja.
Þeir, sem af einhverjum ástæðum eru eftir og hafa ekki
fengið sent eyðublaö til útfyllingar, eru beðnir að vitja
þeirra á skrifstofu V.S.F.I., Bárugötu 11, eða I Sparisjóði
vélstjóra að Hátúni 4A, þar sem þau liggja frammi.
Hringja eða skrifa má Jens Hinrikssyni, Langholtsvegi 8,
s. 33269 eða Guðjóni Sveinbjörnssyni, Asvallagötu 10, s.
16873.
liitnefnd Vélstjóratals.
AUGLÝSING
frá Lánasjóði íslenzkra
námsmanna til
námsmanna á Islandi
Auglýst eru til umsóknar lán til náms-
manna á tslandi úr lánasjóði islenzkra
námsmanna, skv. lögum nr. 7,31. marz
1967, um námslán og námsstyrki og siðari
breytingar.
Umsóknareyðublöð eru afhent i Félags-
heimili stúdenta við Hringbraut og hjá
lánasjóði islenzkra námsmanna, Hverfis-
götu 21, Reykjavik.
Námsmenn geta, að uppfylltum ákveðn-
um skilyrðum, fengið hluta námsláns af-
greiddan i upphafi skólaárs, ef þeir óska
þess i umsókn og senda sjóðnum hana fyr-
ir 1. nóv. n.k.
Umsóknir um almenn námslán skulu hafa
borizt sjóðnum fyrir 1. nóv. n.k., nema
umsækjandi hefji nám siðar, og verður
þeim úthlutað i janúar og febrúar n.k.
Reykjavik, 19. september 1972.
Lánasjóður islenzkra námsmanna.
Ráðskona óskast
vantar ráðskonu að heimavistarskóla.
Mjög góð vinnuaðstaða og húsnæði i boði.
Upplýsingar i sima 12121 næstu daga.