Þjóðviljinn - 20.09.1972, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 20.09.1972, Qupperneq 12
Miðvikudagur 20. september 1972 Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar" eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavikur, simi 18888. Nætur- og helgidagavarzla apóteka næstu viku, frá og með 16. september til 22. september, er i eftirfarandi apótekum: Apótek Austur- bæjar, Lyfjabúð Breiðholts og Kópavogs Apótek. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Simi 81212. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstöðinni. Sími 21230. Israelskur sendiráðsmað ur beið bana í sprengingu LONDON 19/9.— Fulltrúi i sendiráði israels i London beið bana í dag, þegar pakki með sprengju sprakk í höndum hans, og annar israelsmaður, sem stóð hjá honum, særðist lítiIsháttar. Utanrikisráðherra Egypta- lands, Múhameð Hassan el- Zayyat, sem nú er i heimsókn i London, lét i ljós hryggð sina yfir atburðinum. Sendiráði lsraels i Paris var einnig sendur pakki með sprengju. r r FIMM SJOMENN BJARGAST Snemma í gærmorgun kviknaði í vélbátnum Jóni Eiríkssyni SF 100 á hafinu milli Færeyja og islands eða 156 sjómílur frá Stokksnesi. Fimm skipverjar björguðust um borð í herskipið Áróru. Var gert ráð fyrir, að her- skipið færi með Islend- ingana til Færeyja i nótt. Logaði ennþá í bátnum snemma i gærkvöldi. Slysavarnarfélag Islands fékk tilkynningu um eldinn i bátnum kl. 5.50 i gærmorgun. Voru tvö herskip næst slys- staðnum og gert ráð fyrir að þau kæmust á slysstað kl. hálf tiu. Voru það brezku freigát- urnar Áróra og Blue Rover. bá svöruðu lika slysakalli, Arnarfellið og Helga II. frá Reykjavik. Hefðu þau náð á slysstað rétt eftir hádegi að sögn Hannesar Þórs Hafstein i gær. Hannes hafði það eftir skip- stjóranum á Arnarfelli, að ágætis veður væri á þessum slóðum, sléttur sjór og vestan gola. Þá var gott skyggni. Skipverjar á Jóni Eirikssyni yfirgáfu bátinn kl. hálf sjö og réðu þá ekki við eldinn. Fóru þeir um borð rtvo gúmbáta og fann þyrla frá Árfiru gúmbát- ana kl. 8,25. Tóku þeir fyrst tvo skipverja og fluttu um borð i herskipið. Voru þeir komnir þangað kl. fimm min- útur gengin i tiu. Kl. 9,46 voru hinir þrir komnir heilir um borð. Kl. 11 hófst slökkvistarf á bátnum af hendi Árórumanna og var ekki búið að slökkva i bátnum snemma i gærkvöldi. Þá var óráðið, hvað gert yrði við bátinn. Hins vegar þótti liklegt, að Aróra færi með Is- lendingana til Færeyja i nótt. Vélbáturinn Jón Eiriksson var á humarveiðum I sumar og var á leið til Færeyja til viðgerðar og hreinsunar. gm. Að sögn lsraelsmanna hafði sendiráðið fengið mikinn póst i tilefni af helgidegi Gyðinga ,,yom kippur”. Pakkinn með sprengj- unni var meðal samúðarbréfa, sem send höfðu verið vegna mannviganna i Miinchen, og virt- ist hann hafa verið póstlagður i Amsterdam. Talsmaður sendi- ráðsins sagði að pakkinn hefði sloppið i gegnum öryggiseftirlitið vegna þess að ekki væri unnt að rannsaka allan póst sendiráðsins. Sprengjusérfræöingar, sem voru kvaddir á vettvang, fundu sprengjur i tveimur öðrum pökk- um. Fulltrúinn, sem beið bana, Ami Shachori, var fertugur að aldri. Hann var landbúnaðarfulltrúi sendiráðsins, en hann ætlaði að láta af störfum eftir viku, og Theodore Kadder, sem særðist i sprengingunni, átti að taka við starfi hans. Ovissa í Líbanon BEIRUT 19/9 — Salam, forsætis- ráðherra Libanons, bar i dag til baka allar fréttir um missætti milli skæruliðahreyfingar Palestinuaraba og stjórnar Libanons. Hann sagði að stjórnin óskaði þess, að samskipti sin við hina ,,palestinsku bræður” mót aðist af gagnkvæmum skilningi Salam lýsti þessu yfir á fundi með Mahmoud Riad, fram- kvæmdastjóra Arababandalags- ins, og leiðtogum skæruliða Blaðberar óskast Þjóðviljinn óskar að ráða blaðbera í eftir+alin hverf i: Hjarðarhaga Skjól Háskólahverfi Háteigsveg Breiöholt Vogahverfi 2 Hraunbæ Fossvog Ásgarð Laugaveg Miðbæ Hverfisgötu Þjóðviljinn sími 17500 Samið um heimild fyrir níu færeyska togara — unz annað er ákveðið um togveiðiheimildir handa fœreyskum skipum innan Viðræðum Færeyinga og islendinga um endanlegt fyrirkomulag togveiða færeyskra skipa innan landhelginnar við ísland hefur verið frestað að sinni. Samkomulag hefur náðst um að veita áfram níu færeyskum togskipum leyfi til veiða milli 12 og 50 milna, enda fylgi þau í hví- vetna íslenzkum lögum og reglum. Orðsending um þetta efni var i gær afhent Atla P. Dam, lögmanni Færeyinga. ALLSHERJARÞING SAMEINUÐU ÞJÓÐANNAIIAIII) NEW YORK 19/9 — Tutt- ugasta og sjöunda allsherj- arþing Sameinuðu þjóð- anna hófst i New York í dag. Mikil óvissa rikir í að- aistöðvum S|b og gerðar voru strangari öryggisráð- stafanir en nokkru sinni fyrr í sögu samtakanna. Rúmlega hundrað mál eru á dagskrá þingsins, en ekki er vafi á þvi að erfiðast þeirra er ástand- ið fyrir botni Miðjarðarhafs# Mannvigin i Miinchen og árásir ísraelsmanna á þorp og flótta- mannabúðir i Libanon gera það ó- sennilegt að nokkuð miðí"i friðar- átt. Kurt Waldheim, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna viðurkenndi það i dag að samtökin væru ráðþrota. Samn- ingaumleitunum Gunnars Jarr- ing, sendiherra Sviþjóðar i Moskvu, yrði haldið áfram, en enginn býst við nokkrum árangri af þeim nú. Gerðar voru strangari öryggis- ráðstafanir en nokkru sinni fyrr, þegar fulltrúar hinna 132 aðildar- rikja komu saman til fundar og kusu Stanislaw Trepczynski, varautanrikisráðherra Póilands, forseta þingsins. Fastafulitrúar urðu nú i fyrsta skipti að sýna vegabréf með mynd, og verðir voru við allar dyr i byggingunni. Stanislaw Trepczynski Sérstakir lögreglumenn eru komnir frá Washington til að að- stoða lögregluna i New York við að vernda þær átta þúsundir manna, sem eru viöriðnár alls- herjarþingið. Umræðurnar munu hefjast á mánudagirin. Saigon 19/9 Her Þjóðfrelsishreyf- ingarinnar i Suöur-Vietnam er i sókn á 50 km langri strandlengju og tók i nótt bæinn Ba To. Þessi frétt varpaði talsverðum skugga á opinbera hátið, scm leppstjórn- in i Saigon hélt til að fagna töku Kuang Tri. landhelginnar Orðsendingin er á þessa leið: „Þar sem enn standa yfir athuganir varöandi togveiðar færeyskra skipa innan hinna nýju fiskveiðimarka Islands hefur orðið að samkomulagi milli samninganefnda islenzku rikis- stjórnarinnar og færeysku land- stjórnarinnar að tslendingar veiti áfram færeyskum togveiðiskip- um (sbr. fylgiskjal) leyfi til veiða innan landhelginnar á milli 12 og 50 milna, enda fylgi þau i hvi- vetna islenzkum lögum og sömu reglum varðandi veiðarnar og gilda fyrir islenzk skip við sams konar veiðar. Tekinn í landhelgi M.b. Heimaey VE 1 var staðin aö ólöglegum togveiðum 1,3 sjómilur frá landi út af Dyrhólaey siðastliðna nótt. Bátnum var sagt að halda til Vestmannaeyja, þar sem málið var tekið fyrir i gær. Samkomulag þetta skal gilda þar til annað verður ákveðið af íslands hálfu. Einar Agústsson” Heimildin nær til eftirtalinna skipa: BRANDUR SIGMUNDARSON MAGNUS HEINASON SKÁLABERG SJÚRÐARBERG KAP FARVEL ÓLAVUR HALGI LEIVUR ÖSSURSSON VAGBINGUR HEGVAN ELIAS THOMSEN Brandt situr hjá BONN 19/9. — Willy Brandt kanzlari og flokksbræður hans i stjórn Vestur-Þýzkalands hafa ákveðið að sitja hjá i atkvæða- greiðslunni um traustsyfirlýsingu við stjórnina. Þeir vilja vera viss- ir um að stjórnin falli, svo að Brandt geti farið fram á það við Gustav Heinemann forseta að hann leysi þingið upp og efni til nýrra kosninga. ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Hafnarfirði: Alþyðubandalagjð i Hafnarfirði heldur fund i Góðtemplarahúsinu uppi næstkomandi fimmtudag, annaðkvöld klukkan 20,30. Dagskrá fundarins verður: 1. Kosning fulltrúa i flokksráð 2. Efnahags- og verðlagsmál. Framsögumaður Þröstur Ólafsson hagfræðingur. 3. önnur mál. Félagar fjölmennið — Stjórnin. Kjördæmisráðstefna ó Sauðárkróki Kjördæmisráðstefna Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra verð- ur haldin að Villa Nova Sauðárkróki, laugardaginn 23. september og hefst hún kl. 15. Ragnar Arnalds, alþingismaður hefur framsögu um stjórnarsam- vinnuna og hagsmunamál kjördæmisins. Stjórn kjördæinisráðsins

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.