Þjóðviljinn - 10.10.1972, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 10.10.1972, Blaðsíða 8
Leikreynslan færði Keflvíkinguni sigur í leiknum við KR Þaö er ekki auðvelt að leiða í úrslitaleik, eins og hver leikur er í bikarkeppn- inni, og það þarf leik- reynslu til að halda slíku fengnu forskoti i heilar 43 minútur. Þessa leikreynslu hefur hið unga KR-lið ekki, og þvi brotnaði það niður þegar Keflvikingum tókst að jafna 2:2 um miðjan síðari hálfleik. Eftir- leikurinn var leikreyndum Keflvíkingumauðveldur og sigur þeirra 4:2 var verð- skuldaður. Það má segja, að sú mikla reynsla sem iBK-liðið býr yfir hafi dugað liðinu bert í leiknum. Þrátt fyrir að KR leiddi bæði 1:0 og 2:1, brotnaði IBK-liðið aldrei. Slikt er einkenni leikreyndra liöa. Enginn leikur er tapaður fyrr en flautaö hefur verið af. KR-ingar voru lietri aðilinn all- an fyrri hálfleik og manni fannst sem það lægi i loftinu að þeir tækju forustu i fyrri hálfleik. Prátt fyrir allsterka sókn þeirra kom fyrsta markið ekki fyrr en á 20. minútu. Þá komst Atli bór Héðinsson innfyrir lBK-vörnina og skoraði 1:0. En þetta forskot KR-inga stóð ekki lengi, þvi að á sömu minútu eða svo gott sem, jöfnuðu Keflvikingar þegar Guðni Kjartansson gaf fallegan stungu- bolta inná Steinar Jóhannsson, og hann átti mjög auðvelt með að skora 1:1. bannig var staðan i leikhléi, og hefði ekki verið ósanngjarnt að KR hefði þá haft mark yfir, miðað við gang leiksins. En strax á 1. minútu siðari hálf- leiks skoraði ungur nýliði i KR- liðinu, Jóhann Torfason, siðara mark KR með skalla af stuttu færi. Þorsteinn Olafsson mark- vörður IBK reyndi að slá boltann frá, en hitti hann ekki, og hann hafnaði i netinu 2:1. Þessi staða hélzt næstu 22 minúturnar, og KR-ingarnir áttu meira i leiknum en hið leikreynda Keflavikurlið gaf aldrei eftir og brotnaði aldrei. Svo var það á 68. minútu, að Jón Ólafur jafnaði fyrir IBK er hann komst innfyrir KR-vörnina, og mark hans var gullfallegt. Við þetta mark brotnaði KR- liðið algerlega niður, og Kefl- vikingar tóku leikinn i sinar hendur og réðu lögum og lofum það sem eftir var. Mörk IBK komu á 74. minútu, er Einar Gunnarsson, sem kominn var i sóknina i siðari hálfleik, skoraði eftir að Jón Ólafur hafði fram- kvæmt hornspyrnu og mikil þvaga hafði myndazt fyrir framan KR-markið. En siðasta markið skoraði Jón Ólafur á 85. minútu eftir að Friðrik Ragnars- son hafði sent honum boltann, og var uppbygging þessa marks gullfalleg. Þar með var sigur IBK i höfn og i alla staði verðskuldaður og hefði jafnvel getað orðið enn stærri eftir að KR-ingarnir brotnuðu niður við 2:2 - jöfnunina. Halldór Björnsson og Atli Héðinsson voru beztu menn KR- liðsins, en Jón Ólafur, Guðni Kjartansson og Steinar Jóhanns- son voru beztu menn IBK. Einnig átti Einar Gunnarsson góðan leik, og sama má segja um Grétar Magnússon sem alltaf er mikill baráttumaður. Dómari var Einar Hjartarson og dæmdi vel. —S.dór. Bikarkeppni KSÍ ÍBK gegn FH og ÍBV gegn Val í undan- úrslitum bikarsins hefðu farið fram hér i Reykja- vik, eins og mótanefnd vildi, að þeir yrðu leiknir á miðviku- dag og fimmtudag, en þar sem þeir fara fram i Keflavik og Vestmannaeyjum verður það ekki fyrr en um næstu hclgi I fyrsta lagi sem þeir fara fram, og meira að segja er óvist hvort leikurinn i Vestmanna- eyjum fer fram þá. Þaö er allt undir veðurguðunum komið. Þvi er alls óvist hvenær hægt verður að ljúka bikar- keppninni. —S.dór. Meðan á leik Vals og ÍA stóð s.I. sunnudag var dregið um hvaða lið leiki saman í undan- úrslitum bikarkeppni KSÍ. Kom upp, að Keflvikingar leika gegn FH í Keflavík og Vestmannaeyingar leika gegn Val i Vestmannaeyjum. An þess að það hafi verið tekið fram þegar þetta var til- kynnt i hátalara Mela- vallarins. má gera ráð fyrir aö þessir leikir fari fram um næstu helgi. Keflvikingar voru heppnir i þessum drætti og ætti að mega telja þá örugga i úrslit keppninnar. Hinsvegar er ekki eins gott að spá um úrslit i hin- um leiknum, milli ÍBV og Vals, þótt telja verði Eyja- menn sigurstranglegri. enda á heimavelli. Valsmenn sýndu á köflum góð tilþrif gegn ÍA á sunnudaginn. og ef liðið leikur jafn vel má allt eins búast við sigri þeirra i Eyjum eða jafn- tefli, og þá fengju Valsmenn siðari leikinn á Melaveliinum. Það stóð til. ef leikirnir Mistök Þau mistök urðu á marka- tölunni á Meiavellinum, að mörk ÍBK voru sett við nafn KR og öfugt i leik ÍBK og KR. Hér má sjá hvernig þetta leit út áður en þaö var lagfært. „Djöf.... sjálfur, mark!” Halldór Björnsson lengst til vinstri bölvar óláninu, Magnús markvörður er ekki bliður á svipinn, en Steinar Jóhannsson, sá er skor- aöi, er heldur glaðklakkalegur. ' Gi-óf mistök línuvarðar er hann tók mark af ÍA-liðinu Og Valur vann leikinn 2:1 og heldur þvi áfram í bikamum Gróf mistök ungs og reynslulitils linuvarðar i leik Vals og í A á sunnudaginn urðu til þess, að jöfnunar- mark ÍA var dæmt af, og þvi féli sigurinn Vals- mönnum i skaut og þar með er ÍA úr bikar- keppninni. Þetta jöfnunarmark kom með þeim hætti, að kastað var inn á móts við vitateig Vals, boltinn barst inn i teiginn, og þaðan skölluðu Vals- menn frá, Skagamenn skölluðu aftur að, og enn náðu Valsmenn boltanum, en hann barst til Teits Þórðarsonar sem skaut og skoraði. Þá allt i einu veifar linuvörður og kallar á dómara og segir inn- kastið hafa verið ólöglegt. Þetta tók dómarinn gilt og dæmdi markið af. Þetta nær auðvitað engri átt. Ilafi innkastið verið rangt, átti að dæma það strax, en ekki einhverntima löngu seinna, þegar búið var að skora mark. Að visu er það ekki óalgengt að sjá unga menn i dómara, — eða linuvarðarstöðum gera gróf mis- tök, en það er hart að dómari með mikla reynslu skuli ekki taka i taumana. Þessi ungi linuvörður hljóp i skarðið fyrir annan sem ekki mætti til leiks, og tafðist leikurinn fyrir það i 30 minútur. Það varð þvi heldur betur bjarnargreiði sem hann gerði Skagamönnum með þvi að hlaupa i skarðið. Annars var þessi leikur mjög jafn og sigurinn gat lent hvoru megin sem var. Og það sem meira var, þetta var einn skársti leikurinn sem sézt hefur hér á landi i haust. Oft á tiðurm vel leikinn, að visu ekki hraður, en mjög oft brá fyrir i honum góðum köflum. Litið markvert gerðist uppvið mörkin fyrstu 20 minúturnar. En á 20,minútu var Teitur Þórðarson kominn i gegn um Valsvörnina er honum var brugðið illilega og vitaspyrna réttilega dæmd. Or henni skoraði Eyleifur Hafsteinsson mark 1A. Svo á 33. minútu var dæmd horn- spyrna á 1A. Gefið vel fyrir markið, og Hermann Gunnarsson kom á fullri ferð og spyrnti viðstöðulaust og boltinn hafnaði efst i markhorninu, stór-glæsi- legt mark, 1:1. Þannig var svo staðan i leikhléi. Leikurinn hélzt jafn framan af siðari hálfleik, en siðan gáfu Skagamenn eftir og Valur sótti allstift. A 60. minútu bjargaði Jóhannes Guðjónsson bak- vörður 1A á linu, og næstu minúturnar sóttu Valsmenn stift. Manni fannst markið liggja i loftinu og það kom lika á 65. minútu. Hermann Gunnarsson var með boltann utarlega, gaf þaðan fyrir til Ingvars, sem skaut að marki. Hörður Helgason hafði hendur á boltanum, en ekki nóg, og hann hafnaði I hliðarnetinu innanverðu, 2:1. Við að fá þetta mark á sig tóku Skaga- menn mikinn kipp og sóttu meira það sem eftir var. I einni þessara sóknarlota skoraði Teitur markið sem dæmt var af fyrir mistök linuvarðar. Oft bæði fyrir þetta mark og einnig eftir þaö, voru Skagamenn nærri þvi að skora, en enda- hnútinn vantaði alltaf. Eins og áður segir var leikurinn jafn og vel leikinn þegar á heildina er litið. Valsmenn geta þakkað Jóhannesi Eðvaldssyni þennan sigur. Hann lék i stöðu miðvarðar og átti frábæran leik. Þá áttu bakverðirnir báðir, Vilhjálmur og Lárus, góðan leik, og mér er til efs að við eigum betri bakverði. Er það ekkert nýtt að Valur eigi beztu bakverði liða hér á iandi. Þannig hefur það oftast verið. Hermann Gunnarsson átti einnig góðan leik og er sem óðast að komast i æfingu eftir meiðslin sem hann hefur átt við að striða i sumar. Hjá Skagamönnum áttu þeir Teitur Þórðarson og Jón Alfreösson beztan leik, en einnig áttu Eyleifur, Jóhannes Guðjónsson og Þröstur Stefánsson allir nokkuð góðan leik. Dómari var óli Olsen og dæmdi mjög vel, ef frá eru talin mistök hans að taka mark á hinum siðbúna dómi linu- varðarins. —S.dór. Hálftíma bið eftir línuverði llálftima bið varð á þvi, aö leikur Vals og ÍA gæti hafizt á sunnudaginn, og voru bæði leikmenn og áhorfendur um það bil að missa þolinmæöina, þegardómaratrióið loks birtist. Ástæðan fyrir þessari töf var sú, að annan linuvörðinn vantaði. Sá sem átti aö mæta lét ekki sjá sig. Kallað var i hátalakerfi Melavallarins eftir linuverði, en enginn af þeim sem kallað var eftir og vitað var að væri á vellinum lét sjá sig. Það var svo ekki fyrr en ungur piltur hljóp i skarðið, að hægt var að hefja leikinn — 30 minútum of seint. —S.dór. • • Orn Óskarsson með þrennu þegar IBV sigraði Víking 4:1 Það var heldur betur form á hinum stórgóða sóknarmanni þeirra Vest- mannaeyinga, Erni Óskarssyni, á laugar- daginn, þegar Eyjamenn sigruðu Víking á heima- velli i bikarkeppninni 4:1. Hann skoraði hvorki meira né minna en 3 af 4 mörkum ÍBV og reyndist bezti maður Eyjaliðsins. Með þessumsigri eru Eyjamenn komnir i undanúrslit í bikarkeppninni og mæta Val i Vestmannaeyjum. Leikur ÍBV og Vikings var mjög harður baráttuleikur, dæmigerður bikarleikur þar sem allir leikir eru úr- slitaleikir. daginn tókst liðinu ekki að not- færa sér marktækifærin sem þvi gafst, nema aðeins einu sinni. Það var á 25. minútu að Guð- geir Leifsson bezti maður vallarins, framkvæmdi auka- spyrnu rétt utan vitateigs. Hann skaut að marki, en á leiðinni rakst boltinn i Eirik Þorsteinsson og breytti um stefnu og hafnaði i gagnstæðu horni við það sem Páll markvörður IBV hafði reiknað með, og þar með hafði Vikingur jafnað 1:1. Og þannig var staðan i leikhléi. Eyjamenn komu mjög ákveðnir til leiks i siðari hálfleik og náðu góðum tökum á leiknum. Það leið þvi ekki langur timi þar til þeim hafði tekizt að ná forustunni aftur. Það var á 53. minútu að örn Óskarsson rak endahnútinn á góða sókn Eyjamanna og skoraði 2:1. W Til að byrja með var leikurinn nokkuð jafn. Eyjamenn tóku þó forustu á 8. minútu er Óskar Valtýsson sendi góðan bolta i gegnum glufu i vörn Vikings og örn náði boltanum og skoraöi fyrsta markið. Þar með fór Vikings-liðið i gagn og sótti látlaust það sem eftir var fyrri hálfleiks og ráð lögum og lofum á vellinum, en eins og fyrri Tiu minútum siðar skoraði svo Haraldur Júliusson 3ja mark IBV, og þá brotnaði Vikingsliðið algerlega niður. Fjórða markið skoraði svo örn á 85. minútu og innsiglaöi þar með stór-sigur IBV i leiknum. Bezti maöur vallarins var Guð- geir Leifsson, og það verður sannarlega gott fyrir Eyjamenn örn óskarsson, hinn stórhættu- Icgi sóknarmaður IBV, skoraði þrenr.u gegn Vikingi. að fá hann i lið sitt næsta sumar, en ákveðið er að Guðgeir leiki meö IBV næsta keppnistimabil. 1 liði IBV bar Orn Óskarsson af, bæði fljótur og skotfastur að vanda og alltaf stórhættulegur sóknarmaður. Þetta er ekki dansleikur, heldur eru þeir Jóhann Larsen, Haukunyog Viöar Halldórsson, FH, aö berjast um boltann. Hafnarfj arðarbardaga lauk með sigri FH Gárungar kölluðu leik FH og Hauka, Hafnarfjarðar- liðanna tveggja í bikar- keppninni, „Hafnar- fjarðarbardaga'' en honum lauk með sigri FH 3:2. Leikurinn var mjög jafn og liðin ósköp áþekk að styrk- leika, eins og markatalan gefur til kynna. Sigurmark FH sem skorað var snemma í siðari hálfleik, var dæmigert klaufamark, eins og þau gerast Ijótust. Laust skot ólafs Danívals- sonar af um það bil 25 m. færi hafnaði í nær miðju markinu, án þess að mark- vörður Hauka gerði tilraun til varnar. FH tók forustu strax á 6. minútu er Viðar Halldórsson skoraði af stuttu færi. Haukar náðu ekki að jafna fyrr en á 21. minútu, að Loftur Eyjólfsson, einn bezti maður liösins, skoraði 1:1. Fátt markvert gerðist svo fyrr en á 44. minútu að Helgi Ragnars- son skoraði 2:1 fyrir FH eftir hrapalleg varnarmistök Hauka. Þannig var svo staðan i leikhléi. Ólafur Danivalsson skoraði svo 3ja mark FH eins og áöur er lýst, en Loftur Eyjólfsson skoraði annað mark Hauka á 17. minútu eftir þunga sókn að FH-markinu. Fleiri urðu mörkin ekki, og tókst FH að halda fengnu forskoti, enda þótt Haukarnir sæktu nokkuð meira það sem eftir var. 1 heild var þessi leikur mjög þófkenndur og litið um fallega knattspyrnu. Liðin eru mjög áþekk að styrkleika, og heppni ein réði hvoru megin sigurinn lenti I þessum leik. Eini maðurinn i FH-liðinu sem eitthvað reyndi að leika góða knattspyrnu var Ólafur Danivaldsson, og hjá Haukum var Loftur Eyjólfsson bezti maðurinn. Dómari var Magnús V. Pétursson og dæmdi vel þennan erfiða leik, enda var oftast meira hugsað um andstæðinginn en boltann i leiknum, og réð hið al- gera félagshatur sem rikir milli Hafnarfjarðarliðanna mestu i leiknum, og er leiðinlegt til þess að vita, að Hafnarfjarðarliðin skuli ekki getað gengið sameinuö til leiks, þvi að sameinuð væru þau meðal sterkari ef ekki sterkasta liðið i 2. deild.. — S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.