Þjóðviljinn - 10.10.1972, Blaðsíða 12
12. T3IÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 10. október 1972.
NÚTÍMA
VERKSTJÓRN
KREFST NÚTÍMA
FRÆÐSLU
Þetta vita þeir 700 verkstjórar, sem sótt
hafa verkstjórnarnámskeið að undanförn-
um árum.
A almennum 4ra vikna námskeiöum er lögð áherzla á
þessar greinar:
o Nútima verkstjórn, vinnusálarfræði
o öryggi, eldvarnir, heilsufræði
o Atvinnulöggjöf, rekstrarhagfræði
o Vinnurannsóknir, skipulagstækni
A framhaldsnámskeiöum gefst fyrri þátttakendum tæki-
færi á upprifjun og skiptum á reynslu.
KENNSLUSKRÁ VETRARINS:
1972
39. námskeiö, fyrri hl.
40. námskeiö, fyrri hl.
7. framhaldsnámskeiö
1973
39. námskeiö, siöari hl.
41. námskeiö, fyrri hl.
40. námskeið, siöari hl.
8. framhaldsnámskeiö
41. námskeiö, siöari hl.
Innritun og upplýsingar I sima 81333 hjá Verkstjórnar-
fræöslunni, Iönþróunarstofnun tslands, Skipholti 37.
16. til 28. okt.
13. til 25. nóv.
30. nóv. til 2. des.
2. til 13. jan.
22. jan. til 3. febr.
19.feb. til 3. marz
15., 16. og 17. marz
2. til 14. april
St. Jósepsspítali
Frá og með sunnudegi 15. okt. breytist
heimsóknartimi á St. Jósepsspitala,
Landakoti, sem hér segir:
Mánudaga til laugardaga að báðum
dögum meðtöldum kl. 18,30 til 19,30.
Sunnudaga kl. 10,30 til 11,30.
Barnadeild kl. 15 til 16 alla daga.
Húsbyggjendur —
Verktakar
Kambstál: 8, 10, 12, 16, 20, 22, og 25 m/m. Klippum ög
beygjum stál og járn eftir óskum viöskiptavina.
Stálborgh.f.
Smiðjuvegi 13, Kópavogi. Slmi 42480.
r a
Auglýsingasiminn er 17 500
V______________________________J
UTLI GLUGGINN
Rauðu sniglamir
Ég og Óli keyptum einu sinni
lagardýrasafn af strák, sem við
kölluðum Buxna-Láka, því að hann
hékk alltaf með hendurnar í buxna-
vösunum. Það var Ijótur siður.
Annars var þetta prýðilegur strákur
að mörgu leyti. Einu sinni sagði
kennarinn við hann í fríminútunum:
— Er þér kalt á höndunum?
— Nei, svaraði Buxna-Láki.
— Hvers vegna tekurðu hendurnar
þá ekki upp úr buxnavösunum?
— Þá verður mér kalt, svaraði
Láki og stakk höndunum enn dýpra
niður i vasana.
Jæja, við keyptum sem sagt lagar-
dýrasafn af Buxna-Láka. Hann
safnaði öllum hugsanlegum sjávar-
og vatnadýrum. Nú urðum við Óli
auðvitað að fá eitthvað í safnið. Við
ákváðum því að fara í veiðiferð með
Buxna-Láka.
Daginn eftir lögðum við af stað og
komum von bráðar að litlu vatni,
sem lá fyrir utan bæinn. Við höfðum
net og fötu með okkur og veiddum
marga smáfiska. Því næst kom
okkur saman um að leita að tjörn,
sem í væru vatnasniglar, sem fiskar
lifa á. Óli fann tjörnina fyrstur. Hún
var full af sniglum. Já meira að
segja svo full, að vatnið var sums
staðar rauðbrúnt á lit.
Þegar sniglaveiðin stóð sem hæst,
uppgötvaði Óli dálítið skemmtilegt.
Óli uppgötvar alltaf eitthvað.
— Sjáið þið, sagði hann. — Hér eru
rauðir sniglar.
— Ha? hrópaði Buxna-Láki og
spratt upp. Já þetta var satt. Þarna
var fullt af fallegum eldrauðum
sniglum. Sumir kalla þá póstlúður-
snigla. Það þykir víst fínna.
— Þeir eru seldir á 15 aura
stykkið, sagði Láki, alveg óviljandi.
Síðan áttaði hann sig og hélt áfram:
— En þeir eru líklega öðruvísi. Já,
það eru ekki þessir. Þeir eru ekki
svona litlir.
— Hem, sagði ég, — þessir eru
alveg nákvæmlega eins og þeir, sem
eru úti í glugga hjá kaupmanninum.
— Nei, þeir eru ekki eins, sagði
Buxna-Láki, — Þetta eru villtir
sniglar, sem lifa á fiskum og
jurtum. Nei, þeir eru ómögulegir.
Nú skulum við koma heim. Við
höfum veitt nóg.
— Það skulum við gera, sagði Óli.
— Klukkan er líka orðin svo margt.
Ég skildi ekki, hvérs vegna þeim
lá allt í einu svona mikið á. En við
lögðum nú samt af stað heim. Þegar
við höfðum kvatt Láka, hnippti ég í
Óla og sagði:
— Heyrðu, hvað meinti hann með
þessum villtu sniglum?
Sniglarnir eru alveg nákvæmlega
eins og þeir, sem kaupmaðurinn
selur á 15 aura. Ég ætla að fara í
fyrramálið og veiða nokkra snigla.
Þeir voru svo stórir.
— Já gerðu það, sagði Óli.
Þegar ég vaknaði næsta morgun,
var Óli löngu farinn á fætur. Annars
var hann ekki vanur því. Ég spurði
hann hvort hann væri með niður að
tjörninni.
— Nei, svaraði hann, — ég var að
koma inn. Mér er ómögulegt að
nenna út aftur.
— Blessaður, hafðu þaðeinsog þú
vilt, sagði ég, og það var ekki laust
við, að ég væri móðgaður. Skömmu
síðar fór ég á hjólinu mínu niður að
tjörninni. Þegarég kom þangað, sá
ég lítinn strák vera að leita fyrir sér
með spýtu í tjörninni. Það var
Buxna-Láki.
— Hvað ert þú að gera.hér? spurði
ég undrandi.
— Ég? sagði hann vandræðalega.
— Nú, ég er bara að veiða snigla. En
hér eru engir sniglar í dag. Bless.
Hann stökk á hjólið sitt og þaut af
stað. Hvers vegna lætur drengurinn
eins og kjáni, húgsaði ég og horfði
undrandi á eftir honum. Síðan
labbaði ég niður að tjörninni og varð
þá fyrst alvarlega undrandi. Þar var
nefnilega fullt af sniglum. Hvers
vegna hafði Buxna-Láki sagt, að hér
væru engir sniglar? Ég hristi
höfuðið og tók að leita að rauðum
sniglum. Ég leitaði lengi, lengi, en
fann enga. Ekki einn einasta. Mér
fannst þetta allt því dularfyllra því
lengursem ég velti þvi fyrir mér. Að
Óli skyldi fara á fætur fyrir allar
aldir, að Buxna-Láki skyldi ekki
finna neina snigla og allir rauðu
sniglarnir skyldu vera horfnir.
Mér var þetta allt hulin ráðgáta.
Ég hjólaði hægt heim aftur og
læddist upp eldhúströppurnar.
Þegar ég kom inn í eldhúsið, hafði
ég nærri sett um skólpfötu. Ég
gægðist niður í hana — og enn varð
ég var við dálítið dularfullt. ( vatn-
inu var fullt af rauðum sniglum.
— Hvað er þetta? spurði ég
mömmu.
— Á ég að borða þetta?
Ég rauk inn i stofu, þar sem Óli sat
bak við sunnudagsblaðið. Það má
vel vera að ég hafi hegðað mér illa.
Óli lét mig skammast. Síðan leít
hann upp úr blaðinu og sagði rólega:
— Allur misskilningurinn liggur í
því bróðir minn góður, að þú lest
ekki auglýsingarnar.
Ég starði ruglaður á hann.
Kaupmaðurinn auglýsti, hélt Óli
hiklaust áfram:
Kaupi rauða snigla.
Ég hneig máttlaus niður í stól. Nú
tók að renna upp fyrir mér ákaf lega
dauft Ijós.
— Jæja þá, sagði Óli, þú hefur
sem sagt ekki lesið þessa auglýs-
ingu. Við Buxna-Láki lásum hana.
Og þegar við sáum rauðu sniglana í
tjörninni, datt okkur báðum það
sama í hug. Við ætluðum að veiða
sniglana og selja þá.
— Þú fórst þangað snemma í
morgun og veiddir alla sniglana,
stundi ég.
— Rétt, sagði Óli og brosti, —
annars hefði Buxna-Láki veitt þá.
Og það var þó alltaf ég, sem fann
þá.
— En hvers vegna sagðir þú mér
ekki frá þessu? spurði ég reiðilega.
— Ég fór þangað og fann ekkert...
—Mér fannst þú hafa gott af því að
hreyfa þig dálítið svefnpurkan þín,
svaraði Óli blíðlega.— En auðvitað
skiptum við þessu jafnt á milli
okkar.
Hann huggaði mig alveg með
þessum síðustu orðum. I sátt og
samlyndi töldum við sniglana. Þeir
voru 207. Daginn eftir seldum við
þá. — Við fengum fimm aura fyrir
stykkið.
En lengi á eftir gaut Buxna-Láki
illum augum til okkar, þegar hann
sá okkur.