Þjóðviljinn - 10.10.1972, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 10.10.1972, Qupperneq 12
12. T3IÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 10. október 1972. NÚTÍMA VERKSTJÓRN KREFST NÚTÍMA FRÆÐSLU Þetta vita þeir 700 verkstjórar, sem sótt hafa verkstjórnarnámskeið að undanförn- um árum. A almennum 4ra vikna námskeiöum er lögð áherzla á þessar greinar: o Nútima verkstjórn, vinnusálarfræði o öryggi, eldvarnir, heilsufræði o Atvinnulöggjöf, rekstrarhagfræði o Vinnurannsóknir, skipulagstækni A framhaldsnámskeiöum gefst fyrri þátttakendum tæki- færi á upprifjun og skiptum á reynslu. KENNSLUSKRÁ VETRARINS: 1972 39. námskeiö, fyrri hl. 40. námskeiö, fyrri hl. 7. framhaldsnámskeiö 1973 39. námskeiö, siöari hl. 41. námskeiö, fyrri hl. 40. námskeið, siöari hl. 8. framhaldsnámskeiö 41. námskeiö, siöari hl. Innritun og upplýsingar I sima 81333 hjá Verkstjórnar- fræöslunni, Iönþróunarstofnun tslands, Skipholti 37. 16. til 28. okt. 13. til 25. nóv. 30. nóv. til 2. des. 2. til 13. jan. 22. jan. til 3. febr. 19.feb. til 3. marz 15., 16. og 17. marz 2. til 14. april St. Jósepsspítali Frá og með sunnudegi 15. okt. breytist heimsóknartimi á St. Jósepsspitala, Landakoti, sem hér segir: Mánudaga til laugardaga að báðum dögum meðtöldum kl. 18,30 til 19,30. Sunnudaga kl. 10,30 til 11,30. Barnadeild kl. 15 til 16 alla daga. Húsbyggjendur — Verktakar Kambstál: 8, 10, 12, 16, 20, 22, og 25 m/m. Klippum ög beygjum stál og járn eftir óskum viöskiptavina. Stálborgh.f. Smiðjuvegi 13, Kópavogi. Slmi 42480. r a Auglýsingasiminn er 17 500 V______________________________J UTLI GLUGGINN Rauðu sniglamir Ég og Óli keyptum einu sinni lagardýrasafn af strák, sem við kölluðum Buxna-Láka, því að hann hékk alltaf með hendurnar í buxna- vösunum. Það var Ijótur siður. Annars var þetta prýðilegur strákur að mörgu leyti. Einu sinni sagði kennarinn við hann í fríminútunum: — Er þér kalt á höndunum? — Nei, svaraði Buxna-Láki. — Hvers vegna tekurðu hendurnar þá ekki upp úr buxnavösunum? — Þá verður mér kalt, svaraði Láki og stakk höndunum enn dýpra niður i vasana. Jæja, við keyptum sem sagt lagar- dýrasafn af Buxna-Láka. Hann safnaði öllum hugsanlegum sjávar- og vatnadýrum. Nú urðum við Óli auðvitað að fá eitthvað í safnið. Við ákváðum því að fara í veiðiferð með Buxna-Láka. Daginn eftir lögðum við af stað og komum von bráðar að litlu vatni, sem lá fyrir utan bæinn. Við höfðum net og fötu með okkur og veiddum marga smáfiska. Því næst kom okkur saman um að leita að tjörn, sem í væru vatnasniglar, sem fiskar lifa á. Óli fann tjörnina fyrstur. Hún var full af sniglum. Já meira að segja svo full, að vatnið var sums staðar rauðbrúnt á lit. Þegar sniglaveiðin stóð sem hæst, uppgötvaði Óli dálítið skemmtilegt. Óli uppgötvar alltaf eitthvað. — Sjáið þið, sagði hann. — Hér eru rauðir sniglar. — Ha? hrópaði Buxna-Láki og spratt upp. Já þetta var satt. Þarna var fullt af fallegum eldrauðum sniglum. Sumir kalla þá póstlúður- snigla. Það þykir víst fínna. — Þeir eru seldir á 15 aura stykkið, sagði Láki, alveg óviljandi. Síðan áttaði hann sig og hélt áfram: — En þeir eru líklega öðruvísi. Já, það eru ekki þessir. Þeir eru ekki svona litlir. — Hem, sagði ég, — þessir eru alveg nákvæmlega eins og þeir, sem eru úti í glugga hjá kaupmanninum. — Nei, þeir eru ekki eins, sagði Buxna-Láki, — Þetta eru villtir sniglar, sem lifa á fiskum og jurtum. Nei, þeir eru ómögulegir. Nú skulum við koma heim. Við höfum veitt nóg. — Það skulum við gera, sagði Óli. — Klukkan er líka orðin svo margt. Ég skildi ekki, hvérs vegna þeim lá allt í einu svona mikið á. En við lögðum nú samt af stað heim. Þegar við höfðum kvatt Láka, hnippti ég í Óla og sagði: — Heyrðu, hvað meinti hann með þessum villtu sniglum? Sniglarnir eru alveg nákvæmlega eins og þeir, sem kaupmaðurinn selur á 15 aura. Ég ætla að fara í fyrramálið og veiða nokkra snigla. Þeir voru svo stórir. — Já gerðu það, sagði Óli. Þegar ég vaknaði næsta morgun, var Óli löngu farinn á fætur. Annars var hann ekki vanur því. Ég spurði hann hvort hann væri með niður að tjörninni. — Nei, svaraði hann, — ég var að koma inn. Mér er ómögulegt að nenna út aftur. — Blessaður, hafðu þaðeinsog þú vilt, sagði ég, og það var ekki laust við, að ég væri móðgaður. Skömmu síðar fór ég á hjólinu mínu niður að tjörninni. Þegarég kom þangað, sá ég lítinn strák vera að leita fyrir sér með spýtu í tjörninni. Það var Buxna-Láki. — Hvað ert þú að gera.hér? spurði ég undrandi. — Ég? sagði hann vandræðalega. — Nú, ég er bara að veiða snigla. En hér eru engir sniglar í dag. Bless. Hann stökk á hjólið sitt og þaut af stað. Hvers vegna lætur drengurinn eins og kjáni, húgsaði ég og horfði undrandi á eftir honum. Síðan labbaði ég niður að tjörninni og varð þá fyrst alvarlega undrandi. Þar var nefnilega fullt af sniglum. Hvers vegna hafði Buxna-Láki sagt, að hér væru engir sniglar? Ég hristi höfuðið og tók að leita að rauðum sniglum. Ég leitaði lengi, lengi, en fann enga. Ekki einn einasta. Mér fannst þetta allt því dularfyllra því lengursem ég velti þvi fyrir mér. Að Óli skyldi fara á fætur fyrir allar aldir, að Buxna-Láki skyldi ekki finna neina snigla og allir rauðu sniglarnir skyldu vera horfnir. Mér var þetta allt hulin ráðgáta. Ég hjólaði hægt heim aftur og læddist upp eldhúströppurnar. Þegar ég kom inn í eldhúsið, hafði ég nærri sett um skólpfötu. Ég gægðist niður í hana — og enn varð ég var við dálítið dularfullt. ( vatn- inu var fullt af rauðum sniglum. — Hvað er þetta? spurði ég mömmu. — Á ég að borða þetta? Ég rauk inn i stofu, þar sem Óli sat bak við sunnudagsblaðið. Það má vel vera að ég hafi hegðað mér illa. Óli lét mig skammast. Síðan leít hann upp úr blaðinu og sagði rólega: — Allur misskilningurinn liggur í því bróðir minn góður, að þú lest ekki auglýsingarnar. Ég starði ruglaður á hann. Kaupmaðurinn auglýsti, hélt Óli hiklaust áfram: Kaupi rauða snigla. Ég hneig máttlaus niður í stól. Nú tók að renna upp fyrir mér ákaf lega dauft Ijós. — Jæja þá, sagði Óli, þú hefur sem sagt ekki lesið þessa auglýs- ingu. Við Buxna-Láki lásum hana. Og þegar við sáum rauðu sniglana í tjörninni, datt okkur báðum það sama í hug. Við ætluðum að veiða sniglana og selja þá. — Þú fórst þangað snemma í morgun og veiddir alla sniglana, stundi ég. — Rétt, sagði Óli og brosti, — annars hefði Buxna-Láki veitt þá. Og það var þó alltaf ég, sem fann þá. — En hvers vegna sagðir þú mér ekki frá þessu? spurði ég reiðilega. — Ég fór þangað og fann ekkert... —Mér fannst þú hafa gott af því að hreyfa þig dálítið svefnpurkan þín, svaraði Óli blíðlega.— En auðvitað skiptum við þessu jafnt á milli okkar. Hann huggaði mig alveg með þessum síðustu orðum. I sátt og samlyndi töldum við sniglana. Þeir voru 207. Daginn eftir seldum við þá. — Við fengum fimm aura fyrir stykkið. En lengi á eftir gaut Buxna-Láki illum augum til okkar, þegar hann sá okkur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.