Þjóðviljinn - 07.12.1972, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓDVJLJINN Fimmtudagur 7. desember 1972
innlend
UM ANDATRÚ
OG ÍSLENDINGA
Ibúðirnar þykja
dýrar
Sauftárkróki, 5/12 — Fram-
kvæmdanefnd byggingaráætlun-
ar hefur lokið við byggingu fjöl-
býlishúss við Viðigrund. Hafa tólf
ibúðir verið teknar i notkun, sex i
hvoru stigahúsi.
Heldur þykja ibúðir þessar dyr-
ar hér i kaupstaðnum. Þóttu þess-
ar ibúðir fara fram úr áætluðum
kostnaði. Hreinn.
Mikið að gera
hjá
iðnaðarmönnum
Sauðárkróki, 5/12 — Mikil
vinna er hér hjá iðnaðarmönnum.
Kru nokkrar stórar byggingar i
smiðum. Hæst ber þar smiði nýs
sláturhúss fyrir Kaupfélag Skag-
firðinga. Upp komið er það talið
kosta um 80 miljónir kr. Unnið
verður viö þetta hús i allan vetur.
Þá er byrjað að byggja heimavist
fyrir gagnfræðaskólann og iðn-
skólann. Frost hefur þó tafið
grunngröft. Þá stendur lika á
teikningu frá Stefáni Jónssyni,
arkitekt. Hreinn.
Húsið kostar á
8. miljón kr.
Sauðárkróki, 5/12 — Bygg-
ingarkosnaður við læknisbústað
hér er nú kominn á áttundu
miljón kr. og þykir sumum nóg
um kostnað við þessa miklu villu.
Dýrmætt er hins vegar að njóta
góðrar læknisþjónustu. Hreinn.
Dauft yfir
sjávarútvegi
Sauðárkróki, 5/12— Skuttogar-
inn Hegranes veiðir nú eitt skipa
héðan og helur útivist sjö til tiu
daga i senn. Leggur það upp afl-
ann til skiptis i tvö frystihús og er
verkafólk þrjá til fjóra daga að
vinna úr þessum afla.
Fjórir til fimm snurvoðabátar
byrjuðu veiðar i haust. Var þá
unnið daglega i fiskvinnslu. Veiði
var hins vegar treg og hættu þeir
mánuði áður en snurvoöaleyfi
rann út um siðustu mánaðamót.
Ekki þykir mönnum hér full-
kannað ennþá um hörpudisksmið
hér skammt undan. Vinnsla við
hörpudisk skapar mikla vinnu og
arðsama útflutningsvöru.
Skelin þótti nokkuð smá til
vinnslu á þeim miðum er hún
fannst á hér undan. En þessi mið
eru ekki fullkönnuð ennþá og
mættu fiskifræðingar frá Haf-
rannsóknarstofnuninni leggja þar
hönd á plóg. Hreinn.
Ný vatnslögn
Sauðárkróki, 5/12— Búið er aö
leggja meginlögnina frá vatns-
bólum i Gönguskörðum og verður
hún senn tengd innanbæjarveit-
unni. Á sinum tima fundust góðar
vatnslindir i Gönguskörðum og
þurfti að leggja pipur allt að átta
kilómetrum þaðan til bæjarins.
Vatnið er hins vegar tekið úr upp-
sprettulind. Veður hefur hamlað
frekari framkvæmdum. Er þó
auð jörð hér á Sauðárkróki þessa
daga. Hreinn.
Geysir 50 ára
Akureyri, 5/12 — Afmælistón-
leikar karlakórsins Geysis fóru
fram i Akureyrarkirkju um
mánaðamótin. Söng kórinn undir
stjórn Askels Jónssonar og Philip
Jenkins. Á söngskránni voru inn-
lend og erlend lög og höfðu menn
unun af.
Fyrsta söngskemmtun kórsins
var haldin 16. desember 1922.
Fyrsti formaður kórsins var Ein-
ar .1. Heynis, en núverandi for-
maður er Haraldur Helgason.
Vilja breyta
farvegi Glerár
Akureyri, 5/12 — Bæjarráð er
nú að hugleiða að breyta farvegi
Gleráraustan Glerárgötu og færa
ána til norðurs. Skipulagsnefnd
hefur málið til umsagnar.
Sjö lœknar
á einu ári
Olafsfirði, 5/12 Hér hefur
verið læknislaust siðan i ágúst.
Um siöustu mánaðamót réðist
hingað læknir Guðjón Guðnason
og verður hér til áramóta. Er þá
von á öðrum lækni i janúar, sagði
Asgrimur Hartmannsson, bæjar-
stjóri.
Á þessu ári hafa margir læknar
gegnt hér störfum frá Reykjavik.
Fyrst var hér Ölafur Ólafsson,
núverandi landlæknir. Kom hann
með fjölskyldu sina og var hér
tæpan mánuö. Þá tók við Jósep
Olafsson, læknir i Hafnarfirði og
kom hann lika með sina fjöl-
skyldu. Þriðji var Guðsteinn
Þengilsson, Heykjavik, þá Vik-
ingur H. Arnórsson, siðar Arin-
björn Kolbeinsson með sina fjöl-
skyldu. Kom hann tvisvar sinnum
og var hálfan mánuð i hvort
skipti. A eftir honum kom dr.
Friðrik Einarsson með sina konu.
Allir höfðu þessir læknar nóg aö
starfa.
Árshátíð ABN
llellissandi, 5/12— Siðastliðinn
laugardag var haldin árshátið á
vegum Alþýðubandalagsins i
Neshreppi. Konur stóðu fyrir
myndarlegum veitingum. Þá hélt
Helgi Seljan alþingismaður ræðu
og Kristján Helgason i Ólafsvik
flutti nýhönnuð Ijóð og Jörundur
skemmti.
Hljómsveitin Kátir félagar sáu
um dansfjörið. Skemmtunina
sóttu félagar úr nágranna-
byggðalögum. Skemmtu menn
sér hið bezta.
Timi til félagsstarfa er að
haustinu vegna annrikis á vetrar-
vertiðum. Formaður ABN er
Danieí Guðmundsson. Stjórnaði
hann með prýði undirbúningi að
þessari árshátið. Skal.
Opnuðu
dagheimili
llellissandi, 5/12 — í dag er
opnað dagheimili fyrir börn hér i
kauptúninu. Verða þar vistuð 30
til 40 börn og er dagheimilið opiö
frá hádegi til kl. 19 að kvöldi. For-
stöðukona hefur verið ráðin og
heitir hún Oddný Gestsdóttir.
Mikil nauðsyn hefur verið að
koma upp dagheimili vegna þess
að húsmæðurnar eru hér þunga-
miðja vinnuaflsins i atvinnulif-
inu, — i frystihúsinu, saltfisk-
vinnslustöðvunum, við linubeit-
ingu og afgreiðslustörf i verzlun-
um.
I haust var ákveðið að breyta
gömlu ibúðarhúsi i dagheimili.
Ákváðu fiskverkendur að leggja i
þessar breytingar ákveðið fjár-
magn. Þó peningar væru fyrir
hendi var ekki hægt að fá fag-
menn eða lagtæka menn til þess
að breyta húsinu. Hafa félagar i
Lion-klúbbi Nesþinga gengið i að
breyta húsinu. Skal.
Einhversstaðar stendur að
íslendingar kunni ekki að rök-
ræða, þvi að þegar kemur að
kjarna málsins þá hrökkvi
þeir viðog slái út iaðra sálma.
Ekki skal neitt fullyrða um
hvort þetta er rétt eða ekki.
En hitt er hægt að fullyrða, að
eitt er það mál sem ekki er
nokkur leið fyrir efasemdar-
mann eða trúleysingja eins og
mig að rökræða við vel flesta
islendinga. Þetta mál er
andatrú, þ.e. lif eftir dauðann,
andalækningar, miðlar og
aðrir þeir er hafa atvinnu af
einfeldningshætti fólks i
þessum efnum.
Ég hygg, að um það bil 90%
af þjóðinni trúi á þessa hé-
gilju. Að visu er prósentu-
talan ágizkun ein, en eftir
þeim fjölda sem maður hefur
heyrt ræða þessi mál er hún
sennilega ekki fjarri sanni.
Beri þessi mál á góma ein-
hversstaðar þar sem fólk
kemur saman, þá stendur
aldrei á þvi að-eir sem á þetta
trúa kunni frá sögum að segja,
sem það hefur annað hvort
heyrt eða upplifað sjálft, og
hversu fáránlegar sem þessar
sögur eru, finnur maður ekki
nokkurn minnsta efa um sann-
leiksgildi þeirra hvað þá að
neitt sem við kemur andatrú
geti verið rangt, mis- eða of-
sagt.
Það einkennilegasta við
þetta allt saman er að þetta
efalausa fólk i efnum anda-
trúar er oft á tiðum algerlega
trúlaust fólk, enda þarf ekki >
hin svo kallaða guðstrú og
andatrú að fara saman. En
þegar rætt er um trúmál við
þetta fólk fyllist það efasemd-
um um margt það sem stend-
ur i bibliunni. Það vill ekki
trúa þvi, að guð hafi hannað
himin og jörö. Og sjálfsagt af
góðri reynslu vill það heldiir
ekki trúa þvi, að Maria hafi
getað orðið ófrisk án þess að
lifandi karlmaður kæmi til
skjalanna, jafnvel ekki rauð-
sokkUr fást til að trúa þvi,
hvort sem rauðsokkAr gera
það eður eða ei.
Svona mætti lengi telja um
efasemdir þessa fólks, þegar
biblian er annarsvegar. En
þegar kemur að andatrúnni...
Nei takk. Þar stendur hver
stafur án efa. Hvernig stendur
á þessu?
Ég heyröi það eftir ein-
hverjum gerlasérfræðingi er-
lendum, þegar verið var að
ræða um ofskynjunarlyfið
LSD fyrir nokkrum árum, að i
sekmmdu korni myndaðist
efni, sem væri það sama og
eitt aðalefnið i ofskynjunarlyf-
inu LSD.
Nú er það kunnara en frá
þurfi að segja, að fáar ef
nokkrar þjóðir þurftu hér fyrr
á áirum að éta eins mikið af
skemmdu korni i einhverri
mynd og islenzka þjóðin. Nú
er það einnig kunnara en frá
þurfi að segja, að hverskonar
draugatrú, trölla- og annarra
óvætta trú, var svo rik i
tslendingum hér fyrr á árum
og er jafnvel enn, að engu lagi
er likt. Getur það hugsazt, að
efnið i skemmda korninu eigi -
hér sök að máli? Getur verið
að islenzka þjóðin hafi gengið i
einhverri „lsd-vimu” mikinn
hluta hins drungalega
skammdegis öldum saman?
Er þarna komin skýringin á
þvi að hverskonar óvættatrú
var og er rikari hér á landi en
nokkurstaðar annarsstaðar, ef
undan eru skildar hinar frum-
stæðu þjóðir inn i frumskóg-
inum? Ef svo er, þá er þessu
fólki vorkunn, þótt það hafi
séð skottur, móra,tröll og for-
ynjur i hverju skúmaskoti hins
drungalega islenzka skamm-
degis. Hitt er aftur á móti
ófyrirgefanlegt, að þar sem
við erum i dag hætt að éta
skemmt korn, höfum góð og
vel lýst hibýli og eigum að
teljast sæmilega upplýst þjóð,
að þá skuli enn angi af þessari
endaleysu lifa enn með þjóð-
inni i jafn rikum mæli og raun
ber vitni, andatrúin.
Hve oft hefur maður ekki
heyrt sögur sem eiga að sanna
andalækningar, lif eftir dauð-
ann o.s.frv. Hve oft hefur
maður ekki heyrt menn segja
frá þvi þegar þeir fóru til
andalæknis vegna alls konar
kvilla sem hrjáðu þá, segja frá
hvernig þetta hefur læknazt á
stuttum tima. Menn sem
vegna of mikillar vinnu eru
orðnir of spenntir á taugum,
menn sem eru að byggja sér
ibúðir og eru lika yfirspenntir
á taugum, fara til andalæknis.
Svo slaknar á spennunni,
áhyggjurnar minnka, og menn
iæknast smám saman, þá er
það andalækninum að þakka.
Þessu fólki dettur aldrei i hug
að draga slikt i efa. Það er
ekki hugsanlegt að likaminn
hafi gert þetta sjálfur þegar
spennan og áhyggjurnar
minnkuðu. Nei, ekki aldeilis.
Þetta er aðeins eitt dæmið:
Kona fer til andalæknis og
hann segir allt i einu: „Honum
bróður þinum, pabba,
mömmu, eða eiginmanni
þinum, er illt i bakinu”. Þegar
heim er komið á manneskjan
varla orð til að lýsa hrifningu
sinni. Hvernig gat „lækn-
irinn” vitað þetta, að honum
pabba er illt i bakinu? Það er
aldrei hugsað út i það að þetta
sé hin venjulega gigt sem 99%
af öllu öldruðu fólki verður
fyrir einhverntimann á lifs-
leiðinni. Ef það er bróðirinn,
en hann segir að sér sé alls
ekkert illt i bakinu, þá er ef til
vill rifjað upp, að einhvern
timann meiddi hann sig i bak-
inu, mikið eða litið. „Jú ann-
ars, eg er helzt á þvi að ég hafi
aldrei almennilega náð mér
siðan”, er þá vanalega svarið,
þótt maðurinn hafi kannski
ekki munað eftir þessu lengi.
Og auðvitað batnar honum
strax nóttina eftir. Og hvilikt
kraftaverk hefur ekki átt sér
stað!
Og sannleikurinn er sá, að
margt fólk, sem þykist ekki
trúa á þetta, segir svo allt i
einu þegar þessi mál ber á
góma: „En ég get sagt ykkur
það, að ég heyrði samt dálitið
merkilega sögu um svona-
lagað um daginn...” Efinn
leynist alltaf innst inni.
Svo eru gefnar út bækur og
það margar bækur árlega hér
á landi um þessi efni, og að
sögn eru þessar bækur met-
sölubækur ár eftir ár. Og
engum dettur i hug að draga
eitt einasta orð i þeim i efa. Ég
hygg að til þess að reyna að fá
fleiri en 10 sálir við messu i 300
til 500 manna kirkjum lands-
ins ættu prestarnir að breyta
til og auglýsa i stað þessarar
klassisku auglýsingar —
messa kl. 10 f.h. barnamessa
kl. 2 séra Jón Jónsson — ættu
þeir að setja — andafundur kl.
10, lækningafundur kl. 2, Jón
Jónsson miðill mætir við
messu, séra Jón Jónsson.
-S.dór.
VQF
Fólkið sem
lög og reglu
heimtar
Þann 17.11 birtist i málgagni
Alþýðuflokksins á Akureyri,
Alþýðumanninum, ræða eftir
Bárð Halldórsson einn af aðalfor-
kólfum Alþýðuflokksins á
Norðurlandi, sem hann flutti á
Sauðárkróki þann 23. sept. síðast-
liðinn. Þar kemur vel fram sú
andlega niðurlæging, sem
Alþýðuflokkurinn er i eftir 12 ára
faðmlög við ihaldið. Bárður hefur
ræðu sina á þeirri fullyrðingu, að
öll vandamál tilheyri fortiðinni,
nú sé ekki lengur fyrir neinu að
berjast. Þvi á nú að leggja öll
baráttumál til hliðar og höfuð-
stefna Alþýðuflokksins skal
framvegis vera atkvæðasöfnun,
annað skiptir ekki máli. Og þegar
um svo göfuga hugsjón er að ræða
er litið á þvi græðandi að reka
verklýðspólitik, Það er önnur
stétt, sem Alþýðuflokkurinn
græðir meira á að höfða til vegna
þess að hún er stærsta stétt
landsins það er millistéttin. Það
var lika millistéttin, sem Hitler
höfðaði til, enda varð
Nazistaflokkurinn fljótlega
stærsti flokkur Þýzkalands á sin-
um tima. Hún er þvi ekki amaleg
fyrirmyndin sem Bárður hefur.
En hvað er það þá sem Bárður
vill gera til að vinna hug og hjörtu
þessa fólks? Jú, það skal fá lög og
reglu, allt agaleysi og ringulreið
skal barið niður með harðri hendi
undir forystu Alþýðuflokksins. En
hvernig er það eiginlega, það er
eins og mig minni að slagorðin
„lög og regla” hafi komið fyrir
einhvers staðar annars staðar,
verið notuð af fleiri pólitikusum
en Bárði. Jú mikið rétt, þetta
hefur vist verið eitt af höfuð-
slagorðum Nixons Bandarikja-
forseta og fasistar á öllum timum
hafa notað það sér til fram-
dráttar.
En það skal gera meira til að fá
millistéttina til að kjósa Alþýðu-
flokkinn. Og hvað skyldi nú það
vera? Jú, hún skal setjast á
skólabekk, þvi það er óþarfi að
halda uppi „rándýru skólakerfi
bara handa striðöldum
bilifiskrökkum”.
Og nú eru tryggingarnar ekki
neitt baráttumál Alþýðuflokksins
lengur, enda eru þær bara stirðn-
aðar úreltar hugmyndir og það
fólk, sem mest nýtur góðs af þeim
'gamalt fólk og öryrkjar) ekki
nærri þvi eins margt og milli-
stéttarfólkið.
En það er von að Alþýðuflokks-
menn hugsi mikið um atkvæði nú
á siðustu og verstu timum og sjái
flokk sinn i hillingum sem stóran
millistéttarflokk, þvi hún var ekki
svo beysin útkoman úr síðustu
kosningum.
Stefán Karlsson (sign) stud.soc