Þjóðviljinn - 07.12.1972, Blaðsíða 16
tOÐVIUINN
Fimmtudagur 7. desember 1972
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavfkur,
simi 18888.
Kvöld- helgar- og nætur-
varzia apóteka 2.—8. desem-
ber er i Lyfjabúðinni Iðunni
og Garðsapóteki.
Slysavaröstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Ávextir vinstri sigurs
bornir fram
Á fyrsta degi nýja forsætisráðherr-
ans verður vart
stefnubreytingar í utanríkismálum
C'ANBKRRA 6/12 — Sigur Verka
mannaflokksins i þingkosningun-
um i Astraliu á dögunum er þegar
farinn að segja til sin i utanrikis-
málum, en fyrri rikisstjórn vék úr
sæti á þriðjudag. Sendiherra
landsins hjá stjórnTsjangKæ-sékk
á Tævan var kvaddur heim í dag
en scndiherranum i Paris faliö að
ræða við sendiherra Alþýðu-Kina
þar um viðurkenningu og stjórn-
málasamband. Sendinefnd
Ástraliu hjá Sameinuðu þjóðun-
um hefur fengið fyrirskipun um
að greiða atkvæði með þrem til-
lögum á allsherjarþinginu sem
gera ráð fyrir ströngum refsiað-
gerðum gegn hinum fasisku ríkj-
um Suður-Afriku og Rhódesiu.
Hinn nýi forsætisráðherra, Whit-
lam, hefur lýst þvi yfir að nú
muni reynt að móta nýja og sjálf-
stæða utanrikisstefnu fyrir
Astraliu sem taki minna mið af
hvervaldi en áður.
Verkamannastjórnin nýja i Astrallu er hnefahögg I garð brczk-banda-
risku áhrifanna sem umlykja landið með SÉATO-hernaðarbanda-
laginu.
Apolló væntanlegur
á loft í nótt leið
KKNNKDYHOFÐA 6/10 — Geim-
skipinu Apolló 17. verður væntan-
lega skotið upp frá Kenndyhöfða
Mikil árás á her-
flugvöll við Saigon
Fundað dag eftir dag i París um vopnahlé
SAIGON 6/12 — Flugvöllurinn
stóri, Tan Son Nhut, 8 kilómetra
frá Saigon, varð fyrir mikilli eld-
flaugahrið þjóðfrelsishersins um
það bil sem dagvinna var að
heljast á vellinum i morgun. Var
árásin talin sú hraðasta i grennd
við Saigon siðan i Tet-sókninni
miklu 1968. Margar eldflauganna
komust alla leið i úthverfi sjálfrar
höfuðborgarinnar. Var talið að 53
eldflaugar af sovézkri gerð hafi
hæft herllugvöllinn.
Síðar i dag gerðu bandariskar
flugvélar ol'salegar sprengju-
árásir á stöðvar þjóðfrelsishers-
ins i kringum flugvöllinn og við
Saigon-borg.
í Paris sátu þeir Kissinger full-
trúi Bandarikjaforseta og Le I)uc
Tho sendimaður Norður-Viet-
nama á óvenjulega löngum fundi.
Stóð hann i 5 1/2 klukkustund með
einu smáhléi. Þeir munu enn
ræðast við á morgun.
Kinverjar skoruðu i dag á
Bandarikjamenn að undirrita nú
vopnahléssáttmálann i Vietnam.
t Dagblaði Alþýðunnar i Peking
var bent á það, að Thieu-stjórnin
hefði mjög aukið fangelsanir og
pyntingar á pólitiskum óvinum
sinum i seinni tið.
Semur Bandaríkja-
stjórn við Kúbu?
WASHINGTON 5/12 - Banda-
rikjastjórn hefur nú neyðzt til að
taka upp samninga við erkióvin
sinn, Kúbustjórn, um sameigin-
V ir ðulegir
vandlætarar
Alþýðuflokkurinn telur sig
hafa efni á þvi að bera ráð-
herrum og þingmönnum
stjórnarflokkanna á brýn vinnu-
svik i sambandi við störf alþing-
is, og er leiðari Alþýðublaðsins i
gær lagður undir stóryrtar
ásakanir i þessa veru.
Eitt helzta ásökunarefnið er,
að Magnús Kjartansson ráð-
herra hafi fyrir nokkrum dögum
vikið úr þingsalnum m^ðan
tryggingamál voru til umræðu.
Alvarlegar umvandanir
Alþýðublaðsins i þessu tilefni
snerust heldur betur i andstæðu
sina — hreint spaug — á alþingi i
Frh. á bls. 15
legar aðgerðir til varnar gegn
flugránum. Að visu viðurkenna
Bandarikin ekki tilveru Kúbu-
stjórnar frekar en annarra óvina
sinna, en svissneski sendiherrann
i Havanna er milliliður. Haft var
eftir Rogers, bandariska utan-
rikisráðherranum, á þriðjudag-
inn, að allt bendi til þess að sam-
komulag takist. Bandarikin
æskja þess að annað hvort verði
flugræningjar frá Bandarikjun-
um sem lenda á Kúbu afhentir
bandariskum stjórnvöldum elleg-
ar dregnir fyrir dóm á Kúbu.
Kúbanir munu sækja það fast af
sinni hálfu, að Bandarikjastjórn
komi i veg fyrir að kúbanskir út-
lagar geri strandhögg á Kúbu eða
ráðist að kúbönskum skipum.
um klukkan hálfþrjú (að isl.
tima) aðfararnótt fimmtudags,
og á fcrðin að taka 12 daga. Allt
var tilbúið undir geimferðina i
dag, og var talið að takast mundi
að standa við áætlaða brottför.
Tveir af leiðangursmönnum
eiga að dvelja á yfirborði tungls-
ins i 75 klukkustundir meðan sá
þriðji svifur umhverfis f geim-
skipinu. Tunglmennirnir eiga að
fara 3svar út úr ferjunni i 7
stundir i hvert skipti og ráðgera
að aka samtals 37 kilómetra á
tunglbil sinum.
Skipverjar á hinum nýja
skuttogara Vigra hafa nú selt
afla i Vestur Þýzkalandi úr
fyrstu veiðiferð. Seldu þeir 86
tonn fyrir 120 þúsund mörk. Er
þetta gott verð eða um 40 kr.
fyrir kg.
Aflinn var með minna móti.
Var þetta lika reynsluferð
Kennarar í
verkfall
RÓM 6/12 — Auk annarra
rikisstarfsmanna gerðu allir
barnakennarar á Italiu verkfall
i dag og stendur það einnig á
morgun. Tiu miljón skólabörn
áttu þvi fri i skólanum. Þetta er
liður i umfangsmiklum verk-
föllum i landinu, þar sem bæði
er krafizt betri kjara og ýmissa
þjóðfélagsumbóta. Kennararnir
heirrita umbætur i kennslu- og
skólamálum.
Oveður á Bret-
landseyjum
LONDON 5/12 — Mikið óveður
gekk yfir Bretland á þriðju-
daginn og munu 6 manns hafa
látizt af völdum þess. I grennd
við Glasgow mældist vind-
hraðinn 115 kilómetrar á
klukkustund.
Sovézk efna-
hagsaðstoð?
MOSKVU 6/12 - Salvador
Allende forseti Chile kom i dag
til Moskvu þar sem hann mun
næstu þrjá daga eiga viðræður
við sovézka leiðtoga. Förin er
farin til þess að staðfesta vin
áttu milli landanna og reyna að
fá tækni- og efnahagsaðstoð til
að styrkja efnahag Chile. I fylgd
með forsetanum er kona hans,
Almeyda utanrikisráðherra og
Rojas yfirmaður landvarna.
Þeir Podgorni og Kosigin tókú á
móti þeim á flugvellinum við
komuna til Moskvu.
Pompidou
til Sovét
PARIS 5/12 — Pompidou
Frakklandsforseti fer i 2ja daga
„óopinbera” heimsókn til
Sovétrikjanna i janúar næst
komandi og ræðir við Brésnéf
flokksleiðtoga þar um samvinnu
milli rikjanna og önnur vanda
mál i Evrópu, þar á meðal
öryggisráðstefnuna. Schumann
utanrikisráðherra verður
fylgdarliði forsetans.
Prentarar láta
sér ekki segjast
KAUPMANNAHöFN 6/12 —
Blöðin Politiken og Ekstrabladet
hafa ekki komið út siðan á föstu-
daginn var vegna verkfalls
prentara i prentsmiðju
Politikens. Með verkfallinu eru
prentarar að mótmæla uppsögn-
um á starfsbræðrum þeirra, en á
sex vikum var sagt upp 17
handsetjurum. Alls eru 124
prentarar i verkfalli. í dag var
fjallað um málið fyrir vinnu-
máladómstóli og kvað hann upp
þann bráðabirgðaúrskurð að
verkfallsmenn skyldu aftur til
vinnu. Eftir það hélt prentara-
sambandið bund og var þar
ákveðið með 104 atkvæðum gegn
1 að verkfallinu skuli haldið
áfram.
Bretar leita vopna
á Norður-Irlandi
Flytja brezkir togarar
sig á austfirzk mið?
B. Gröndal, varaformi
Alþýðuflokksins. — Tveggji
manna maki i striði við letina -I
Samkvæmt fréttaskeyti frá
NTB ákváðu brezkir togara-
útgerðarmenn i gær að flytja
togara sina af miðum, einkum
út af Vestfjörðum og Norður-
landi vestra og veiða i þess stað
i hnapp út af Austfjörðum.
Framkvæmdastjóri brezkra
togaraútgerðarmanna, Austen
Laing, kvað þessa ákvörðun
tekna vegna hótana islendinga
um að neita brezkumtogurum
um aðstoð i vetur. Yrði auðveld-
ara fyrir brezku togarana að
veiða i einum hnapp á miðum út
af Austfjörðum i vetur.
BELFAST 6/12 — Brezkar her-
sveitir hófu i dag mikla leit að
eldflaugabyssum og heima-
smiðuðum sprengjuvörpum eftir
átök siðasta sólarhrings, sem
hafa kostað fjögur mannslif.
Brezkir hermenn skutu i gær á
tvo múrara sem voru við verk sitt
upp i vinnupöllum við hús i
Belfast, sökum þess að þeir héldu
að þar væru leyniskyttur á ferð.
Annar maðurinn, mótmælandi,dó
þegar, en hinn, kaþólskur, særðist
alvarlega.