Þjóðviljinn - 11.01.1973, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 11. janúar 1973 IÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
7. reglulegu tónleikar Sin-
fóniuhljómsveitarinnar verða
i kvöld kl. 20,30. Á efnis-
skránni eru verk eftir
Martinu, Sibelius, Verdi,
Puccini og Brahms. Ein-
söngvari með hljómsveitinni
verður Siv Wennberg og
stjórnandi Eduard Fischer.
EDUARD FISCHER fædd-
ist i Prag árið 1930, og eftir að
hafa lokið námi við tékkneska
leiklistarskólann gerðist hann
nemandi helztu hljómsveitar-
stjóra Tékka, þ.á.m. Dr. Vac-
lavs Smetacek, Alois Klima,
Methods Dolezil og Jans
Kflhn. Eduard Fischer gerðist
stjórnandi tékkneska þjóðlaga-
og þjóðdansaflokksins og flutti
Eduard Fischer
Siv Wennberg
7. tónleikarnir
verða í kvöld
með þeim þjóðlega tónlist og
sinfóniur á ferðalögum þeirra
um Austur- og Vestur-Evrópu.
Arið 1956 tók Ednard Fischer
þátt i hljómsveitarstjóra-
keppni i Besancon i Frakk-
landi og varð þriðji af þrjátiu
keppendum. Siðan hefur hann
verið ráðinn aðalhljómsveit-
arstjóri Sinfóniuhljómsveitar
rikisins i Gottwaldlov, en það
er ein merkasta hljómsveit
Tékkóslóvakiu, og ennfremur
hefur hann stjórnað fjölmörg-
um hljómsveitum viða um
heim við vaxandi orðstir.
SIV WENNBERG fæddist i
Rimra i Norrland árið 1944, og
stundaði hún fyrst pianónám
hjá norska pianóleikaranum
Torynn Fynn við tónlistar-
skólann i Ingesund, og siðan
hjá Gretu Erikson og Hans
Leygraf i Salzburg. Arið 1963
lék hún pianókonsert Schu-
manns á tónleikum i Arvika
undir hljómsveitarstjórn
Tors Mann. Ári seinna hóf
hún söngnám við tónlistar-
skólann i Stokkhólmi hjá Arne
Sunnegárdh, sem er enn kenn-
ari hennar. Siv Wennberg hef-
ur viða komið fram á tónleik-
um og unniö til fjölda verð-
launa á söngkeppnum. Hún
hefur hlotið Jussi Björling-
styrkinn og fengið háa fjár-
veitingu úr Christian Nilson-
sjóðnum; ennfremur vann hún
fyrstu verðlaun i norrænu
söngkeppninni 1971. Hún söng
við mikla hrifningu hlutverk
Sieglinde i Valkyrjunni eftir
Wagner á móti Birgit Nilsson i
Stokkhólmsóperunni i febrúar
1972 og ATdu á móti Rolf
Björling. Á þessu ári mun hún
syngja i Helsinki, Vinarborg,
Rouen og Stuttgart.
Sigríður og Ólafur
halda tónleika
Sigriður Magnúsdóttir
A laugardaginn kemur (þ.
13. janúar) munu þau Sigriður
E. Magnúsdóttir, söngkona og
Ólafur Vignir Albertsson,
pianóleikari, halda tónleika á
vegum Tónlistarfélagsins kl.
2,30 i Austurbæjarbiói. A
efnisskrá tónleikanna, sem er
mjög fjölþætt eru verk eftir:
Gluck, Pergolese, Brahms,
Pál ísólfsson, Sigursvein D.
Kristinsson, Jón Asgeirsson,
Victor Urbancic, Hugo Wolf og
siðast en ekki sizt Mauel de
Falla.
Sigriður E. Magnúsdóttir
hóf ung alhliða tónlistarnám.
Hún lærði söng m.a. hjá V.M.
Demetz, Mariu Markan og
Einari Kristjánssyni. Að loknu
stúdentsprófi hélt hún utan og
nam söngkennslu við Tónlist-
arskólann i Vinarborg, og lauk
prófi þaðan 1968. Siðan hefur
hún lagt stund á ljóða- og
óperusöng við sama skóla og
er i þann mund að ljúka þar
námi. Hún hefur haldið tón-
leika, komið fram i sjónvarpi
og útvarpi hér og erlendis.
Hún hlaut 1. verðlaun á
„Meisterkurs fur Liedsá'nger”
i Belgiu 1971, var fulltrúi ts-
lands i norrænni söngkeppni
1971 og tók þátt i alþjóðlegri
söngkeppni i Vinarborg 1972,
með mjög góðum árangri. I
desember siðastliðnum kom
hún fram i „Grosser Musik-
vereinssaal” i Vinarborg, sem
einsöngvari i tveimur verkum
fyrir kór og hljómsveit.
Ólafur Vignir Albertsson er
fæddur i Reykjavik 1936. Hann
lauk burtfararprófi frá Tón-
listarskólanum i Reykjavik
1961 og stúndaði siðan fram-
haldsnám við Royal Academy
of Music i Lundúnum
1963—1965 með samleik að
aðalgrein. Hann tók þátt i
sumarnámskeiði i Stokkhólmi
1967 hjá prófessor Erik
Werba. Ólafur hefur leikið
mikið með söngvurum á tón-
leikum, i útvarp og sjónvarp á
tslandi, einnig á tónleikum er-
lendis.
Fiskur og brauð hækka
Yiðskiptaráðuneytið segir:
Húsaleigu-
hækkanir
ólögmætar!
Húseigendafélag Reykjavíkur
hvetur til hækkunar á húsaleigu
Verðlagsnefnd hefur
ákveðið nýtt hámarksverð
á fiski til neytenda,svo og á
brauðum.
Samkvæmt upplýsingum
frá skrifstofu verðlags-
stjóra urðu hækkanir þess-
ar:
Nýr fiskur i Reykjavik, Kópa-
vogi og Hafnarfirði. Þorskur,
slægður, með haus hækkar úr 32
krónum i 35. Hausaður úr 40 krón-
um i 44 krónur.
Ný ýsa, slægð, með haus hækk-
ar úr 37,50 krónum i 41. Hausuð úr
47 krónum i 52 krónur.
Egg hækka
Egg munu hafa hækkað um
20 krónur kilóið, en hækkun á
eggjum heyrir hvorki til verð-
lagsnefnd, né heldur verðlags-
ráði landbúnaðarins. Trúlega
eru egg eini varningurinn
hvers verð lýtur framboði og
eftirspurn, enda ekki gefin.
Þorskflök, án þunnilda, ný, úr
71.50 i 77 krónur.
Þorskflök, án þunnilda, nætur-
saltaður, úr 74,50 i 81 krónu.
Ýsuflök, án þunnilda, ný, úr
82.50 i 90 krónur.
Ýsuflök, án þunnilda, nætur-
söltuð, úr 86,50 i 94 krónur. Ann-
ars staðar á landinu hækkar nýr
þorskur m. haus úr 29 krónum i 32
krónur, hausaður úr 36,50 i 44
krónur, ný ýsa úr 34,50 i 38 krón-
ur, hausuð úr 43 i 48 krónur.
Þorskflök, ný, úr 64,50 krónum i
71, nætursöltuð úr 68,50 krónum i
75 krónur. Ýsuflök, ný, úr 76 I 84,
nætursöltuð úr 80 krónum i 88
krónur.
Meðaltalshækkun um 10%.
Rúgbrauð, 1500 grömm,
óseydd, hækka úr 29 krónum I 32
krónur, 10,3%.
Normalbrauð úr 15 krónum i
16.50 eða um 10%.
Franskbrauð, 500 grömm, úr 21
krónu i 25 krónur, 19%.
Heilhveitibrauð, 500 grömm,
sama og franskbrauð.
Vinarbrauð, úr 5,50 i 6,50,
18,2%.
Tvibökur, hvert kiló úr 87 krón-
um i 100 krónur, 14,9%.
Hækkanir á brauðum stafa af
hækkun á hráefni.
Fólk snýr
til Managua
MANAGUA 9/1 260 þúsund af
316 þúsund ibúum Managua hafa
snúið aftur til borgarinnar, sem
er að verulegu leyti i rústum eftir
jarðskjálftana um jólin. Sefur
fólkið i stórum svefnsölum sem
stjórnin hefur komið á fót til
bráðabirgða. Virðist svo sem
stjórnin hafi hætt við áform sin
um að flytja höfuðborgina úr stað
og hefur nú verið tilkynnt að um
100 verzlanir i Managua verði
opnaðar á næstunni.
MOSKVU 10/1. — Miðstjórn
Kommúnistaflokksins og Sovét-
stjórnin hafa ákveðið að leggja
mikla áherzlu á umhverfis- og
náttúruvernd i framtiðinni. Frá
og með næsta ári gengur þessi
þáttur inn i 5-ára áætlanirnar.
Húseigenda félag
Reykjavíkur hefur nýlega
sent frá sér fréttatilkynn-
ingu, þar sem þvi er haldið
fram, að um s.l. áramót
hafi fallið úr gildi ákvæði
um bann við húsaleigu-
hækkunum. Klykkir félagið
út með setningu, sem hljóð-
arsvo: „I samskiptum hús-
eigenda og leigutaka gildir
samningsfrelsi"!
Vegna þessarar fréttatil-
kynningar hefur viðskipta-
ráðuneytið séð sig knúið til
að senda frá sér eftirfar-
andi tilkynningu:
„I tilkynningu nr. 18/1972, dags.
28. desember 1972 frá verðlags-
stjóra var frá þvi skýrt, að verð-
lagsnefnd hefði i samráði við
rikisstjórnina ákveðið, að óleyfi-
legl væri að hækka verð eða
álagningu á hvers konar vörum
og þjónustu án sérstakrar heim-
ildar.
Með skirskotun til þessarar til-
kynningar verðlagsstjóra vill
ráðuneytið taka fram, að óheimilt
er að hækka gjaldskrár opinberra
aðila eða gjaldaákvæði i reglu-
gerðum svo og húsaleigu frá þvi
scm var i desember 1972..
Með hliðsjón af gildandi löguin
munu hlutaðcigandi ráðuneyti
fjalla um brcytingar á gjald-
skrám opinbcrra aðila eða
gjaldaákvæðuin i reglugerðum
1,3 milj.
sendar
Skyndisöfnun Rauða kross ts-
lands og Hjálparstofnun kirkj-
unnar vegna jarðskjálftanna i
Nicaragua lauk 6. janúar.
Rauða krossi Islands hafa bor-
izt kr. 800 þús. og Hjálparstofnun
kirkjunnar kr. 500 þús. Hafa báðir
aðilar lokið sendingu á söfnunarfé
sinu. Fé þvi sem Hjálparstofnun
kirkjunnar berst er miðlað gegn-
um Alkirkjuráðið og fé þvi sem
R.K.t. berst gegnum Alþjóða-
samband Rauða kross félaga. Áð-
ur hafði Hjálparstofnun kirkjunn-
ar sent kr. 150 þús. og Rauði
krossinn kr. 75 þús. og eru bráða-
birgðaniðurstöður frámlaga is-
lenzku þjóðarinnar til hjálpar-
starfsins i Nicaragua kr.
1.525.000,-
Færa stofnanirnar landsmönn-
um öllum beztu þakkir fyrir skjót
viðbrögð, sem bera vott um rika
samúðartilfinningu þjóðarinnar.
Enn halda framlög áfram að
berast þótt formlegri söfnun sé
lokið og verða þau send áleiðis við
fyrstu hentugleika.
svo og húsaleigu svo sem var
meðan verðstöðvun var i gildi”.
Þarna kemur skýrt frám, að
húsaleiga skuli áfram vera háð
verðlagsákvæðum og að ekkerl
ley fi hafi verið gefið til hækkunar.
Fólk er eindregið hvatt til að
gæta réttar sins i þessu máli og
kæra skilyrðislaust ólöglegai
hækkanir húsaleigu til verðlags-
nefndar. —úþ
Husak
krossaður
PRAG/MOSKVU 9/1 — Gustav
Husak var sæmdur Leninorðunni
rússnesku og æðsta heiðursmerki
Tékkóslóvakiu i tilefni sextugs-
afmælis sins.
Hann fékk heillaskeyti frá þeim
vinum sinum i Moskvu Brésneff,
Kosygin og Podgorni þar sem
þeir báru á hann mikið lof. Var
Husak i skeytinu kallaður
göfugur vinur Sovétrikjanna og
honum þakkað mikillega starf
hans til verndar sósialismanum i
Tékkóslóvakiu.
Alþyðubanda-
lagið Reykjavík
Kjartan Olafsson.
Fundur um
baráttuna gegn
herstöðvum fyrr
og nú er í kvöld
Kjarftin Ólafsson ritstjóri ræðir
um baráttuna gegn herstöðvum
fyrr og nú á umræðufundi Al-
þýðubandalagsins i Reykjavik,
sem haldinn verður i kvöld
að Grettisgötu 3. Fundurinn hefst
kl. 20,30 og er öllum opinn.
Þetta er fyrsti fundurinn af 18
sem Alþýöubandalagið i Reykja-
vlk mun halda i vetur um ýmis,
málefni.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagsfólk á Suðurlandi
Alþýðubandalagsfélögin i Arnessýslu og I
llveragerði efna til þriggja almennra funda á
næstu þrem mánuðum.
Sá fyrsti verður haldinn i Selfossbiói 12. jan. og
þar talar Þröstur Ólafsson um efnahagsmál.
Febrúar-fundurinn verður 9. febrúar I Kaffi-
stofu Hallfriðar, Bláskógum 2, Hveragerði.
Ragnar Arnalds ræðir þar um uppbyggingu
þjóðfélagsins og stjórnkerfið.
Þröstur Ólafsson Marz-fundurinn verður 9. marz I Selfossbiói,
og þar mun Einar Olgeirsson rekja sögu vinstri-
hreyfingar á tslandi.