Þjóðviljinn - 11.01.1973, Síða 9

Þjóðviljinn - 11.01.1973, Síða 9
Miðvikudagur 10. janúar 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 Islandsmótið 1. deild: Haukar - Armann 18:18 Ármann og Haukar skiptu með sér stigunum er liðin mættust s.I. þriðjudag i 1. deildarkeppninni og eru þá bæði komin með 3 stig, en KR situr eftir á botninum án stigs.og má það teljast kraftaverk ef það nær að bjarga sér frá falli eftir þessi úrslit. í sannleika sagt var jafntefli nokkuð sanngjörn úrslit i þessum leik, sem var einn hinn slakasti sem leikinn hefur verið i mótinu til þessa. Hnoð og aftur hnoð var einkennið og varla hægt að segja, að fallegum augnablikum brygði fyrir. Ármenningarnir leiddu oftar en Haukarnir, og ef til vill má segja að þeir hafi verið nær sigri en Haukar, en mér fannst jafnteflið sanngjörnustu úrslitin. Eina jákvæða i leiknum var hve mark- varzlan var oft á tiðum góð hjá báðum liðum þótt varnirnar væru ekki uppá það bezta. Framan af náðu Haukarnir betri tökum á leiknum og komust i 3:1 og 4:2 en Ármenningar náðu að jafna og komast yfir 5:4 þegar fyrri hálf- leikur var rúmlega hálfnaður og þeir gerðu betur. Þegar 20 minútur voru liðnar af leiknum Úrleik Ármanns og llauka: Kjartan Magnússon (Armanni) hindrar hér Þórð Sigurðsson gróflega á lln- unni. (Ljósm. B.B.) var staðan orðin 7:4 Armenningum i vil. En næstu þrjú mörkin skoruðu Haukarnir og náðu að jafna 7:7. Aftur var jafnt 8:8 og 9:9 en i leikhléi höfðu Haukarnir náð frum- kvæðinu 1Ó:9. Eins og gefur að skilja var þetta mikill baráttuleikur, enda afar þýðingarmikill fyrir bæði liðin sem verið hafa i fallbar- Framhald á 11. siðu. íslandsmótið 1. deild: ÍR-Yalur 21:16 yfirgefið á botninum Eftir jafntefli Hauka og Armanns KR eitt og Y als-markverðirnir vörðu aðeins 4 skot f Og IR-ingarnir áttu ekki í minnstu erfiðleikum með Val IR-liðið/ fingurbrjótur Valsliðsinss.l. 3-4 ár, átti ekki í nokkrum erfið- leikum nú frekar en endranær með Vals-liðið og sigraði 21:16 sem var minni munur en efni stóðu til/ því að lengi vel hafði iR 7-9 mörk yfir. Ástæðan fyrir þessum yfirburða sigri IR er margþætt. I fyrsta lagi virðist iR hafa einhver sérstök tök á Valsliðinu; menn muna ef til vill leik þessara liða frá 1970 þegar iR gerði von Vals um sigur í íslandsmótinu að engu. I öðru lagi var vörn Valsmanna afar slök í leiknum og í þriðja lagi/ og var það sem raunar var afdrifaríkast fyrir Val, að mark- varzlan var í algerum molum. Aðeins 4 skot varin allan leikinn. ólafur Benediktsson lék ekki með, hann var settur útúr liðinu vegna agabrots. 1R hefur sýnt mestar fram- farir allra islenzkra liöa á þessum vetri ef miðað er við árið I fyrra. Og það er þegar komið i hóp okkar beztu liða. En sannleikurinn er sá að það hefur oft leikið betur en að þessu sinni. Það þurfti bara ekki á meiru að halda gegn hinu slaka Vals-liði. Valsmenn byrjuðu með boltann og það leið ekki minúta þar til Ólafur H. Jóns- son, sem nú lék langt undir getu, skoraði fyrsta markið. Þetta var i eina skiptið sem Valurhafði yfir i leiknum. 1R- ingar jöfnuðu og komust siðan i 3:1, 5:2 og 6:3. Siðan kom 7:3 og 8:4. Þegar 5 minútur voru eftir af leiknum var staðap orðin 11:7 1R i vil og slikur var leikur Vals-liðsins að augljóst var að 1R hafði gert útum Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson leikinn og aðeins spurning hve stór sigur IR yrði, en ekki hvort liðið myndi sigra. I leik- hléi var staðan 14:9 og 14. markið skoraði Þórarinn Tyrfingsson beint úr auka- kasti eftir að leiktiminn var runnin út. Byrjun siöari hálfleiks var enn verri hjá Vals-liðinu en nokkur kafli i fyrri hálfleik. Þegar siðari hálfleikurinn var um það bil hálfnaður var staðan orðin 19:10; þá fyrst var eins og Valsmennirnir vöknuðu af svefninum en það var bara of seint. Eins var það að IR-ingarnir gáfu eftir,enda leikurinn þegar unninn. Loka- tölurnar urðu svo eins og áður segir yfirburða sigur IR 21:16. Sigur sem liðið þurfti ósköp litið að hafa fyrir. Það fer ekkert milli mála að munurinn á liðunum lá fyrst og fremst i markvörzlunni. Það er alveg sama hve gott lið er; hafi það ekki markvörzluna i lagi vinnur það ekki leik gegn öðru liði. Markvarzla IR-inga var ágæt. Geir Thorsteinsson markvörð- ur þeirra hefur staðið sig m jög vel i vetur, auk þess sem hann er einn af heppnustu mark- vörðum sem maður sér i handknattleik. IR-liðið er nú loks að ná þvi að mynda góða heild og um leið eins og margsinnis hefur verið bent á, þá gerir það þetta lið sterkt,enda hefur það á að skipa góðum einstakling- um, en þeir hafa bara ekki náð saman fyrr en i vetur. Brynjólfur Markússon, Gunnlaugur Hjálmarsson, Þórarinn Tyrfingsson og Vil- hjálmur Sigurgeirsson voru beztu menn liðsins. Þetta eru allt menn sem ekki má líta af augnablik,þá er hætta á ferð- um. Þá átti Hörður Árnason góðan leik á linunni. Enginn Valsmanna náði þvi að leika við getu að þessú sinni. Einna skástur var ólafur H. Jónsson.en hann lék þó langt undir getu. Agúst Og- mundsson kom einnig sæmi- lega frá leiknum undir lokin en þá skoraði hann hvert markið á fætur öðru. Það vekur sifellt furðu hve misvel Vals-liðið leikur. Oftast leikur það eins og það getur bezt.og þá standast þvi fá lið snúning, en svo inni milli koma leikir sem eru langt fyrir neðan það sem liðið hefur sézt gera bezt. /®v staðan Staðan i 1. FH ÍR Valur Vikingur Fram Haukar Armann KR deild er nú þessi: 5500 91:82 10 5401 100:83 8 5302 106:86 6 5302 112:102 6 5302 98:91 6 6114 108:113 3 6114 99:126 3 5005 83:114 0 Markahæstu menn: Geir Hallsteinsson 38 Ingólfur óskarsson Fram 33 Óiafur ólafsson Haukum 32 Einar Magnússon Vikingi 31 Vilberg Sigtryggsson Arm. 30. Bergur Guðnason Val 30. Brynjólfur Markússon IR 28 Haukur Ottesen KR 25 Vilhjálmur Sigurgeirsson ÍR 25 Guðjón Magnússon Vikingi 19 Hörður Kristinsson Ármanni 19 Ólafur H. Jónsson Val 17 Þórður Sigurðsson Haukum 17 Björn Pétursson KR 15 Stefán Halldórsson Vikingi 15. Hvað þessu veldur getur sjálf- sagt enginn svarað, þótl margir vildu eflaust geta fundið lausnina. Mörk IR: Vilhjálmur 5 (3 viti) Gunnlaugur 5, Brynjólfur 3, Þórarinn 5, Hörður 2 og Jóhannes 1. Mörk Vals: Bergur 5 (öll úr vitum), Agúst 4, Ólafur og Gunnsteinn 2 mörk hvor, Jór Jónsson, Gisli og Þorbjörn 1 mark hver.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.