Þjóðviljinn - 11.01.1973, Page 12

Þjóðviljinn - 11.01.1973, Page 12
'IÚÐVIUINN Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara1 Læknafélags Reykjavikur, simi 18888. Lyfjaþjónusta apótekanna vikuna 6.-11. janúar er i Holtsapóteki og Laugarnes- apóteki. Slysavaröstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Kvðld-, nætur og helgidaga- vakl a heilsuvernarstöfiinni. Simi 21230. Fimmtudagur 11. janúar 1973 Ef Nixon skyldi aftur verða mál. . PARlS 10/1. — Viðræður Kissingers hins bandaríska og sendimanns Norður- Víetnamstjórnar, Le Duc Tho, um vopnahlé í Viet- nam héldu áfram í dag, þriðja daginn i röð, og hvíldi lítill vinskaparandi yfir fundinum. Mun líða á löngu áður en aftur skapast það andrúmsloft sem ríkti áður en Bandaríkjamenn Moskvuför Frakklandsforseta PARIS 10/1. — Pompidou Frakklandsforseti fer á morgun, fimmtudag, i 2ja daga heimsókn til Moskvu og mun eiga þar við- ræður við sovézka ráðamenn. Væntanlega um öryggismál i Evrópu, en einnig um efnahags- samvinnu Frakklands og Sovét- rikjanna. hófu ógnarsprengingar sin- ar 18. desember s.l. Kissinger og Tho hafa nú setið á fundum i alls 10 stundir siðan við- ræður hófust að nýju nú eftir ára- mótin. Geta allir gert sér i hugar- lund hvernig það muni vera fyrir Tho aö þjarka nú i það óendan- lega um þau atriði sem fullt sam- komulag hafði tekizt um þegar i október. En i millitiðinni hefur mótpartur hans staðið að ægileg- ustu loftárásum sögunnar. Bandariskar heimildir telja að Kissinger muni að þessu sinni dvelja i Paris unz Nixon verður aftursettur inn i forsetaembættið til næstu 4ra ára, 20. janúar n.k. Nema þvi aðeins að viðræðurnar sigli i strand, áður en að þeim tima kemur (les: ef Nixon skyldi nú aftur verða mál að létta sprengjuþotur sinar yfir þéttbýl- ustu svæðum Norður-Vietnam). Norður-.Vietnömum tókst i dag að skjóta niður 2 árásarþotur af gerðinni B-52 og gerðist það sunn- an 20. breiddarbaugsins i suður- hluta landsins. Enn skálarœður um norrœna samvinnu KAUPMANNAHÖFN 10/1. — Annað kvöld, fimmtudagskvöld, verður haldinn meiriháttar norrænn fundur i Kaup- mannahöfn á vegum Vinnings- númerin í Happdrœtti Þjóðviljans Við birtum hér vinnings- númerin i Happdrætti Þjóð- viljans, en þau hafa verið inn- sigluð hjá borgarfógeta þar til nú, siðan dregið var á Þorláksmessu. 1. Bifrcið, SKODA sport- módcl, kom á númer 38730 2. Ferð fyrir 2 til Kanari- eyja, 15 daga, frá ferða- skrifstofunni Úrval kom á númer 38747 3. Ferð fyrir 2 til Kaup- mannahafnar með flugvél Flugfélags tslands kom á númer 33348 4. Ferð fyrir 2 til Kaup- mannahafnar með flugvél Loftleiða kom á númer 19126. 5. Ferð fyrir 2 til meginlands Evrópu með skipi Eim- skipafélags tslands kom á númer 35959. Vinninga sé vitjað á skrifstofu Þjóðviljans, Skólavörðustig 19, Reykjavik. ■ Þjóðviljinn þakkar öllum þeim fjölmörgu, sem veitt hafa blaðinu liðsinni með kaupum á happdrættismiðum, en þó alveg sérstaklega þeim mörgu sjálfboðaliðum, sem af mikilli atorku og dugnaði hafa unnið að innheimtu fyrir Happdrætti Þjóðviljans bæði i Reykjavik og úti um allt land. Norræna félagsins, sá fyrsti eftirað Danmörk gekk sína leið inn i Efnahagsbanda- lagið. Forsætisráðherrar Danmerkur, Noregs og Finnlands sækja fundinn, viðskiptaráðherra Sví- þjóðar og sendiherra Islands. Þetta á ekki að verða umræðufundur, en stjórnmálamennirnir munu i almannaáheyrn flytja ávörp um norrænt samstarf og möguleika þess í fram- tíðinni. Þess er sérstaklega getið i frétt norsku fréttastofunnar NTB, að ölafi Jóhannessyni hafi verið boðið, en hann ekki þegið. Bendir fréttastofan á það að hann hafi i nýársræðu sinni gagnrýnt Norðurlönd harölega fyrir skort þeirra á samstöðu með íslandi i sambandi við útfærslu fiskveiði- lögsögunnar. — Þess er enn- fremur getið að Olof Palme hinn sænski sé löglega forfallaður frá þátttöku vegna setningar rikis- þingsins. Kcið ekki Nixon allan timann við samningaborðið, reiðubúinn til viðræöna á jafnréttisgrundveili? Munið herstöðvaráð- stefnuna um helgina! f Ráðstefna herstöðva- andstæðinga um næstu helgi hefst klukkan tvö á laugardag i Félagsheim- ili stúdenta við Hring- braut. Þá verða flutt inngangserindi um verk- efni ráðstefnunnar, og það gera þeir Björn Teitsson cand. mag., Cecil Haraldsson kenn- ari og Ragnar Stefáns- son mag. scient. Þjóð- viljinn hafði i dag sam- band við Arna Björnsson þjóðháttaf ræðing, en hann er i undirbúnings- nefnd ásamt þeim Þor- birni Broddasyni og Úlfi Hjörvar. Árni lagði áherzluá, að herstöðvaandstæðingar ættu að koma til fundar þegar í upphafi ráð- stefnunnar. Að loknum stuttum inngangserind- um verður ráðstefnu- gestum skipt niður í smærri hópa, og geta þeir ekki allir starfað í Félagsheimilinu, heldur verða í öðrum húsakynn- um. Þetta á að verða vinnuráðstefna, sagði Árni, og við væntum þess að þetta nýstárlega form gefi góða raun og verði vinsælt. Pompidou er illur útí jafnaðarmenn PARíS 10/1. — Franski sósíalistaflokkurinn gagn- rýndi Pompidou Frakk- landsforseta harðlega í dag vegna ótiIhlýðilegra og dónalegra viðbragða hans við alþjóðlegri ráðstefnu sósialdemókrata sem á að halda i París um næstu helgi. Forsetinn sagði á þriðjudaginn að ráðstefnan væri ihlutun i frönsk innanrikismál vegna kosninganna sem standa fyrir dyrum i landinu. Meðal gestanna á ráðstefnunni verða fjórir for- sætisráðherrar, þau Jörgensen frá Danmörku, Palme frá Sví- þjóð, Kretsky frá Austurriki og Golda Meir frá ísrael. Pompidou sagði að stjórn sin mundi i mót- mælaskyni ekki hafa neitt sam- band við ráðstefnugesti, ekki heldur hina erlendu forsætisráð- herra. Þessi vðbrögð Pompidou hafa AÐSTOÐIN ÓSKIPT TIL N-VIETNAMA KAUPMANNAHÖFN 10/1. — Þær 5 miljónir danskra króna sem rikisstjórn Anker Jörgensens hcfur veitt V'ietnam nýlega vegna jólasprenginga Nixons munu ganga rakleiðis og óskiptar til Norður-V'ietnam, sagði danski utanrikisráðherrann á þingi i dag. íhaldsmaðurinn östergárd, fyrrum hermálaráðherra, gagn- rýndi það að upphæðinni skyldi ekki jafnt skipt milli landshluta i samræmi við fyrri hefð, en hon- um var bent á það að óþarft væri að „pólitfsera” málið. 1 Norður- Vietnam væri sérstakt neyðar- ástand vegna loftárásanna, og ætlunin væri að leggja nokkuð af mörkum til að létta neyð fólksins þar. Kuldakast eyði- lagði uppskeruna TEL AVIV — Kuldakast i Israel hefur valdið eyðileggingu græn- metis, sitrusávaxta og blóma fyrir tugi miljóna, að þvi er land- búnaðarmálaráðherra landsins hefur upplýst. Verður útflutning- ur blóma i janúar sennilega þriðj- ungi minni en venjulega, og út- flutningur appelsina minnkar um a.m.k. 15%. MÓTMÆLA ÍHALDI LONDON 10/1. — Brezkir rikis- starfsmenn fara sér nú hægt að vinnu i mótmælaskyni við 90 daga verðlags- og kaupgjalds-frystingu ihaldsstjórnarinnar. Starfs- mannafélög með um 260 þúsund manns innan sinna vébanda hafa hvatt til aðgerða af þessu tæi. Af þeirra völdum þurfti að loka Brítish Museum i dag, og þótti það einstæður viðburður. Skrif- stofufólk, starfsmenn i út- lendingaeftirliti, tollþjónar og menn i flugeftirliti fóru sér hægt i dag, og varð af þessu mikil seink- un á flugvöllum. A fundi i einu starfsmannafélaginu var sam- þykkt að hvetja til algers verk- falls i næsta mánuði, en brezkir rikisstarfsmenn hafa aldrei gert verkfall. Með þessu hyggjast rikisstarfsmenn fá stjórnina til að falla frá hömlum sem hún ætlar 'að setja á réttinn til kjarabóta. vakið reiði, og segir Mitterand formaður franska sósialista- flokksins að framkoma hans geti unnið samskiptum Frakklands við önnur riki tjón. Blöð i ísrael hafa verið harðorð i garð Pompidou vegna gagnrýni hans á komu Goldu Meir til Frakklands. Reiði Pompidou stafar vitan- lega af þeim góðu horfum sem kosningabandalag sósialista og kommúnista hefur til að verða Gaullistum sterkara i þingkosn- ingunum. Hins vegar mun Mitterand vilja útskýra það fyrir öðrum jafnaðarmönnum, hvers vegna flokkur hans hefur ákveðið svona náið samband við kommúnista. Okkur vantar fólk til að bera út blaðið Skjól Hjarðarhaga Miðbæ Hverfisgötu Skúlagötu Höfðahverfi Háteigshverfi Sólheima Nökkvavog Voga 2 Safamýri Sogamýri D/ODVIUINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.