Þjóðviljinn - 14.01.1973, Page 7

Þjóðviljinn - 14.01.1973, Page 7
Sunnudagur 14. janúar 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 Nýbreytni: Sýndu dans í sjúkra- húsinu að Kleppi Asdis Magnúsdóttir dansar svaninn (Svanavatniö) meö „aöstoð” Þórhalls og Bessa. Skömmu fyrir jól fór fram nýstárleg sýning i samkomusal sjúkrahúss- ins að Kleppi. Flokkur frá Listdansskóla Þjóð- leikhússins sýndi dansa frá ýmsum löndum og menningarsvæðum, undir stjórn nýráðins ballettmeistara Þjóð- leikhússins Unnar Guðjónsdóttur. Leik- ararnir Bessi Bjarnason og Þórhallur Sigurðsson kynntu atriðin á sinn skoplega hátt. Mjög fjörlegur og skemmti- legur blær var yfir sýn- ingunni, Viðtökur þessarar sýn- ingar vitnuðu um ein- læga hrifningu, enda þarna um að ræða fólk, a.m.k. að hluta, sem ekki hefurtök á að njóta framboðinnar listar á almennum markaði. i kaff iboði eftir þessa sýn- ingu kom það m.a. fram hjá forstöðukonu spital- ans, að ósjaldan hefði verið leitað eftir því við einstaklinga og flokka i skemmtiiðnaði að gera eitthvað fyrir sjúklinga spítalans, enda aðstaða góð á staðnum. Árang- urinn hefur lítill orðið. Nú er kannski ekki hægt að búast við að önnum kafnir leikarar, söngvarar eða aðrir skemmtikraftar fórni tima sínum til slikra sjálf boðastarfa sem hinir ungu dansarar gerðu þarna. Hitt er svo spurning, hvort hin lofs- verða tilraun mennta- málaráðs að létta menn- ingarlegri einangrun af dreifbýlinu, (List um landið) hefði ekki mátt byrja þarna, sem ein- angrunin er trúlega mest. Holga Bernhard og Guðlaugur Einarsson í Kósakkadansi. Guölaugur Kinarsson, llelga Kldon og ólafur Ólafsson dansa Square-dans (amr. þjóðd.). Raforkuverið Einn af ókostunum viö vatns- orkuver er sá, að þau geta ekki geymt þann rafstraum, sem afl- vélarnar framleiða. Orkuna verður annað hvort aö nota um leið og hún er framleidd eða ekki. Nú er verið að leysa þetta vanda- mál i framkvæmd við 250 þúsund kw orkuver i grennd við úkra- insku höfuðborgina Kiev. Er verið að setja niður fjórðu af sex aflvélum orkuversins. Orkuverið er knúið vatni frá tveimur miðlunarlónum og liggur annað þeirra 80 metrum hærra en hitt. Venjuiega ganga aflvélarnar fyrir vatni úr neðra lóninu. öll umframorka — aðallega raf- magn, sem framleitt er yfir nótt- ina — er notuð til þess að dæla vatni upp i efra vatnsforðabúrið. Þegar orkuþörfin fer fram úr framleiðslugetunni er álagið er mest, er vatn frá efra miðlunar- lóninu leitt inn i göngin að vél- unum og gefur það umframorku. Þannig verkar efra vatnsforða- búrið sem risastór rafgeymir. Orkuverið við Kiev er hið fyrsta af þessari gerð, en á næstu árum á að reisa mörg áþekk orkuver á ýmsum stöðum i Sovétrikjunum. Eitt þeirra verður byggt á geymi orkuna Sagórsk i nágrenni Moskvu, er verður framleiðslugeta þess 12 það þegar vel á veg komið og miljónir kw. APN Skákþraut Skákdæmið sem Friðrik Ólafsson stórmeistari birti i lok skákkennsluþáttar sins i sjón- varpinu i gær: Hv: K e4 — peð: a4 — g4. Sv: Kf6 — Bg7. Hvitur á leikinn og spurningin er hvort hann getur knúið fram vinning. r Islending- ur á al- þjóðlegum verð- launapalli A siöastliðnu ári var Myndlista- og handiðaskóla Islands gefinn kostur á þvi að taka þátt i alþjóð- legri samkeppni listaháskóla. Fyrir þessari samkeppni stendur stofnun ein i Luxemborg, sem heitir „Musée 2000” Til- gangur stofnunar þessarar og samkeppninnar er að örva hvers konar listfræðslu með þvi meðal annars að kynna framúrskarandi listskólanema á aljóðlegum vett- vangi. Af þeim sökum efnir „Musée 2000” til árlegrar sam- keppni og veitir til þess verð- launum að upphæð 22.500 dollara. Rétt til þátttöku eiga lista- skólar, sem stofnunin velur, en viðkomandi skóli velur siðan verk nemenda sem senda skal til sam- keppni. Veitt eru fimm verðlaun: 1. verðl. nema 2000 dollurum 2. verðl. nema 1000 dollurum 3. verðl. nema 600 dollurum 4. verðl. nema 500 dollúrum 5. verðl. nema 400 dollurum Haldin er sýning á verkunum i Luxemborg og vegleg sýninga- skrá prentuð með myndum af verkum þátttakanda. Alþjóðleg dómnefnd velur verðlaunahafa. 1 henni eiga sæti Hans Baier frá Þýzkalandi, Bogomil Karlavaris frá Júgóslaviu, Jean Guiraud frá Belgiu og Michel Ragon frá Frakkladi. 15 listaháskólar tóku þátt i samkeppninni að þessu sinni frá Belgrad, Brússell, Bukarest, Coventry, Frankfurt am Main, New York, tveir frá Paris, Prag, Róm, Seattle, Urbino, Róm, Varsjá og Vinarborg auk Mynd- lista- og handiðaskóla Islands. Dómnefnd lauk störfum 8. des- ember og niðurstöður hennar urðu þær m.a. að annar keppand- inn, sem Myndlista- og handiða- skóli Islands sendi verk eftir, Magnús Kjartansson, hlaut fjórðu verðlaun. Hann sendi eins og allir þátttakendur, þrjií málverk. Hinn var Þórður Hall, einnig með þrjú oliumálverk. 1. verðlaun komu i hlut Eng- lendings, 2. i hlut Júgosslava, 3. fékk Englendingur og 5. Itali. Franskar gleðikonur yngjast PARIS — Hagskýrslur eru til margra hluta merkilegar. I yfir- liti frá frönsku lögreglunni kemur m.a. i ljós, að aldur gleðikvenna færist jafnt og þétt niður á við i þvi landi. Af 30 þúsund vændis- konum landsins byrjar helming- urinn starf sitt á aldrinum 16 eða 17 ára. Kirkjunnar menn meðal Ungverja A meðfylgjandi mynd er ný- byggð kirkja i ungverska þorpinu Hollohaza, og er arkitekt hennar ungverskur. Starfsemi kirkjunnar er gert talsvert hátt undir höfði af núver- andi valdhöfum i Ungverjalandi. Enda er sótzt eftir kirkjunnar mönnum i embætti á vegum rikis- ins. Utanrikisráðherra landsins siðan 1961, János Péter, var á sinum tima biskup kalvinista i borginni Debrecen. Varaforseti þjóðþingsins að nafni Beresztóczy er rómversk-kaþólskur prestur og var á árunum 1929-39 einkarit- ari hjá yfirbiskupi kaþólskra i landinu. Á þingi sitja alls 6 starf- andiprestar eða biskupar, þeirra á meðal dr. Káldy yfirbiskup lút- hersku kirkjunnar i Ungverja- landi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.