Þjóðviljinn - 14.01.1973, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. janúar 1973
Sunnudagur
8.00 MorgunandakLSéra Pétur
Sigurgeirsson vigslubiskup
flyur ritningarorö og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög. Tivoli-
hljómsveitin leikur létt lög
undir stjórn Börges Han-
sens og Roger Wagner kór-
inn syngur.
9.00 Fréttir. Úrdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Sónötur
fyrir orgel og hljómsveit
eftir Mozart. Edward
Power Biggs og Columbiu-
hljómsveitin leika; Zoltan
Rozsnyai stj.
b. Hörpukonsert nr. 1 i d-moll
op. 15 eftir Nicolas-Charles
Bochsa. Lily Laskine og La-
moureux-hljómsveitin
leika; Jean-Baptiste Mari
stj. c. Strengjakvartett i g-
moll op. 20 nr. 3 eftir Haydn.
Koeckert-kvartettinn leik-
ur. d. Partita nr. 6 i e-moll
eftir Johann Sebastian
Bach. Jörg Demus leikur á
pianó.
11.00 Guösþjónusta i kirkju
Filadelfiusafnaðarins i
Reykjavik. Einar Gislason
forstöðumaður safnaðarins
flytur ræðu. Asmundur Ei-
riksson flytur ritningarorð
og bæn.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.25 Múhameð og Isiam.Séra
Rögnvaldur Finnbogason
flytur annað erindi sitt.
14.00 „Mörsugur á miðjum
vetri”. Þáttur meö blönd-
uöu efni i umsjá Jóns B.
Gunnlaugssonar.
15.00 Miðdegistónleikar 1. Frá
alþjóðlegri tónlistarkeppni
þýzkra útvarpsstöðva i
Múnchen s.l. haust. Verð-
launahafar syngja og leika
ásamt Sinfóniuhljómsveit
útvarpsins i Múnchen; Fritz
Rieger stj. a. Edith Gull-
aume frá Danmörku syngur
„Gánymed” eftir Schubert
og „Histoires naturelles-
Paon” eftir Ravei. b. Ernst
Kovacic frá Austurriki leik-
ur Sónötu i d-moll fyrir ein-
leiksfiðlu op. 27 eftir Ysaye.
c. Otoniel Gonzaga frá
Filippseyjum syngur
„Mondnacht” eftir Schu-
mann og „Adelaide” eftir
Beethoven. d. Radu Emil
Chisu frá Rúmeniu leikur
„Myndbreytingar” fyrir
einleiksóbó op. 49 eftir
Britten. e. Robert Holl frá
Hollandi syngur „Kinder-
totenlieder” eftir Mahler. f.
Carole Walters frá Banda-
rikjunum syngur „Immer
leiser wird mein Schlumm-
er” eftir Brahms og „Be-
freit” eftir Richard Strauss.
II. „Kreisleriana” op. 16
eftir Schumann. Vladimir
Horowitz leikur á pianó.
16.55 Veðurfregnir. Fréttir.
17.00 Sunnudagslög.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill.
19.35 Úr segulbandssafninu.
Helgi Hjörvar talar um út-
varps- og landhelgismál i
þáttum um daginn og veg-
inn siðsumars 1959.
20.00 Birgittc Grimstad og
Cornclius Vreeswijk syngja
þjóðlög og lög eftir Bellman.
20.25 „Kóngsgarðs-Matta”, ný
smásaga eftir Guðmund
Frimann. Hjörtur Pálsson
les.
20.55 Kammcrtónleikar, Clif-
ford Curzon og félagar úr
V inaroktettinum leika
Kvintett i A-dúr „Silunga-
kvintettinn” eftir Schubert.
21.30 Lestur fornrita: Njáls
saga. Dr. Einar Ól. Sveins-
son prófessor les (11).
22.00 Fréttir.
um helgina
Sunnudagur
17.00 Endurtckið efni.A valdi
fiknilvfja.Brezk fræðsiu-
mynd um vandamál i sam-
bandi við eiturlyfjaneyzlu
unglinga. Þýðandi Jón O.
Edvald. Aður á dagskrá 14.
nóvember 1972.
17.20 Sunnan um höfin.Dans-
flokkur frá Suðurhafseyj-
um, fimm piltar og fjórar
stúikur, sýnir og kynnir
dansa og söngva frá heim-
kynnum sinum. Upptakan
var gerð i sjónvarpssal.
Þyðandi Jón O. Edwald. Að-
ur á dagskrá 26. desember
sl.
18.00 Stundin okkar.Meðal efn-
is er ballett og leikfimissýn-
ing. Einnig koma Glámur
og Skrámur fram. Sýndar
verða teiknimyndir og loks
fyrsta myndin i nýjum,
sænskum myndaflokki fyrir
börn og unglinga, og nefnist
hann Fjórir félagar. Um-
sjónarmenn Sigriður Guð-
mundsdóttir og Hermann
Ragnar Stefánsson.
18.50 Enska knattspyrnan
19.40 lllé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Hamingjudagar. Siðari
hluti myndar um dvöl
sænsks náttúruskoðara með
fjölskyldu sinni i frumskóg-
um Brasiliu. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið) Þýð-
andi Dóra Hafsteinsdóttir.
20.55 Sólsetursljóð.Mynda-
flokkur frá BBC, byggður á
skáldsögu eftir skozka rit-
höfundinn Lewis Grassic
Gibbon. 2. þáttur : Plæging
Leikstjóri Moira Arm-
strong. Aðalhlutverk And-
rew Keir, Vivien Heilbron
og James Grant. Þýðandi
Silja Aðalsteinsdóttir. Efni
1. þáttar: Sagan gerist á bú-
garði Guthrie-fjölskyldunn-
ar, Blawearie i Skotlandi.
Fjölskyldufaðirinn,, John
Guthrie, er harðlyndur bók-
stafstrúarmaður og beitir
konu sina og börn hörðum
aga. Elzta barnið er Chris,
sextán ára stúlka, bók-
hneigð og hraust á sál og
likama. En lifsbaráttan i
Kinraddie-héraði er erfið,
og þegar Jean Guthrie verð-
ur þess vör, að hún á von á
einu barninu enn, ákveður
hún að binda enda á lif sitt.
21.40 Nóbclsverðlaunahafar
1972. Kynningarþáttur um
tvo lækna og einn rithöfund,
sem á siðasta ári hlutu Nó-
belsverðlaun fyrir störf sin,
Heinrich Böll i bókmenntum
og Gerald Edelman og Rod-
um helgina
Mánudagur
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Þórhallur Sigurðsson
les áfram „Ferðina til
tunglsins” eftir Fritz von
Basserwitz (12). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög á milli
liða. Búnaðarþáttur kl.
10.25: Gisli Kristjánsson rit-
stjóri fer með hljóðnemann i
peningshúsin á Egilsstöðum
með Ingimar Sveinssyni
bónda. Morgunpopp kl.
10.40. " ~
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.15 Ileilbrigðismál. Arni
Björnsson læknir talar um
skarð I vör og góm (endurt.)
14.30 Siðdcgissagan: „Jón
Gerreksson” eftir Jón
Björnsson, Sigriður Schiöth
les (6).
15.00 Miðdegistónleikar: Tón-
list eftir Dvorák.
16.25 Popphornið.
17.10 Framburðarkennsla i
dönsku, ensku og frönsku.
17.40 Börnin skrifa.Skeggi As-
bjarnarson les bréf frá
börnum.
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Daglegt mál. Indriði
Gíslason lektor sér um þátt-
inn.
19.25 Strjálbýli — þéttbýli.
Þáttur I umsjá Vilhelms G.
Kristinssonar fréttamanns.
19.40 Um daginn og veginn.
Guðjón B. Baldvinsson full-
trúi talar.
20.00 lslenzk tónlisLa. „Eld-
ur”, balletttónlist eftir Jór-
unni Viðar. Sinfóniuhljóm-
sveit íslands leikur; Páll P.
Pálsson stj. b. Lög eftir Jón
Leifs og Pál P. Pálsson.
Friðbjörn Jónsson syngur.
Guðrún Kristinsdóttir leikur
undir á pianó. c. „Ur
myndabók Jónasar Hall-
grimssonar”, tónlist eftir
Pál Isólfsson. Sinfóniu-
hljómsveit Islands leikur;
Bohdan Wodiczko stj.
20.40 Þættir úr sögu Banda-
rikjanna.Jón R. Hjálmars-
son skólastj. flytur erindi:
Hagstæð viðskipti við Napó-
leon.
21.00 Tónverk fyrir pianó og
hljómsveit eftir Tsjai-
kovský. Werner Haas og
óperuhljómsveitin i Monte
Carlo flytja. Stjórnandi:
Eliahu Inbal. a. Konsert
fantasia op. 56. b.
Andante.
21.40 islenzkt mál. Endurtek-
inn þáttur dr. Jakobs Bene-
diktssonar frá s.l. laugár-
degi.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Utvarps-
sagan: „Itaustferming”
eftir Stefán Júliusson. Höf-
undur les (5).
22.45 Hljómplötusafnið, i um-
sjá Gunnars Guðmundsson-
ar.
ney Porter i læknisfræði.
(Nordvision — Sænska'sjón-
varpið) Þýðendur Höskuld-
ur Þráinsson og Jón O. Ed-
wald.
22.30 Að kvöldi dags.Sr. Bern-
harður Guðmundsson flytur
hugvekju.
22.40 Dagskrárlok
Mánudagur
20.00 Fréttir
20.25 V'eður og auglýsingar
20.30 Nýjasta tækni og visindi
Lif á bláþræði (hjartasjúk-
dómar) Enn um öryggisút-
búnað bifreiða. Lækning og
cndurhæfing holdsveikra
Apoilo 17. Umsjónarmaður
Örnólfur Thorlacius
21.00 Mávurinn.Leikrit eftir
Anton Tsekov. Leikstjóri
Tuija-Maija Niskanen.
Aðalhlutverk Leena Uotila,
Kari Franck, Iris-Lilja
Lassila, Matti Oravisto og
Titta Karakorpi. Þýðandi
Kristin MantylS. Leikurinn
gerist á rússneskum bú-
garði um aldamótin siðustu.
Eigandinn, kunnur rit-
höfundur, kemur heim
ásamt konu sinni, sem er
fræg leikkona. Vinir þeirra
hjóna eru tiðir gestir á bæn-
um og hafa mörg og misjöfn
áhugamál. (Nordvisison —
Finnska sjónvarpið)
23.15 Dagskrárlok.
Sjálfstætt fólk Halldórs Laxness líkist
óneitanlega Sólsetursljóði
Framhaldsmynda-
flokkurinn skozki, sem
hóf göngu sína í sjón-
varpinu síöasta sunnu-
dag, Sólsetursljóð, hefur
vakiö mikla hrifningu
sjónvarpsáhorfenda.
Þýöandi texta
myndarinnar, Silja
Aðalsteinsdóttir, sagöi
okkur eftirfarandi um
'höfund sögunnar og
söguna sjálfa:
— Það var dálitið verk að
hafa upp á höfundi sögunnar
L.G. Gibbon enda heitir
máðurinn öðru nafni James
Leslie Mitchell, og skrifaði
bókina undir dulnefninu
Gibbon.
Þó tókst mér að hafa upp á
honum i einu ágætu lexikoni,
og þar segir, að um sé að ræða
þriggja binda verk, sem fullu
nafni heitir A SCOTCH
QUAIR, en fyrsta bókin Sól-
setursljóð. Orðið quair á
skozku mun þýða það sama og
islenzka orðið kver.
1 lexikoninu segir, að
Gibbon sé eini maðurinn á
Bretlandi sem hafi skrifað á
þessum árum, upp úr
kreppunni i Bretlandi, bók-
menntir, sem jafnframt eru
marxiskar, það er að segja,
bækur, sem hafa ennþá gildi
sem bókmenntir.
Stúlkan sem segir söguna i
fyrstu bókinni, Sólsetursljóði,
vex upp i hinum bókunum, og
verkið endar þegar hún er
kona á miðjum aldri en sonur
hennar, sem hún eignast með
manninum sem hún giftist i
þessum þáttum, verður feyki-
lega mikill kommúnistaleið-
togi og hugsjónamaður á
kreppuárunum.
Fyrsta bindið endar þegar
þessi verðandi kommúnisti er
enn barn að aldri, og ég veit
ekki til þess að hin tvö bindin
hafi verið mynduð, né heldur
að verið sé að mynda þau.
Höfundur verksins dó þegar
hann var aðeins 35 ára, og ég
held aö eftir hann liggi ekki
nein önnur verk. Þetta verk
finnst mér sérstaklega likt
Sjálfstæðu fólki Laxness, eða
kannski réttara sagt, Sjálf-
stætt fólk likt þessu verki, þvi
það kom út fyrr en verk
Laxness.
Verkið, sérstaklega fyrsta
bókin, sem kom út 1932, fjallar
um baráttu einyrkjans, og svo
fer það út i baráttu verka-
mannsins þegar kemur að
kreppuárunum.
Það eru hreint ótrúlega
likar lifsskoðanir sem koma
fram i þessu verki og siðar i
Sjálfstæðu fólki. Það er i
rauninni alveg það sama sem
þeir eru að fjalla um i þessum
tveim bókum.
Þetta fólk, sem þarna er
tekið til meðferðar, er það
siðasta af sinni gerð; fólk sem
þröngvar lifsframfæri sinu
upp úr jörðinni með hörðum
höndum, og drepur sjálft sig
fyrir rest, og allt i kring um
sig, vegna þess að það á við
alit of mikla erfiðleika að
striða.
Erfiðismaðurinn i Sólseturs-
ljóði hugsar miklu meira um
jörðina eins og Bjartur i
Sumarhúsum hugsaði um
kindurnar sinar meir en fólkið
sitt. Og Rósa, hún deyr af
barnsförum meðan maðurinn
hennar er i burtu, en kona
bóndans i Sólsetursljóði
drepur sig vegna þess að hún
er ólétt og kviðir svo mikið
fyrir þvi að eiga barnið.
Þannig mætti tina til ótal
Silja Aðalsteinsdóttir.
dæmi um eitt og annað, sem
likt er með verkunum, bæði i
viðhorfum og verknaði.
Mig langar að Iokum til að
taka það fram, að það var ekki
rétt, sem fram kom i kynningu
sjónvarpsins með myndinni,
að þarna færi sýning, sem
meðal annars segði frá hjátrú
fólks i Skotlandi. Þetta er alls
ekki rétt, þvi þetta merkilega
bókmenntaverk segir frá þvi
hvað þetta fólk átti virkilega
erfitt og bágt. —úþ