Þjóðviljinn - 11.05.1973, Blaðsíða 3
Föstudagur 11. maí 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Frá höfuðborgaáöstefnunni f Myndlistarhúsinu
Framsöguræðum hespað
af og umræðum sleppt
stjórnar Reykjavikur. Kom þvi
ekki fram annað á fundinum i
gærmorgun en það, sem ráð-
stefnufulltrúar höfðu þegar feng-
ið fjölritað i hendur heima hjá
sér, en eins og einhver sagði yfir
hádegisverðinum: bað eru hvort
sem er persónulegu kynnin og
viðræðurnar, sem eru mikilvæg-
ust við svona samnorrænar sam-
komur.
— til að fulltrúar á höfuðborgaráðstefnunni gœtu farið til Vestmannaeyja
Höfuðborgaráðstefnu
Norðurlandanna verður
slitið i dag kl. 2 i Mynd-
listarhúsinu. Þar sem
fulltrúar áttu i morgun
að fá tækifæri til að fara
til Vestmannaeyja ef
veður leyfði var dag-
skránni breytt og hún
tæmd fyrir hádegi i gær.
Var þá rætt um varð-
veizlu gamalla húsa og
um upplýsingaþjónustu
sveitarfélaga.
Framsögumenn i gær um varð-
veizlu gamalla bygginga vegna
sögulegs og menningarlegs gildis
þeirra voru A.K. Leskinen vara-
borgarstjóri Helsinki, A. Wassard
borgarstjóri i Kaupmannahöfn,
Dagfinn Austad menningarborg-
arstjóri í Oslo, Per-Olof Hanson
borgarfltr. Stokkhólmi og
Kristján Benediktsson bfltr.
Reykjavik. Gerðu þeir grein fyrir
stefnu og ástandi þessara mála
hver i sinni borg, en litið varð um
frjálsar umræður á eftir, þar sem
allt kapp var lagt á að hespa dag-
skránni af sem fyrst.
Fulltrúar Torfusamtakanna
komu á fundarstað i gærmorgun,
en fengu ekki leyfi til að dreifa á
ráðstefnunni bréfi, þar sem vakin
er athygli á ástandi Bernhöfts-
torfunnar og nauðsun aðgerða til
verndar henni um leið og fagnað
er umræðuefni fundarins. Dreifi-
bréf Torfusamtakanna fékk þó að
liggja á borði frammi í gangi
hússins, en fáir munu hafa veitt
þvi eftirtekt.
Af sömu ástæðum og fyrr urðu
umræður um upplýingaþjónustu
sveitarfélaga alls engar að lokn-
um framsöguræðum, sem þeir
fluttu Pentti Poukka forseti
borgarstjórnar Helsinki, Egon
Weidekamp forseti borgarstjórn-
ar Kaupmannahafnar, Bernt
Lund fjármálaborgarstjóri Osló,
Albert Aronson borgarfulltrúi
Stokkhólmi og Markús örn
Antonsson fyrir hönd borgar-
Og til hinna persónulegu kynna
og viðræðna virðist fuiltrúum
skammtaður all sæmilegur timi i
veizlum og ferðalögum i sam-
bandi við ráðstefnuna. Þeir fóru
siðdegis i gær i skoðunarferð um
Reykjavik og siðan i heimsókn til
forsetans á Bessastöðum, en um
kvöldið hélt borgarstjórn Reykja-
vikur samsæti að Hótel Sögu. 1
morgun áttu þeir að fljúga i tveim
hópum til Vestmannaeyja og að
ráðstefnuslitum loknum fara
austur fyrir fjall og til Þingvalla
og borða kvöldverð þar. 1 gær
sátu þeir boð Hannibals Valdi-
marssonar félagsmálaráðherra.
— vh
Rœtt við borgarfulltrúana frá hinum Norðurlöndunum
Peder Boas Jensen
Hvað
— Hvað álítur þú mikilvæg-
asta verkefni hverrar borgar-
stjórnar?
Þessa spurningu lagði Þjóð-
viljinn i gær fyrir fjóra út-
lendu fulltrúanna á höfuð-
borgaráðstefnu Noröurlanda
og fara svör þeirra hér á eftir.
Að hafa stjórn
á þróuninni
Pcdcr Boas Jensen er full-
trúi Vinstri sósíalistaflokksins
i borgarstjórn Kaupmanna-
hafnar og sker sig úr á ráð-
stefnunni sakir frjálslegs
klæðaburðar. Hann svaraði:
— Það erunáttúrlega mörg
mál mikilvæg, en einmitt núna
finnst mér borgarskipu-
lagningin, skipulagning
umferðar og þróunin i þessum
málum vera það þýðingar-
mesta. Það er á þessu sviði,
sem einna mest skeður,
stækkun borganna er mjög ör
og ekki hægt að leyfa einka-
aðilum að byggja hvar sem er,
og hvernig sem er. Það er ekki
sama hvernig og hvar
umferðin liggur. Það er mikil-
vægt að hafa stjórn á þessari
þróun.
Málefni aldraðra
Ragnhild Eriksen borgar-
fulltrúi Verkamannaflokksins
i Osló taldi, að það mikilvæg-
asta hlyti alltaf að vera það
sem fjallað væri um hverju
sinni. — En sem formaður
félagsmálaráðs Oslóborgar er
eðlilegt, að ég taki félags-
málin fram yfir önnur, þau
eru þýðingarmikil fyrir flesta,
þvi alla ævina, frá vöggu til
grafar,hefur maður þörf fyrir
vissa vernd, hjálp eða aðstoð á
einn eða annan hátt.
Af félagsmálunum eru það
málefni aldraðra og meðferð
áfengissjúklinga sem eru
mikilvægust, a.m.k. i Osló.
Það skiptir miklu, að áfengis-
sjúklingar fái rétta meðferð,
en ekki minnu, að þeir fái
rétta meðhöndlan eftir á,
eftirvernd svokallaða. Það er
ekki nóg, að fá læknismeðferð
og vera svo kastað varnar-
lausum út i lifið aftur.
Fyrir aldraða er það upp-
bygging sjúkraheimila, sem
er mest aðkallandi hjá okkur
núna. Fólk lifir jú miklu
lengur nú en áður, en býr ekki
lengur við jafn náin fjöl-
skyldutengsl og áður var,
þannig að þeir ungu geta ekki
séð um á öldruðu.
Ragnhild sagði, að i Osló
væri gert allt það fyrir aldr-
aða, sem talið er nauðsyn i
velferðarþjóðfélögum, svo
sem að sjá þeim frisku fyrir
húsnæði og tómstundavinnu
og reynt að hafa nægilegar
ibúðir fyrir aldraða, næg elli-
heimilispláss og sjúkra-
heimili. Fram að þessu hafa
veriðbyggð hús fyrir aldraða,
en nú er hætt að leggja áherzlu
á nýbyggingar og stefnt að þvi
bæði af riki og bæ að halda
heldur við gömlum ibúðum,
sem aldraðir búa i, svo þær
verði þægilegri og hollari
bústaðir.
— Það eru nógar
breytingarnar samt, sem þeir
öldruðu þurfa að ganga
gegnum, sagði hún, þótt ekki
bætist við ibúðaskipti, td. að
hætta vinnu og allt sem þvi
fylgir. Það er erfið breyting
fyrir gamalt fólk að skipta um
ibúð af þvi að hún er þvi of
erfið, siðan aftur að flytja
kannski á elliheimili og þurfa
að fara að lifa eftir ein-
hverjum settum reglum.
Ég álit þetta beinlinis skað-
legt og finnst að tala eigi við
gamla fólkið og komast eftir
þvi hvað það sjálft vill. Það
ætti reyndar að vera stefna i
öllum félagsmálum að fara
eftir þvi sem „neytandinn”
vill.
Það er mikilvægt, að þeir
sem njóta eiga félagslegrar
aðstoðar ákveði sjáfirá hvern
hátt hún sé veitt og þessvegna
er það ómetanlegur stuðn-
ingur, að i Osló hafa ellilaun-
þegar myndað með sér
samtök, sem hægt er að leita
til um álit i sambandi við
ýmsar framkvæmdir. Þessi
samtök koma lika sjálf með
tillögur og standa fyrir marg-
vislegri starfsemi fyrir aldrað
fólk.
Fleira fólk — færri
banka og skrifstofubákn
— Þetta er erfið spurning,
sagði Arne Söderquist, sem er
borgarfulltr. Vinstri flokksins
— kommúnistanna i Stokk-
iiólmi, og getur verið mismun-
andi eftir löndum, hvað cr
mikilvægast á hverjum tima. i
Slokkhólmi cr það sérstakt
vandamál, að skrifstofu-,
hanka og verzlunarbyggingar
hafa hrakið ibúana burt úr
borginni og þeir hafa flutt til
nágrannabæjanna. Þessiþróun
hefur orðið til þess, að bæði
hefur ibúunum fækkað i heild
og aldurshlutfallið hefur rask-
azt, þannig að við höfum mjög
stórt hlutfall aldraðra og þar
af leiðandi lakari skatta-
grundvöll.
Þar að auki hefur Stokk-
hólmur misst burt úr borginni
iðnað og þarmeð iðnverka-
fólkið og þvi er það eitt mikil-
vægasta verkefnið i Stokk-
hólmi nú að koma annars-
vegar á fót atvinnurekstri i
iðnaði i borginni og hinsvegar
að berjast gegn innflutningi
banka og skrifstofa svo meira
plássverði fyrir vinnandi fólk.
Þetta er lika nauðsynlegt
vegna þess að við búum við
atvinnuleysisvandamál i
Stokkhólmi, sem bitnar allra
verst á unga fólkinu. Allra
mikilvægasta verkefni
hverrar borgarstjórnar hlýtur
alltaf að vera að tryggja at-
vinnu, öryggi og afkomu
ibúanna.
— Mér finnst mikilvægast
að vinna fyrir kjósendur sina,
sagði Karmela Bélinki,
fulltrúi sænska þjóðflokksins i
borgarstjórn Helsinkis, en hún
er yngsti fulltrúinn á ráðstefn-
unni, 25 ára gömul.
— En jafnframt verður
maður að vinna á þann hátt,
að það striði ekki gegn eigin
sannfæringu og áliti á mál-
efninu, hvert sem það er.
Mér finnst ekki hægt að
skipta verkefnunum niður i
mikilvæg mál og siður mikil-
væg og afgreiða kannski eitt á
kostnað annars, heldur verði
að lita á öll borgarstjórnar-
málin sem eina heild. Það
leiðir af sjálfu sér, að eftir
hæfileikum, menntun og
áhugamálum leggjast á mann
ákveðin verkefni fremur en
önnur, en það þýðir ekki að
vanrækja megi önnur málefni,
þvi til að ráða við þau verkefni
sem maður fær verður að
skilja heildina. Til að skilja,
hvernig unnið verður að
félagslegum verkefnum td.
verður lika að skilja sam-
hengið i efnahagsmálunum i
illu borgarkerfinu. —vh
Myndir og
texti: — vh.