Þjóðviljinn - 11.05.1973, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 11.05.1973, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 10. mal 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13 skila barninu aftur þegar i stað. Hún þagði við til að þurrka sér um augun. — Hugsið sem snöggv- ast um ykkar eigin móður, hugsið um fórnarlundina sem leggur allt i sölurnar og krefst einskis að launum — og sýnið miskunn þess- ari móður, sem er að bugast, and- lega og likamlega. . . — Drottinn minn góður! hvisl- ' aði Lissa og engdist i stólnum. Ivora hélt áfram i sama dúr: — Ég hef flogið yfir hálfan hnöttinn til að geta verið hjá dóttur minni á þessum raunatimum. En hún Litla gula hœnan sagði: Margt býr í þokunni Menn geta kallað Sjálfstæðis- flokkinn „hægri” flokk, eða „ihalds” flokk. Við það verðum við litlu nær. Ef við köllum hann „hægri” flokk getum við sagt, að þar með sé þvi þó slegið föstu, að hann sé ekki „vinstri” flokkur. En vitum við þá hvað „vinstri” flokkur er? Jóhann Ilafstcin i ræðu yfir 700 sjálfstæðismönnum á landsfundi. Mbl. 8.5. 1973. hefur ekki þörf fyrir mig. Hún hefur þörf fyrir barnið sitt, þörf fyrir að hafa það i örmum sér, hlæjandi og glatt. Gleymið peningunum, gleymið öllu nema þeirri hamingju sem þið getið veitt öðrum — Andy hugsaði 32 ósjálfrátt með sér, að Ivora hefði áreiðanlega áhuga á þvi að spara lausnargjaldið, —■ og komið með Drew litla til okkar allra, sem elskum hann. Hún hafði lokið máli sinu. Ivora hélt áfram að stara bænaraugum i myndavélina, áður en hún laut höfði og setti sig i stellingar sem áttu að sýna djúpa sorg. Þulurinn sagði með virðingu i rómnum: — Kærar þakkir frú Deane. Þetta ákall frá frú Deane, ömmu Paxtonsdrengsins, verður endur- tekið tvivegis i kvöld, klukkan niu og aftur klukkan hálftólf, rétt fyrir miðnætursýninguna, en i kvöld sýnum við Sekur áhorfandi með Zachary Scott og Faye Emerson i aðalhlutverkum. Lissa stóð upp og braut munn- þurrkuna vandlega saman. — Ég er ekki sérlega svöng. I þetta skipti hafði Ivora gengið svo langt, að jafnvel dóttur hennar of- bauð. Hún flýtti sér út úr borð- stofunni og slökkti ekki einu sinni á sjónvarpinu. Hún leit ekki i átt- ina til eiginmanns sins. Hún skammaðist sin bersýnilega of mikið. Andy tók þetta ekki eins nærri sér og hún. Hann var hættur að búast við neinu góðu af Ivoru. Hann vissi hvilika þörf hún hafði fyrir að láta á sér bera, og það var það sem bjó fyrst og fremst undir þessu tiltæki. Þetta gerði þau öll ögn hlægilegri, það var allt og sumt. Hann gerði sér ekki minnstu vonir um að ákallið bæri árangur. Þeir sem rænt höfðu Drew og myrt barnfóstru hans, voru ekki sérlega tilfinninga- næmir. Hann lokaði fyrir rugby- fréttirnar sem þulurinn var að lesa. I þögninni sem á eftir kom, heyröi hann sima hringja einhver- staðar i húsinu. Það tók hann andartak að átta sig á hvaðan hljóðið kom, það var einkasimi hans I svefnherberginu. Hann fékk skyndilegt hugboð. Hann hljóp upp stigann, þrjú þrep i einu. Stundin — simahring- ingin, rétt eftir leikrænt ákall Ivoru — gaf honum þá hugmynd,. aö hið óliklega gæti ef til vilí gerzt. Hann þaut inn i herbergi sitt og þreif tólið: — Halló, más- aði hann, dauðhræddur um að hinn aðilinn hefði lagt á. Hann heyrði karlmannsrödd, þvoglulega og ókunnuglega. — Eruð það þér, kanarifugl.? Andy hafði ekki gert ráð fyrir að hann þekktist, en starði nú hvasst á hann. — Þekkjumst við? — Þér munið sennilega ekki eftir mér. Ég heiti Ryder frá Borgarfréttum. Blaðamaður. Andy varð sam- stundis varfærnari. —- Ég átti leið hjá og ætlaði að heilsa upp á Bake. Það var verst aö ég skyldi ekki koma nógu timanlega. Hve- nær fór hann? — Þér hafi sennilega mætt hon- um á leiðinni hingað, sagði Ryd- er. — Sjúkrabillinn er nýfarinn. Bake framdi sjálfsmorð fýrir nokkrum klukkutimum. Oröin skullu á Andy eins og heljarhögg i kviðinn. — Framdi sjálfsmorð? Bake? Það er ekki satt! — Ég vildi svo sannarlega óska að það væri ekki satt, sagði for- stjórinn biturlega. — Við erum ekki hrifnir af svona auglýsing- um. — En hvernig? Hvers vegna? Andy var allt i einu orðinn svo þurr i kverkunum aö hann gat varla komið upp orði. — Skar sig á háls með rakvél- arblaði, sagði Ryder. — Þannig fór hann að þvi. Þér getið kannski sagt okkur hvers vegna, herra Paxton? Hann skildi ekki eftir neitt bréf. Andy sneri sér við og reikaði út úr skrifstofunni. Hann rakst beint á einn pálmann sem mótelið dró nafn af, og stundarkorn hélt hann i hálan stofninn til að verjast falli. Allar grunsemdirnar voru á bak og burt. Aðeins ein hugsun komst að hjá honum. Bake var dáinn. Bake, vinur hans, kærari en nokkur bróðir, hafði stytt sér ald- ur. Hann heyrði raddir. Þegar hann leit upp, sá hann að það voru menn allt i kringum hann. Hann þekkti þá án þess að vita hvað þeir hétu, blaðamennirnir. Þeir höfðu elt hann að heiman og dott- ið ofaná frétt sem var betri en þeir höfðu þorað að vona. Þeir töluðu hver upp i annan til að reyna að vekja athygli hans — og fá viðeigandi birtingarhæfa at- hugasemd. Herra Paxton, hvern- ig útskýrið þér. . . Er það satt það hafi verið hefnigirni. . . Andy, haldið þér að samband sé á milli ránsins og. . . Þeir voru kurteisir, næstum til- GLENS FÖSTUDAGUR 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45. Morgunleikfimi kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Edda Scheving heldur áfram sögunni „Drengjun- um minum” eftir Gustaf af Geijerstam (5). Til- kynningar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. Spjallað við bændur kl. 10.05. Morgun- poppkl. 10.25: Hljómsveitin Free og Peter Frampton syngja og leika. Fréttir kl. 11.00. Tónlistarsaga (endurt. þáttur A.H.S.) Kl. 11.35: Michel Beroff og Orchestre de Paris leika Konsert fyrir pianó og blásturshí jóðfæri eftir Stravinski. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.30 Meö slnu lagi. Svavar Gests kynnir lög af hljóm- plötum. 14.30 Siðdegissagan: „Sól dauðans” eftir Pandelis Prevelakis. Þýðandinn, Sigurður A. Magnússon les. (7). 15.00 Miðdegistónleikar: Leontyne Price syngur „Frauenliebe und Leben” op. 42 eftir Schumann; David Garvey leikur á pianó. Hephzibah og Yehudi Menuhin leika Sónötu nr. 10 i G-dúr fyrir fiðlu og pianó op. 96 eftir Beethoven. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Til- kynningar. 16.25 Popphorniö. 17.10 Þjóðlög frá ýmsum löndurn. 18.00 Eyjapistill. Bænarorð. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.40 Garðyrkjuþáttur. Öli Valur Hansson ráðunautur flytur. 20.00 Tónlcikar Sinfóniu- hljómsvcitar tslands i Háskólabíói kvöldið áður. Stjórnandi: Alexander Rumpf frá Þýzkalandi. Ein- leikari á fiðlu: Guðný Guðmundsdóttir. a. Til- brigði op. 56a eftir Johannes Brahms um stef eftir Joseph Haydn. b. Fiðlu- konsert i a-moll op. 53 eftir Antonin Dvorák. c. Sinfónia nr. 2 i D-dúr op 36 eftir Ludwig van Beethoven. 21.30 Útvarpssagan: „Músin, sem læðist” eftir Guðberg Bergsson. Nina Björk Arnadóttir les (3). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Þættir úr sögu Bandarikjanna.Jón R. Hjálmarsson skólastjóri flytur erindi: Vestrið og vaxandi lýðræði. 22.35 Létt músik á siðkvöldi: Frá hollenzka útvarpinu. Hollenzkar hljómsveitir leika vinsæla tónlist. Heins Schröder og Dolf van der Linden stjórna. 23.45 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. 20.00 Fréttir, 20.25 Veður og auglýsingar, 20.30 Karlar i krapinu. Ileng- ingar virði. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 21.25 Sjónaukinn. Umræðu-og fréttaskýringaþáttur um innlend og erlend málefni. 22.10 Frá Armeniu. Finnsk kvikmynd um Armeniu og ibúa hennar. Rætt er við fólk um lifsskilyröi og fram- farir og fjallað um sögu og hælti þjóðarinnar. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 22.40 Dagskrárlok. isuffiflEsiíi mmm hL U IMnVPHSK IIMIIR AVKHrtl n INDVERSKUNDRAVERÖLD Nýjar vörur komnar, m.a. ilskór, útskorin borð, vegghillur, vegg- stjakar, könnur, vasar, borðbjöllur, öskubakkar, skálar og mangt fleira. Einnig reykelsi og reykelsiskerin i iniklu úrvali. Gjöfina sem veitir varanlega ánægju fáið þér I JASMtN Laugavegi 133 (viö Hlemmtorg) Framleiði SoLo-eldavélar af mörgum stærðum og gerö- um. — einkum hagkvæmar fyrir sveitabæi, sumarbústaði og báta. — Varahlutaþjónusta — Viljum sérstaklega benda á n'ýja gerð einhólfa eldavéla fvrir smærri báta og litla sumarbústaði. KLDAVKLAVERKSTÆÐI ÍÓHANNS FR. KRISTJANSSONAR H.F. KLEPPSVEGI 62'. — SÍMI33069.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.