Þjóðviljinn - 11.05.1973, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 11.05.1973, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. mai 1973 76 hafernir taldir í fyrra Fyrir skömmu var haldinn aðalfundur Fuglaverndarfélags tslands. Formaður félagsins, Magnús Magnússon prófessor, flutti yfirlit yfir starfsemi þess. Kom þar m .a. fram að árangur af aðgerðum til verndar haferninum varð fremur góður. Taldir voru i fyrrasumar 53 fullorðnir fuglar, 9 ungfuglar og 14 ungar. Félagiö sá um eftirlit með arnarhreiðrum og naut þar til aðstoðar bænda i grennd við varpstöðvar. Einnig lét félagið kasta hræjum fyrir erni þann árstima, sem þeir eiga erfiöast um ætisöflun. bá kom fram i skýrslu formanns að nokkrar aðrar fuglategundir geta verið i útrýmingarhættu, s.s. snæugla, haftyrðill, keldusvin og þórshani. bessum fuglum stafar hætta af óvarkárni fulgaskoðara og ljósmyndara, svo og frá eggja- söfnurum og veiðimönnum. Er talið að snæuglan sé alloft skotin af mönnum, sem bera ekki kennsl á hana, þar eö hún er þaö sjald- gæfur fugl. Formaður fuglaverndar- félagsins benti á að mikilvægt væri að fylgjast með þvi, hvaða áhrif eldgosið i Heimaey kynni að hafa á varpstöðvar sjó- og stormsvölunnar i Elliðaey og Yztakletti. Loks talaði hann um nauðsyn á söfnun upplýsinga um fuglalif landsins, s.s. um kjör- lendi fugla, og minnti á þýðingu þess aö gerðar væru náttúru- fræðilegar rannsóknir á landsvæðum áður en til mann- virkjagerðar kæmi. A liðnu ári voru félagsmönnum sýndar nokkrar litskuggamyndir um fuglalif og náttúrufar. Fyrir- hugaðar eru 2-3 fuglaskoðunar- ferðir nú i sumar (likl. fyrst 20. mai), og mun þess gætt að unglingar geti tekið þátt i þeim. bá er útgáfa félagsrits i undir- búningi. Formaður, varaformaður og gjaldkeri voru endurkjörnir Magnús Magnússon prófessor, Björn Guðbrandsson læknir og Reynir Armannsson póstfulltrúi. Aðrir stjórnarmenn voru kjörnir: Baldur Pálmason útvarpsfulltrúi, Gestur Guðfinnsson blaðamaður, Grétar Eiriksson tæknifræðingur og Hjörtþór Agústsson rafvirkja- meistari. (Frétt frá Fuglaverndarféiagi íslands) A þessari mynd sjást væntanlegir utanlandsfarar Skólahljómsveitar Kópavogs ásamt nokkrum meölimum úr „Litlu lúörasveitinni”. Skólahljómsveit Kópavogs í Norðurlandaferð 25. maí næstkomandi heldur Skólahl jómsveit Kópavogs utan og mun sækja heim nágranna okk- ará Norðurlöndunum. Far- ið verður til Norges, Finn- lands, Oanmerkur og Sví- þjóðar, og munu forsvars- menn vinabæja Kópavogs í hverju landi annast mót- töku og skipulagningu tón- leika á viðkomandi stöðum. Það er eldri deild lúðrasveitarinnar sem fer í þessa ferð, en hana skipa 53 hljóðfæraleikarar og mun það vera fjölmennasta lúðrasveit á landinu. Skólahljómsveit Kópa- vogs heldur tónleika í Há- skólabiói n.k. laugardag og hefjast þeir klukkan 15,00. Þar verða væntanlega flutt þau lög sem frændum vor- um verður boðið uppá í ut- anlandsferðinni. stjórnandi hornaþeytaranna, en með honum hafa kennt þeir Vil- hjáimur Guðjónsson og Jóhannes Eggertsson. Jósef Magnússon heitir svo þriðji kennarinn, og hóf hann starf sitt i byrjun þessa vetrar. Flestir sem horfa á einhverja flokka eða einstaklinga sýna listir sinar gera sér grein fyrir þeirri geysilegu æfingu sem á bak við liggur. Vister að árangur sá, sem Skólahljómsveit Kópavogs hefur náð, er ekki fenginn með ein- hverri galdraaðferð eða vegna þess að lýörasveitina skipi ein- göngu tónlistarsnillingar og séni. brotlaus vinna stjórnanda, kenn- ara, forsvarsmanna og meðlima hljómsveitarinnar liggur á bak við. Hver hljóðfæraleikari æfir venjulega fjórum til fimm sinn- um i viku, en undanfarið hefur verið æft mun oftar. Eins og áður er sagt heldur Skólahljómsveitin tónleika i Há- skólabiói n.k. laugardag. A dag- skrá þar verða m.a. islenzk rimnalög, lög úr söngleikjum, marsar o.fl. Stjórnandi verður Björn Guðjónsson, kynnir bor- steinn Hannesson. Aðgöngumiða- sala hefst í Háskólabiói klukkan 4,00 I dag. Fjölmenni á samkomu TÍM 9. maí Fjölmenni var á árlegri sam- komu Tékknesk-islenzka félags- ins, sem haldin var i Tjarnarbúð i fyrrakvöld, 9. maí, i tilefni þjóð- hátiðardags Tékkóslóvakiu. Ræður fluttu sendifulltrúi Tékka hér á landi, Josef Rajchart, og Lúðvik Jósepsson viðskiptamálaráðherra og lögðu þeir báðir áherzlu á traust við- skipta- og vináttusambönd Is- lendinga og þjóða Tékkóslóvakiu. Kom fram i ræðum þeirra, að i næsta mánuði verður opnuð hér i Reykjavik tékkóslóvösk kaupstefna og munu koma hér fram i tengslum við han tékk- neskir og slóvaskir iistamenn. Sagði viðskiptaráðherra það bera vott um hug Tékkóslóvaka til Is- lendinga, að þeir skyldu standa fyrirslikri vörusýningu hér einir. Auk islenzkra félaga i TIM sóttu samkomuna Tékkar, sem hér eru búsettir, aðallega tón- listarmenn, og fleiri gestir. —vh Flugmenn bálreiðir út í nýja reglugerð Skólahljómsveit Kópavogs var stofnuð haustið 1966. Var þá val- inn um 40 manna hópur úr 12 ára bekkjum barnaskólanna, og margir úr þeim hóp þeyta lúður- inn enn af fullum krafti með hljómsveitinni. Nýir meðlimir eru þó teknir inn á hverju hausti, og nú eru börn á aldrinum 10—12 ára i sérstökum hóp sem kallar sig þvi hógværa nafni, „Litla lúðrasveitin” eða yngri deild Skólahljómsveitarinnar. Saman- lagður meðlimafjöldi lúðrasveit- anna er um 80 manns. Björn Guðjónsson hefur frá upphafi verið aðalkennari og Flugmenn eru nú margir rasandi vegna reglugerðar sem samgönguráðherra gaf út 20. marz s.l. Reglu- gerð þessi gildir frá 1. maí s.l. og fengu flugmenn fyrst að vita um hana fyrir fáeinum dögum. bað sem flugmenn gagnrýna helzt i reglugerðinni er mikið vald flugmálastjóra — ekki flugmála- stjórnar — og að fiugmannaskir- teini séu nú aðeins „ómerkilegur lappi” eins og einn flugmaður sem hafði tal af blaðamanni bjóð- viljans i gær komst að orði. Máttur einhaframtaksins: Hlutur „eigand- ans” er 7/60 %: Þjóðviljinn hefur undanfarið sýnt fram á hver eignarhluti togara- útgerðarmannsins Sverris Hermannssonar er f togurunum ögra og Vigra. Til þessa hafa fundizt í opinberum sjóðum 97,5% kostnaðar- verðs togaranna, sem til útgerðarinnar hafa verið ánuð, þaraf 5 miljónir úr lífeyrissjóði sjómanna. lánuð, þar af 5 miljónir úr lífeyrissjóði sjó- manna. Enn hefur nokkuð skýrzt með eignarhluta útgeröar þeirrar sem gerir út þessa tvo togara. Hlutaféð i fyrirtækinu, ögurvik, er 7 miljónir. Hversu mikið af því fé er fengið að láni úr bönkum og peninga- stofnunum er ekki vitað. Af þessum 7 miljónum er eignahluti „stórútgerðar- mannsins og alþingis- mannsins” Sverris 5% eða 350 þúsund krónur, sem gerir 175 þúsund á togara. Hvor togari er uppgefinn á verðinu 150 miljónir. bvi er eignarhluti Sverris 350 þúsund af 300 miljónum, eða 175 þúsund af 150 miljónum, þ.e. hvorum togara um sig. Sé eignarhlutinn reiknaður i prósentum er um að ræða 7/60 %en lifeyrissjóður sjó- manna, sem lánaði 5 miljónir „Stórútgeröarmaðurinn” Sverrir Hermannsson til kaupa togaranna, á þá 1 2/3% eða rúmlega 14 sinnum meira en Sverrir. bað er ekkert pinulitið að vera stórútgerðarmaður á Islandi • —úþ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.