Þjóðviljinn - 11.05.1973, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 11.05.1973, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. mai 1973 UOWIUINN MALGAGN SÓSiALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Ctgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb.) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 iinur). Askriftarverö kr. 300.00 á mánuöi. Lausasöluverö kr. 18.00. Prentun: Blaöaprent h.f. YARÐSKIPSMENN BEITA NÚ NÝRRI TÆKNI Það hefur ekki verið mikið auglýsinga- skrum i kringum störf islenzku varðskips- mannanna á undanförnum mánuðum. Fréttir af stórmerkri nýjung við togvira- klippingarnar, sem varðskipsmenn okkar hafa verið að prófa sig áfram með að undanförnu, hafa t.d. ekki verið háværar, fyrr en brezk blöð skýrðu frá þvi hvernig komið væri, en i enska blaðinu Observer segir i grein, sem þar birtist siðast liðinn sunnudag, frá nýrri og árangursrikri að- ferð varðskipsmanna okkar. Greinarhöfundur skýrir frá einvigi, sem átti sér stað nokkrum dögum áður á mið- unum úti af Hvalbak milli brezka land- helgisbrjótsins Notts Forest og varðskips- ins Ægis, undir skipsstjórn Höskuldar Skarphéðinssonar. Þarna var beitt með árangri nýrri aðferð við klippingarnar, með þeim afleiðingum, að áhyggjur brezkra togaramanna hafa greinilega stóraukizt. Hinn enski greinarhöfundur segir m.a., er hann hefur lýst atburðunum úti af Hvalbak: „Ef brezkir togarar eiga að verja sig gegn þessum nýju brögðum munu þeir nú þurfa að minnsta kosti tvo togara til verndar hverjum einum og allir virðast á einu máli um að af slikum veiðum væri ekki fjárhagslegur ábati. — Við rétt merj- um það með þvi að láta einn togara gæta annars, segir Tom Nielsen, ritari Brezku togarasamtakanna. En ef við þurfum að láta tvo togara gæta eins, hverju sinni, þá mun aflamagnið fljótt minnka”. Þetta v.oru ummæli hins enska greinar- höfundar, og fer ekki milli mála að hin nýja tækni varðskipsmanna hefur komið Bretum algerlega i opna skjöldu. Hér er um að ræða aðferð við viraklipp- ingarnar, sem vissulega getur skipt sköp- um i átökunum á Islandsmiðum, en frá þessari nýjung var fyrst skýrt i islenzkum blöðum i viðtali, sem Þjóðviljinn átti við Jónas Árnason, alþingismann, er hann kom i land eftir ferð á miðin með varð- skipinu Óðni fyrir nokkrum dögum. Það hefur verið nógu erfitt fyrir Breta að stunda veiðar með þeim hætti að einn togari verndaði annan, hvað þá ef tveir verklausir verða að vera um hvern einn sem veiðir. Vist er um það, að rétt eru ummæli hins enska blaðs um ágæta sjómennsku varð- skipsmanna okkar. En þeir eru ekki að- eins góðir sjómenn, heldur hafa þeir einn- ig sjáifir skapað nýja tækni, sem getur orðið málstað okkar að ómetanlegu liði i landhelgisdeilunni. Þessir menn eiga skilið að fá i hendur allan þann búnað, sem völ er á, og má hér ekkert til spara. Vilji Bretar halda uppi ófriði hér á ís- landsmiðum getum við máske boðið þeim upp á að hafa að lokum nokkur herskip til verndar hverjum togara, og gerir floti hennar hátignar þá ekki mikið annað á meðan. Til marks um það, hvilikt uppgjafar- hljóð er nú komið i Breta, skal hér aftur vitnað til greinarinnar i Observer þann 6. mai, en þar segir: ,,íslenzkir varðskipsmenn hafa þróað nýja klippingaraðferð, sem er óbrigðul, nema þvi aðeins, að brezkir togaramenn séu tilleiðanlegir til að stunda veiðar við algerlega óviðunandi aðstæður, séð frá fjárhagslegu sjónarmiði.” — En hvað halda Bretar lengi út við landhelgisbrot sin hér, ef veiðarnar gefa ekki lengur ábata i aðra hönd? ÉG YONA AÐ VIÐ NAUM EINUM 99 Það er reyndar ekki aðeins á miðunum, sem brezka ljónið veit sig nú fara halloka fyrir íslendingum. Fróðlegt hefur verið að lesa blaðafrásagnir af umræðum i brezka þinginu um landhelgisdeiluna, en þær um- ræður fóru fram er samninganefnd Breta kom aftur til London frá Reykjavik nú á dögunum. Til viðbótar við fréttirnar um aukinn vanda Breta hér á miðunum, koma frá- sagnir af ræðum i brezka þinginu um þrjózku Islendinga við samningaborðið. Sem sýnishorn af þvi, hversu illa brezku samningamennirnir hafa borið sig við heimkomuna, vitnum við hér i ummæli James Johnson, sem var einn samninga- manna Breta, en þau viðhafði hann i þing- ræðu i London eftir heimkomuna. — „Maður þurfti ekki að vera þarna nema i nokkrar minútur til að komast að. þvi, að islenzka stjórnin — og þá einkum hinn þrjózki sjávarútvegsráðherra, Lúð- vik Jósepsson — hefur aldrei ætlað sér að koma með neitt tilboð, sem vit væri i. Þeir töluðu um 117.000 tonn og hreyfðu sig ekki þaðan. .. . og Lúðvik Jósefsson lauk með þvi að segja: — Ég vona að við náum einum bráð- lega, — og átti þar við töku togara”. Svona er nú hljóðið i Bretum, en þeir eru lika þrjózkir. Kristinn E. Andrésson: Morgunblaðið vanhelgar Njálu, en hampar Nixon og Bretum Hér á dögunum varð Morgun- blaðið eins og ungmey er sér ástardraum sinn rætast. Það ljómaði ásjónan á leiðarahöfundi blaðsins og kom sigurfögnuður i röddina þegar hann flutti þann boðskap að von væri hingað til lands á þjóöarleiðtogunum Nixon og Pompidou sem umleikur mest- ur dýrðarljóminn heima fyrir um þessar mundir. A þriðjudaginn var bárust Morgunblaðinu ný fagnaðarefni sem flutt voru meö stærsta letri á forslðu blaðsins: annað um ögr- anir Breta við islendinga svo- hljóöandi: „HERSKIP SEND A MIÐIN TAKI VARÐSKIP TOG- ARA — eða beiti föstum skotum”, og innrammaö til viðbótar: „Þörf herskipa til að vernda lif Is- lenzkra sjómanna ekki siður en togarana, sagði Antonie Cross- land”. Hitt fagnaðarefnið með stærsta letri: „Yfirlýsing Hvita hússins um Watergate: AÐ- DRÓTTANIR UM AÐILD FOR- Skotar atyrða ~M Æ9 M svo stafinaður. aft lajdina Skozki þjóðernisflokkurinn hefur stutt okkur dyggilega i landhelgisdeilunni við Breta. Þann 6. þessa mánaðar sendi hann eftirfarandi kveðju til lafði Tweedsmuir: „Skozki þjóðernisflokkurinn vill vara yftur vift þeim alvar- legu afieiðingum sem þaft gæti haft i för meft sér, aft stjórn yftar blandafti sér i islenzk inn- anrikismái með þvi að senda herskip á Islandsmift. Slfk ógnun við island, sérstaklega þegar þetta smáriki ætlar að gerast gestgjafi forsetanna Nixons og Pompidou, er frek- leg móðgun við Islenzku stjórnina og islenzka þjóö. Fólk gæti hneigzt til aft álykta aft siftgæftisvitund stjórnar yft- ar væri I algeru lágmarki (lower than a snake's belly). Hversu oft þarf aft segja yöur að tilvera islenzku þjóðarinn- ar byggist á fiskimiöunum umhverfis landift? Er hinn engilsaxneski hugarheimur staftnaftur, aft hann fær ekki skiliö einföldustu lögmál lifsins? Neyftast tslendingar til aft feta i fótspor frænda sinna tra? Þarf kúlnahrift til aft koma yftur niftur á jörftina? Fáift þér ekki skilift smáþjóft þegar hún biftur sér Hfs? Vild- uft þér etv. aögerft yrfti vopnuft árás á heimaiand yftar tii þess aö koma hinum almenna Eng- lendingi i skilning um hvaft málift snýst? Hugsift málift gaumgæfilega, Tweedsmuir, þvi þér verftift gerft persónu- lega ábyrg fyrir þvi sem kann aft henda i framtiöinni. William McDougali fulltrúi Skozka þjóöernisflokksins á tslandi.” SETANS CSANNAR”. Inni I Morgunblaðinu þennan sama dag er siðan langt og ýtar- legt viðtal: „Spjallað við brezka rithöfundinn, Ian Rodger, sem semur kvikmyndahandritið að Running Blind, sem tekin verður hérlendis næsta sumar”. Running Blind er glæpasaga. í skeleggri grein i Timanum 4. mai lýsir Helgi J. Halidórsson kennari hennimeöþessumorðum: „Fyrir rúmu ári kom út i Islenzkri þýö- ingu bók eftir Desmond Bagley, enskan njósna- og glæpasagna- höfund. Bókin heitir á frummál- inu Running Blind, en á islenzku Út I óvissuna. Bókin er látin ger- ast á Islandi og segir frá eltingar- leik njósnara erlendra stórvelda með hernaðarleyndarmál. Leikurinn berst um flesta falleg- ustu og eftirsóknarverðustu feröamannastaði landsins með ótal moröum sem tilheyra slikum sögum. Hún hefst með morði á Krisuvikurvegi, þá er maður drepinn i Asbyrgi, skotbardagi á leið yfir öræfin og annar við Geysi, fjölmargir drepnir i sum- arbústað i grennd við Þingvelli. . . Nú sá ég i blöðum fyrir nokkru, að i ráði væri að kvikmynda þessa sögu hér á landi. Mér er spurn: Hvað er mengun á islenzkri nátt- úru og þjóðlifi, ef ekki slikt? Og fyrir hvaða áhorfendur er slik b-irilrmvnH f r nm IpÍHH ? ’1 Kristinn E. Andrésson Þessi óþverri vekur Morgun- blaðinu eftir viðtalinu við Ian Rodger mikla hrifningu. Þar seg- ir: „Sem dæmi um aðdáun sina á Norðurlöndum nefndi hann að hann sklrði elztu dóttur sina Freyju, og jafnframt gat hann þess að það væri leynt metnaðar- mál sitt aö fá einhvern tima tæki- færi til þess að mynda Njálssögu sem ■framhaldsflokk fyrir sjón- varp. Undirritaður benti honum á að hann væri ekki einn um það og hann kvaðst þá sennilega þurfa að hafa hraðann á”. En kórónan er fyrirsögn viðtalsins og er með flenniletri: VERÐUR GERÐ SJÖNVARPSMYND EFTIR NJALSSÖGU? Þessi brezki kvik- Framhald á bls. 15.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.