Þjóðviljinn - 07.06.1973, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 07.06.1973, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 7. júní 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 frá 1926 og verulega úrelt oröin. Þó er málum þannig varið að þessi lög binda ráðuneytismenn þannig að þeir hafa ekki enn ákveðið hvort aukin lausung veröi leyfð um þessa helgi, en hingað til hafa Islendingar orðið af opin- beru skemmtanahaldi þessa daga. Bjóst ráðuneytisstjórinn við að þessi lög yröu tekin til endurskoð- unar á næsta þingi. — úþ Hér á myndinni er bæjar- stjórn Angmagssalik á Græn- landi ásamt Birni Tryggva- syni framkvæmdastjóra RK er hún afhenti RK peningagjöf frá ibúum Angmagssalik til Eyjasöfnunarinnar. Bæjarstjórn Angmagssalik, Grænlandi, 8 manns, kom tií Reykjavikur sunnudaginn 3. þ.m. og tók aöalræðismaöur Dana á Islandi, Ludvig Storr, á móti þeim. Tilgangur fararinnar var að heimsækja Reykjavik og ná- grenni og kynna sér starfsemi ýmissa stofnana m.a. fiskiöju- ver, Sjónvarp-útvarp o.s.frv. Ennfremur óskaði Bæjar- stjórn Angmagssalik eftir aö heimsækja Rauða Kross Is- lands og afhenda peningagjöf frá ibúum Angmagssalik til handa ibúum Vestmannaeyja. Bæjarstjórnin fer aftur heim til Angmagssalik laug- ardaginn 9. júni n.k. Larsen vann fyrstu 3 skákirnar A sunnudaginn hófst i Leningrad millisvæðamót sem er merkur áfangi á leiðinni til réttarins til að tefla við Fischer (ef hann þá fæst til að stiga úr guðlegum fræðum sinum). Moskvublaðið Pravda setur Bent Larsen efstan á blað útlendinga og þar á eftir nefnir það hinn þrautreynda Júgóslava Gligoric. Uhlmann og Húbner, Þjóðverjar að vestan og austan, eru báðir hörkudugl. stórmeistarar. Aðrir erlendir þátttakendur eru Robert Byrne frá Banda- rikjunum, Ivan Radúlof frá Búlgariu, Jan Smeykal frá Tékkóslóvakiu, Cúellar frá Kólumbiu, Quinteros frá Argentinu, Rúkavina (sem þýðir vettlingur) frá Júgóslaviu, Torres frá Filippseyjum og Estavas frá Kúbu. Fjórir hinir siðast- nefndu eru i fyrsta sinn á millisvæðamóti. Sex sovéskir garpar taka þátt i mótinu — Tal, fyrrum heimsmeistari, Kortsjnoj, sem oftar en einu sinni hefur verið nálægt þeim titli. Miklar vonir eru, segir Pravda, tengdar við hinn kornunga (22 ára) stórmeistara Anatoli Karpof. Aðrir Sovétmenn eru þeir Mark Tajmanof, Vladim- ir Túkmakof og Gennadi Kúzmin. í fyrstu umferð sömdu þeir Gligoric og Byrne fljótt um jafntefli og svo Cuellar og Uhlmann. Larsen mátaði Rúkavina með fallegri leik- fléttu. Túkmakof náöi biskupi fyrir peð af Kortsjnoj en komst I vandræöi i timaþröng og gafst upp. Smeykal og Tal gerðu jafntefli sem og Hubner og Tajmanof. Þrjár skákir fóru i bið. t annarri umferð sigraði Kortsjnoj Cuellar og Larsen Radúlof. Rúkavina tapaði fyrir Byrne og Smeykal fyrir Cinteros. Tajmanof og Túkmakof gerðu jafntefli. 1 þriðju umferö vann Larsen Smeykal, Estavas Tal, Byrne vann Radúlof, Karpof vann Túkmakof, en Rúkavína og Uhlmann, Torres og Quinteros og Hubner og Kuzmin gerðu jafntefli. Aðrar skákir fóru i bið. Lausung leyfð um hvítasunnu? íbúar Angmagssalik gefa í Eyjasöfnun Millisvœðamótið i Leningrad: ,,Dœmi um þá fyrirlitninsu sem bandaríski herinn sýnir íslenzkum stjórnarvöldum” Ráðherrar vissu ekki neitt um endurvarpsstöð hersins: um byggingu leigu húsnæðis Á fundi borgarstjórnar Reykja- 1 víkur i dag fara fram kosningar i ýmsar stjórnir, nefndir og ráð á vegum borgarinnar, og rædd verður fyrirspurn frá Björgvin Guðmundssyni varðandi bygg- ingu hraðfrystihúss fyrir Bæjar- útgerðina og fyrirspurn frá Sigur- jóni Péturssyni varðandi þörf fyrir byggingu leiguhúsnæðis i borginni. Akveðiö var fyrir alllöngu að stofna til samstarfs sveitarfélag- anna á höfuðborgarsvæðinu við endurskoðun fyrri áætlana um fólksfjölgun og húsnæðisþörf á svæðinu. Sigurjón spyr m.a. hve- nær megi vænta niðurstöðu ofan- greindrar endurskoðunar og hverjir vinni að endúrskoðuninni. Enn er óráðið hverja af- greiðslu tilmæli Æskulýðs- ráðs ríkisins um frekara skemmtanahald um hvíta- sunnuhelgina en verið hef- ur undanfarið ár, en málið er til athugunar hjá dóms- málaráðuneytinu. Að sögn Baldurs Möller ráðu- neytisstjóra eru lög um helgihald Bent Larsen byrjar vel I Leningrad Þjóðviljinn hafði i gær samband við utanríkisráð- herra, menntamálaráð- herra og formann út- varpsráðs vegna fréttar um endurvarpsstöð, sem her- sjónvarpið á Keflavíkur- flugvelli hefur komið sér upp og Þjóðviljinn skýrði frá í gær. Ráðherrarnir höfðu ekki hugmynd um þennan uppgang sjón- varpsstöðvarinnar og ekk- ert leyfi virðist hafa verið fengið til þessa. Einar Agústsson, utanrikisráð- herra, sagði að þessar fréttir væru sér nýjar og að hann hefði ekki áður heyrt um þetta. Kvaðst hann mundu láta varnarmála- deild gera sér grein fyrir málinu. Magnús Torfi Ólafsson sagði einnig að sér væru þetta nýjar fréttir og enn væri málið ekki nógu skýrt til þess að hægt væri að segja nokkuð um til hvaða ráð- stafana yrði gripið. Njörður P. Njarðvik, formaður útvarpsráðs, kvaðst hafa fjallað það lengi um þetta mál, að honum kæmi i sjálfu sér fátt á óvart af þvi sem snerti það og kvaðst hann ekki geta fengið séð að þetta breytti málinu i neinum grund- vallaratriðum, þar sem hann hafi lengi litiö svo á, að allur rekstur útvarps- og sjónvarpsstöðvar hersins á Keflavikurflugvelli væri brot á Utvarpslögunum. Kvað Njörður réttarstöðu rikisútvarps- ins islenzka hafa komið einkar vel i ljós á dögunum þegar efni sem rikisútvarpið hafði keypt einka- rétt á til flutnings á íslandi var sýnt i Keflavlkursjónvarpinu. — Hins vegar sýnir þetta mál, ef satt er, sagði Njörður, að Fyrirspurn bandariski herinn telur sér allt leyfilegt, og er þetta glöggt dæmi um þá fyrirlitningu sem herinn sýnir Islendingum i þessu máli. — Málið mun verða tekið fyrir i útvarpsráöi, og rikisútvarpinu er nú ekki stætt á öðru en mótmæla slikum aðferöum, sagði Niörður ennfremur. — úþ. Uppeldismálaþing háð í Reykjavík I gær hófst I Reykjavik upp- eldismálaþing sem Samband islenzkra barnakennara, Landsamband framhaldsskóla- kennara og Félag háskóla- menntaðra kennara gangast fyrir að Hótel Sögu. Þingiö hófst kl. 10 i gærmorgun og stóðu fundir til kl. 18.30. 1 dag heldur það áfram kl. 10 og lýkur svo I kvöld kl. 18. I gær flutti Jónas Pálsson skólastjóri framsöguerindi um skipan kennaramenntunar en á eftir voru frjálsar umræður. Þá flutti Andri tsaksson framsögu- erindi sem hann nefndi: Grunn- skólafrumvarpið og kennara- menntun og voru frjálsar um- ræður um málið að loknu fram- söguerindinu. Þá fóru fram hringborðsum- ræður um tengsl atvinnuvega, skóla og kennaramenntunar. Kristján B. Ólafsson stjórnaði þeim. t dag verða hringborösum- ræður: Getur öll kennara- menntun haft sameiginlegan kjarna? Þeim umræöum mun dr. Þuriður Kristjánsdóttir stjórna. Þá munu formenn þeirra félaga og sambanda sem að þinginu standa flytja framsöguerindi um kennaramenntun og einingu kennarastéttarinnar. Að þeim loknum verða umræður, en þing- inu lýkur eins og áður segir kl. 18 i dag. Þess má að lokum geta að þingið er opið öllum kennurum og áhugafólki um uppeldis- og skólamál. -S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.