Þjóðviljinn - 07.06.1973, Síða 4

Þjóðviljinn - 07.06.1973, Síða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. júni 1973. Ur ársskýrslu Landsbanka Islands Mikil innlánsaukning — enn meiri útlánaaukning — Innlánsa ukn in gin fyrstu fimm mánuði ársins hefur verift góð, almenn, dreifð aukning um allt land, meiri aukning en sfð- ustu mánuði ársins 1972. Vaxtahækkunin hefur haft tals- vert að segja I þessu sambandi, en hún var 3% á sparisjóðsbókum sem bundnar eru til eins árs, en 2% á almennum sparisjóðsbók- um. Ilins vegar hefur einnig orðið mikil útlánaaukning, meiri en Andstaða við úrsögn Eins og menn muna til- kynntu i siðustu viku ein sex aðildarsambönd úrsögn sina eða allt að þvi úr ÆSÍ. Meðal þeirra voru Samtök islenzkra kennaranema, en stjórn þeirra samþykkti á fundi sinum að leggja fram tillögu á næsta þingi SIKN þess efnis, að aðild að ÆSl yröi endur- skoðuð. En nú hefur blaðinu borizt fréttatilkynning frá stjórn skólafélags Kennaraháskóla tslands en þar mun meirihluti kennaranema vera saman kominn. Er i henni lýst yfir fullri andstöðu viö tilkynningu stjórnar SÍKN. Fréttatilkynn- ingin er svohljóðandi: Vegna þess ástands sem rikir innan Samtaka islenzkra kennaranema, telur stjórn skólafélags Kennaraháskóla Islands fréttatilkynningu stjórnar samtakanna, um úr- sögn úr Æskulýðssambandi tslands, engan rétt eiga á sér og lýsir þvi yfir fullri andstöðu sinni við áðurnefnda til- kynningu. Stjórn skólafélags Kennaraháskóla tslands. dæmi cru til um áður. Það er að nokkru eðlileg skýring á þvl, að mjög mikið hcfur verið um að vera i atvinnulifinu, einnig hefur aukin fjárþörf atvinnuveganna áhrif á útlánaaukninguna. Vaxta- hækkunin á að hafa áhrif til að draga úr útlánum, en það er ekki óeðlilegt að þeirra áhrifa gæti sið- ar en áhrifa til innlánsaukningar. Eitthvað á þessa leiö mælti Jónas Haralz á fundi með frétta- mönnum i gær, þegar bankaráð Landsbankans og bankastjórar hans skýrðu ársskýrslu Lands- bankans fyrir árið 1972. Innlán og útlán Þessi mikla útlánaaukning leiddi af sér óhagstæða lausafjár- stöðu bankans um ca. 250 milj. á árinu, en svo hefur verið sl. 2-3 ár. Heildarveltan nam 687 miljöröum og hafði aukizt um 24% á árinu. Innlánaaukning árið 1972, mið- að viö næsta ár á undan, var i krónutölu 920 miljónir, en i pró- sentu 13,5. Stærsti hluti innláns- aukningarinnar voru spariinnlán, en þau jukust um 619 miljónir króna, eða um 12,5% á móti 21% árið áöur. Útlán bankans námu 8 miljörð- um 855 miljónum króna i árslok og höfðu aukizt um 1 miijarð 482 miljónir á árinu eða um 20%, en aukningin árið 1971 varð 23%, og séu endursölulán til Seðlabank- ans undanskilin, varð útláns- aukningin 17%. Útlánsaukningin varð mest til sjávarútvegsins, 323 miljónir, til landbúnaðar 304 milj. kr., og til iðnaðar 305 miljónir. Stærstu útlánaliðir bankans eru til sjávarútvegs 23% af öllum út- lánum, til verzlunar 17,5% og til iðnaðar 13,4%. Lán bankans til ibúðabygginga jukust um 108 milj. króna. Sparilánin Helgi Bergs bankastjóri skýrði frá þvi að spariinnlánakerfið hefði fengið betri undirtektir hjá almenningi en bankamenn höfðu gert ráð fyrir. 3300 einstaklingar hafa tekið þátt i þessu kerfi, miðað við 31. marz, og fé inni bundið eftir þessu kerfi orðið 44,5 miljónir króna. Mest þátttaka i þessu sparnaðar- kerfi varð á Reykjavíkursvæðinu, eða 2700, en minni annars staðar á landinu. Útlán eftir þessu kerfi byrja i haust hjá þeim sem ákváðu mán- aðarlegan sparnað og innlegg i eitt ár, en á næsta hausti hjá þeim sem tóku til við tveggja ára sparnað. Byggingar og breyting- ar Landsbankinn geröi nokkrar breytingar á rekstrinum sl. ár. Aðalskrifstofa bankans var lögð niður á árinu, en i hennar stað stofnuð ný deil, erlend viðskipti, en hún sér um þann hluta starf- semi aðalskrifstofunnar sem sneri að erlendum viðskiptum og tók við nokkurri starfsemi á þessu sviði, sem áður var séð um i aðalbókhaldi. Tveir nýir útibússtjórar voru ráðnir á árinu, á Hvolsvelli og i Grindavik, en á báðum þessum stöðum var lokið við byggingar nýrra bankahúsa, á báöum stöð- um þó i samfloti með öðrum. Fyrir mánuði eða svo var tekið I notkun nýtt bankahús á Húsa- vik, og nú á föstudag fyrir hvita- sunnu verður opnað nýtt banka- hús á Akranesi. Scandinavian bank i London Landsbanki Islands er hluthafi að banka Norðurlandaþjóða, Scandinavian bank, sem rekinn er i London. Hlutafjáreign Lands- bankans er 3,2% af hlutafénu. Banki þessi var stofnaður 1969. Gekk starfsemi þessa banka vel á árinu 1972 og var greiddur 6% arður til hluthafa. Sér þessi banki aðallega um út- lánaviðskipti til norrænna fyrir- tækja, en 90% af útlánum hans fara til slikra. Kaupir bankinn lán frá öðrum bönkum og lánar siðan tii fyrirtækja. Kemur þetta sér sérlega vel fyrir iðnaðarvarning frá tslandi svo sem ullar- og skinnavörur, og varning annarra iðngreina þar sem þarf að veita 2ja til 3ja mánaða greiðslufrest. Eins eru lánuð til islenzkra aðiia fémæti úr banka þessum vegna vélakaupa, til dæmis til kaupa á Halli á rekstri hafn- sögu og hafnarvörzlu Hafnsögubátarnir óhagstœðir í rekstri Talsverður halli varð á siðasta ári á rekstri hafnsögu og vörzlu við Reykjavíkurhöfn. og hefur einkuni rekstur hafnsögubátanna reyn/.t óhagstæður. Áð þvi er fram kemur i árs- skýrslu og reikningum Reykja- vikurhafnar fyrir árið 1972 urðu tekjur af skipaþjónustu, þ.e. hafnsögu, bátum og hafnarvörzlu 24,8 m kr., en útgjöld vegna sömu liða 30,1 m kr. Er það einkum rekstur bátanna, sem er óhag- stæður, segir i skýrslunni, en einnig er slæm útkoma á hafnar- vörzlunni. Hefur verið óskað eftir leiðréttingu á gjaldskrá bátanna. Kemur fram, að t.d. gjaidskrá dráttarbátsins Magna er talin alltof lág til að geta borið uppi þær kostnaðarsömu viðhaldsað- gerðir, sem hann nú þarínast. Magni lauk 16 ára flokkaskoðun á árinu, en bátur og vélar i'ara nú að þurfa talsvert aukið viðhald. og er búizt við nokkrum frátöfum hans þess vegna en annar drátt- arbátur af svipaðri stærð er ekki til afleysingar. Þá hefur nýjasti bátur hafnar- innar, Jötunn, reynzt óeðlilega dýr i rekstri. Einkum hefur vél bátsins reynzt kostnaðarsöm. Aðrir bátar hafnarinnar eru Nóri, litill trébátur, sem lokið var við endurnýjun á skrokk og vél á s.l. ár, og Haki, sem þarf endur- nýungar við mjögskjótlega. —vh FISK VINN SLU SKÓLINN Umsóknir um skólavist i undirbúningsdeild skólans, næsta haust, skulu berast skólastjóra fyrir 20. júni n.k. Afrit af gagnfræða- eða landsprófsskirteinum fylgi. FISKVINNSLUSKÓLINN Skúlagötu 4. Sími 20240 fiskvinnsluvélum. Banki þessi kaupir og selur gjaldeyri og verð- bréf. Starfsemi og starfsfólk Nýtt bankaráð var kosið á ár- inu. Eru i þvi sömu menn og næstu fjögur árin á undan, en bankaráð eru kosin til fjögurra ára i senn. Sú varð ein breyting, að Einar Olgeirsson var skipaður formaður i staö Baldvins Jóns- sonar, sem gegnt hafði þvi starfi i 11 ár. Starfsmannafjöldi Landsbank- ans i árslok 1972 var 520 manns og er aðeins 12 starfsmönnum fleira en árið áður. 15 starfsmönnum var bætt við úti á landi, einkan- lega vegna nýju útibúanna, svo starfsmannafækkun hefur oröið i Reykjavik um 3. Segir i skýrslu bankans að starfsmannafjölgunin hafi eingöngu orðið úti á landi sið- ustu árin, svo og i rafreiknideild- inni. Eitt og annað Eitt og annað, sem ekki er að finna i skýrslum, upplýstu banka- stjórarnir fréttamenn um. Þar á meðal það, að viðskiptamanna- talning var gerð i Landsbankan- um árið 1972, i eina viku. Þá viku komu 2600 manns daglega i aðal- bankann. Oftast koma daglega um 600 manns i Vegamótaútibúið, Framhald á bls. 15. Ulf Anderson. Myndin var tekin er hann keppti á Reykja- vikurmeistaramótinu. Anderson vekur athygli Frammistaða Ulf Ander- sons á meistaramótinu i Dort- mund i V- Þýzkalandi hefur vakið athygli, enda hafnaði hann þar i öðru sæti, næstur á eftir Hecht, en Spasski varð i þriðja sæti. Ulf gerði jafntefli i i 13. umferð við Spasski, en sú skák var mjög hörð. Meðal þekktra skákmanna, sem voru fyrir neðan hinn unga Ulf Anderson, voru Keres, Popov og Marovic. Finnskur handa- yinnukennari leið beinir íslenzkum Um þessar mundir dvelst hérá landi finnskur handavinnukennari, Ruth Henriksson, sem er lektor í handavinnu viö Laguska-menntaskólann í Helsingfors. Hún leið- beinir hér íslenzkum handavinnukennurum og einnig mun hún halda fyrirlestur nk. fimmtu- dagskvöld og er hann öll- um opinn. Verður hann í Norræna húsinu og hefst kl. 20.30. Ruth Henriksson er lektor i handavinnu við Laguska- menntaskólann i Helsingfors og leiðbeinandi sænskumælandi kennara um handavinnu i nýja grunnskólanum, sem ætlað er að verði að fullu tekinn til starfa árið 1977. Hún hefur árum saman verið i stjórn finnska handavinnukennarasam- bandsins, en i þvi eru 1300 félagsmenn. Ituth Henriksson hefir unnið mikið að norrænni samvinnu, en hugmyndin um samtök handavinnukennara á Norðurlöndum kom fyrst til tals á norræna kennaramótinu i Helsingfors 1957. Hún var aðal- ritari á stofnþingi Norræna handavinnukennarasam- bandsins (NTF) i Helsingfors 1969, þar sem Island hafði sér- staka deild á ljósmynda- sýningunni „Textilslöjd i dag och i morgon”. Ruth Henriksson er annar fulltrúi Finnlands i stjórn þessara norrænu sam- taka. NTF ætlar að halda fyrsta reglulega þing sitt 1.-3. ágúst i Stokkhólmi og þá á að sam- þykkja lög sambandsins. Þar mun handavinnukennsla verða rædd frá ýmsum hliðum, svo og kennaraval og kennara- menntun, markmið og leiðir og skólastarfið sjálft. — Kröfur þær, sem þjóðfélagið gerir til þeirra verkefna, sem skólanum ber að fást við, hafa orðið til þess, að nemandinn, sem hinn tilvonandi neytandi, er mál málanna. Samkvæmt grunnskólafrum- varpinu er timi til handavinnu- kennslu skertur að nokkrUj og sagði Ruth á blaðamannafundi i gær að hún teldi það bagalegt, þar eð hlutverk handavinnu- kennslu væri tviþætt, annars vegar að kenna nemendum rétt handtök við ýmiss konar handa- vinnu og hins vegar skapar þessi kennsla visst jafnvægi i námi sem er nauðsynlegt hverj- um einstaklingi. Þannig er ekki stöðugt hægt að troða bóklegu námi i fólk án þess að einhverju jafnvægi i kennslu sé náð með öðrum kennsluhætti. Félag handavinnukennara og Framhald á bl«. 15. 28 stofnuðu félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi Fimmtudaginn 31. mai s.l. var stofnað félag opinberra starfs- manna á Suðurlandi, skammstaf- að F.O.S.S. Aðild að félaginu eiga starfsmenn sveitarfélaga á Suðurlandi og stofnana þeirra. Verkefni félagsins er að vinna að kjara- og hagsmunamálum opin- berra starísmanna á Suöurlandi. Stofnendur eru 28 manns frá Selfossi, Stokkseyri, Eyrarbakka, Hveragerði og Þorlákshöfn. f stjórn voru kjörin.til eins árs, for- maður Sigfinnur Sigurðss., hag- íræðingur, meðstjórnendur Guð- finna ólafsdóttir, skrifstofu- stúlka, Selfossi, Svanur Kristjánsson, sveitarstjóri, Þor- iákshöfn, Ólafui1 ólafsson, gjald- keri, Selfossi,og Hörður óskars- son, forstöðumaður, Selfossi.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.