Þjóðviljinn - 07.06.1973, Page 5

Þjóðviljinn - 07.06.1973, Page 5
Fimmtudagur 7. júni 1973. ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 5 Sumarbúðir í Saltvík Þar starfar einnig reiðskóli í sumar Æskulýðsráð Reykja- víkur hefur tekið upp þá nýbreytni að starfrækja í sumar svokallaðar Esju- búðir, en það eru sumar- búðir barna á aldrinum 11 - 13 ára. Húsnæðið í Saltvík hefur veriðendurbætt mjög og nú rúmast þar um 50 manns í einu i sumar- búðum. Það er Valur Steinar Þórarinsson sem hefur annazt undirbúning sumarbúðanna og skipu- lagt starfsemi þeirra. Einhverra hluta vegna er innritun í sumarbúðirnar mjög treg,og mætti af því halda að þörf in væri nú loks fullmettuð. Samkvæmt þeim könnunum sem gerðar hafa verið er þó mikil þörf fyrir slíkar sumarbúðir og vissulega er athugunarefni hvers vegna aðsókn í Esjubúðirnar er svo slæm. Annars var blaðamönnum boðið i Saltvik sl. mánudag til að lita á reiðskóla þann er Æskulýðs- ráð og Fákur starfrækja þar i sameiningu. Þar munu um 400 börn njóta leiðsagnar i sumar. 100 börn taka þátt i fyrsta námskeið- inu og eru þau á aldrinum 9 - 14 ára. Alls verða haldin 4 námskeið i sumar og þegar eru um 300 börn búin að láta innrita sig. Þessum 100 börnum er skipt i 2 hópa, árdegis-og siðdegishópa, og meöan 20 börn sitja reiðskjótana fara hin i skipulegar nátturu- skoðunarferðir og leiki. Lengd hvers námskeiðs er 2 vikur og kostar 3000 krónur. Inni- faldarþar eru að sjálfsögðu áætlunarferðir fram og til baka hvern dag. Blaðamenn komu i Saltvik er 20 krakkar úr siðdegishópnum voru að leggja af stað i reiðtúr. Hestarnir, sem flestir eru fengnir að láni hjá Þorkatli á Laugar- vatni, eru mestu gæöablóð og hæfilega latir ef svo má að orði komast. Einn klárinn, fararskjóti 9 ára stúlku, var þó öðrum latari og fór i algjört verkfali. Vildi hann sig hvergi hræra og neitaði aigjörlega aö fylgja hinum hest- unum. Hann var þó greinilega vel upp alinn og reyndi ekki að kasta knapanum af baki, enda var stúlkan hin röggsamasta og hvatti klárinn sinn sem mest hún mátti. Hann lét þó ekki að stjórn fyrr en kennarinn kom og upp- lýsti knapann um að það væri ekki nóg að hrista tauminn, það þyrfti einnig að dangla i klárana með fótunum. Og þótt daman væri stuttfætt skildi reiðskjótinn loks hvað hún vildi og tölti leti- lega á eftir kollegum sinum. Esjubúðir Það er merkilegt athugunarefni hvers vegna sú nýjung Æskulýðs- ráðs, að starfrækja sumarbúðir i Saltvik, hefur ekki reynzt vinsælli en raun er. Samkvæmt könnunum sem gerðar hafa verið er þörf sumarbúða töluverö og af þeim sökum lagði Æskulýðsráð i endurbætur á húsakosti i Saltvik og ákvað starfrækslu „Esju- búða”. Vera kann að þetta þyki of skammt frá Reykjavik, það getur einnig verið að þörf sumarbúða sé mettuð — eða fara börnin bara með foreldrunum á Mæjorka? Þátttakendum i Esjubúðum verður skipt i hópa til daglegra framkvæmda. Hver hópur starfar undir leibsögn þjálfaðs hópstjóra. Dagskrá vikunnar er þannig samin, að hún höföi til sem flestra áhugasviða barna á þessum aldri. Helztu þættir hennar eru þessir: a) Gengið verður á Esju og um hliðar hennar. I þessum ferðum verður safnað steinum og þátt- takendur siðan aðstoðaðir við greiningu þeirra. b) Farið verður i fjöru, fjörulif skoöað og þvi safnaö, sem áhuga- vert þykir, og aðstoð veitt við uppsetningu þess. c) Bátur verður á staðnum og þvi hægt að fara á sjó, ef veður leyfir. Einnig er möguleiki á sjó- böðum, ef veðurguöirnir verða hliðholíir. d) Þátttakendur aðstoöa við til- tekt, uppvask og fegrun staðar- ins. e) Leiðbeint verður i iþróttum og skipulögð mót meðan á dvöl stendur. f) Kvöldvökur verða á hverju kvöldi og verður undirbúningur og framkvæmd þeirra að mestu i höndum þátttakenda. Hugsandi er, að einnig gefist tækifæri tl þess að fara á hestbak. Ráðgerðar eru 7 Esjubúðir i Saltvik i sumar og er timasetning þeirra sem hér segir: 12. — 16. júni 18. — 23. júni 25. — 30. júni 2. — 7. júli 9. — 14. júli 16. — 21. júli 23. — 28. júli Þátttökugjald verður 2.300,- kr. og er innifalið i þvi uppihald, fæði og ferðakostnaður. Innritunar- gjald er 200,- kr. Frekari upplýsingar veitir skrifstofa Æskulýðsráðs Reykja- vikur, Frikirkjuvegi 11, simi 15937 og forstöðumaður Esjubúða Valur Steinar Þórarinsson, simi 32227.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.