Þjóðviljinn - 07.06.1973, Síða 6

Þjóðviljinn - 07.06.1973, Síða 6
fi SiDA - Þ.I6nVll..MNNFimmtudagur 7' JúnI 1973~ DJOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSIALISMA/ VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Ctgefandi: Ctgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan óiafsson Svavar Gestsson (áb.) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 llnur). Askriftarverö kr. 300.00 á mánuöi. Lausasöluverö kr. 18.00. Prentun: Blaöaprent h.f. NÁTTÚRUVERND í ÞÁGU MANNSINS Náttúruvernd er tiltölulega nýtt orð i is- enzkri tungu, það eru aðeins fá ár siðan Dað varð mönnum munntamt. Rúmur íálfur annar áratugur er siðan orðið vann sér þegnrétt i lagamáli, en það var þegar sett voru hin fyrri lög um náttúruverndar- ráð 1965. Orðið náttúruvernd og sú hugsun sem i þvi felst varð þó ekki almennings- eign fyrr en mjög nýlega. Á siðustu árum hafa sprottið upp nátt- úruverndarfélög viða um land, og það eru þau — svo og samtök þeirra og annarra á- hugafélaga um skyld málefni, LAND- VERND — sem hafa gert náttúruvernd að máli allrar þjóðarinnar. Náttúruverndarhreyfingin er hin þarf- legasta, þvi að hún beinir kröftum manna að þjóðnýtu verndunar- og uppbyggingar- starfi. Hún glæðir um leið tilfinningu þjóð- arinnar fyrir verðmætum og kostum landsins, svo og takmörkunum þess. Náttúruverndarhreyfingin kennir að maðurinn sé hluti náttúrunnar, en ekki al- gjör herra hennar. Hann gæti að visu not- fært sé ýmis lögmál hennar og látið þau vinna fyrir sig, en hann þurfi ævinlega að sýna tillitssemi og skilning á náttúrunni. Um leið hefur mönnum orðið ljóst að sam- hengi i náttúrunnar riki eru æði flókin, og það þarf miklar visindarannsóknir til að kynnast þó ekki sé nema þeim helztu. Inn- grip geta þvi haft ófyrirséðar afleiðingar, einkum nú á dögum siaukinnar og af- kastameiri tækni. Náttúrvernd er miklu meira en það að vernda fagra og sérkennilega staði, ein- kennilegar og sjaldgæfar tegundir i lifriki. Náttúruvernd er einnig það að halda við lifriki yfirleitt, og þannig tengist hún land- helgismálinu og öllum friðunar- og vernd- unaraðgerðum i fiskveiðimálum. En fyrst og siðast verður að hafa það i huga, að náttúruvernd er og hlýtur að vera i þágu mannsins og mannlifsins. Það er maðurinn sem þarf á þvi að halda að fjölbreytnin minnki ekki i þvi sem kallað er náttúrunnar riki. Brostinn hlekkur kann að hafa keðjuverkandi áhrif, en einnig þó svo sé ekki hefur orðið sjónar- sviptir og oftast mælanlegt efnahagstjón. Náttúruvernd i þágu mannsins vekur einnig spurningar um frelsi til aðgangs að náttúrugæðunum og jöfnuð i þvi að njóta þeirra. Það er of oft sagt að ísland sé fátækt land og snautt að auðlindum. Vissulega er þetta rétt ef einblint er á það sem stóð undir stóriðnaði i klassískum stil, kol og málma. En hér eru auðlindir sem i raun og veru eru miklu mikilvægari i nútima samfélagi. Án þess að fallvötnum og jarðhita sé gleymt skal það fullyrt að auðlindir ís- lands séu fyrst og fremst lifrænar og af tvennum toga. Annað er lifmagnið á landi og i legi, sem er gróðurmoldin og fiskstofnarnir. Þessar auðlindir standa undir framleiðslu á mestu hörgulvöru nútimans, matvælum. Sú þjóð er ekki á flæðiskeri stödd sem er aflögufær i þeim efnum. En akurinn þann þurfum við að læra að vernda, rækta og nytja. Það er langt frá þvi að við kunnum allt sem kunna þarf i þvi sambandi. Fyrsta skrefið ér auðvitað að fá yfirráð yfir þessum auðlindum. Landið og gróður þess eigum við — það er rétt — en við megum ekki láta sjónarmið einkaeignar- réttar hindra okkur i að gera réttar og nauðsynlegar ráðstafanir til viðtækrar landverndar. Við eigum i harðri baráttu til yfirráða yfir hafinu sem að réttu fylgir landinu og yfir fiskstofnunum sem þar eiga heimkynni sin. Engum dettur annað i hug, en þar sé á ferð sameign þjóðarinnar og auðveldar það mjög skynsamlega nýt- ingu, og er þó óleystur vandi ærinn á þvi sviði. Hin hliðin á náttúruauðlindum landsins snýr einmitt að þvi sem kallað hefur verið félagsleg náttúruvernd. 1 þvi felst aðgang- ur almennings að hinni lifandi náttúru til að njóta hennar i starfi og i hvild, til úti- veru og annarrar snertingar. Þetta er mjög mikilvægur hluti af lifskjörum allra þeirra sem farnir eru að hafa meira en i sig og á. Þetta eru þvi framtiðarverðmæti allrar alþýðu. Hafa ber i huga að þessi verðmæti, svo rikulega útilátin sem þau virðast á íslandi, eru orðin býsna sjaldgæf og einokuð af auðmönnum úti i hinum stóra heimi. Hin félagslegu verðmæti náttúrunnar þarf að varðveita ekki siður en þau sem kölluð eru efnahagsleg. Það má ekki liða iðnaðarstarfsemi að fordjarfa þau eins og viða hefur gerzt erlendis. Það má ekki heldur láta einkaeignarrétt peningavalds- ins ræna landinu frá almenningi. Hvort tveggja þetta tilheyrir verkefnum nátt- úruverndar i þágu mannsins. Hvort tveggja er vörn gegn sóun og arðráni. her og vestrœn Einar Ingimundarson. Keflavík: Landhelgi, samvinna Landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins er tiltölulega nýlokið og sem títt er um slíkar samkund- ur, lét fundurinn frá sér fara ýmsar ályktanir um þjóðmál og þar á meðal landhelgismál- ið og þess krafizt að hin nýja 50 mílna fiskveiðilögsaga sé varin og þess krafizt að land- helgisgæzlan sé aukin og efld. Tillögur í þessa átt munu þykja sjálfsagðar og í samræmi við þjóðarhag en hafa þarf hliðsjón af ýmsu áöur en til- lögur þess flokks eru teknar of alvarlega. Á það má minna að fyrir tæpum tveim árum lauk þriggja kjörtímabila viðreisn- arstjórn íhalds og krata og eina afrek þeirra er viðkemur landhelgi er samningurinn við Breta og V.-Þjóðverja frá 1961, en hann er með þeim eindæmum gerður að sam- kvæmt honum telur Alþjóða- dómstóllinn í Haag sig hafa dómsvald í landhelgismálinu sem Bretar og V.-Þjóðverjar hafa lagt fyrir dóminn. Varðandi þá kröfu Sjálf- stæðisflokksins að auka og efla landhelgisgæzluna þá er þar um nauðsyn að ræða, en á hitt ber að líta eftir að þessi mál hafa heyrt undir Sjálfstæðis- flokkinn á annan áratug, þá er það einmitt vegna slæmrar stjórnar á þessum málum og öðrum að meirihluti þjóðar- innar taldi rétt í síðustu kosn- ingum að skipta um stjórn í landinu og einmitt þess vegna er búið að færa fiskveiðilög- söguna út í 50 mílur. Hefði viðreisnarstjórnin svokallaða ætlað að færa fiskveiðilögsög- una út þá hefðu þeir herrar er þá voru við völd verið farn- ir að undirbúa það fyrir síð- ustu Alþingiskosningar en á slíku bólaði ekki, enda bundn- ir á höndum og fótum með samningnum fræga frá 1961. Þrátt fyrir útfærsluna vant- ar töluvert á að sigur sé unn- inn í því máli. Samkvæmt samningnum frá 1961 telja Bretar og Vestur-Þjóðverjar útfærsluna brot á téðum samningi og liafa haldið skip- um sínum til veiða innan hinn- ar nýju lögsögu eins og þeir hafa komizt upp með. Uppi hafa verið raddir um það að landhelgin hafi verið ver varin en geta varðskip- Einar Ingimundarson anna segði til um og hafa ýms- ir látið sér detta í hug að sam- band væri á milli linkindar í yfirstjórn gæzlunnar og áhuga manna um vestræna samvinnu í Nató. í Þjóðviljanum 4. maí er birt bréf frá Stefáni Jónssyni til forsætisráðherra. í því stendur meðal annars: „Veizt þú að skipstjórar gæzlunnar staðhæfa að þeir hefðu getað tekið tugi togara og fært til hafnar og dóms ef þeir hefðu notið til þess eðli- legs stuðnings yfirstjórnar gæzl- unnar og |ieirrar hvatningar í stað latningar eða jafnvel hót- ana um að þeir kunni að hafa verra af? Er þér kunnugt um þá stað- hæfingu skipstjóra landhelgis- gæzlunnar að þeir gætu langt til haldið miðunum hreinum af útlendingum ef þeir fengju að beita varðskipunum eins og hægt er? Veizt þú að haft er við orð meðal áhafna varðskipanna að okkur stafi meiri ógn af svik- semi í stjórn landhelgisgæzl- unnar heldur en af skipulagðri sókn þýzku og brezku togar- anna inn í fiskveiðilögsög- una?“ Svo brá við að eftir að bréf Stefáns var birt í Þjóðviljan- um voru fljótlega gerðar þær breytingar varðandi störf land- helgisgæzlunnar að skipherr- unum voru gefnar frjálsari hendur til að eiga við veiði- þjófa og það hafði þau áhrif að brezkir togaraskipstjórar gáfust upp og sigldu út fyrir 50 mílur og er skýrt frá því í blöðum 18. fyrra mánaðar. Hinn 19. maí er frá því skýrt í sjónvarpi og hljóðvarpi að floti hennar hátignar hafi haldið inn í íslenzka fiskveiði- lögsögu brezku togurunum til verndar, þrjár freigátur eru þegar komnar er þetta er rit- að. Þá er komið það sem áhuga- menn um vestræna samvinnu hafa mest óttazt. Þegar búið er að knýja það í gegn að fiskveiðilögsagan sé varin af þeirri einurð og festu sem við getum við komið sendir brezka herveldið her- skip á miðin til verndar sín- um veiðiþjófum. Við erum í NATO. Bretar eru í NATO. Við höfum hér her frá NATO-ríki, að sjálf- sögðu til verndar okkur og til verndar friðar í heiminum. Það hefur lítinn tilgang að vera í hernaðarbandalagi ef eitt af stærri ríkjum þess bandalags kemst upp með að beita það minnsta hernaðar- legu ofbeldi, því í dag hafa Bretar tekið upp sama hátt og 1958 og sent herskip á mið- in. Þessu ber að svara af einurð og festu, það verður ekki bet- ur gert á annan hátt en með úrsögn úr NATO, þá hlýtur endurskoðun herverndarsamn- ingsins að vera óþörf, þar sem herinn er á vegum NATO kemur brottför hans sjálf- krafa um leið og við yfirgef- um NATO. Sé haldið á landhelgismálinu af einurð og skynsemi þá blas- ir þar við fullnaðarsigur, því eftir upplýsingum Haraldar Kröyer ambassador Islands hjá Sameinuðu þjóðunum telur hann að um % aðildarríkja aðhyllist 50 mílna landhelgi eða meira og þeim ríkjum hef- Framhald á bls. 15.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.