Þjóðviljinn - 07.06.1973, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 07.06.1973, Qupperneq 12
12 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 7. júnt 1973. Sjóðir Samvinnu- trygginga jukust um 73,3 milj. kr. Mitt í öllum taprekstrinum: Sunnudagur 10. júnl. (Hvítasunnudagur). Kl.10.00 Hljómlist i Tanga- radiói. Kl. 10.00 Leikir og starf, sbr. laugardag. Kl.14.00 Hátíöadagskrá. Kl. 16.00 tþróttakeppni: a) Knattleikir. b) Viðavangshlaup (konur). Kl. 17. 00 Sýningar: a) Júdósýning á vegum Júdos. Isl. stjórn. Edward Mulln 4. dan. b) Lyftingasýning á vegum Lyft- ingas. tsl. c) Nemendur úr Reiðskóla Rosemary Þorl.d. Kl. 21.00 Kvöldvaka: a) Karl Einarsson skemmtir. b) Litið eitt. c) Dansleikir. Hljómsv. Þorst. Guðm. og Mánar skemmta. Mánudagur 11. júnf. (Annar i hvitasunnu) Kl. 10.00 Dagskrá Hjáiparsv. skáta. a) Björgunarsýningar. b) Jeppakeppni (torfæruakstur, úrslit). Kl. 12.00 Vor i Dal lokið. Aðgangseyrir að hátiðinni er kr. 750, sé komið á föstudag eða laugardag, en 500 kr. komi menn á sunnudag. Það er naumast. Búið að bera á borð fyrir okkur :0.=- Sólin snýst umhverfis jörðina og jörðin snýst í kringum fiðrildin. ^ LAUS STAÐA Staða bæjarstjóra á Seyðisfirði er laus til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un, fyrri störf og kaupkröfur sendist bæjarráði Seyðisfjarðar fyrir 25. júni næstkomandi. Starfinu fylgir embættisbústaður og veit- ist það frá 1. okt. n.k. Bæjarráð Seyðisfjarðar. Blakáhugafólk Blakdeild Víkings verður stofnuð fimmtudaginn 7. júni kl. 20,30 að Hótel Esju. Allt blakáhugafólk, ungt og gamalt, boðið velkomið. Undirbúningsnefnd. ÞEGAR DÝRIN™knar' .. e JEAN HOFÐU MÁL EFFEL Aðalfundur Samvinnu- trygginga, Líftrygginga- félagsins Andvöku og Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga h.f. voru haldnirað Hótel KEA á Akureyri föstudaginn 2 . maí s.l. Fundina sátu 16 fulltrúar víðsvegar að af landinu auk stjórnar félaganna, framkvæmda- stjóra og nokkurra starfs- manna. Erlendur Einarsson, forstjóri, flutti skýrslu stjórnarinnar. Þar kom m.a. fram að heildarið- gjaldatekjur Samvinnutrygginga námu kr. 603,1 milj. á árinu 1972, en það var 26. reikningsár félagsins. Höfðu iðgjalda- tekjurnar aukizt um kr. 116,2 milj. frá fyrra ári. Heildarið- gjaldatekjur Liftrygginga- félagsins Andvöku námu kr. 11,7 milj. á árinu 1972 og höfðu aukizt um kr. 2,4 milj. frá fyrra ári. Iðgjaldatekjur Endurtrygginga- félags Samvinnutrygginga h.f. námu á árinu 1972 kr. 99,3 milj., en voru kr. 12,7 milj. árið 1971. Iðgjaldatekjur allra félagsmanna námu þvi samtals á árinu 1972 kr. 714,2 milj. á móti kr. 508,8 milj. árið 1971. Nokkur tekjuafgangur varð á rekstri Samvinnutrygginga á árinu 1972, eða kr. 14,4 milj. og hefur þá verið tekið tillit til taps á ökutækjatryggingum að fjárhæð kr. 17,8 milj. Af tekjuafganginum verðakr. 10,3 milj. endurgreiddar til tryggingatakanna, og nemur þá tekjuafgangur, sem Sam- vinnutryggingar hafa endurgreitt til tryggingatakanna, kr. 90,5 miij. frá þvi fyrst var unnt að endurgreiða tekjuafgang árið 1949. Heildartjón Samvinnu- trygginga, greidd og áætluð ógreidd, námu samtals 383,7 milj. og var tjónaprósentan 63,63% á móti 75,56% árið 1971. Tryggingasjóður Andvöku nam i árslok 1972 kr. 38,4 milj. og bónussjóður kr. 8,8 milj. Saman- lögð tryggingaupphæð lif- trygginga i gildi hjá félaginu i árslok 1972 var kr. 2,551 miljón. Sjóðir Samvinnutrygginga, þ.e. Frá aðalfundi Samvinnutrygginga. Eriendur Einarsson I ræðustól, stjórn trygginganna viö borð vinstra megin ræðustóls, en hægra megin fundarstjóri og forstjóri Samvinnutrygginga. iðgjalda og tjónasjóðir, fyrningasjóður fasteigna, vara- sjóður, höfuðstóll og eigið tryggingafé námu i árslok 1972 kr. 485,8 milj. og höfðu aukizt um 73,3 milj. frá fyrra ári. t stjórn félaganna voru endur- kjörnir Jakob Frimannsson, fv. kaupfelagsstjóri, Akureyri, og Karvel ögmundsson, útgerðar- maður, Ytri-Njarðvik. Aðrir i stjórn eru: Erlendur Einarsson, forstjóri, Reykjavik, formaður, Ingólfur ólafsson, kaupfélags- stjóri, Reykjavik, og Ragnar Guðleifsson, kennari, Keflavik. VOR I DAL nefnist hátíð UMFÍ í Þjórsárdal um hvítasunnuna Eins og kunnugt er orðið fór Æskulýðsráð rikisins þess á leit við Ungmennafélag lslands aö það gengist fyrir útiskemmtun um hvitasunnuna 1973. Ungmennafélag Islands varð vel við þeirri málaleitan Æsku- lýðsráðs og hóf undirbúning þá þegar. Skammur timi var til stefnu en á verkefninu var tekið af festu og er nú allvel á veg kom- ið. Ungmennafélag Islands hefur skipað framkvæmdanefnd frá þeim aðilum, sem meginþunginn af þessari framkvæmd hvilir á. I henni sitja eftirtaldir aðilar: Sigurður Geirdal framkv.stj. UMFt. Guðmundur Gislason framkv.stj. UMSK, Jóhannes Sig- mundsson form. HSK. Framkvæmdanefndin hefur siðan ráðið sér starfsmenn og eru þeir: Hafsteinn Þorvaldsson fram- kvæmdastjóri, Pétur Einarsson blaðafulltrúi. (Simi: 14317). Ein- kennisorð hátiðarinnar hafa verið valin: „VOR 1 DAL”. Dagskrá hátiðarinnar er nú fullfrágengin, og litur hún svona út: Föstudagur 8. júnl. Kl. 18.00 Hljómlist i Tanga- radiói. Kl. 20.00 Dansleikir. Hljómsv. Þorst. Guðm. og Mánar skemmta. Laugardagur 9. júnl. Kl. 09.00 Hljómlist i Tanga- radiói. Kl. 10.00 Leikir og starf: a) Landgræðsla. b) Leiktæki. c) Fjallgöngur. d) Sundlaugarferð. e) tþróttir. f) Hestaleiga. kl. 16.00 Iþróttakeppni: a) Knattleikir. b) Viðavangshlaup (karlar). c) Jeppakeppni (torfæruakstur). kl. 21.00 Kvöldskemmtun. a) Ómar Ragnarsson skemmtir. b) Litið eitt c) Dansleikir. Hljómsv. Þorst. Guðm. og Brimkló skemmta. Kl. 02.00 Flugeldasýning. Stofnfundur náttúru- verndarsamtaka á Suðurlandi Ahugamenn um náttúruvernd á Suðurlandi boða til stofnfundar samtaka um náttúruvernd næst- komandi laugardag I félagsheim- ilinu llvoli, Hvolsvelli, og hefst hann kl. 3 e.h. Félagssvæði þessara nýju sam- taka nær yfir Árnes-, Rangár- valla- og V-Skaftafellssýslu, en slik félög eru þegar starfandi I öllum landshlutum nema á Vesturlandi auk Suðurlands. Þegar er orðið ljóst að áhuga- mannafélögin gegna mikilvægu hlutverki fyrir náttúruverndar- hreyfinguna i landinu. Þau eru nauðsynlegur vökuaðili heima i héruðum og i þeim fara fram um- ræður, þar sem hugmyndir koma fram og þróast. Einnig eru þau framkvæmdaraðilar, t.d. um söfnun gagna um náttúruminjar, og tengiliðir á milli Náttúru- verndarráðs og almennings i byggðum landsins. A fundinum á laugardaginn verður gengið frá lögum fyrir hin nýju samtök, rætt ýtarlega um markmið og verkefni samtak- anna og einnig mun Eyþór Ein- arsson, varaformaður Náttúru- verndarráðs, skýra frá starfi og starfsháttum ráðsins og ræða nokkuð um gróðurverndarmál. Mikilvægt er að allir áhuga- menn um náttúruvernd á Suður- landi gangi til samstarfs innan hinna nýju samtaka og veiti þeim lið. — (Fréttatilk.)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.