Þjóðviljinn - 07.06.1973, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 07.06.1973, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 7. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 JON CLEARY: Sendi- fulltrúinn forsætisráðherrann hafi augastað á honum sem eftirmanni. Quentin hafði aðeins verið þingmaður i tvö ár þegar hann var gerður að- stoðarráðherra. Hann var alltaf i sendinefndum til útlanda. Og þegar siðasti sendifulltrúinn i London dó skyndilega, var Quent- in sendur þangað. Starfið heyrir undir utanrikisþjónustuna, en i þvi er ævinlega stjórnmálamað- ur. Ýmist er verið að verðlauna þá fyrir unnin störf, eða byggja þá upp fyrir annað og meira. Quentin er bersýnilega i seinni hópnum. Svo leiðrétti hann þetta: — Eða var. Malone fann hvernig smám saman birti i hugskoti hans; and- rúmsloftið i skrifstofu Flannerys hafði fyllt huga hans þoku, en nú var hann aftur farinn að hugsa skýrt. — Og nú eru alrikiskosn- ingar fyrirhugaðar i júli og úrslit- in tvisýn — þess vegna myndi safamikið hneyksli vera kærkom- ið, er það svo? — Kosningar hafa unnizt á minna. Verkamannaflokkurinn þarf aðeins að gefa i skyn að for- sætisráðherrann hafi ekki næga dómgreind i mannavali. Hann hefur verið óheppinn með einn eða tvo ráðherra. Ef þetta bætist ofaná, fer verkamannaflokkurinn að spyrja, hvort hann sé i raun- inni fær um að stjórna landinu. — Einhvern veginn finnst mér þetta naglaleg aðferð til að ákveða framtið heils lands. — Þú ættir að lesa meiri mann- kynssögu, Scobie. Þjáningasvip- urinn sem þú sérð stundum á and- liti stjórnmálamanns, stafar af hnifstungu i bakið. Sumir bezt metnu mennirnir i mannkynssög- unni, hafa verið fimir að beita hnifnum. — En Flannery er þó ekki að hugsa um að fara yfir I alrikis- stjórnmálin, eða hvað? — Auðvitað ekki. Hér i Nýja Suður Wales er hann kóngur. Af hverju ætti hann að vilja fara til Canberra og verða aðeins smá- prins þar? Nei, þetta er ekki ann- að en persónuleg óvild milli hans og forsætisráðherrans. — Og Quentin — hvað er hann? Skyttan i vefnum? — Hann er morðingi, Scobie. Þú þarft ekki að hugsa um annað en það. Þeir voru komnir að útidyrun- um að hrörlega hjallinum sem Brúðkaup 21. april s.l. voru gefin saman i hjónaband Anna Alexia Sigmundsdóttir og Einar Guðmundsson. Sr. Oskar J. Þor- láksson gaf brúðhjónin saman. Heimili þeirra er að Melgerði 2lA, Kópavogi. Ljósmyndastofa Kópavogs. var aðalstöðvar lögreglunnar. Innanum stál og glerhallirnar i kring var hann eins og fornlegt minnismerki af vafasömum upp- runa, ef til vill eina byggingin sem frumbyggjarnir höfðu reist. Löggæzlan hefur alltaf verið oln- bogabarn i Astraliu; af hverju ætti lögregluþjóni endilega að liða vel? Þeir gengu inn i skuggsýnt anddyrið og inn i fornlega lyftuna sem marraði eins og lagakerfið sjálft. Þegar þeir komu út úr lyftunni, rétti Leeds möppuna að Malone. — Lestu þetta, og færðu mér það svo. Haltu afritinu eftir, þú kynn- ir að þurfa á þvi að halda i Lond- on, en láttu engan sjá það. Þetta er algert leyndarmál. I viku að minnsta kosti. En þá kæmi mér ekki á óvart þótt Flannery léti gera plaköt og lima þau upp um alla Sydney. Malone tók möppuna og fór að leita að auðri skrifstofu. Flest 4 starfsfólkið var úti að borða, en hann hafði enga matarlyst i svip- inn. Atburðir morgunsins höfðu komið honum i uppnám og hann sá fram á fyrstu utanlandsferö sina, og honum var umhugað um að komast sem fyrst inn i málið. Hann fann autt herbergi, settist i einn af óþægilegu stólunum, opn- aði möppuna og hóf kynningu sina við John Quenton, sem áður hét Corliss, ambassador og morð- ingja. III I þægilegum stól i glæsilegri ibúð hinum megin á hnettinum, leit Madame Cholon út i mjúkan Lundúnasuddann og kinkaði kolli með ákafa. — Maðurinn sem þarf að drepa, sagði hún, — er ástralski sendifulltrúinn. Mennirnir þrir sem hjá henni voru, sögðu ekkert. Tveir þeirra höfðu þegar lært að svara henni ekki fyrr en hún leit beint á þá; hinn þriðji, Pallain, var enn að reyna að átta sig á henni. Hún stóð upp og silkiskálmarnar á sið- buxunum hennar strukust saman þegar hún gekk að glugganum. Neðar við götuna gnæfði Visinda- safnið eins og dökkur klettur út úr Laugardaginn 3. marz voru gefin saman i Bústaðakirkju af séra Ólafi Skúlasyni Erla Kristjana ólafsdóttir og Kolbeinn Stein- bergsson. Heimili þeirra verður að Teigagerði 8, Rvik. Ljósmyndastofa Þóris úðanum; það var verið að skola Kensington burt af landakortinu. Hún hafði verið i mánuð i Eng- landi, og hún hataði þennan gráa raka og kuldann. Það fór hrollur um hana og hún bretti upp krag- ann á cashmerepeysunni sinni. — Þessi ráðstefna gengur ekki eins og við hefðum kosið. Hún tal- aði frönsku vegna Pallains; hún vissi að hann gat talað viet- nömsku, en hún hafði aldrei heyrt hann tala annað en frönsku eða ensku. Hann var snobb.en hún var það stundum lika. — Við verðum að gera eitthvað til að hrista upp i henni. Þessi Quentin virðist hafa töglin og hagldirnar núna, svo að það liggur beint viö að koma hon- um fyrir kattarnef. A götunni fyr- ir neðan hana ók isvagn og hringdi bjöllu af mikilli bjartsýni i þessum raka kulda. Þessir Eng- lendingar voru fáránlegir bjart- sýnismenn, alltaf sannfærðir um að sólin færi að skina rétt strax. Henni féll betur við Frakka kald- hæðna og bölsýna; það var ein- lægt auðveldara að átta sig á böl- sýnismönnum. Hún sneri sér aft- ur að mönnunum þrem, sem allir höfðu i sér einhverja ögn af frönsku blóði. — Eruð þið ekki sammála? Pallain neri skeggbroddana, sem alltaf fóru að koma i ljós á þessum tima dags. Hann hafði i sér meira af frönsku blóði en hinir mennirnir tveir; faðir hans hafði verið hárprúður undirforingi frá Carcassonne, sem hafði dáið i leðjunni við Dien Bien Phu og skilið eftir sig tvitugan son, en fæðingu hans harmaði hann meira en sinn eigin dauða. — Ég sá ekki hvaða tilgangi það þjónar að drepa Astraliumanninn. Madame Cholon andvarpaði og reyndi ekki að leyna óþolinmæði sinni yfirskilningsskorti Pallains. Það skrjáfaði enn i buxnaskálm- unum þegar hún kom til haka og settist. — Ef hann er drepinn, hverjum verður þá kennt um? Ekki okkur, þvi að enginn veit um okkur. En það fellur grunur á alla sem hafa áhuga á landi okkar. Bandarikjamenn ásaka Kinverja og öfugt. Og sama máli gegnir um Suður-Vietnama og Viet Cong, Kaþólikkana og Búddistana. Já, de Gaulle verður kannski grunað- ur lika. Sléttleitt andlit hennar fékk á sig stelpulegan illgirnis- svip. — Og ef tortryggnin breiðist út, þá verður ráðstefnan gagns- laus. Henni verður frestað eins og svo mörgum öðrum ráðstefnun- um. Striðið heldur kannski áfram, en það verður engin raun- veruleg stjórn i Saigon, ekki fremur en undanfarin tvö ár. Stjórnleysi er það sem við viljum. — Það verður ekki auövelt, sagði Pallein. — Eg á við að kála Astraliumanninum. Hinir mennirnir tveir kinkuðu kolli. Troung Tho og Pham Chinh voru báðir smávaxnir menn, og franska blóðið i þeim var tveggja ættliða gamalt og hafði i upphafi verið heldur klént. Morð voru þeim ekki framandi, en London var þeim framandi, og i þessari stórborg leiö þeim illa, og þeir voru jafnvel dálitið hræddir. — Ég elska tvisýnu, sagði 23.4. s.I. voru gefin saman i hjónaband i Kópavogskirkju þau Agnes Elisdóttir og Arni Bergur Sigurbergsson. Séra Lárus Halldórsson gaf brúðhjónin saman. Heimili þeirra er að Vindási við Nesveg. Ljósmyndastofa Kópavogs. FIMMTUDAGUR 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45. Morgunleikfimi kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Kristin Sveinbjörns- dóttir heldur áfram að lesa söguna af „Kötu og Pétri” eftir Thomas Michael (2). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lögá milli liða. Morgunpopp kl. 10.25: Hljómsveitin Traffic syngur og leikur og Neil Young syngur. Fréttir kl. 11.00. Hijómplötusafnið (endurt. þáttur G.G.). 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 A frlvaktinni. Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Siðdegissagan: „Páfinn situr cnn I Róm” eftir Jón óskar.Höfundur les (9). 15.00 Miðdegistónleikar: Georges Octors og Jenny Solheid leika Sónötu fyrir fiðlu og pianó eftir Guill- aume Lekeu. Jascha Silber- stein og Suisse Romande hljómsveitin leika Fantasiu fyrir seiló og hljómsveit eft- ir Jules Massenet, Richard Bonynge stjórnar. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Til- kynningar. 16.25 Popphornið. 17.10 Tónleikar. 18.00 Eyjapistill. Bænarorð. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Daglegt mái. Helgi J. Halldórsson cand. mag. flytur þáttinn. 19.25 Landslag og leiðir.Berg- sveinn Skúlason flytur sið- ara erindi sitt um Múla- sveit. 19.50 Samleikur og einleikur I útvarpssal. Ásdis Stross fiðluleikari og Agnes Löve pianóleikari leika tónlist eftir Hindemith. a. Sónata i Es-dúrop. 11 nr. 1 fyrir fiðlu og pianó. b. Sónata nr. 2 fyr- ir pianó. 20.20 Leikrit: „Ævintýri I Miinchen” eftir Ludvik Askenazy.Þýðandi: Asthild- ur Egilson Leikstjóri: Bald- vin Halldórsson. Persónur og leikendur: Stúlkan: Ingunn Jensdóttir. Lög- reglumaður: Jón Sigur- björnsson 21.00 Sænsk tónlisLa. Margot Rödin syngur lög eftir Hugo Alfvén. Jan Eyron leikur á pianó. b. Trió nr. 1 í Es-dúr eftir Franz Berwald. Ber- wald-trióið leikur. 21.40 Ljóð eftir Sigriði Einars frá Munaðarnesi. Guðrún Guðjónsdóttir flytur. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir, Reykja- vikurpistill i umsjá Páls Heiðars Jónssonar. 22.45 Manstueftir þessu? Tón- listarþáttur i umsjá Guð- mundar jónssonar píanó- leikara. 23.30 Fréttir i stuttu máli. Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut- hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta með svartri rönd. Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er. GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F. Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 30688 Imiikinn er bnklijarl BllNAÐARBANKI N N FÉLAG ÍSLENZKRA HLJÖMLISTARMAiA #útvegar yður hljóðfœraleikara og hljómsveitir við hverskonar tœkifœri linsamlogast hringið i 20255 milli kl. 14-17 AUGLYSINGASÍMINN ER 17500. WDVIUINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.