Þjóðviljinn - 07.06.1973, Qupperneq 15
Fimmtudagur 7. júni 1973. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 15
Finnskur
Framhald af 4. siðu.
Norræna húsið gangast fyrir
þessari heimsókn i sameiningu.
Hér er eingöngu um að ræöa
námskeiö i sauma- og prjóna-
vinnu en ekki er á döfinni neitt
slikt fyrir smiðakennslu. Virðist
þó mörgum að ekki væri van-
þörf á sliku. GSP
Skarðsmót
Framhald af bls. 10.
frá Akureyri, 11 frá Reykjavik, 10
frá Siglufirði, og einn keppandi er
frá Húsavik.
bá hefur það veriö venja und-
anfarin ár og verið afar vinsælt
aö skiðafólkið keppi i knatt-
spyrnu, heimamenn gegn utan-
bæjarmönnum, og verður svo
einnig nú.
Mikil innlán
Framhald af 4. siðu.
en Landsbankinn hefur einmitt
ákveðið að byggja á Laugavegi 7 i
samfloti með öðrum til að greiða
fyrir afgreiðslu þessa útibús. Ef
saman eru lagðir þeir sem i
Landsbanka komu vitt um landið
i þessari talningarviku, var það
7000 manns að meöaltali dag
hvern.
Tap Landsbankans undanfarin
ár hafa verið bundin óheillavæn-
legum sveiflum i sjávarútvegi.
Tap bankans siðastliðið ár, það er
fé sem er afskrifað sem endan-
lega tapað og aldrei greitt, var
rúmlega 1,6 miljón. Þetta sama
ár fékk bankinn þó tæpl. 3,6 milj-
ónir greiddar af fé sem hann áður
hafði talið endanlega tapað. Af
þessu er sýnt, að illmögulegt er
að tapa á bankarekstri.
Þó eru bankar nokkuð verr
settir í sliku verðbólguþjóðfélagi
sem hér er en annars staðar.
Bankar mega nefnilega ekki
safna auði i fasteignum, verð-
bréfum, né fyrirtækjum. Þó er
þeim heimilt að eignast eigið hús-
næði undir starfsemi sina og er
það e.t.v. skýringin á bankabygg-
ingum á landi hér. Ef bönkum
hiotnast verðbréf, fyrirtæki eða
fasteignir vegna skuldauppgjörs,
ber þeim samkvæmt lögum að
losa sig við það hið bráðasta.
Alvarlegastur hlutur i banka-
málunum er sá, hve raungildi
vaxta er litið. Nefndu bankastjór-
ar dæmi þess, að reiknað hafði
verið út hvert raungildi vaxta
hefði verið 20 ára timabil, 1948-
1968. Út úr þvi reikningsdæmi
kom að raunvextir hefðu verið
neikvæðir um 2% þetta timabil,
en þó staðið á núlli eftir að inn i
dæmið var reiknað gildi þess, að
sparifé er fritt fyrir skattinum.
Slikur er hraðinn á verðbólgunni.
—úþ.
FAO-menn
Framhald af bls. 16.
yfirmenn FAO mikils virði, enda
kemur um fjórðungur af þvi fé
sem Sameinuðu þjóðirnar hafa til
þróunaraðstoðar frá Norður-
löndum.
Framkvæmdastjóri FAO vakti
athygli á þvi alvarlega vanda-
máli sem matvælaskortur i
heiminum er, en einmitt nú eru
matvælabirgðir minni en veriö
hafa i 20 ár. Þar á móti hefur
mannkyninu fjölgað um þriðjung
á siöustu tveim áratugum. Ráö-
gerthefði verið aö auka matvæla-
framleiðsluna um 4% árlega á
þessum áratug, en reyndin heföi
aðeins oröiö 2% þau ár sem liðin
eru.
Popper er yfirmaður fiski-
deildar FAO, en þvi starfi gegndi
Jackson áöur en hann hækkaði i
tign. Þótti þeim þvi fengur að þvi
að heimsækja Island, og er ekki
að efa að þeir hafa persónulega
góðan skilning á landhelgis-
málum okkar. En þeir töldu
skyldu sina að vekja athygli á þvi
i samban.di við matvælaskortinn i
heiminum, aö meirihlutans af
matvælum er aflað á landi úr
plönturikinu.
Rannsóknar-
nefnd
Framhald af bls. 16.
Aður gegndi Bob Haldeman þvi
embætti, en hann hrapaði um leið
og John Ehrlichman vegna
Watergate-málsins.
Undanfarna mánuði hefur
Nixon forseti Bandarikjanna orð-
ið að breyta málflutningi sinum
hvað eftir annað, og þykir jafnvel
flokksbræðrum hans að hann
verði að fara að koma fram opin-
berlega og játa sekt sina, en for-
setinn reynir sjálfsagt i lengstu
lög, trúr venju sinni, að sverja
sem mest af sér, enda veit hann
vist manna bezt að hann hefur
ýmislegt á samvizkunni. Auk
þess hefur það varla verið vani
Bandarikjaforseta að segja frá
öllum sinum glæpaverkum, það
gerir minna til þótt eitthvað frétt-
ist löngu eftir allt er um garð
gengið.
Landhelgin
Framhald af bls. 6.
ur farið ört fjölgandi sem að-
hillast þá stefnu.
Herskipainnrás Breta í fisk-
veiðilögsögu okkar verður til
að þjappa íslendingum saman
og sigurinn er okkar.
I maí 1973.
Einar Ingimundarson.
Eldur
í báti
I fyrrakvöld kom upp eldur i 35
íonna rækjubáti frá Grundarfirði,
Haraldi, þar sem hann var að
koma úr róðri og var kominn
nærri landi. Var farið á bátum frá
Grundarfirði Haraldi til aðstoöar
og hann dreginn til hafnar.
Engan sakaði um borð en
báturinn er nokkuð skemmdur.
Shll>AUK.(lte ItlhlSINS
M/S Baldur fer til
Breiðafjarðarhafna
þriðjudaginn 12. júni.
Vörumóttaka á föstu-
dag.
Ríkisskip
Herbergi óskast
til leigu i stuttan tima.
Upplýsingar i sima 30068.
FRÁ SJÚKRASAMLAGI REYKJA-
VÍKUR
Ný samlagsskirteini
Þessa dagana bera skátar út ný sam-
lagsskírteini i borginni, ásamt bæklingi
með upplýsingum fyrir samlagsmenn.
Bæklinginn er fólk beðið að kynna sér og
geyma hann siðan vel.
Heimilisföng á skirteinunum eru samkv.
ibúaskrá 1. des. 1972. Skátunum er ætlað
að fullvissa sig um að skirteinishafar búi
enn á þeim stað, sem skirteinið greinir, og
er fólk beðið að aðstoða þá með
upplýsingum.
SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR
O. L. AUGLÝSIR
Terelinbuxur
Flauelsbuxur
Gallabuxur
Smekkbuxur
Sundbuxur
Blússur á börn og fullorðna
Skyrtur, peysur, sokkar, nærföt, vinnu-
fatnaður o.m.fl.
Póstsendum
Ó.L. Laugavegi 71,
sími 20141.
Auglýsing
Frá og með 1. júli 1973 skulu embætti,
stofnanir og fyrirtæki rikisins afhenda
tölusetta kvittun fyrir hvers konar
greiðslum, sem þau veita viðtöku frá al-
menningi, og hvort sem greiðslurnar falla
til rikissjóðs eða ekki. Kvittanir, sem hér
um ræðir, geta verið með tvennu móti:
A. Staðalkvittun (stærð A5L) með
áprentuðu nafni embættis,
stofnunar eða fyrirtækis, sem
við greiðslunni tekur. Staðal-
kvittanir hafa skjaldarmerki
lýðveldisins sem sameiginlegt
auðkenni. Stofnun eða fyrirtæki
er þó heimilt að nota eigið merki
i stað skjaldarmerkis. Eyðublöð,
sem hér um ræðir, bera ýmist
heitið „Kvittun fyrir innborgun”
eða „Reikningur”.
B. Sérgreind eyðublöð, sem merkt
eru rikissjóði eða yfirvaldi og
notuð eru fyrir ákveðnar
tegundir greiðslna eða inn-
borganir (t.d. aðflutnings-
skýrsla, söluskattsskýrsla,
skattakvittanir ritaðar i skýrslu-
vélum eða bókhaldsvélum o.fl.)
Fyrst um sinn og unz öðruvisi verður
ákveðið er stofnunum og fyrirtækjum
heimilt, að höfðu samráði við ráðuneytið,
að nota óstöðluð reiknings- og kvittana-
eyðublöð, sem þau hafa látið gera, enda
séu þau tölusett og skilmerkilega auð-
kennd. Stefnt skal að þvi að fella öll slik
eyðublöð i staðlað horf.
Fjármálaráðuneytið, 5. júni 1973.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför eiginmanns mins, föður, tengdaföður og afa,
JÓNASAR SIGURÐSSONAR
rafmagnseftirlitsmanns
Lilja Gunnlaugsdóttir
Oddný Jónasdóttir, Hermann Helgason,
Þórhildur Jónasdóttir, Björgvin M. Óskarsson,
Gunnlaugur Jónasson, Ragnheiður Sigurðardóttir.
Austfirðingar-Héraðsbúar!
Alþýðubandalagið á Fljótsdalshéraði heldur almennan fund og
skemmtisamkomu að Iðavöllum föstudaginn 8. júni kl. 21.
Ávörp flytja Stefán Jónsson dagskrárfulltrúi og Lúðvik Jósepsson ráð-
herra.
HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANDS
A þriðjudag verður dregið i 6. flokki.
4,300 vinningar að fjárhæð 27.820.000
krónur.
Á morgun er siðasti endurnýjunardagur-
inn.
6. flokkur
4 á 1.000.000 kr.
4 á 200.000 — .
240 á 10.000 — .
4.044 á 5.000 — .
Aukavinningar:
8 á 50.000 kr.
Happdrættl Háskóla tslands
4.300
. 4.000.000 kr.
800.000 —
2.400.000 —
20.220.000 —
400,000 —
27.820.000 —