Þjóðviljinn - 07.06.1973, Page 16

Þjóðviljinn - 07.06.1973, Page 16
uoaviuiNN Almenrar upplýsingar ura læknaþjónustu borgarinnar erú-gefnar i simsvara Lækna- félags Reykjavikur, simi. 18888. Fimmtudagur 7. júni 1973. Nætur-, kvöld- og helgarþjón- usta lyfjabúðanna vikuna 1.-7. júni er i Vesturbæjarapóteki og i Háaleitisapóteki. Slysavarðstofa Borgarspital- •ans er opin allan sólarhring- inn. Kvöld-, nætur og helgidaga- vakt á heilsuverpdarstöðinni. Simi 21230. Hvernig stendur á þvi að allir sökudólgarnir hafa yfirbragð forsetans? Nixon krafinn sagna Rannsóknarnefnd in vill fá WASHINGTON 6/6 — Nefndin sem hefur með höndum rannsókn Watergate-málsins krafðist þess i gærkvöld að fá að sjá skýrslur um fundi Nixons forseta með fyrrver- andi ráðgjafa hans John Dean, en þeir hittust að sögn Deans um það hii 40 sinnum til þess að ræða um niðurþöggun málsins. Fyrst var þvi algjörlega neitað i Hvita hús- inu að nokkrir slikir fundir hefðu átt scr stað, en i gær var það loks viöurkennt. Ef hægt væri að fá Nixon til þess aö afhenda skýrslurnar írá fundum þeirra Dean væri þar að likindum að finna sönnun þess að Nixon vissi um tilraunina sem gerð var til að leyna innbrotinu i lengstu lög. Margir áhrifamenn i flokki Nixons leggja nú hart að honum skýrslur að koma fram opinberlega og svara þvi hversu mikið hann veit um málið i heild. Þeir hafa áhyggjur af áframhald- andi þátttöku hans i stjórnmálum og einnig og ekki siður vilja þeir gjarnan að flokkurinn hafi ein- hverja von um sigur i næstu kosn- ingum, þvi þurfi Nixon að hreinsa sig sem fyrst að svo miklu leyti sem hann getur. Tilkynnt var að Nixon forseti hefði útnefnt Melvin Laird fyrrv. hermálaráðherra sem ráðgjafa sinn um innanrikismál. Áður gegndi þvi starfi John Ehrlich- man, en hann sagði af sér i sl. mánuði vegna Watergate. Sam- timis var tilkynnt að Alexander Haig sem var áður settur yfir- maður embættismanna forsetans hafi nú verið skipaður i starfið. Framhald á bls. 15. ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ Austfirðingar — Héraðsbúar. Alþýðubandalagið á Fljótsdalshéraði heldur almenna samkomu að Iðavöllum föstudaginn 8. júni kl. 21. Ávörp flytja: Stefán Jónsson, dagskrárfulltrúi, og Lúðvik Jósepsson, ráöherra. Samkoman er öllum opin. Útgáfufélag Þjóðviljans Aðalfundur útgáfufélags Þjóðviljans verður haldinn miðvikudaginn 13. júni að Grettisgötu 3 og hefst kl. 20:30. Auk venjulegra aðalfundar- starfa verður rætt um endurbætur á blaöinu og útbreiðsluherferð þá, sem nú stendur yfir. Stjórnin Kjördæmisráðstefna á Raufarhöfn Aöalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalags i Norðurlandskjördæmi eystra verður haldinn i Hnitbjörgum á Raufarhöfn 8. og 9. júní. Farið verður með hópferðabíl frá Akureyri kl. 14, föstudaginn 8. júní, og eru fulltrúar beðnir aö tilkynna þátttöku á skrifstofu Alþýðubanda- lagsins, Geislagötu 10, kl. 9-11 f.h., simi 21875. Fundurinn hefst kl. 21 á föstudagskvöld með skýrslu formanns og kosningu starfsnefnda. Að þvi loknu verða almennar umræöur um stjórnmálaviðhorfið og hefur Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins, framsögu. A laugardag hefjast fundarstörf kl. 9 árdegis og er stefnt að þvi að ljúka fundinum það snemma, að allir fulltrúar nái heim til sin um kvöldið. Fundurinn á föstudag er öllum opinn. Stjórn kjördæmisráðsins Akureyri Askrifendasöfnun Þjóöviljans er hafin á Akureyri. Tekið er á móti nýjum áskrifendum á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Geislagötu 10 alla virka daga kl. 9 til 11 fyrir hádegi. Þeir sem ekki fá blaöið með góðum skilum eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við skrifstofuna á fyrrgreindum tima i sima 21875. Leiðari í Figaro: íslendingar sigra innan skamms Franska blaöiö Le Figaro birti þann 28. mai forsiðuleiðara um landhelgismálið sem er heldur hagstæöur islendingum og nefnist hann „Trompin sem island hef- ur". Þar segir á þessa leið. Þorskastrið Breta og tslend- inga hefur stigmagnazt svo um munar. Þetta er ekki nýtt mál — við þekkjum svipaða árekstra á sl. tiu árum t.d. milli franskra og brasilskra fiskimanna og árekstrum hefur fjölgað i fisk- veiðilögsögu Perú, Ekvador og nú siðast Marokkó. Rýrnun fiskistofna, sem nútima veiðiaðferðir flýta fyrir, reka fiskiskipaflotann á eftir fiskinum, — og þá oftast að ströndum landa þar sem fiskveiöar hafa mikla efnahagslega þýðingu. Dæmið um tsland er enn átakanlegra vegna þess að hinir 200 þúsund ibúar landslins lifa svo til eingöngu af fiskveiðum. Þegar hætta steðjar að einu auðæfum þeirra reyna þeir að vernda þau með þvi að færa út landhelgina án þess aö spyrja um alþjóðarétt. Fordæmi skortir heldur ekki i þeim efnum. Brezkir fiskimenn munu varla lita út sem fórnarlömb yfirgangs eftir að þeir hafa fengið á sig svip Goliats, sem kallar á hinn kon- unglega flota til að þvinga hinn is- lenzka Davið til að afturkalla ákvörðun sina. Skotin sem Ægir sendi frá sér á dögunum munu ekki bæta röksemdir Islendinga. Máske flýta þau fyrir leit að lausn málsins. Þeim mun fremur sem á tslandi eru pólitiskar ástriður að ná yfirhöndinni yfir efnahagsleg- um vandamálum. t Reykjavik nota menn tækifærið til að krefj- ast þess að island gangi úr NATO. tslendingar hafa öll spjót úti — sá dagur er ekki langt undan að þeir sigri i þorskastriðinu. En þar fyrir utan er eftir að skera úr um það hvað sé hafréttur að þvi er varðar fiskimið, auðæfi neðansjávar, siglingafrelsi — og eru margar kenningar á lofti. Hafréttarráðstefa SÞ mun hafa ærinn starfa. USA vill verja miðin við austur- ströndina Kaupmannahöfn 6/6. — Fulltrúar Bandarikjanna á ráðstefnunni um fiskiveiðar i Norður-Atlanzhafi vilja tak- marka veiðar viö austur- strönd Bandarikjanna. — Þeir lögðu fram tillögur þar að lút- andi, alls i tiu liðum. Einnig vilja þeir láta sekta þá sem ekki fara eftir settum reglum. Búizt er við deilum um mál- ið, en 16 þjóðir eiga fulltrúa á ráðstefnunni. Sovézku fulltrúarnir sendu frá sér tilkynningu þess efnis að þeir væru i grundvallarat- riðum sammála tillögu Banda rikjamanna, en væru á móti aðferðunum sem þeir vildu hafa á eftirlitinu, en Banda- rikjamenn vildu fylgjast vel með þvi að reglunum yrði fylgt. Er þá hægt að gera ráð fyrir að þeir hafi nægilega stóran herflota til þess að fylgja eftir settum reglum. A ráðstefnunni eru um 150 manns, og er ætlunin að ræða m.a. deiluna um landhelgi Is- lands og takmörkun hvalveiða við strendur Grænlands. Er ánægjulegt til þess að vita að sifellt bætast fleiri þjóðir i hópinn, sem snúast gegn ofveiði. FAO-mennirnir frá vinstri: Dr. Björn Sigurbjörnsson, Popper, Jackson, Bildesheim FAO-menn í heimsókn Undanfarna daga hafa verið staddir hér nokkrir góðir gestir frá Matvæla- og landbúnaðar- stofnun Sameinuöu þjóðanna — FAO — en sú stofnun hefur aðsetur i Róm. Fremstur I flokki er R.I. Jackson einn af aðalfram- kvæmdastjórum stofnunarinnar, en við hlið hans F. E. Popper einn af aðstoðarframkvæmdastjórum og G.E. Bildesheim, svæðisstjóri FAO I Evrópu. Með þeim var einnig dr. Björn Sigurbjörnsson aðstoöarframkvæmdastjóri sér- stakrar matvæladeildar sem er sameiginlega á vegum FAO og Alþjóða kjarnorkumála- stofnunarinnar i Vinarborg. Gestirnir hittu hér að máli ýmsa helztu forystumenn i land - búnaöarmálum, ferðuöust um Suðurlandsundirlendi og skoðuðu rannsóknarstofnanir. Þá ræddu þeir viö bæði landbúnaðar- og sjávarötvegsráðherra. íslendingar hafa sótt um styrki til Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna varðandi ýmislegt sem snertir iverksvið FAO, svo sem rannsóknir á beitarþoli og öðru sem snertir uppblástur, fiskirækt o.fl. Þegar fénu hefur verið úthlutað er FAO sú tæknistofnun sem anest framkvæmdirnar að miklu leyti eða hefur þar meðal- göngu. FAO-mennirnir komu að visu ekki beinlinis i þeim erinda- gjörðum að kynna sér þau verkefni sem tslendingar hyggjast verja þróunarstyrkjum sinum i, en vitanlega voru þau vandamál mjög á dagskrá i heim- sókn þeirra. FAO telur aö tengslin viö Island hafi ekki verið svo náin sem skyldi, en i þeim er tsland bæði veitandi og þiggjandi aðili. A vegum FAO starfa 13 tslendingar, þar af 2 i Róm og er annar þeirra hinn þekkti Hilmar Kristjónsson i fiskideild stofnunarinnar. All margir skip- stjórar og vélstjórar hafa unnið i vanþróuðum löndum aö tilsögn i fiskveiðum á vegum FAO. Tengslin viö Norðurlönd telja Framhald á bls. 15. Danir fœra ekki út landhelgina að svo stöddu Kaupmannahöfn 6/6. — Rik- isstjórn Danmerkur hefur ekki i hyggju að fara að dæmi Svia sem vilja færa út land- helgi sina i Eystrasalti i 12 sjó- milur. Eins og stendur er landhelgi Svia 4 sjómilur og Dana 3 milur. Að visu eiga þessi lönd ekki svo hægt um vik i sambandi við að færa landhelgina mjög langt út vegna nálægðar grannland- anna, en það virðist vera að margar þjóðir endurskoði stærð landhelgi sinnar um þessar mundir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.