Þjóðviljinn - 08.06.1973, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 08.06.1973, Blaðsíða 3
Föstudagur 8. júnt 1973. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 3 Hreindýra- stofninn kominn á 5. þúsund Sennilega leyft að skjóta 1500 dýr i sumar Hreindyrastoíninn hér á landi mun nú vera kominn eitthvað yfir 4000 dýr en taln- ing fer fram um miðjan þenn- an mánuð á vegum mennta- málaráðuneytisins. Sú talning fer þannig fram, að flogið er yfir svæðið sem dýrin dvelja á og teknar myndir og dýrin tal- in á myndunum. Þótt þetta sé ef til vill ekki svo mjög ná- kvæmt er tryggt að þannig fæst lágmarksfjöldi dýranna og eftir honum eru teknar ákvarðanir um hve mörg dýr má skjóta árlega. Birgir Thorlacíus ráðu- neytisstjóri i menntamála- ráðuneytinu er nýkominn af fundi með hreindýraeftirlits- mönnum, en hann var haldinn á Egilsstöðum. Birgir sagði að talið væri að stofninn væri kominn yfir 4000 dýr, og ef það reynist rétt við talningu, verð- ur i haust leyft að skjóta um 1500 dýr. Talið er að það svæði sem dýrin lifa á þoli um 5000 dýr. Sportveiðimönnum er ekki lengur leyft að veiða hreindýr, heldur er eftirlitsmönnum dýranna falið þetta verk og hafa þeir með sér aðstoðar- menn. Hvorki má skjóta kálfa né kýr með kálfa, en veiðarn- ar hefjast vanalega i ágúst. Mikil eftirspurn er nú eftir hreindýrakjöti enda er það herramannsmatur og eru það einkum hótelin sem fá kjötið. — S.dór MADRID 7/6 — Búizt er við breytingum á spænsku stjórninni bráðlega, og er talið að Franco muni tilnefna forsætisráðherra. Franco er orðinn áttræður, en hann gegriir embættum forseta, forsætisráðherra og yfirmanns hersins. Konur yfirtaka barnakennarastéttina Aðeins 8 karlai* af 45 nýskipuðum kennurum við barnaskólastigið i Reykjavik Aðeins 8 kennarar af 45, sem fræðsluráð hefur samþykkt að mæla með að verði skipaðir eða settir i stöður við barnaskóla Reykjavikur frá næsta hausti, eru karlkyns. Þessi staðreynd kemur fram i bókun frá siðasta fundi fræðslu- ráðs, þar sem taldir eru upp þeir, sem skipaðir verða eða settir i samráði við tillögur skólastjór- anna. Er þetta enn ein staðfest- ingin á þeirri þróun, sem átt hefur sér stað um langan tima undan- farið, að konur eru .að yfirtaka barnakennarastéttina. Hins vegar verður myndin önn- ur á efri fræðslustigunum, þær eru t.d. i mikum minnihluta i kennarahópi menntaskólanna, svo ekki sé talað um háskólann, og enn sem komið er i minnihluta við gagnfræðaskólana. Á gagn- fræðastiginu eru konur þó að sækja sig, a.m.k. ef dæma má eftir nýsettum og skipuðum kenn- urum við gagnfræðaskólana i Reykjavik skv. bókun frá sama fundi fræðsluráðs. Þar skiptist hópurinn nákvæmlega til helm- inga eftir kynjum, 12 karlar og 12 konur af 24 kennurum. — Hversvegna er ástandið svona á barnaskólastiginu, spurði Þjóðviljinn einn Rauðsokkanna, Eddu Öskarsdóttur, i gær, en Edda er starfandi kennari við Mýrarhúsaskóla á Seltjarnar- nesi. Fleiri sel Formaður bygginganefndar Reykjavikur hefur gert tillögur að eftirfarandi götunöfnum i fyr- irhuguðu verkamannabústaða- hverfi i Seljahverfi: 1. öldusel, 2. Ytrasel, 3. Vatna- sel, 4. Tungusel, 5. Tindasel, 6. Teigasel, 7. Strandasel, 8. Stiflu- sel, 9. Stapasel. Óvenjulegt i kröfugerðarpólitikinni Fengu meiri hækkun en um var beðið! Það er ekki oft sem það gerist að fiskseljendur, sjó- menn og útgerðarmenn, fá meiri hækkun á sjófangið en kröfur eru settar fram um. Þetta gerðist þó nú á dögunum með ákvörðun Þjóðviljanum lofað lóð við Siðumúlann A siðasta fundi borgarráðs, 5. þm.,voru lagðar fram og sam- þykktar tillögur lóðanefndar um að gefin verði fyrirheit um nokkr- ar lóðir við Siöumúla. Meðal þeirra sem lofað er lóð við Siðumúlann er Þjóðviljinn, við Siðumúla 6, en Blaðaprent, þar sem blaðið er prentað ásamt öörum, er einnig við Siðumúla, 16. Aðrir,, sem lofað var lóö við Siöumúlá.voru Bilasalan Aðstoö, nr. 2. Stafn hf. nr. 4, og Bila- nausti hefur verið gefið fyrirheit um lóð nr. 9 til viðbótar lóð nr. 7. — Þetta er fyrst og fremst vegna launanna, sagði hún. Karl- menn telja sig yfirleitt ekki geta lifað á barnakennaralaunum og alls ekki, eigi þeir fyrir fjölskyldu að sjá. Konur virðast sætta sig við lægri laun og það jafnt, þótt þær séu kannski ekki siður fyrirvinn- ur heimilis en karlkyns kennar- arnir. Það er lika ein ástæðan, að styttri menntun hefur til þessa þurft til að kenna við barnaskól- ana en t.d. við gagnfræðastigið, og konur sækjast eftir styttri menntun af ýmsum ástæðum. Kemur þar til bæði aðstöðumunur við nám, t.d. minni laun við sumarvinnu og minni hvatning til langskólanáms, og líka er þungur á metunum hefðbundinn hugs- unarháttur í þjóðfélaginu, þ.e. að konan eigi að hugsa um litlu börn- in, bæði heima hjá sér sem móðir og lika i skólakerfinu, sem fóstra og sem smábarnakennari. Mynd- in af skólanum i þessu efni er ekki annað en endurspeglun á þjóðfé- laginu. —vh Verðlaun: að tefla við borð þeirra Spasskis Og Fischers Fréttaritari svissnesku blaðið Tribune de Lausanne og Tribune de Geneve var hér á ferð á dögunum. Hann skrifaði ekki aðeins um Nixon og Pompidou heldur einnig um skák á Islandi. ___ Astæðan er sú, að blöð hans standa að skákmóti i Sviss og fá þeir sem hlutskarpastir verða þau verðlaun að koma til Islands og tefla úrslita- skákina við borðið sem þeir tefldu við, Spasski og Fischer. Heizt i Laugardalshöllinni. Stöðumælar í stað banns A siðasta fundi borgarráðs var samþykkt tillaga umferðarnefnd- ar um að aflétt verði banni viö bifreiðastöðum i Pósthússtræti sunnan Austurstrætis og aö þar verði settir upp stöðumælar við hluta götunnar. Fyrr hafði borgarráð samþykkt skv. tillögu umferðarnefndar að banna bifreiðastöður viö Ægis- siðu að sunnanverðu milli Hofs- vallagötu og Starhaga og jafn- framt að aflétta banni viö bif- reiðastöðum að norðanveröu við götuna i sama kafla. rækjuverös, en fiskseljend- ur fóru fram á 20% hækkun á rækjukílóið upp úr bát, en hækkunin varð 22,5% Verðið á rækjunni var frá ára- mótum til siðustu mánaðamóta 31 króna pr. kiló, en hækkaði frá og með 1. júni upp i 38 krónur kilóið. Sveinn Björnsson i viðskipta- ráðuneytinu sagði að rækjuverðið hefði hækkað nokkru meira upp úr bát, en markaðsveröið hefði gefið tilefni til. Markaðsverðið hefði hækkað um 6—14% að með- altali frá þvi i haust og þar til nú, en ef miðaö væri við lengri tima, til að mynda allt frá ársbyrjun 1972, hefði meðaltalshækkunin orðið 20%. Frá þvi i haust hefur orðiö meiri hækkun á rækju á Bret- landseyjum en i Skandinaviu, en Bretar, Skandinavar og V-Þjóð- verjar eru helztu rækjukaupend- urnir. Astæöan fyrir hækkuðu mark- aðsverði er nokkur rækjuskortur, en veiðar Alaskamanna, sem oft hafa verið mjög miklar, hafa ekki heppnazt þeim eins vel nú og fyrr. — úþ. Þll SPARAR MORG MORG ÞÚSUMfl KRÚNUR Hátalara-box sem hægt er aö fullgera heima. í einum kassa færð þú hátalara og tóndeilir, teikningar og fullkomnar upplýsingar hvernig samsetning á að vera. Hægt er að smíða t. d.: 40-70 watta hátalara-box, 4-8 ohm, 28-35.000 HZ, 40 lítra, eða 50-70 watta hátalara-box, 8 ohm, 20-20.000 HZ, 80 lítra. Hringið eða skrifið og leitið nánari upplýsinga. Svo er verzlunin auðvitað opin og þar getur að líta meðal annars stereo-hljómtæki og útvörp. O) S GARÐASTRÆTI 11 SÍMI 200 80

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.