Þjóðviljinn - 08.06.1973, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 08.06.1973, Blaðsíða 7
Föstudagur 8. júni 1973. Þ.IODVILJINN — SÍÐA 7 Hvert viltu fara um lrvítasimnuna? Skipulagðar ferðir i Þórsmörk, Landmannalaugar og um Snœfellsnes Þar sem hvitasunnu- helgin er þetta seint í ár má gera ráð fyrir að hún verði með mestu ferðahelgum sumarsins. Það er Ijóst að þeir aðilar hér á landi sem annast skipulagðar hóp- ferðir innanlands eru við þessu búnirenda er hægt að velja um margar ferðir, hvort heldur fólk vill fara á Snæfellsnes, Þórsmörk, Landmannalaugar eða i Þjórsárdal þar sem gera má ráð fyrir að flest fólk verði og mest um að vera. Sennilega verður ungt fólk þar i miklum meirihluta. En hvað um það — hvert viltu fara — og hér kemur svarið við þvi upp á hvaða ferðir verður boðið. Vor í dal Gera má ráðfyrir að mest verði um að vera i bjórsárdal þar sem UMFt hefur skipulagt samkomu i 3 daga með skemmtiatriðum og dansleikjum öll kvöldin. Farið verður i skoðunarferðir fyrir þá sem vilja og má segja að sam- koman hafi verið skipulögð þannig að aldrei verði i henni dauður puriktur. Úr Reykjavik verða sætaferðir að samkomusvæðinu og til baka alla dagana sem samkoman stendur og það er BSÍ eða Um- ferðarmiðstöðin sem annast mun um þessar ferðir. barna á engin löggæzla að vera og um leið er öll vinneyzla bönnuð. Slik bönn eru alltaf á úti- skemmtunum hér á landi, en þó virðist vera afar erfitt að koma i veg fyrir meiri eða minni vin- neyzlu. Hvort það tekst i þetta sinn og hvort þessi skemmtun tekst á þann veg að allir verði ánægðir á eftir er ekki gott að segja um, en við skulum vona að svo verði. Þórsmörk Að minnsta kosti tveir aðilar munu skipuleggja ferðir i bórs- mörk um hvitasunnuhelgina. bað eru Farfuglar og Ferðafélag fslands. Farfuglar fara i bórs- mörk á morgun, laugardag, og aftur til baka á mánudaginn, annan dag hvitasunnu. Farfuglar munu dvelja i tjöldum i bórsmörk og fólk verður að hafa með sér allan venjulegan viðleguútbúnað og mat. Aðallega munu Farfuglar stunda þarna skoðunarferðir meðan á dvölinni stendur, en einnig er verið að hugsa um kvöldvöku hjá þeim, en er við höfðum samband við þá i gær var ekki búið að ákveða hvort af henni yrði né farið að skipuleggja hana á nokkurn hátt. En Far- fuglareru reyndir i slikum efnum og verða sennilega ekki lengi að koma upp skemmtilegustu kvöld- vöku. Ferðafélag tslands mun einnig fara i bórsmörk og er um tvær ferðir að ræða. t fyrri ferðina verður lagt af stað i kvöld og hina á morgun.en báðir hóparnir munu svo koma til baka á mánudaginn. Ferðafélagsfólkið mun gista i skála Ferðafélagsins i Langadal að venju. bar verður eflaust lif og fjör á kvöldvökunum ef að likum lætur. Frá Snæfellsnesi. Snæfellsnes Svo virðist sem Snæfellsnesið sé einna eftirsóttasti staðurinn til að dvelja á og skoða um hvita- sunnuna ef marka má það úrval af ferðum þangað sem boðið er uppá. bað eru þrir aðiiar sem skipuleggja þangað ferðir, Úlfar Jakobsen, Guðmundur Jónasson og Ferðafélag tslands. Ferðafélag tslands leggur af stað á Snæfellsnes á morgun, laugardag, og verður nesið allt skoðað og komið aftur á mánu- dag. Farið verður um hinar venjulegu ferðamannaleiðir á nesinu. Ferðaskrifstofa Úlfars Jakobsen fer með hóp ferðafólks á Snæfellsnes um helgina og verður þar mest um útlendinga að ræða, bjóðverja. Ekið verður um allt nesið og vinsælustu ferða- mannastaðirnir skoðaðir, svo sem Arnarstapi, Hólahólar, Búðir, Ólafsvik og Stykkis- hólmur, Berserkjahraun ofl. bessi ferð hefst á morgun og lýkur á mánudag. bá mun Umferðarmiðstöðin annast farmiðasölu i hópferð sem Guömundur Jónasson mun fara á Snæfellsnesið og verður þessi ferð á sömu slóðir og hinar ferðirnar tvær sem við höfum þegar sagt frá. bað er þvi greinilegt að Snæ- fellsnesið er vinsælasti staðurinn fyrir ferðamenn um þessar mundir. Landmanna laugar Ferðafélag lslands fer i Land- mannalaugar á morgun og verður komið til baka á mánudag. Gist verður i skála Ferðafélagsins i Landmannalaugum. bótt ein- hverjum þyki full-snemmt að fara i Landmannalaugar nú, þá eru Ferðafélagsmenn ekki á sama máli, og hver þekkir þetta betur en þeir? bá er aðeins eftir að geta um áætlunarferðir út á lands- byggöina, og getur fólk auövitað notfært sér þær, en allar venju- legar áætlunarferðir frá Um- ferðarmiðstöðinni verða farnar á morgun, laugardag, og á annan dag hvitasunnu. bá má gera ráð fyrir miklum gestagangi á bingvöllum og viðar vegna þeirra sem eiga einkabila, þannig að við getum gert ráð fyrir mikilli ferðahelgi. bá má að lok- um geta þess að vegaþjónusta FÍB mun taka til starfa um helg- ina og verða vegfarendum til að- stoðar, ef á þarf að halds, sem við skulum vona að verði ekki gog að þessi mikla ferðahelgi verði slysalaus. - S.dór. Úr Þórsmörk Félagar FI nálgast nú orðið sjö þúsund Félagið og deildir þess eiga 16 gistiskála Þegar rætt er um ferðalög innanlands kemur manni strax i hug Feröafélag Islands sem er sá aðili sem sér um fleiri innanlandsferðir en nokkur annar . Og eins og segir frá annars staðar hér á siðunni, er FI með ferðir til 3ja staða nú um hvitasunnuhelg- ina. Til að fræðast nánar um þær, sem og aðrar ferðir sem fyrirhugaðar eru hjá Fi i sum- ar, höfðum viö sambandi viö Einar Guðjohnsen fram- kvæmdastjóra FI og báðum hann segja okkur dálitiö frá Fl-ferðum sumarsins. Einar sagði að góð þátttaka væri i hvitasunnuferðunum á alla staðina 3 sem farið verður á. Mest virðist aðsóknin vera i Þórsmerkurferðirnar, en yfir 50 höfðu i gær pantað far fyrir ferðina sem farin verður i kvöld. Þá er og mikill áhugi fyrir Snæfellsnes-ferðinni sem lagt verður af stað i kl. 14 á morgun. Fariö verður útundir jökul og tjaldað við Stapafell- ið. A sunnudag verður svo gengið á Snæfellsnesjökul. A mánudeginum verður far- ið fyrir nesið og merkustu staðir skoðaðir, en siðan verð- ur lagt af stað til Reykjavikur aftur. Einar sagði að enn væri mikill snjór i Landmanna- laugum, en vegurinn þangað hefði nýlega verið ruddur þannig að auðvelt væri að komast upp eftir á stórum bil- um. Um 60 manns munu fara i Landmannalaugar á vegum Fl, og verður gist i skála fé- lagsins og farið þaðan i skoð- unarferðir um nágrenniö. Þá er Ft með eftirmiðdags- ferðir, bæði á hvitasunnudag og annan. Verður farin göngu- ferð á Vifilfell og Heiðina há. Þessar feröir eru ætlaöar þeim sem ekki komast i lengri ferðirnar. Einar sagði að þessar stuttu gönguferðir F1 hafi verið mjög vinsælar og vel sóttar. út júni-mánuð verða farnar stuttar göngu- ferðir á vegum FI, en upp úr þvi taka lengri ferðirnar við. 1 staðinn fyrir þessar stuttu gönguferðir um helgar koma gönguferðir á miðvikudags- kvöldum i júli og ágúst. Þess- ar kvöldferðir hafa notiö vin- sælda og verið vel sóttur. Þessa sömu mánuði verða svo farnar lengri ferðir, og má segja að hægt sé að fara hvert á land sem er með Ferðafé- laginu þennan tima. Þær ferð- ir eru frá 4raognpp j 12 daga Einar sagði að Ferðafélagið og deildir þess ættu nú 16 gisti- skála viðsvegar um landið. 1 öllum stærri skálunum eru húsverðir sem sjá um að ráð- stafa gistirými þvi sem laust er i skálunum, en i öllum til- fellum ganga félagar i F1 fyr- ir, en þeir eru nú orðnir nærri 7 þúsund að tölu. Þeir fá af- slátt af ferðum Fí og gistingu i skálunum, auk árbókarinnar. Félagsgjald er nú 500 kr. Ein- ar taldi að þeir sem færu i 3—5 ferðir meö FI næðu með þeim afslætti sem félagar fá að vinna upp árgjaldið. Greink legt er að mjög vaxandi áhugi er á F1 og ferðum þess. — S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.