Þjóðviljinn - 08.06.1973, Side 16
IÚÐVIUINN
Almennar upplýSingar um
læknaþjónustu borgarinnar
erú gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simj.
18888.
Nætur-, kvöld- og helgarþjón-
usta lyfjabúðanna vikuna 8.-14.
júni er i Ingólfs apóteki og
Laugarnesapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
-ans er opin allan sólarhring-
inn.
Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuverndarstöðinni.
Simi 21230.
Föstudagur 8. júni 1973.
Þrengt að
sprengju-
Nixon
WASHINGTON - Utanrik-
isnefnd fulltrúadeildar
Bandarikjaþings hefur sent
frá sér nefndarálit þar sem
lagt er til að vald Bandarikja-
forseta verði takmarkað til að
heyja styrjöld án samþykkis
þingsins. Hann geti hér eftir
aðeins beitt herafla Banda-
rikjanna i 120 daga i styrjaldar
átökum án fylgis þingsins.
Fulltrúadeildin hefur áður
gert samþykktjr á móti striðs-
rekstri Bandarikjastjórnar i
Indó-Kina og þykir þvi liklegt
að hún samþykki nefndarálit-
ið. Að þvi samþykktu yrði Nix-
on forseti að hætta loftárásum
á Kambódiu og öðrum hernað-
araðgerðum þar, i Vietnam og
Laos, innan 4ra mánaða.
Leyft og
bannað i
áfengis-
málum
OSLÓ — I Noregi mega menn
kaupa sér áfengi i búðum rikis-
einkasölunnar þegar þeir eru
orðnir tvitugir. En mörgum
leiðist að biða, og i fyrra þurfti að
visa 12.800 unglingum út sem ekki
voru komnir á áfengisaldur. En
fullorðnir fá heldur ekki
afgreiðslu ef þeir eru undir
áhrifum áfengis. Þurfi að visa
39.500 viðskiptavinum út af
þessum sökum.
Það er norska „rikið” sem
hefur svona námkvæma bók-
færslu á viðskiptum sinum. Arið
1972 var selt áfengi i landinu fyrir
1,2 miljarði norskra króna og er
það 9,8% aukning frá árinu áður.
38.800 manns voru handteknir
fyrir drykkju á almannafæri, en
1.895 var refsað fyrir brot gegn
áfengislögum á sl. ári. Helmingur
hafði gert sig sekan um smygl.
Skrambi eru þeir farnir að falla nálægt manni!
Fullbright og McCloskey leggjast báðir á Nixon
RÍKISRÉ TTUR
GEGN NIXON?
WASHINGTON 7/6 —
Hinn áhrifamikli for-
maður utanrikisnefndar
öldungadeilarinnar á
Bandarikjaþingi, Willi-
am Fullbright, hefur
ráðlagt Nixon forseta og
Agnew varaforseta að
segja af sér. Svo mikill
skuggi falli nú á þjóð-
höfðingjaembættið og
rikisstjórnina af Water-
gatehneykslinu, og megi
þessar stofnanir heita ó-
starfhæfar eins og er.
Fullbright sagði að hann
kysi ekki að efna þyrfti
til dómsrannsóknar á
forsetanum i embætti og
fá hann þannig felldan
úr embætti ef hann
Fjarskiptaverkfall
gagnvart Frökkum
Sidney 7/0. — í dag hófst fjar-
skiptaverkfall I Astraliu gagnvart
Frakklandi i mótmælaskyni við
kjarnorkutilraunir Frakka i
Kyrrahafi. Tekur það til sima- og
telex-sambands og er skipulagt af
verkalýðsfélagi simamanna.
Astralskir póstmenn hafa einn-
ig akveðið að fara i svipaðar að-
gerðirog ætla þeir að taka til hlið-
ar 750 póstpoka sem eiga að fara
til Frakklands.
Samtök póst- og simamanna i
Danmörku ihuga nú að hefja
svipaðar verkfallsaðgerðir i sam-
úðarskyni.
Forsætisráðherra Astraliu,
Gough Whitlam, bað menn um að
biða með mótmælaaðgerðir af
þessu tagi unz Haagdómstóllinn
hefði kveðið upp úrskurð sinn, en
póst- og simamenn telja það ó-
þarfa, þar eð augljóst sé að
Frakkar ætli að sprengja hvað
sem tautar.
reyndist jafn sekur og
likur bentu nú til.
Paul McCloskey, repúblikani i
fulltrúadeild Bandarikjaþings,
hefur sagt i þingræöu að flokks-
bróöir hans, Nixon, kunni að hafa
brotið lög i sambandi við Water-
gate-málið, og nú sé það
þingdeildarinnar að ákveða hvort
efnt skuli til rikisréttarákæru á
hendur honum.
Rétt væri þó að Nixon gæfist
tækifæri til að gera hreint fyrir
sinum dyrum áður.
Oft áöur hefur óformlega verið
sveigt að þeim möguleika að for-
setinn yrði að svara til saka fyrir
þessum volduga dómstól, sem er
reyndar sjálf öldungadeildin - að
meirihluta skipuð pólitiskum
fjandmönnum forsetans, — en
aldrei fyrr hefur málið verið reif-
að á opinskáan hátt i þinginu.
Þingmaðurinn taldi i ræðu sinni
að Nixon hefði gerzt sekur um
fjórfalt lögbrot: Aðstoðað mann
sem braut sambandsrikislög, set-
ið á upplýsingum um afbrot,
hindrað rannsókn á afbrotum, til-
raun til að hilma yfir upplýsingar
um afbrot.
McCloskey visaði til fyrri yfir-
lýsinga og ummæla Nixons um
Watergate-málið, en þar hefur
Nixon eða starfsmenn hans fyrir
hönd embættisins alltaf verið að
hörfa lengra og lengra fyrir ásókn
almenningsálitsins og nýfram-
dreginna gagna. Þingmaðurinn
sagði að þetta sýndi að sá timi
nálgaðist að nauðsynlegt yrði að
hefja formlega rannsókn.
Fulltrúadeildin getur samþykkt
að ákæra forsetann fyrir rikis-
rétti, en i öldungadeild þar tvo
þriðju meirihluta til að velta for-
setanum úr embætti.
Hinn sérstaki rannsóknardóm-
ari i Watergate-málinu, Archi-
bald Cox.hefur beðið öldunga-
deildarnefndina að halda lokaða
fundi ef fram koma upplýsingar
sem fella grun á „sérstakar pers-
ónur”.
Eitt af vitnunum i Watergate-
málinu hélt þvi fram i dag að Bob
Haldeman, fyrrum starfsmanna-
Framhald á bls. 15.
Eftir forsetafund
Nixon
skálaði
fyrir
„leiðtogum
írlands99
I siðasta hefti bandariska
vikuritsins Newsweek er all-
itarleg frásögn af fundi þeirra
Nixons og Pompidous i
Reykjavik. Blaðið nefnir
ýmsarskyssur sem Nixon hafi
látið sér verða á i ferðinni og
nefnir það til dæmis, að Nixon
hafi á Bessastöðum skálað
fyrir „ieiðtogum trlands”.
Mun þetta ekki i fyrsta sinn að
landafræðin stendur i Nixon
og hans kollegum.
Blaðið tinir ýmislegt annað
til, stórt og smátt, i þá veru að
Frakkar hafi sýnilega kunnað
miklu betur að haga sér en
Nixon. Þegar fréttamenn
spurðu að þvi t.d. hvers vegna
Kissinger væri viðstaddur
fundi forsetanna en Pompidou
hefði engan slikan ráðgjafa
sér við hlið, þá sagði tals-
maður Frakka: „Forseta
Franska lýðveldisins fannst
hann vel geta verið einn”.
„Hvaða lögregla” taldi?
Úr þvi það var ekki Bjarki sem taldi, hver var það þá?
Yfirlögregluþjónninn í
Reykjavik hefur aldrei lát-
ið neitt eftir sér hafa um
það, hve margirtóku þátt í
kröfugöngu og útifundi á
uppstigningardag. Ein-
stakir lögregluþjónar lægra
settir kunna að hafa verið
með ágizkanir um það, en
Þjóðviljinn spyr: Er hægt
að bera lögregluna sem
slíka fyrjr því?
Þjóðviljinn grennslaðist fyrir
um þetta hjá Bjarka Eliassyni
yfirlögregluþjóni i gær af þvi til-
efni, að Morgunblaðið hermdi
ákveðnar tölur upp á „lögregl-
una” og notaði það til árása á
Þjóðviljann og Rikisútvarpið i
Staksteinum sinum i gær. Bjarki
sagði aö hann hefði ekki reynt að
telja og hefði aldrei farið með
neinar ágizkanir um mannfjöld-
ann i aðgerðunum á uppstign-
ingardag við neinn, hvorki Morg-
unblaðsmenn né aðra. Hins vegar
hefði hann stundum áður verið að
reyna að meta mannfjölda við
slikar aðstæður.
Væri nú ekki ráð, að Morgun-
blaðið gerði hreint fyrir sinum
dyrum og segi hvaða „lögregla”
það er sem það hefur sinar tölur
eftir? Og spari sér stóru orðin um
rangfærslur i Þjóðviljanum og
Rikisútvarpinu þangað til það
hefur upp á ábyrgum manni sem
vill setja starfsheiður sinn að veði
fyrir réttmæti Morgunblaðstaln-
anna.
Vor í dal
Kerfið þolir 15 þúsund
99
99
t kvöld klukkan 18 hefst i
Þjórsárdal hátið Ungmenna-
félags tslands sem hlotið hefur
nafnið Vor i dat. Undanfarnar
vikur hefur verið unnið mikið
undirbúningsstarf fyrir hátiðina
bæði hér i Reykjavik og uppi i
Þjórsárdal. Við litum við á
Klapparstig 16 i gær, þar sem
UMFt hefur bækistöðvar sinar og
forvitnuðumst um undirbúning og
skipuiag hátfðarinnar.
'Þar urðu fyrir svörum Sigurður
Géirdal sem á sæti i undir-
búningsnefnd hátiðarinnar fyrir
hönd UMFl og Pétur Einarsson
blaðafulltrúi og gjaldkeri
hátiðarinnar. Við spurðum
hversu lengi undirbúningur hefði
staöið.
— Fyrir mánuði siðan var haft
samband viö UMFt og spurt
hvort það gæti tekið að sér hátiða-
höld á hvitasunnuhelginni. Þá
strax gerðum við könnun á þvi
hvort okkur væri það mögulegt og
gerðum starfsáætlun. Um 20. mai
var svo ráðinn framRvæmda-
stjóri og blaðafulltrúi. A þessúm
mánuði hefur gifurlegt starf verið
unnið þvi kerfið sem við höfum
unnið upp gerir ráð fy.rir allt að 15
þúsund manna hátið. Til saman-
burðar má nefna að undir-
búningur að landsmótum UMFt
tekur yfirleitt þrjú ár og allt upp i
fimm. Að undirbúningi hafa
starfaöfleintugirmanna. Það má
segja að það sé enginn hæfari tl
aö skipuleggja hátiðir af þessu
tagi en UMFt þvi það hefur skipu-
lagt 14 landsmót auk allra
héraðsmótanna.
— Hvernig er svo aðstaðan i
Þjórsárdal?
— Við höfum haft að leiðarljósi
fjögur atriði sem við teljum for-
sendur fyrir þvi að svona hátið
geti farið vel fram. Þau eru: 1. að
fólk hafi nóg að gera, 2. að nægur
matur sé til á staðnum, 3. að
hreinlætisaðstæður séu góðar og
4. öflug slysahjálp. Til þess að
tryggja þetta allt hefur mikið
verið gert á staðnum. Hvað
varðar fyrsta liðinn höfum við
skipulagt vandaða dagskrá og
mikla. Rudd hefur verið 600
metra löng og 50 metra breiö
braut þar sem komið verður fyrir
knattspyrnumörkum og annarri
aðstöðu til Iþróttaiðkana. Tveir
stórir danspallar hafa verið
reistir, gryfjur gerðar fyrir
torfæruakstur, hestarétt er á
staönum og starfrækt verður
hest.aleiga, stórt tjald er þarna
meö leiktækjum, komið hefur
verið upp útvarpi eða öllu heldur
Framhald á bls. 15.
Aðalfundur
útgáfu-
félags
Þjóðviljans
Útgáfufélag Þjóöviljans
heldur aðalfund miðvikudag-
inn 13. júni að Grettisgötu 3.
Fundurinn hefst klukkan
20:30.
Auk venjulegra aðalfunda-
starfa verður rætt um þær
endurbætur, sem gerðar hafa
verið á blaðinu á síðasta ári,
og hvað enn megi gera til þess
að bæta blaðið.
Áriðandi er að þeir sem til-
lögur hafa, eða hugmyndir um
endurbætur og breytingar á
blaöinu, mæti á fundum út-
gáfufélagsins, komi hug-
myndum sinum á framfæri og
taki þannig þátt i þvi að móta
blaðið.
Þjóðviljinn á nú við mikla
fjárhagserfiðleika að striða og
er nú glimt við þann vanda.
Jafnframt er nú unnið
skipulega að þvi aö auka út-
breiðslu blaðsins um alit land,
og þarf útgáfufélagið að finna
leiðir til þess að þvi starfi
verði haldið áfram næstu
mánuði.
Allir áhugamenn um útgáfu
Þjóðviljans eru þvi eindregið
hvattir til þess að mæta á
aðalfundinum n.k. miðviku-
dag.