Þjóðviljinn - 30.06.1973, Qupperneq 3
Lauf'ardaf'ur :iO. júnl 1973. ÞJÓDVILJINN — StÐA 3
Fyrsti íslenzki
skuttogarinn sjó
settur í dag
Stálvík h.f. hefur samið um
smíði tveggja togara í viðbót
í dag kl. 18 verður fyrsti is-
ien/.k-snuðaði skuttogarinn sjó-
settur. Þetta er 450 lesta togari
sem Stálvik h/f hefur smiðað fyr-
ir útgerðarfyrirtækið Þorinóð
ramma á Siglufirði.
Samningurinn um smiði þessa
skips var undirritaður 16. sept-
ember 1971 og samþykktur i des-
ember sama ár. Kjölur að þvi var
lagður 2. mai 1972, og er afhend-
ing þess fyrirhuguð i júlilok, en
eftir að skipið verður sjósett
verður það dregið til Hafnar-
fjarðar þar sem lokafrágangur á
þvi fer fram.
Skipið er búið öllum fullkomn-
ustu tækjum sem völ er á.
Helztu tæki i brú eru:
Radsjár tvær, Raytheon báðar,
64 sjómflna langdrægi. Dýptar-
mælar, annar Atlas 780 með fisk-
sjá og botnstækkun, hinn er af
gerð Atlas 470. Asdic er af gerð-
inni Simrad SK3, ásamt flot-
vörpusjá gerð FL2. Loran, Mieco.
Miðunarstöð, Taio. Talstöð,
Skanti TRP400. örbylgjutæki,
Storno 600, 28 rása. Giróáttaviti
og sjálfstýring af gerð Anschútz.
Fiskilest:
Fiskilest er 17 metrar að lengd,
325 rúmmetrar og er aftari hluti
hennar gerður fyrir stöflun fiski-
kassa, en röskur þriðjungur er
innréttaður fyrir isun fiskjar i sti-
ur. Lestin er kæld með rörakerfi
i lofti og á að halda hitastigi við
frostmark. Kælivél er Bitzer VI
Wa, 10 hestöfl. Einangrun lestar
er polyuretan, sem sprautað er
milli byrðings og 4 mm stálplötu-
klæðninga, sem er bæði á lofti og
þiljum, en botn er einangraður
með frauðplasti og steinsteypu-
gólfplötu. Færiband er eftir endi-
langri fiskilest.
Isvél af Finsam-gerð framleiðir
6 tonn af is á dag og isflutnings-
tæki eru einnig af Finsam-gerð og
flytja þau isinn i slöngum þangað
sem hann er notaður.
Fiskimóttakan tekur 28 rúm-
metra af fiski ,,upp úr sjó” og
blóðgað er i fjögur blóðgunarker,
sem taka samtals nálægt 16 tonn-
um af fiski. Slægingaborð eru
Framhald á bls. 15.
Hinn nýji skuttogari sem Stálvik hefur smiðaðog hleypt verður af stokkunum í dag.
Er olía í Skerja-
firðinum?
Okkur var skýrt frá
þvi i gær, að nokkuð
væri af þvi að þeir sem
gengju um fjöruna á
Skerjafirðinum, neðan
við oliutanka Skeljungs,
fyndu dauða og hálf-
dauða fugla, og taldi
viðmælandi okkar að
I oliutönkum Skeljungs i
Skerjafirði er þessa stundina ein-
vörðungu geymd olia sem gufar
mjög fljótt upp, svo sem flugvéla-
olia, flugvéla- og bilabensin.
Indriði sagði að vitað væri til
þess að oft dældu skip svartoliu i
sjóinn, og væri það gert út við
Gróttu, bærist hún inn Skerja-
fjörðinn, en það er einmitt svart-
olian sem er hættulegasti meng-
unarvaldurinn.
Indriði sagði að tankar Skelj-
ungs væru ekki lekir. —úþ.
ER ÞAÐ NÚ EKKI
TILVINNANDI?
fuglar þessir hefðu
drepizt vegna oliumeng-
unar.
Indriði Pálsson, forstjóri Skelj-
ungs, sagði okkur að til þeirra
hefði komið oliuskip fyrir nokkr-
um dögum, en þeim væri ekki
kunnugt um að nokkuð hefði farið
niður úr þvi. Þetta skip flutti
hingað flugvélabensin og veldur
það ekki mengun þar sem það
gufar mjög fljótt upp.
Fyrir neðan bensinstöð þá sem
er framan við Klúbbinn við
Lækjateig er fjaran heldur Ijót
vegna klóaks, en það er ekki lagt
nægilega langt út i sjó, þvi á fjöru
kemur rörastokkurinn upp fyrir
yfirborð sjávarins og smitar alla
fjöruna.
Kona, sem til okkar hringdi i
gær, sagði að hún hefði vegna
þessa máls talað við þrjá opin-
bera embættismenn borgarinnar
sem málið varðaði. Sögðu þeir að
þetta hefði verið svona i mörg ár,
og þegar konan spurði eftir þvi
hvort ekki væri á döfinni að ráða
bót á þessu, var henni svarað þvi
til, að það yrði ekki gert þetta ár-
ið, hugsanlega yrði byrjað á þvi á
næsta ári, en svona væri ástandið
með flest frárennsli i borgarland-
inu og frágangur á þeim kostaði
slikar upphæðir að lapgan tima
tæki að ganga svo frá þeim öllum
að ekki yllu vandræðum.
Þó svo að fjörur séu freistandi
leikvöllur barna og hið ákjósan-
legasta göngusvæði fyrir fólk,
Fyrirlestrar
á vegum
Krabbameins-
félagsins
í sambandi við fund Nordisk
Cancerunion i Reykjavik 2.—5.
júlí n.k. mun prófessor N.F.C.
Gowing, forstöðumaður meina-
fræöideildar Thc Royal Marsden
llospital, I.ondon, flytja tvo fyrir-
lestra i boði Krabbameinsfélags
islands og læknadeiidar Háskóla
islands.
Fyrri fyrirlesturinn verður
fluttur i kennslustofu l.andsspit-
alans mánudaginn 2. júli og hefst
kl. 15.00
Efni: Tumours of the Testis.
Siðari fyrirlesturinn verður
fluttur i 1. kcnnslustofu Háskól-
ans fimmtudaginn 5. júli og hefst
kl. 17.00.
Efni: Unusual Infections
(„Opportunistic” infections) in
Neoplastic Desease of the
Lymphoreticular System.
Prófessor Gowing er þekktur
sem læknir og visindamaður,
einkum fyrir rannsóknir sinar á
ýmsum tegunduin illkynjaðra
æxla.
ætti fólk ekki að venja komur sin-
ar þangað meðan þessum málum
hefur ekki verið komið i viðun-
andi horf, og kannski sizt á heit-
um sumardögum þegar klóakilm-
Frambald á bls. 15.
Skrökvar
hagsýslu-
stjórinn?
i frétt Þjóðviijans á dögun-
unv af stríði tæknimanna
Landsimans við yfirmenn sina
og fjármálaráðuneytið um
túlkun á þvi atriði hvort tækni-
mennirnir eigi að fá greiddan
uppihaldskostnað úti á landi
eftir framlögðum reikningum
eins og verið hefur, cða fái
1400 krónur á dag, hver sem
uppihaldskostnaðurinn kann
að vcra, eins og fjármálaráðu-
neytið túlkar reglugerð um
þetta atriði, var frá þvi skýrt
aö yfirmenn tæknimanna telja
sig ekki hafa rétt til að leyfa
tæknimönnum ferðir út á land,
scm svo greiðist eftir reikn-
ingum, vegna túlkunar ráðu-
neytisins.
Þjóðviljinn hafði samband
við póst- og simamálastjóra i
gær og spurði hann eftir þvi,
hvort frétt Þjóðviljans hafi
verið rétt. Hann sagði:
Okkur er bannað að senda
fólk út á land, samkvæmt túlk-
un reglugerðarinnar, nema
með dagpeningagreiðslum.
A miðvikudaginn komu
fram i sjónvarpinu ummæli
Gisla Blöndals hagsýslu-
stjóra, en hann er sá sem túlk-
aði reglugerðina fyrir fjár-
málaráðuneytið. Ummæli
hans voru á þann veg, að ,,yf-
irmanni hverrar stofnunar
væri frjálst að úrskurða i
hverju tilviki, að kostnaður
skyldi greiddur eftir fram-
lögðum reikningum.”
Hins vegar sagði póst- og
simamálastjóri að aðeins sé
um að ræða slikar greiðslur i
neyðartilfellum, eða þegar
sérstaklega stendur á. — Hér
fer annar hvor aðilinn með
rangt mál.
— úþ.
Skattskrárnar koma
Byrjið að
spara!
Nú cr vissara að fara að
leggja fyrir peninga þvi bless-
aðar skattskrárnar fara að
lita dagsins ljós senn hvað lið-
ur, og þá er of seint að byrja
sparnaðinn.
Hjá embætti rikisskatt-
stjóra fengum við þær upplýs-
ingar að þó svo landslög gerðu
ráð fyrir þvi að skattskrár
væru lagðar fram fyrir 20.
júni, hefði þó engin , litið
dagsins ljós enn sem komið er.
Sennilegt er að skattskrá
Reykjaneskjördæmis komi
fyrst þessara þreyðu bóka, og
er búizt við henni fyrir 10. júli.
Reykjavikurskattskráin mun
svo aðlikindum koma næst, þó
svo skattskrá Norðurlands-
kjördæmis eystra veiti henni
harða keppni, en við þeim
þessum er búizt um miðjan
júli. Aðrar skattskrár munu
svo koma hver af annarri þar
til allir hafa fengið sinn dóm,
og er stefnt að þvi að þær verði
sem flestar komnar út fyrir 20.
júli. — «Þ-