Þjóðviljinn - 30.06.1973, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. júni 1973.
Samkomulags■
grundvöllur
flugfélaganna
Stjórn Flugfélags Islands h.f.
og stjórn Loftleiða h.f. hafa
ákveðið að beita sér fyrir
saméiningu alls reksturs beggja
félaganna og að allar eignir
þeirra og dótturfélaga þeirra fari
undir eina yfirstjórn i sameinuðu
félagi, að fengnu samþykki hlut-
hafafunda. Eru báðir aðilar sam-
mála um þaö, að slik sameining
sé þjóðhagslega hagkvæm og i
þágu hagsmuna beggja félag-
anna.
Til grundvallar ákvörðun
eignahlutfalla i nýju sameinuðu
félagi hafa aðilar orðið sammála
um eftirfarandi málsmeðferð:
1) Eignahlutföll Flugfélags Is-
lands h.f. og Loftleiða h.f. i nýju
sameinuðu flugfélagi verði metin
og ákvörðuð af þriggja manna
matsnefnd.
Leitað verði eftir þvi við
Landsbanka Islands aö hann til-
nefni þrjá hæfa, óvilhalla menn i
matsnefndina. Matsnefnd skal
við störf sin leita aðstoðar
sérfróðra, óvilhallra aðila um hin
ýmsu atriði sem lausn verkefnis
hennar varða, eftir þvi sem hún
telur ástæðu til.
Flugfélögin tilnefna hvort sinn
aðila, sem annast milligöngu
milli matsnefndar og félaganna
um öflun gagna og upplýsinga.
2) Við mat og ákvörðun á eigna-
hlutföllum félaganna og hlutdeild
i nýju sameiginlegu félagi skal
matsnefnd leggja eftirgreind
atriði til grundvallar:
a) Efnahagsreikningur
(„status”) félaganna pr.
uppgjörsdag. Skal matsnefnd
fá óvilhalla endurskoðendur til
að ganga úr skugga um og
votta, að reikningar séu rétti-
lega gerðir og eftir sömu regl-
um að öðru leyti en leiðir af b-d
liðum hér á eftir og að allar
kröfur, sem vitað er um, hafi
komið fram.
b) Flugvallartæki og bifreiðir
skulu metin til endurkaupa-
verðs að frádregnum eölilegum
afskriftum fyrir fyrningu og
sliti. Annað lausafé Loftleiða
h.f. skal reiknað á bókfærðu
verði samkv. heildarreikningí
félagsins, en annað lausafé
Flugfélags tslands h.f. á tvö-
fölldu bókfærðu verði.
c) Endurmeta skal allar innlend-
ar fasteignir beggja félaganna,
svo og flugvélaeign þeirra,
varahreyfla og aðra varahluti.
Erlendar fasteignir skal reikna
á bókfærðu verði samkvæmt
heildarreikningum Loftleiða
h.f. og dótturfélaga þess. 1
útreikningi á eignahluta
Loftleiða h.f. skal Hekla Hold-
ings Ltd og International Air
Bahama Ltd., talin til frádrátt-
ar frá nettóeign, með upphæð,
sem nemur öfugum höfuðstól
I.A.B. á uppgjörsdegi, að
frádregnum $ 751.535.00. Verði
I.A.B. i heild selt fyrir 31. des.
1973 fyrir hærra verð en $
751.535.00 eða a.m.k. 33% þess
fyrir hlutfallslega hærra verð,
skal I.A.B. reiknað til eignar i
samræmi við það söluverð.
d) Við mat á fasteignum félag-
anna, innlendum og erl. skal
ekki tekiö tillit til viöskipta-
vildar („Goddwill”). bó skal
matsnefnd i sambandi við mat
á eign Loftleiða h.f. i Cl-44
flúgvélum og varahlutum i þær
hafa hliðsjón af arðsemi flug-
vélanna i rekstri.
3) Mat á fasteignum og lausafé
skv. liðum 2b og 2c miðast við
verðlag i júni 1973.
Niðurstöður nefndarinnar skulu
vera bindandi fyrir báða aðila um
hlutaskiptingu, þó þannig, að
hundraðshluti þess félags, sem
minna telst eiga, verði aldrei
lægri en 35%.
4) Uppgjör samkvæmt lið 2a
miðast við 1. ágúst 1973. Rekstur
félaganna skal frá þeim degi lúta
sameiginlegri stjórn, hvort sem
ákveðið verður að þau verði frá
þeim degi sameinuð i eitt
rekstrarfélag eða starfi áfram
um sinn hvort undir sinu nafni.
5) Sameiginleg stjórn skal
skipuð jafnmörgum aðilum frá
hvoru félagi og skal hún sitja til
aðalfundar 1976, en þá fer fram
kosning stjórnar með venjulegum
hætti.
Fara skal þess á leit við Lands-
banka Islands að hann velji og til-
nefni óhlutdrægan aðila til að
sitja sem oddamaður i stjórn hins
sameiginlega félags til aðalfund-
ar 1976.
6) Hið bráðasta verði hafnir
samningar um þau atriði, sem
varða sameiningu félaganna,
framkvæmd hennar og fyrir-
komulag. 1 þeim samningum
verði m.a. fjallað um félagsform-
ið, meðférð og áhrif krafna og
eignaaukningar, sem siðar kann
að koma fram og varðar liðinn
tima, skuldbindingar og kvaðir,
sem á félögunum kunna að hvila
og varða framtiðina, meðferð á
vandamálum starfsmanna, er
upp kunna að koma vegna
sameiningarinnar,
framkvæmdastjórn, fyrirkomu-
lag flugrekstursins i upphafi
fyrstu skref til hagræðingar,
samninga við hið opinbera
um niðurfellingu opinb. gjalda
vegna sameiningarinnar o.fl.
7) Stefnt skal að þvi, að
samningum þessum ljúki eigi siö-
ar en 30. april n.k. og verði þeir þá
bornir undir atkvæði hluthafa
beggja félaganna. Skulu
hluthafafundir beggja félaganna
haldnir sama dag. Að fengnu
samþykki hluthafa verði rekstur
félaganna sameinaður frá og með
1. ágúst 1973, sbr. 4 tl. hér að
framan.
íslandsmótið
I. DEILD
1 dag kl. 15 leika á
N j arðvíkurvelli
ÍBV - ÍBA
Komið og sjáið spennandi leik.
ÍBV.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Geir leikur með
Göppingen
nœstu tvö árin
Geir ætlaði sem kunnugt er að
fara til danska liösins Stadion
næsta vetur og leika þar í 1—2
ár. Hann hefur hinsvegar ekki
ennþá fengiö undanþágu til að
leika i Danmörku, en til þess
þarf hann að búa þar i 6 mánuði.
Formaður danska handknatt-
leikssambandsins tilkynnti hon-
um siöan um daginn, að þrátt
fyrir að undanþágubeiðni hans
hefði enn ekki hlotiö endanlega
afgreiöslu, væri liklegt að Geir
yrði ekki gefiö leyfið.
Geir hefur þvi skrifað Stadion
og tilkynnt þeim, að hann sjái
sér ekki fært að bíða öllu lengur,
og aö hann muni þvi ekki koma
til liðsins.
Hann hefur ákveðið að fara i
staöinn til Þýzkalands og leika
þar með einu sterkasta félags-
liöinu Frich auf Göppingen.
Samningur hans gildir næstu 2.
árin.
Göppingen urðu Evrópu-
meistarar árin 1960 og 1962 og
hafa oröið margfaldir Þýzka-
landsmeistarar, siðast árið
1972. Þeir komu hingaö til lands
i boði Framara þá um haustið.
Geir sagði, i samtali við Þjóö-
viljann, að stökkið héðan til
Danmerkur væri vissulega mik-
ið, en að fara til Þýzkalands
væri mun meira stökk, og hann
væri sannfærður um, aö þarna
væri hann kominn á toppinn i
handknattleiknum.
Keppni um hverja stööu i
Göppingen er geysihörð, mann-
skapur þar er nægur og Geir
sagöi aö það yrði vafalaust tölu-
verð vinna að koma sér strax
inni liöið. Göppingen á alltaf
3—5 menn i þýzka landsliðinu.
Engin ákvæði eru i þýzku lög-
unum um vissa búsetu i landinu
áður en leyfi til keppni meö fé-
lagsliöum er veitt. Þjóðverjar
virðast vera aö opna allar gáttir
fyrir utanaðkomandi menn,
vilja greinilega veita nýju og
fersku blóði i handboltann. Að
visu er ætlazt til tveggja mán-
aða búsetu i landinu, en það
kvað vera mjög teygjanlegt, og
auðvelt mun vera að fá undan-
þágur.
Geir hefur verið i sambandi
við Göppingen i 1 1/2 mánuð og
nú hefur verið ákveðið að hann
haldi utan i lok júli.
Þegar hann verður kominn
inni málið mun Geir taka til við
iþróttakennslu að einhverju
leyti.
Skelfing voru þeir klaufalegir
iif
i
M i i - i
i 1
m v m
|j
Golfkeppni Iþróttafréttamanna
fór fram i fyrradag á velli Golf-
klúbbs Ness. Keppnin hefur verið
haldin árlega undanfarið, og það
er umboð Saab á tslandi, Sveinn
Björnsson h.f. se, gefur verölaun-
in, en þau eru ekki af lakara tag-
inu: bikar, verðlaunapeningar,
húfur, öskubakkar og blöörur.
Það bar öllum saman um það
strax i upphafi, að Ömar
Ragnarsson væri allra manna
klaufalegastur i þessari keppni;
hann kunni bókstaflega ekki neitt
og hagaði sér eins og algjör aula-
bárður.
Jón Birgir Pétursson tók
keppnina hinsvegar i fullri alvöru
og sigraði glæsilega; fór á 54
höggum þær 9 brautir sem leikið
var á.
1 ööru sæti varð Ólafur Gisla-
son, einnig frá Visi, eins og Jón
Birgir. Þriðji varð Agúst Jónsson
frá Morgunblaðinu.
Fern verðlaun voru veitt I þessu
móti; þrir fyrstu fengu verðlaun
og fulltrúi Þjóðviljans, Gunnar
Steinn, fékk skammarverðlaun
fyrir að vera eini maöur
keppninnar, sem fór brautirnar á
yfir 100 höggum!
-gsp