Þjóðviljinn - 30.06.1973, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 30.06.1973, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. júní 1973. íslenzki dansflokkurinn Stjórnandi: ALAN CARTER Frumsýning i Félagsheimili Seltjarnarness sunnudaginn 1. júli kl. 21.15. önnur sýning fimmtudaginn 5. júli kl. 21.15. EFNISSKRA: Sköpunin Jónas i hvalnum Boöorðin Aögöngumiöasala i dag kl. 16-18 og sunnudaginn 1. júli frá kl. 18. Simi 22676 Lögreglustarf í Þorlákshöfn Fyrirhugað er að ráða bráðlega 2—3 lög- regluþjóna með aðsetri i Þorlákshöfn en i starfstengslum við lögregluna á Selfossi. Nánari upplýsingar um starfið má leita til Jóns Guðmundssonar, yfirlögreglu- þjóns á Selfossi, sem einnig lætur umsókn- areyðublöð i té, þeim sem hafa áhuga fyrir þessu starfi. SÝSLUMAÐUR ÁRNESSÝSLU Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar, Bronco bifreið, farangursvagn og ennfremur nokkrar ógangfærar fólksbifreiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 3. júli kl. 12—3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. Sala varnarliðseigna Af aðalfundi Hjartaverndar Mikið starf en fjárhagur mjög þröngur Aðalfundur Hjarta- verndar, landssamtaka hjarta- og æðaverndarfé- laga á Islandi, var haldinn í Tjarnarbúð 4. júní sl. I upphafi fundarins minntist prófessor Sigurður Samúelsson, formaður samtakanna, Sigurliða Krist jánssonar, kaup- manns, en Siguriiði var einn af stofnendum samtakanna og átti sæti í framkvæmdastjóm þeirra. í skýrslu framkvæmdastjóra kom fram, að starfsemi Hjarta- verndar hefir veriö framkvæmd eftirþeirri áætlun sem samin var 1972 til júniloka 1973, en áætlun þessi fellur inn i þann ramma, sem ákveöinn var viö byrjunar- rannsókn samtakanna 1967. í höfuðatriðum var starfsemin framkvæmd i fjórum þáttum: 1) Lokið við II. áfanga kvenna- rannsóknar i Reykjavik. 2) Þjónustu viö tiivisunarsjúk- linga meö sama hætti og áöur. 3) Sept. — okt. 1972 voru rann- sakaöir ibúar Siglufjarðarhéraðs á aldrinum 41 — 60 ára. 4) 1 nóvember sl. hófst ranns- ókn kvenna i Árnessýslu, sem mættu til rannsóknarstöðvar Hjartaverndar. Stuttyfirlitum rannsóknarstörf TROPICANA er hreinn safi úr u.þ.b. 2'M kg. af Flórida appelsínum. í hverjum dl. eru minnst 40 mg. af C-vítamini og ekki meira en 50 hita- einingar. sólargeislinn frá Florida kr 85 l'Átíg appelsinur kr 169,- Hjartaverndar frá byrjun, eöa árinu 1967, sýnir aö lokiö er kerfisbundinni rannsókn á Reyk- víkingum á aldrinum 33 ára til 60 ára, tveim áföngum karla og tveim áföngum kvenna. Þriöji og siöasti áfangi af báöum kynjum er eftir, sem lokiö veröur 1975 — 76. A næsta starfsári er aðal- áherzla lögð á rannsóknir á fólki á landsbyggöinni, og veröur lagt kapp á aö ljúka þessum rann- sóknum þar. Er brýn nauösyn á að þaö takist, þar eöslðustutvö ár af tiu ára áætlun samtakanna eru alveg bundin viö framkvæmd kerfisbundnu rannsóknanna i Reykjavik, og þarf þá aö rann- saka alla þrjá flokka karla og kvenna, sem verður um 9000 þátt- takendur hvort áriö. Reynt veröur aö veita til- vísunarsjúklingum sams konar þjónustu og verið hefir. Viðvikjandi rannsókn á fólki úr Arnessýslu er þetta aö segja: ,,Af ýmsum ástæöum þótti hag- kvæmt að boöa þetta fólk til rann sóknar á stööina i Reykjavik. Boöiö var til skoöunar öllum körlum og konum, sem fædd voru árin 1907 — 1934, alls nálægt 2.000 manns. Boðsbréf til kvennahópsins voru send i nóvember og er sýnt að þátttaka mun veröa mjög góö, allt aö 80%. Rannsóknin hófst 6/12. I marzmánuði hófst rannsókn á körlum i Árnessýslu, og verður væntanlega lokið aö mestu fyrir 1. júli n.k. Næsti áfangi Suöurlandsrann- sóknar verður Rangárvallasýsla og V.-Skaftafellssýsla." Nauðsynlegt er aö ljúka ranns- óknum á fólki á landsbyggðinni á næsta ári. Er hér um stórátak að ræða, sem ekki veröur fram- kvæmanlegt nema með mikilli aðstoð frá viðkomandi bæjar- og sveitarstjórnum og góðri samvinnú við stjórnir Hjarta- og æðaverndarfélaganna úti á landi. Sá alvarlegi atburður skeöi á s.l. ári, aö samtökin voru svipt tekjustofni sinum, og veitt fjár- framlag kr. 5.000.000.00 á fjár- lögum, sem mun aöeins vera helmingur þess, sem samtökin hefðu hlotið, ef þau hefðu notið áfram tekjustofns sins. Siðar var fjárhæð þessi hækkuð i meðförum Alþingis i kr. 6.000.000.00. Við þessa lagabreytingu var ekkert samráð haft við stjórn samtakanna, og er þvi greinilegt, að samtökin eru sniðgengin, þar eð ekki verður séð, að sama hafi verið látið ganga yfir önnur liknarfélög. Ráðstöfun þessi kom þvi stjórn- inni mjög á óvart, og varð hún þess vegna að gripa til samdráttar i starfsemi rann- sóknarstöðvarinnar, sem komið hefir fram i minnkuðum afköstum. Framkvæmdastjórn hefir nú þegar snúið sér tii Heilbrigðis- og Tryggingamálaráðuneytisins um leiðréttingu þessa máls. Allar áætlanir Hjartaverndar eru byggðar á þvi, að samtökin njóti þessa tekjustofns til ársins 1976, eins og lögin gerðu ráð fyrir. Skilyrði fyrir þvi, að lokið verði öllum áætlunum rannsóknanna er þvi að veitt verði tilsvarandi fjárhæð á fjárlögum næstu ára, en þetta atriði hefir stjórnin lagt þunga áherzlu á við ráðuneytið. Verður máli þessu haldið til streitu, og starfsemi samtak- anna haldið áfram samkvæmt áætlun i von um að leiðrétting fáist. Starfslið rannsóknarstöðvar- innar hefir verið að mestu óbreytt. Olafur Ólafsson, for- stöðumaður rannsóknar- stöðvarinnar, lét af störfum 1. Sigurður Samúelsson. október s.l., er hann tók við störfum landlæknis. Hann hefir veitt stööinni forstöðu frá byrjun, eða frá árinu 1967. Atti hann einn mestan þátt i allri uppbyggingu rannsóknarstöðvarinnar, ásamt Nikulási Sigfússyni, lækni, núver- andi forstöðumanni. Þakkar framkvæmdastjórn ólafi land- lækni vel unnin störf I þágu samtakanna á undanförnum árum, um leið og hún óskar honum góðs gengis i mikilvægu starfi, sem honum hefir verið falið. A árinu bárust samtökunum nokkrar veglegar gjafir. Guðbjartur Jónsson, Skipasundi 85, Reykjavik, arfleiddi samtökin að kr. 200,000,00. Guðrún Sveinsdóttir frá Bjarnastaðahlið i Skagafirði gaf þann 19. ágúst á siöasta ári Hjarta- og æöaverndarfélagi Skagafjarðar og Krabbameins- félagi Skagafjarðar þrjár miljónir króna. Akvað hún að stofna sjóð til styrktar þessum félögum og lagði fram stofnfram- lagið, þrjár miljónir króna. Þetta fé kemur aö sjálfsögðu aö góðu haldi, þegar rannsókn hefst i Skagafirði, sem væntanlega veröur þegar Suðurlandsrann- sókn lýkur. I marzmánuði kom hingað til lands yfirlæknir Otto Briisis, frá endurhæfingarstöð fyrir hjarta- sjúka i Waldkirch i Suður-Þýzka- Iandi. Flutti hann fyrirlestur um þessa starfsemi i Land- spitalanum. I framhaldi_ af heimsókn yfirlæknis Briisis, dvaldist pröfessor Sigurður Samúelsson til að kynna sér nánar endurhæfingu hjarta- sjúkra, bæði i Waldkirch i Suður- Þýzkalandi um vikutima, og aðra viku á Rikisspitalanum i Kaupmannahöfn á hjartasjúk- lingadeildinni. Þar kynntist hann yfirsjúkraþjálfara i þessum fræðum og fékk hana i boði Hjartaverndartilað koma hingað til lands og halda námskeið með islenzkum sjúkraþjálfurum i endurhæfingu hjartasjúkra.Nám- skeið þetta verður haldið i Land- spitalanum dagana 4 — 9 júni. (Frá Hjartavernd) 2!^2sinnui LENGRI LÝSIN n neOex 2500 klukkustunda lýsing við eðlilegar aðstæður (Einu venjulegu perurnar framleiddar fyrir svo langan lýsingartíma) NORSK ÚRVALS HÖNNUN Heildsala Smásaia Einar Farestveit & Co Hf! Bergstaðastr. 10A Slmi 169951

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.